Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1996, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1996, Blaðsíða 31
LAUGARDAGUR 1. JUNÍ 1996 íennmg 39 Frumsýning íslenska dansflokksins á Listahátíð í Reykjavík: Féhirsla vors herra - eftir Nönnu Ólafsdóttur og Sigurjón Jóhannsson - byggt á sögu Guðmundar biskups hins góða íslenski dansflokkurinn frumsýn- ir nýtt verk eftir Nönnu Ólafsdóttur og Sigurjón Jóhannsson á Listahá- tíö í Reykjavík í Borgarleikhúsinu nk. þriðjudagskvöld. Danssýningin nefnist Féhirsla vors herra og er byggð á sögu Guðmundar Arasonar, biskups hins góða, sem Arngrímur Brandsson, ábóti í Þingeyr- arklaustri, skráði á sínum tíma. Tónlistin er eftir Jón Leifs og Franc- is Poulenc. Að sögn Magnúsar Árna Skúla- sonar, framkvæmdastjóra dans- flokksins, fjallar sýningin um bisk- upstíð Guðmundar góða og ófriðar- bál það sem tendraðist af vígslu hans til biskups á Hólum í Hjaltadal árið 1202 og fylgdi honum til dauða- dags 1237. „Sem biskupi er honum vísað til sætis með höfðingjum þjóðveldisins en hann á erfítt með að lúta leik- reglum þeirra vegna lífssýnar sinn- ar og trúarskoðana. Hann stóð ekki einungis vörð um rétt kirkjunnar og þjóna hennar, heldur um sér- hvem einstakling sem til hans leit- aði,“ segir Magnús. Eins og áður sagði verður tónlist Jóns Leifs og Francis Poulenc flutt af bandi í verkinu en tónlistin er einn tákngervinganna fyrir tví- hyggjuna í sýningunni. Verkin Geysir, Landsýn og Hekla eftir Jón Leifs, i flutningi Sinfóníuhljóm- sveitar íslands undir stjórn Pauls Zukofsky, og Karlakórs Reykjavík- ur, verða flutt í átakasenunum. Verkið sveiflast frá djöfullegum átökum höfðingjans Kolbeins Tuma- sonar og biskups til hæstu hæða kristilegrar sannfæringar. Verkið Gloría eftir Poulenc táknar hina guðdómlegu dýrð og Paradísarhug- mynd Guðmundar góða biskups. Gloria verður flutt af bandi í flutn- ingi Sinfóníuhljómsveitar Boston undir stjórn Seiji Ozawa. Einsöng í verkinu syngur Katheleen Battle sópran en kórsöngur er í höndum Hátíðarkórs Tanglewood. Deutsche Grammophon gefur út 1989. Hany Hadya fer með hlutverk höfuðandstæðings Guðmundar, Kol- beins Tumasonar stórhöfðingja. Hany er gestadansari íslenska dans- flokksins og dans- og leiklistarunn- endum að góðu kunnur. Hann er fæddur í Vínarborg og stundaði bal- lettnám hjá Scapino og Nel Roos Academie í Amsterdam og Rotterd- amse Dansakademie. Hann var með- limur íslenska dansflokksins á árunum 1988-1995 og hefur starfað á íslandi sem danskennari og sjálf- stæður atvinnudansari. Hany er þekktur tangódansari og hefur kennt tangó í Kramhúsinu við góð- an orðstír. Jóhann Freyr Björgvinsson fer með hlutverk Guðmundar biskups en Jóhann er einn okkar fremsti karldansari í ballettnum. Af öðrum helstu hlutverkum má nefna Láru Stefánsdóttur sem Maríu mey og Júlíu Gold sem Selkollu. Þá fer Guð- mundur Helgason með nokkur hlut- verk. Alls taka 10 dansarar dans- flokksins þátt í sýningunni, 3 nem- endur Listdansskólans og 3 leikar- ar, þeir Sigurður Karlsson, Theodór Júliusson og Stefán Sturla Sigur- jónsson. -bjb Frá æfingu íslenska dansflokksins á Féhirslu vors herra, nýju dansverkl eft- ir Nönnu Ólafsdóttur og Sigurjón Jóhannsson. DV-mynd BG Ný gjaldskrá fyrir póstþjónustu Frá og með 1. júní 1996 hækkar gjaldskrá fyrir póstþjónustu. Hækkunin er að meðaltali um 15%. Burðargjald fyrir bréfapóst innanlands og til útlanda hækkar að meðaltali um 15%. Burðargjald fyrir 20 gr bréf innanlands hefur verið óbreytt frá 1/10 1991 eða í 56 mánuði. Gjaldskrá fyrir annan bréfapóst hækkaði síðast 1/11 1992. Samanburður á 20 gr bréfapóstsendingum á Norðurlöndunum er eftirfarandi (ísl. kr., gengi 22/5 1996): 20 gr bréf innanlands 20 gr bréf til Evrópu 20 gr bréf til landa utan Evrópu A-póstur B-póstur A-póstur B-póstur ísland 35 45 35 65 40 Noregur 36 46 41 56 46 Svíþjóð 37 60 50 75 60 Finnland 40 46 37 49 34 Danmörk 43 43 40 57 54 Tekið verður upp 1 kg og 2 kg þyngdarþrep fyrir böggla innanlands. Burðargjald fyrir þá verður 245 kr. fyrir 1 kg og 275 kr. fyrir 2 kg. Gjald fyrir 3 kg, 5 kg, 10 kg og 15 kg böggla innanlands hækkar um 15% en gjald fyrir 20 - 30 kg böggla innanlands lækkar. Gjaldskrá fyrir böggla innanlands hækkaði síðast 1/10 1991. Gjaldskrá fyrir Póstgíróþjónustu til útlanda verður óbreytt frá 16/11 1995. • Hámarks skaðabætur fyrir böggul sem glatast eða eyðileggst verða áfram 22.500 kr. • Hámarks skaðabætur fyrir glatað ábyrgðarbréf verða áfram 3.500 kr. • Skrásetningargjald fyrir verðbréf hækkar í 180 kr. • Ábyrgðargjald hækkar í 180 kr. • Skrásetningargjald fyrir verðböggla hækkar í 225 kr. • Gjaldskrá fyrir EMS sendingar til útlanda verður óbreytt en hún hækkaði siðast 1/3 1995. • Gjaldskrá fyrir EMS sendingar innanlands verður óbreytt en hún hækkaði síðast 1/11 1992. • Gjaldskrá fyrir Póstfaxþjónustu verður óbreytt. Burðargjald fyrir 20 gr bréf innanlands hefur verið óbreytt frá 01.10. 1991, eða í 56 mánuði. Ný gjaldskrá liggur frammi á ölium póst- og símstöðvum. Póstburðargjöld 01. 06.1996 Þyngd grömm INftlAW- LANDS Bréfapóstur A-póstur B-póstur A-póstur B-póstur 20 35 45 35 65 40 50 45 85 60 125 70 100 55 110 70 210 90 250 105 215 145 440 210 500 145 410 215 815 390 750 185 575 315 1200 590 1000 200 700 410 1435 770 1250 215 820 480 1750 910 1500 235 950 550 2070 1050 1750 250 1060 625 2350 1200 2000 265 1150 685 2640 1320 POSTUR OG SIMI Viö spörutn þér sporiu 0P\Ð laugM®*6 KL. <\0'17 LANGUR LAUGARDAGUR Á LAUGAVEGI OG í NÁGRENNI! Allar verslanir verða opnar til kl. 17 í dag. Margt verður í boði, t.d. leiktæki á víö og dreif um Laugaveg, Bankastræti og Skólavörðustíg, börnum verður boðið upp á andlitsmálun. Vörukynningar verða á svæðinu, m.a. hjá versluninni Mitt í náttúrunni að Laugavegi 53 og j flestar verslanir verða með margs konar spennandi tilboð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.