Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1996, Page 51
LAUGARDAGUR 1. JUNI1996
%éttir,
Bingóferðir gjaldþrota
Enn ein samkeppnis-
tilraunin í vaskinn
- samgönguráðuneytið krefur Whilborg Rejser um úrlausn gagnvart farþegum
Enn ein tilraunin til að sam-
keppni um ódýrt millilandaflug til
og frá íslandi hefur runnið út í
sandinn þegar Bingóferðir lögðu
upp laupana í fyrradag eftir aðeins
tæplega hálfs mánaðar starfsemi.
Skemmst er að minnast áður Emer-
ald flugfélagsins sem hjarði lungann
úr sumrinu i fyrrasumar áður en
það gafst endanlega upp. Sú saga
var rakin í fréttaljósi DV í mars-
mánuði sl.
Alls voru seldir um 1.400 farmið-
ar milli íslands og Kaupmannahafn-
ar á um 10 þúsund krónur hver
miði, en hver miði gildir aðra leið.
Miðar hafa því verið seldir fyrir um
14 milljónir króna. Kostnaður við
hvert flug fæst ekki uppgefinn en
samkvæmt markaðsverði fyrir 170
sæta Airbus, eins og All Leisure,
flugrekstraraðili Bingóferða notaði,
má gera ráð fyrir því að þær tvær
ferðir sem flugfélagið flaug hafi
þurft að greiða minnst sex milljónir
króna, flugið sem Flugleiðir tóku að
sér hafi kostað 1,5 milljónir króna,
auglýsingar og launakostnaður og
annar kostnaður hafi numið um
þremur milljónum og útlagður
kostnaður sé því 10,5 milljónir
króna og til skiptanna sé því í
hæsta lagi 4,5 milljónir. Tryggingafé
sem Bingó lagði fram í samgögnu-
ráðuneyti vegna rekstrar útibús
Whilborg ferðaskrifstofunnar nem-
ur um 10 milljónum króna.
Sé gert ráð fyrir því að um 100
manns hafi getað notað miða sína
að fullu, þá þarf ýmist að endur-
greiða eða leysa á annan hátt mál
1.300 manns, sem ýmist standa með
ónýta farmiða í höndunum eða eru
strandaglópar og ólíklegt er að
tryggingaféð í samgönguráðuneyt-
inu og hugsanlegir sjóðir Bingós
dugi þar til.
Lélegur undirbúningur
Forsaga Bingóferða hófst seint á
síðasta ári þegar Hilmar A. Kristj-
ánsson byrjaði að leita hófanna við
bresk leiguflugfélög um samvinnu
um flug milli London og Keflavíkur.
Hilmar átti um tíma í viðræðum við
samsteypu nokkurra flugrekstrar-
aðila sem heitir IAG, eða
Independent Aviation Group og hef-
ur aðsetur á Gatwick flugvelli í
London. Að sögn talsmanna IAG
voru samningar langt komnir
skömmu eftir sk áramót. Engu að
síður varð niðurstaðan sú að fyrir-
tæki Hilmars, Bingó ehf. til samn-
inga við flugfélagið All Leisure um
flug tvisvar í viku frá Gatwick til
Keflavíkur um Kaupmannahöfn og
til baka til Gatwick um Kaup-
mannahöfn. Flugið átti að hefjast
um miðjan mai og standa fram á
haustið, eða út septembermánuð
a.m.k.
Hilmar hugsaði sér þetta flug á
svipaðan hátt og hugmyndin var á
sínum tíma hjá Freddy Laker
Airways. Öll yfirbygging átti að
vera í lágmarki og sjálft flugið hugs-
að nánast eins og rútubíll, þannig
að fólk keypti sér far aðra leiðina í
einu á tilteknum degi og þá fyrst
þegar búið væri að greiða miðann
væri sæti frátekið í vélinni. Engar
pantanir átti að vera hægt að gera
fyrirfram og ef farþegi vissi ekki
hvænær hann kæmi til baka, þá
einfaldlega keypti hann sér miða
aðra leiðina fyrst og síðan hina leið-
ina þegar hann færi heim. Þannig
kostaði farið frá London til Kaup-
mannahafnar um sjö þúsund krón-
ur aðra leiðina og milli Kaup-
mannahafnar og íslands um 10 þús-
und krónur aðra leið og var jafndýrt
frá hvorum endanum sem ferðalag-
ið hófst.
Svo virðist sem undirbúningi fyr-
ir starfsemina hafi verið mjög
ábótavant af hálfu Bingó ehf. og
lágu mjög lauslegar eða engar at-
huganir fyrir um sölumöguleika á
sætum milli London og Kaup-
mannahafnar og engir samningar
voru til við söluaðila í London þeg-
ar flugið hófst. Það kom líka á dag-
inn að í þau tvö skipti sem All
Leisure flaug fyrir Bingó, voru eng-
ir borgandi farþegar í vélinni milli
London og Kaupmannahafnar og
tapið í heild minnst fjórar milljónir
króna. „Þetta var alveg að drepa
okkur og því
var ekkert
annað að gera
en að hætta
þessu flugi,“
sagði Hilmar
við DV, en
með því að
leggja þennan
fluglegg niður
var ekki leng-
ur grundvöllur
fyrir samstarfi
við All Leisure
og hætta það
flugi fyrir
Bingó.
Þrjú flug
o| sagan
Eftir að All
Leisure var úr
sögunni var
næsta flugi,
sem fljúgja átti
þann 21. maí
frestað og loks
flugu Flugleið-
ir því síðasta,
þann 24. maí. í
samtali við DV
um það leyti
sagði Hilmar
að verið væri
að Ijúka samn-
ingum við nýj-
an flugrekstr-
araðila og yrði
ný ferðaáætlu-
in tilbúin fyrir
næsta flug þann 28. maí. Það gekk
ekki eftir því að síðdegis daginn fyr-
ir flugið var kominn á símsvari á
símanúmer Bingós sem tilkynnti að
flugið félli niður en ný ferðaáætlun
yrði tilbúin á hádegi daginn eftir.
Þessi skilaboð voru svo á símsvar-
anum þar til á fimmtudagskvöld, en
á föstudagsmorgni, í gærmorgun
voru komin ný skilaboð sem sögðu
að Bingó ehf. væri gjaldþrota og
handhafar farmiða beðnir að snúa
sér til sambönguráðuneytisins.
Sölumál í ólestri
Sölumálin hér heima voru alla
hina stuttu starfstíð Bingó í megn-
um ólestri. Hilmar A. Kristjánsson
leitaði til nokkurra ferðaskrifstofa
um að þær seldu farmiða í flugið
hér á landi en engin vildi taka að
sér söluumboðið, enda krafðist
Hilmar þess að ferðaskrifstofurnar
ábyrgðust í raun flugið og stað-
greiddu honum hvert sæti, en
fengju síðan umboðslaunin greidd
síðar.
Ferðaskrifstofurnar kærðu sig lít-
ið um að ábyrgjast flug fyrir ein-
hvern mann úti í bæ sem hefði alla
möguleika á að hlunnfara þær og
farþegana, eins og stjórnandi reyk-
vískrar ferðaskrifstofu orðar það
við DV og bætir við að Bingó hafi
hugsað sér að annast ferðaskrif-
stofurekstur án þess að hafa til þess
nein leyfi, en láta aðra bera alla
ábyrgð gagnvart farþegum.
Eftir að ferðaskrifstofurnar höfðu
hafnað alfarið samstarfi á þessum
nótum varð endirinn sá að lítil
ferðaskrifstofa, Whilborg Rejser í
Kaupmannahöfn tók að sér farmiða-
söluna í Danmörku og á íslandi og
voru ódýrar Kaupmnannahafnar-
ferðir auglýstar hér á landi af skrif-
stofunni í Kaupmannahöfn og fór af-
Fréttaljós
Stefán Ásgrímsson
greiðslan fram í gegn um síma.
Samgönguráðuneytið gerði alvar-
legar athugasemdir við þetta og
varð þá að ráði að Whilborg opnaði
útibú í skrifstofuhúsnæði Hilmars
og fyrirtækja hans, Bingó og Kvóta-
markaðarins og tók að selja far-
miða. Þetta var hægt á grundvelli
laga um viðskiptafrelsi innan EES
en Whilborg ferðaskrifstofan hefur
tilskilin leyfi til reksturs í Dan-
mörku og þar með á hinu evrópska
efnahagssvæði. Ráðuneytið féllst á
þetta eftir að hafa ráðfært sig við
ESA, Eftirlitsstofnun EES, sem taldi
að ferðaskrifstofuleyfi Whilborg
gilti einnig hér á landi. Whilborg
var þó krafin um að leggja fram
jafnháa tryggingu vegna rekstrarins
hér á landi eins og íslenskum ferða-
skrifstofum er gert að gera, sem er
um 10 milljónir króna. Auk þess
hafði skrifstofan þegar lagt fram til-
skilið tryggingarfé í Danmörku sem
er mun minna, eða um tvær milljón-
ir ísl. króna, en veitir um leið að-
gang að öflugum tryggingasjóði
danskra ferðaskrifstofa þannig að
bótageta þeirra er verulega meiri en
sem nemur dönsku tryggingarupp-
hæðinni.
1.400 ferðir seldust
Alls seldust um 1.400 farmiðar
sem fyrr segir. „Það voru margir
sem tóku þessu boði. Fargjöldin
voru ódýr og fólk gat keypt annan
legginn á tæplega 10 þúsund krón-
ur,“ segir Helgi Jóhannesson deild-
arstjóri í samgönguráðuneytinu.
Helgi segir
að ráðuneyt-
ið hafi verið
og sé í sam-
bandi við
ESA, Eftir-
litsstofnun
EES um
þessi mál og
um að hvaða
marki
rekstrarleyfi
í öðrum EES
löndum gildi
hér á landi
og von sé á
samantekt
um þau mál
frá stofnun-
inni. Hann
segir að
vegna þess
hve miklar
breytingar
eru að verða
í flugmálum
í álfunni þá
séu mál enn
nokkuð í
lausu lofti
og hætta á
óhöppum
sem geta
komið niður
á neytenda-
verndinni.
Helgi segir
að ekki sé
orðið ljóst
hver kostn-
aður ráðu-
neytisins
vegna þrota
Bingó verði
þegar öll kurl verða komin til graf-
ar. Þó sé þegar ljóst að á áttunda tug
manna þurfi að koma til síns heima.
Whilborg ber alla
ábyrgð '
Ráðuneytið telur engan vafa leika
á því að Whilborg ferðaskrifstofan
danska sé að fullu ábyrg gagnvart
öllum farþegunum, því það var
ferðaskrifstofan sem seldi alla mið-
ana, hvort sem það var ferðaskrif-
stofan sjálf eða útibú hennar hér
heima og hennar ferðaskrifstofu-
leyfi var að baki viðskiptunum.
Kurt Whilborg og Hilmar A.
Kristjánsson lýstu því hins vegar
báðir yfir í fjölmiðlum að Bingó
væri ábyrgt gagnvart farþegunum
þar sem ferðaskrifstofan hafi staðið
skila á andvirði seldra miða til
Bingós. Ráðuneytið ritaði Whilborg
ferðaskrifstofunni bréf í fyrradag og
krafði hana svara um hvernig hún
ætlaði að standa að því að uppfylla
skuldbindingar sínar gagnvart því
fólki sem hafði keypt Bingófarmiða.
Ráðuneytið krefst þess jafnframt í<~
bréfinu að ferðaskrifstofan sjái til
þess að handhafar farmiða komist í
ferðir sínar eða fái farmiða sína
endurgreidda að öðrum kosti. Þá er
þess krafist að ferðaskrifstofan
standi straum af þeim kostnaði sem
af málinu hefur hlotist og á eftir að
hljótast eftir því sem tryggingar
duga ekki til. Ferðaskrifstofunni er
jafnframt tilkynnt að ráðuneytið
hafi gert samkomulag við Flugleiðir
að flytja þá farþega til síns heima
sem eru strandaglópar í Danmörku
og á íslandi. Um forsendur krafna
ráðuneytisins á hendur ferðaskrif-
stofunni saegir í bréfiunu í lauslegri
þýðingu:
„Ráðuneytið fékk í hendur þann'
15. maí sl. bréflega umsókn frá
Whilborg Rejser um ferðaskrifstofu-
leyfi í sambandi við opnun útibús
hér á landi. í framhaldi af því lagði
umboðsmaður yðar, Bingó ehf. fram
nauðsynlegar tryggingar vegna
ferðaskrifstofuleyfisins. Ráðuneytið
telur því að Whilborg Rejser hafi
uppfyllt öll skilyrði fyrir því að reka
ferðaskrifstofu hér á landi og hafl
öll réttindi og skyldur á sínum herð-
um samkvæmt íslenskum lögum til
rekstrarins." Ráðuneytinu hafði
ekki borist svar ferðaskrifstofunnar
síðdegis í gær.
Hugmyndaríkur
draumóramaður
Hilmar A. Kristjánsson segir við
DV að það sé alveg ljóst af viðbrögð-
um við tilboði Bingós um ódýrar
Kaupmannahafanarferðir að þörfin
sé fyrir hendi. meginástæða þess
hvernig fór sé sú að flugleiðin milli
London og Kaupmannahafnar hafi
reynst algerlega mislukkuð. - enb
hver er þessi Hilmar?
Hilmar A. Kristjánsson starfaði ’
sem útgefandi blaða og tímarita upp
úr miðjum sjötta áratugnum. Hann
átti og rak prentsmiðjuna Hilmi og
gaf m.a. út Vikuna, Úrval, Eimreið-
ina og fleiri blöð af miklum mynd-
arskap, sérstaklega var Vikan á
þeim tíma stórveldi á tímaritamark-
aðnum.
Á þessum tíma voru öll dagblöð
sem gefin voru út á íslandi málgögn
stjórnmálaflokka og gefm út undir
þeirra stjórn. Hilmar réðist í það
árið 1962 að gefa út dagblað algjör-
lega óháð stjórnmálaflokkum og hét
það Mynd.
Útgáfa þess varð ekki langlíf en
alls munu hafa komið út 38 tölu-
blöð, en það sem einkum varð því
að aldurtila var prentaraverkfall
sem skall á skömmu eftir að útgáfa
Myndar hófst.
Eftir að Mynd var gjaldþrota yf-
irtók Axel Kristjánsson, kenndur
við Rafha, rekstur Hilmis en Hilmar
tók sig upp og flutti til S-Afríku þar
sem hann byrjaði á að reka vinnu-
miðlun, eða eins konar útvegunar-
þjónustu fyrir hjúkrunarfræðinga,
en einnig fékkst hann við bókaút-
gáfu og við flugvélaleigu o.fl. Eftir
að hann fluttist heim fyrir fáum
árum síðan opnaði hann uppboðs-
markað fyrir notaða bíla í Reykja-
vík sem ekki seldi einn einasta bíl á
uppboði. Um svipað leyti hóf hann
ásamt syni sínum rekstur kvóta-
miðlunar sem enn starfar. Hilmar
segir í samtali við DV að hann hafi
tapað verulegu fé á bílauppboðs-
markaðnum og nú síðast á
Bingóævintýrinu og sé orðið ansi
lítið í buddunni, eins og hann orðar
það. -SÁ
Forsaga Bingóferða hófst seint á síðasta ári þegar Hilmar A. Kristjánsson byrjaði að
leita hófanna við bresk leiguflugfélög um samvinnu um flug milli London og Kefla-
víkur. Hilmar segir að hann hafi tapað verulegu fé á bílauppboðsmarkaðnum og nú
síðast á Bingóævintýrinu og sé orðið ansi iítið í buddunni, eins og hann orðar það
DV-mynd GVA