Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1996, Qupperneq 56
Atla laugardagai
j, Vertu viðhúinfn) i
mmmf vinningi!
3Íl:9e(MMMs)
©@0
KIN
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjálst,óháð dagblað
LAUGARDAGUR 1. JUNI 1996
Vinnubrögð rannsóknaraðila stórlega ámælisverð í sakamáli gegn Magnúsi Hreggviðssyni:
Fýrning vegna aralangra
tafa hjá rannsóknaraðilum
- í málsmeðferðinni fólust brot á ákvæðum laga, stjórnarskrárinnar og mannréttindasáttmála
Héraðsdómur Reykjavíkur telur
vinnubrögð rannsóknaraðila stór-
lfega ámælisverð í máli ákæruvalds-
ins gegn Magnúsi Hreggviðssyni,
stjórnanda Frjáls framtaks, sem
höfðað var vegna meintra skatt-
svika og brota á lögum um hlutafé-
lög. Magnús var alfarið sýknaður af
sakargiftum í gær enda var vísað til
þess að brot hans, sem dómurinn
taldi hann þó að hluta til sekan um,
voru fyrnd. Sérstaklega var tekið til
þess að sakarefni málsins haíl þeg-
ar verið fyrnd þegar ákæra var gef-
in út í málinu.
Rannsókn skattrannsóknar-
stjóra á ætluðum brotum Magnús-
ar hófst í ágúst 1988. Fleiri en tveir
starfsmenn unnu samfellt við
rannsóknina fram i desember 1991,
samkvæmt dóminum. Á þeim tima
var Magnús aldrei kallaður til
skýrslutöku. Á Þorláksmessu þetta
ár sendi skattrannsóknarstjóri síö-
an bréf til Rannsóknarlögreglu rík-
isins og vísað hann málinu þang-
að. Beiðni var hins vegar lögð fram
um að nauðsynlegar ráðstafanir
yrðu gerðar til að koma í veg fyrir
hugsanlega fyrningu sakarefna.
Skýrsla var síðan tekin af Magn-
úsi þann 30. desember 1991 en síð-
an aðhafðist RLR ekkert í málinu
fyrr en skýrsla var aftur tekin af
honum í október 1995, tæpum fjór-
um árum síðar. Yfirskattanefnd
hafði í millitíðinni haft málið til
meðferðar.
Héraðsdómur telur að RLR hafi
ekki átt að bíða eftir niðurstöðu
skattkerfisins og að fyrirtakan í
desember 1991 hafi ekki rofið fyrn-
ingarfrest, þ.e. komið í veg fyrir
fyrningu sem eru sex ár í þessu til-
viki. Engu breytti að rannsóknar-
lögreglustjóri hafi þá verið við-
staddur og tilkynnt Magnúsi að op-
inber rannsókn væri hafin.
Það að RLR hafi ekkert sinnt
málinu í tæp 4 ár telur héraðsdóm-
ur stórfelldan drátt og andstæðan
lögum um að hraða skuli rannsókn
mála og brjóta jafnframt i bága við
6. grein mannréttindasáttmála
Evrópu - þar segi m.a. að sá sem
borinn sé sökum um refsiverða
háttsemi skuli án tafar fá vitneskju
í smáatriðum um eðli og orsök
þeirrar kæru er hann sætir. Magn-
ús hafi hins vegar fyrst sætt yfir-
heyrslu um sakarefnið í október
1995.
„Þá er í 1. mgr. 6. gr. mannrétt-
indasáttmálans kveðið á um rétt
sakaðs manns um réttláta og opin-
bera málsmeðferð innan hæfilegs
tima fyrir sjálfstæðum og óvilhöll-
um dómstóli. Dráttur málsins hjá
rannsóknaraðilum hefur komið í
veg fyrir að þetta væri unnt í máli
þessu,“ segir í dóminum. Einnig
var visað til ákvæða stjórnarskrár
lýðveldisins í þessum efnum. Guð-
jón St. Marteinsson héraðsdómari
kvað upp dóminn. Ótt
Alþingi:
Umdeildasta
frumvarpið
samþykkt
Umdeildasta frumvarp þessa
þings, sem nú fer senn að ljúka,
frumvarpið um stéttarfélög og
vinnudeilur, var samþykkt sem lög
frá Álþingi í gær.
Guðmundur Hallvarðsson, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins, greiddi
einn stjórnarliða atkvæði einn gegn
frumvarpinu.
Frumvarpið var samþykkt eftir
nafnakall með 31 atkvæði gegn 19.
Þrír þingmenn höfðu fjarvistarleyfi
og 10 voru fjarverandi. -sdór.
□F
Opel Astra
Verð kr.
1.199.000.-
Bílheimar ehf.
’^rjbSœvarhöföa 2a Sími: 525 90001
L O K I
Guðný Guðmundsdóttir, konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitar íslands, grípur hér í nærri 330 ára gamla Amati-fiðlu
sem uppboðsfyrirtækið Sotheby’s í London lánaði vegna setningar Listahátíðar í Reykjavík í Listasafni íslands í
gærkvöldi. Guðný lék þar einleik á fiðluna eftir Bach. Nicole Amati smíðaði fiðluna árið 1670 og er hún metin á um
15 milljónir króna. Hún verður til sýnis í Listasafni íslands um helgina. DV-mynd Brynjar Gauti
70 hestar fljúga
út um helgina
DC-8 flutningaflugvél fer frá
Keflavíkurflugvelli til Calgary í
Kanada á morgun með um 70 reið-
hesta sem fara til kaupenda í
Kanada og norðvesturríkjum
Bandaríkjanna. Góður markaður
hefur skapast þarna fyrir íslenska
hesta, að sögn Axels Ómarssonar,
en hann og Sigurbjörn Bárðarson,
hinn kunni hestamaður, hafa flutt
hesta út til Kanada, Washington-,
Idaho- og Oregonríkja.
„Viö gerum mjög strangar gæða-
kröfur til þeirra hesta sem seldir
eru út því að einn lélegur hestur
getur skaðað þennan markað alvar-
lega,“ segir Axel. Hann segir að
þessi hestamarkaður hafi tekið
mjög vel við sér fyrir um tveimur
árum en mikil vinna hafi verið lögð
í að kynna íslenska hestinn, sögu
hans, ættfræði, dómakerfi, umhirðu
og notkun á þessu svæði.
Hestaútflutningur sé mjög við-
kvæmur því að í raun sé verið að
selja ákveðinn lífsstíl en ekki bara
hrossakjöt á fæti. Því verði að skapa
jafnframt góð og varanleg tengsl við
kaupendurna og aðstoða þá, fræða
og mennta í öllu sem viðkemur ís-
lenska hestinum. -SÁ
Veðriö á sunnudag:
Slydduél norðanlands
Minnkandi norðvestanátt, stinningskaldi verður norðaustanlands
fram eftir degi en hægari vindur annars staðar. Slydduél verða norð-
an- og norðaustanlands, skúrir vestanlands og hætt við síðdegisskúr-
um sunnanlands.
Hiti verður 1 til 10 stig, hlýjast sunnanlands
Veðrið á mánudag:
Bjartviðri norðan- og vestanlands
Á mánudaginn verður austanátt, stinningskaldi og fer að rigna suðaust-
antil á landinu er líður á daginn en hægari vindur og lengst af bjartviðri
norðan- og vestanlands.
Hiti verður 8 til 13 stig, hlýjast vestanlands.
Veðriö í dag er á bls. 61
Sutiniidagiir