Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1996, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1996, Qupperneq 10
10 LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 1996 I>"V Björk Guömundsdóttir er fræg- asti íslendingur allra tíma. Plötur hennar hafa selst í milljónum ein- taka og siðastliðið ár hefur hún ver- ið á tónleikaferð um heiminn, tón- leikaferð sem nálgast enda sinn þeg- ar hún stígur á stokk i Laugardals- höllinni 21.júní. Hana hlakkar til að koma heim, saknar aðallega súrefn- isins. Forsetakosningar eru á næsta leyti. Aðspurö segist hún hafa fylgst nógu mikið með þeim til að finnast þær ekki mjög áhugaverðar. Hún styður ennþá Vigdísi, en aðspurð um álit sitt á embættinu svarar hún: „Það er svo ofsalega mikilvægt varðandi samskipti íslands við aðr- ar þjóðir, ekkert endilega pólitísk samskipti. Vigdis hefur verið svo ótrúlega góður fulltrúi, ég get ekki ímyndað mér neinn gera það eins vel eða betur en hún gerði.“ Heimsfrægðin Nú hefur verið sagt að Björk sé stærri en ísland á alþjóðavísu. Hvernig upplifir hún heimsfrægð- ina? „ Ég vinn náttúrlega bara mína vinnu, skilurðu. Ég vinn tólf til sextán tíma á dag og vinnan hjá mér felst ekki í því að keyra um í límúsínu allan daginn og grípa blómvendi, heldur bara að hafa áhyggjur af dagsdaglegum hlutum sem allir þurfa að hafa áhyggjur af. Það bilar eitthvert tæki og þá þarf maður að skrúfa það, og fjórði kafl- inn í laginu er ekki nógu hress og þá þarf maður að vinna í því, þannig að ég reyni að einbeita mér meira að sjálfri mér. Hugsa frekar á daglegt amstur en eitthvað annað. Björk tekur enn allar ákvarðanir um feril sinn sjálf og segir það mjög mikilvægt. „Það er ekki af því að ég vilji endilega stjóran heiminum heldur er það meiri spuming um að vernda mig og mína tónlist. Það er nú bara einu sinni þannig í lífinu að ef maður tekur ekki sjálfur ákvörðun þá getur maður veriö viss um að einhver annar er að því. Ég er kannski bara mjög vel upp alinn íslendingur sem vill ekki láta neinn ráða yfir sér.“ Að búa erlendis? „Ég fóma náttúrlega heilmiklu og þá kannski helst súrefninu, náttúr- lega fyrir utan vini og ættingja, en sem betur fer er ég það heppin að ég held mjög góðu sambandi. Fólk kemur bæði í heimsókn til mín og ég fer til þess. Aðalmunurinn við að búa hér er bara vinnuaðstaðan. Það sem myndi taka mig svona mánuð að gera á íslandi tekur mig einn dag að gera í London.“ Popptextar Björk hefur þótt afkastmikill lagasmiður á ferli sínum. Nú hefur hún hinsvegar meira að gera en oft áður. Á kvöldin eru tónleikar, á daginn endalaus viðtöl, ferðalög og svo stúdíóvinna. Hefur hún ein- hvern tíma til að semja tónlist þessa daganna? „Já, ég hef nú alltaf verið þannig að þegar ég sest niður með geisla- baug og blýant þá kemur ekkert lag. En ef ég sinni mínu daglega lífi og geri það sem mér sýnist þá koma lög af því að flest mín lög eru popp- lög. Ég lit á mig sem popptónlistar- mann í þeim skilningi að ég er að semja tónlist fyrir alþýðufólk um venjulegar aðstæður sem allir lenda í. Að lenda í bíislysi, að vera ekki í skapi til að fara í vinnuna, verða ástfanginn, missa heilan rúsínu- poka í fangið á bankastjóranum . . . eða bara svona hlutir sem allir lenda í. Maður semur ekki góð popplög með því að einangra sig inni í einhverri svítu og drekka kampavín og borða vínber.“ „Það kemur út plata í haust með „Sem popptónlist fyrir alþýðufólk" Björk um tónleikana, forsetaframboðið, heimsfrægðina, líf eftir dauðann, íslenskuna, Goldie og margt fleira. endurhljóðblöndunum af alls konar lögum sem hafa nú þegar komið út. Síðan er ég hálfnuð með næstu plötu, en ég veit ekki hvenær hún kemur út. Líklega einhvern tíma á næsta ári.“ En hvernig ætli Björk líti á feril- inn, einhverjar breytingar framund- an? „ Aðallega það að ég er hætt í upprifjuninni. Debut og Post eru voða mikið bara upprifjun af tón- listinni sem ég var að gera á íslandi frá því að ég var smápolli. Þær eru meira svona uppgjör á öllu því sem ég hef gert á íslandi. En nú er kom- ið að því sem ég er í dag, 1996.“ Líf eftir dauðann? „Já ég trúi á líf eftir dauðann, en mér finnst fólk stundum taka þetta aðeins of bókstaflega. Ég held að líf- ið sé allt of flókið. Mér finnst enn þá jafn ótrúlegt að vísindamenn geti kíkt út i heim og horft á stjörnuþokur og sólkerfi snúast, milljónir plánetna og stjama og hrokinn er svo mikill að þeir segja ekkert líf vera þarna úti. Ég bara skil það ekki alveg. Ég ætla ekkert að deyja strax, en ég breytist kannski í sand eða eitthvað ósýnilegt. Mér finnst bara svo þröngsýnt að halda að líf geti bara verið með tvo fætur, tvær hend- ur og einn haus. Þetta er aðeins flóknara en það.“ Sambandið við Goldie Þrátt fyrir tólf til sextán tíma vinnudag, endalaus ferðalög, laga- smíðar, samningagerð o.fl. hefur Björk rýmt til fyrir ástarsambandi í sínu lífi. Sá heppni heitir Goldie, er tónlistarmaður og kemur fram ásamt Björku í Höllinni 21.júní. Og það sem allir vilja fá að vita: Er gift- ing í vændum? „ Við erum ekki búin að ákveða neitt. Ég held við höfum einu sinni kysst úti á götu og það kom í blaði daginn eftir að við ættum fimm tví- bura. Fjölmiðlar virka nú bara einu sinni þannig." astie Boys setja upp til styrktar sjálfstæðisbaráttu Tíbet búa. Tón- leikaferðalagið hefur staðið yfir í tæpt ár og á meðan undirritaður tal- aði við hana í síma var hún á leið- inni á blaðamannafund í Svíþjóð. Verður hún ekkert þreytt á öllum þessum ferðalögum? „ Ég er náttúrlega búin að vera að ferðast meira og minna síðan ég byrjaði í Kuklinu. Þá var ég sextán eða sautján ára. Ég veit ekki al- veg hvort ég kynni að búa í sama húsi í fimm ár til dæmis. Mér líkar það mjög vel. Þegar mað- ur er síðan búinn að fá nóg þá fer maður bara heim.“ En hverjir eru eft- irminnilegustu stað- irnir sem þú heim- sóttir á síðasta ári? „ Ég held nú alltaf upp á Spán, við gerð- um það líka í Sykurmolunum, en mér fannst æð- islega gaman að koma til Tælands og mér fannst Hong Kong æðisleg, alveg frábær. Það er það næsta sem ég hef komist „Blade Runner“ (framtíðartryllir með Harrison Ford í aðalhlutverki). Tokyo er bara eins og Hveragerði við hliðina á Hong Kong. Hong Kong er frábær. En þegar tónlist- armenn æfa þá fyrir íslendinga. Spumingin sem brennur á margra vömm þessa daganna er hinsvegar: Á hvaða tungumáli verða tónleikarnir? „ íslensku. Ég sem allt á íslensku og svo hef ég svona verið að remb- ast við að þýða þetta fyrir grey út- lendingana, þeir skilja náttúrlega ekki orð i íslensku.“ Hvað vill Björk segja við þá sem langar til að fara á tónleikana en eru ekki enn búnir að kaupa sér miða? „Ég hef nú aldrei verið fyrir það að gabba fólk, sko. Þeir gera náttúr- lega það sem þeir vilja. Fyrir þá sem vilja fylgjast með því sem er að gerast í enskri danstónlist þá mæli ég með Plaid, Goldie og plötusnúðn- um Grooverider, þessir menn eru svo langsamlega fremstir í sínum geira í Bretlandi, jafnvel heiminum. Þar með þakkaði undirritaður fyrir sig, Björk lagði farsímann á hilluna og hélt keyrslu sinni á hrað- brautum Svíþjóðar áfram. Hingað kemur fjallkonan 21.júní, með fimm tonn af búnaði, tvær að- stoðarhljómsveitir, Plaid (sem spila einnig með henni), kærastann Goldie og plötusnúða sem kalla sig Grooverider. Endurhljóðblandanir í haust, plata á næsta ári og tónleikar hér á landi eftir tæpa viku. Það er nóg að gera hjá Björk Guðmundsdóttur, óskabarni þjóðarinnar. % Guðjón Bergmann Björk og Goldie. „Við erum ekki búin að ákveða neitt í sambandi við brúð- kaup. Ég held við höfum einu sinni kysst úti á götu og það kom í blaði dag- inn eftir að við ættum fimm tvíbura. um tónleikum Laugardalshöll- inni 21.júní, segist hafa ver- ið allt árið að

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.