Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1996, Qupperneq 31
LAUGARDAGUR 15. JUNI1996
(jþenning
39
Píanósnillingur
á listahátíð
Rússneski píanósnillingur-
inn Jevgení Kissin heldur ein-
leikstónleika á píanó i Há-
skólabíói í dag, laugardaginn
15. júní, kl. 16 Jevgení Kissin
er aðeins 24 ára gamall en
þrátt fyrir ungan aldur hefur
hann vakið meiri athygli í tón-
listarheiminum en nokkur
annar listamaður síðustu ára-
tugi, eða allt frá því Vladimir
Horowitz var og hét. Gagn-
rýnendur fullyrða að annar
eins túlkandi rómantískrar
tónlistar fyrirfinnist ekki og
hann hefur þegar efnt fyrir-
heit sem einn glæsilegasti pí-
anóleikari þessarar aldar. í
samtali við DV sagðist Kissin
ekki muna eftir sér öðruvísi
en við píanóið, hann hefði far-
iö að spila um leið og hann
náði upp á nótnaborðið. Ferill
Kissins hefur líka verið ævin-
týralegur. Hann hóf tónlistar-
nám í Gnessin-tónlistarskólan-
um í Moskvu og lék nótna-
laust eigin útsetningu á
Hnotubrjótnum eftir Tsjajkov-
skí. Tíu ára gamall kom hann
fyrst fram opinherlega sem
einleikari og 12 ára vakti hann
heimsathygli þegar hann lék báða
píanókonserta Chopins með Fíl-
harmóníuhljómsveitinni í Moskvu,
undir stjórn Dmitri Kitayenkos.
Kissin kom fyrst
fram utan Sovétríkj-
anna í Austur-
Berlín vorið 1985 og
Belgrad haustið
1986 og fór í sína fyrstu tónleikaferð
til Japans í október 1986 með hljóm-
sveitarstjóranum Vladimir Spi-
vakov. Fyrstu tónleika sina í Vest-
ur-Evrópu hélt Kissin á Listahátíð-
inni í Berlín 1987 og seinna sama ár
kom hann aftur til Evrópu og hélt
tónleika í Þýskalandi og Frakk-
landi. Vorið 1990 kom Kissin fyrst
fram í Norður-Ameríku. Þá lék
hann píanókonserta Chopins með
Fílharmóníuhljómsveitinni í New
York og hélt einleikstónleika í
Carnegie Hall. Gagnrýnendur luku
Jevgení Kissin,
heims í dag.
eftirsóttasti píanóleikari
DV-mynd ÆMK
L i
allir miklu lofsorði á þennan unga
snilling og upptaka frá tónleikunum
var útnefnd til Grammy-tónlistar-
verðlaunanna. Árið 1992 lék Kissin
fyrir rúmlega eina milljón áhorf-
enda við verð-
launaafhending-
una sem sjónvarp-
að var um allan
heim. Kissin er
bókaður 2 ár fram í tímann enda er
hann einn af eftirsóttustu konsertpí-
anistum heims. Hann kvaðst ánægð-
ur með ferðalögin, hann héldi sam-
bandi við vini og ættingja í gegnum
símann, auk þess sem hann ætti
vinafólk í fjölda landa. Hann sagðist
alltaf reyna að sinna öðrum áhuga-
málum en tónlistinni og helst vildi
hann nýta frítíma sinn í lestur og
gönguferðir.
Á tónleikunum mun Kissin leika
verk eftir Bach og Busoni, Beetho-
ven, Chopin og Brahms. -ggá
(/ U- 10
Viðarvörn
og bæs
á úðabrúsum
9 viðarlitir
Fæst í flestum byggingavöru-
og málningavöruverslunum um
land allt.
DAGSKRA
17.JÚNÍ 1996
Dagskráin hefst
Kl. 09.55
Samhljómur kirkjuklukkna í
Reykjavík
Kl. 10.00
í kirkjugarðinum við Suður-
götu. Forseti borgarstjómar,
Guðrún Ágústsdóttir, leggur
blómsveig frá Reykvíkingum á
lciði Jóns Sigurðssonar.
Lúðrasveit Reykjavíkur leikur:
Sjá roðann á hnjúkunum háu.
Stjómandi: Jóhann Ingólfsson.
Skátar standa heiðursvörð.
Við Austurvöll
Lúðrasveit Reykjavíkur leikur
ættjarðarlög á Austurvelli.
Skátar standa heiðursvörð.
Kl. 10.40
Hátíðin sett: Steinunn V.
Óskarsdóttir, formaður Þjóð-
hátíðamcfndar, flytur ávarp.
Karlakórinn Fóstbræður
syngur: YFir vom ættarlandi.
Stjómandi: Jónas Ingimundarson.
Forseti íslands, Vigdís Finnboga-
dóttir, leggur blómsveig frá
íslensku þjóðinni að minnisvarða
Jóns Sigurðssonar á Austurvelli.
Karlakórinn Fóstbræður syngur
þjóðsönginn.
Avarp forsætisráðherra,
Davíðs Oddssonar.
Karlakórinn Fóstbræður syngur:
ísland ögmm skorið.
Ávarp Qallkonunnar.
Lúðrasveit Reykjavfkur leikur:
Ég vil elska mitt land.
Kynnir: Jón Guðni Kristjánsson.
Kl. 11.15
Guðsþjónusta í Dómkirkjunni.
Séra Karl Sigurbjömsson
prédikar. Prcstar dómkirkjusafnaö-
arins þjóna fyrir altari.
Dómkórinn syngur undir stjóm
Marteins H. Friðrikssonar.
Einsöngvari: Loftur Erlingsson.
Skrúðgöngur frá
Hlenimi og Hagatorgi
Kl. 13.20
Safnast saman á Hlemmi.
Kl. 13.30
Skrúðganga niður Laugaveg að
Ingólfstorgi.
Lúðrasveitin Svanur leikur.
Stjómandi: Haraldur Ámi
Haraldsson.
Kl. 13.30
Safnast saman á Hagatorgi.
Kl. 13.45
Skrúðganga frá Hagatorgi í
Hljómskálagarð.
Lúðrasveit verkalýðsins leikur.
Stjómandi: Tryggvi M.
Baldvinsson.
Skátar ganga undir fánum og
stjóma báðum göngunum.
Tjörnin og umhverfi
Kl. 13.00-18.00
í Hallargarði vcröur minfgolf,
fimleikasýning, leiktæki, spá-
konur, listförðun fyrir böm,
skylmingar, Tóti trúður og
félagar og margt fleira.
Á Tjöminni verða árabátar frá
siglingaklúbbi ÍTR og sýning
módelbáta. í Vonarstræti ekur
Sautjánda júní lestin.
Hljómskálagarður
Kl. 14.00 - 17.00
Skátar sjá um tjaldbúðir og
þrautabraut.
Skátavaka.
Aðstaða til bleyjuskipta fyrir
ungaböm.
Leiktæki fyrir böm.
örvar og Ævar syngja
bamalög.
Stóra grillið.
Tjarnarsalurinn -
Hátíðardagskrá í
| Ráðhúsinu
Kl. 14.30-16.30
P.I.P. homaflokkurinn flytur vinsæl
lög. Sif Ragnhildardóttir og
Sorbahópurinn flytja grísk lög
Stengjakvartett flytur klassíska
tónlist
Polarkvartettinn flytur norræn
vísnalög
Voces Tules
Götuleikhús
Kl. 15.00-17.00
Götuleikhús sUtrfar um allan
Miðbæinn. Fjöldi trúða, trölla,
eldgleypa, risa og furðuvera mun
fara um allt hátíðarsvæðið tneð
ærslum og hamagangi. Einnig
koma fram erlendir fjöllistamenn.
Akstur og sýning
gamalla bifreiða
Kl. 13.15
Hópakstur Fombílaklúbbs
íslands frá Kjarvalsstöðum.
Kl. 13.20
Sýning á Laugavegi við Hlemm.
Kl. 13.30
Ekið niður Laugaveg.
Kl. 14.00-16.00
Sýning við Vonarstræti.
Teiknimyndasagan
Kl. 14.00- 1S.(K)
Sýning í Austurstræli á stóm
útilistaverki / teiknimyndasögu.
Hátíðardagskrá á
Kjarvalsstöðum
Kl. 10.00-18.00
Náttúmsýn í íslenskri myndlist.
Kl. 14.00
Útnefndur borgarlistamaður -
hátíðardagskrá.
Barnadeildir
Landakots-spítala og
Landsspítala
Landskunnir skemmtikraftar
heimsækja bamadeildimar,
skemmta börnunum og færa
þeim gjafir.
Laugardalur:
Fjölskyldu- og
húsdýragarðurinn og fl.
Kl. 10.00-18.00
Tijálfur og Mimli skemmta
bömunum kl. 10.00 - 12.00,
kl. 14.00 ogkl. 16.30. Einnig
verður Hrói hrakfallabálkur á ferð
um garðinn.
Hermirinn við Laugardalslaug:
Opið frá 10.00 - 24.00.
Árbæjarsafn -
Þjóðhátíðardagskrá
Kl. 10.00-18.00
Ýmislegt verður til skemmtunar
á dagskrá sem hefst kl. 14.00.
Þjóðbúningar kynntir og
búningasilfur. Fólk hvatt til að
mæta í sfnum cigin þjóðbúningum.
Hátíðarkaffi og píanóleikur í
Dillonshúsi kl. 15.00.
Þjóðdansar kl. 16.30.
Þjóðniinjasafn íslands
Kl. 11.00-17.00
Sýning í Bogasal. Silfur í
Þjóðminjasafni.
TÝND BÓRN:
SAFNAÐARHEIMILI DÓMKIRKJUNNAR A
H0RNIVONARSTRÆTIS 0G LÆKJARGÖTU.
/ / /
ÞJOÐHATIÐI
REYKJAVÍK
Brúðubíllinn mUm- Dagskrá ásviðum
Kl. 14.00-14.30 Lækjargata
Hamrahlíðarkórinn
Kl. 14.15
Stone free - söngleikur
Kl. 14.40
Ræningjamir -
úr Kardimommubænum
Kl. 14.55
Furðuleikhúsið
Kl. 15.10
Umferðarleikritið Stopp
Kl. 15.35
Pétur Pókus
Kl. 15.45
Anna Mjöll
Kl. 15.50
Borgardætur
Kl. 16.30
Lok
Ingólfstorg
Kl. 14.00
Lúðrasveitin Svanur
Kl. 14.10
Yngstu bömin úr Dansskóla
Hermanns Ragnars
Kl. 14.25
Þjóðdansafélagið
Kl. 14.40
Dansfélagið Gulltoppur
KI. 14.50
Glímudeild KR
Kl. 15.00
Danshópur
Kl. 15.10
Fimleikadeild Ármanns
Kl. 15.20
Danshópurinn Dust
Kl. 15.25
Grænlenskur danshópur
Kl. 15.45
Kúrekadans
Kl. 15.55
Harmonikufélag Reykjavíkur
Kl. 16.30
Lok
Kvöldið
Lækjargata
Kl. 20.00
Stjömukisi
Kl. 20.20
Kolrassa krókríðandi
Kl. 20.50
Eiríkur og Endurvinnslan
Kl. 21.20
Botnleðja
Kl. 21.50
Sóldögg
Kl. 22.30
Funkstrasse
Kl. 23.15
Unun
Kl. 00.10
Emiliana Torrini og hljómsveit
Kl. 01.00
Lok
Ingólfstorg
Kl. 20.30
Hjördís Geirs og hljómsveit
Kl. 22.00
Rússíbanar
Kl. 22.45
Aggi Slæ og Tamlasvcitin
Kl. 24.00
Lok
Merki 17. júní
HálfðarmerkiA hannaAi
Áslmar Ólafswn FÍT.
Merkið cr tákn aukinna mögulcika til útivistar i
borginni og htnna nýju göngustíga sem lagðir hafa
vcrið v(Aa um horgina.
Umsjón
Urmjón mcö dagskrá þjóAhátíðar f Rcykjavík hcfur
þjóAhátíðomcfnd á vcgum íþrótta- og tómstundaráðs
Rcykjavfkur.