Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1996, Qupperneq 27
LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 1996
27
Verkföll í Frakklandi
Almenna verkamannasam-
I bandið í Frakklandi, CGT, boð-
aði til sólarhringsverkfalls hjá
| Air France í síðastliðinni viku
1 vegna starfsskipulagsmála og
I launakjara. Um 30% starfs-
manna Air France á jörðu niðri
j j eru félagar í CGT. Búist er við
frekari vinnustöðvunum í nán-
ustu framtíð.
Og meira um verkföll
Italskir flugvallarstarfsmenn
munu efna til sólarhringsverk-
falls næstkomandi þriðjudag til
að þrýsta á um nýja samninga,
aö sögn verkalýðsleiðtoga.
Flugumferðarstjórar á Ítalíu
hafa einnig tilkynnt um vinnu-
j stöðvanir 24. og 31. október og
6. nóvember. Þessi verkföll
munu koma til með að hafa
' áhrif á öllum ítölskum flugvöll-
um. ítalska flugfélagið Alitalia
hefur tilkynnt að 143 flug muni
falla niður. Flugumferðarstjór-
ar eru með aðgerðum sínum að
1 þrýsta á breytingar á yflrstjórn
I flugumferðarmála.
Aukin samvinna
Flugfélögin SAS, Lufthansa,
United Airlines og Thai Air
ætla að stórauka alla samvinnu
sín í milli. Van Sörensen, fram-
Ikvæmdastjóri SAS, segir að
samvinnan komi til með að
færa flugfélögunum mun meiri
1“ tekjur en áætlað var í upphafí.
Öryggismál í
brennidepli
Bandarisk yfirvöld með flug-
umferðaröryggi og bandarísk
; flugfélög haifa tilkynnt að áætl-
unum um frekara eftirlit með
handfarangri á stórum flugvöll-
um verði frestað um óákveðinn
tíma. Upphaflega átti þetta
aukna eftirlit, sem einkum er
1 beint að vopnabúnaði, að hefj-
Iast í nóvember en flugfélög hafa
haft áhyggjur af því að það
myndi raska gangi mála á flug-
völlunum of mikið. Því hafa yf-
irvöld og flugfélög komið sér
saman um að kanna hve mikil
röskunin kemur til með að vera
og hvemig megi draga úr henni
áður en hinu nýja skipulagi
verður komið á.
ÍLettneskar vega-
bráfsáritanir
Yflrvöld í Lettlandi hafa
ákveðið að hætta að gefa út
vegabréfsáritanir á flestum
landamærastöðviun frá og með
20. nóvember. Frá og með þeim
tima verður aðeins hægt að fá
Iáritanir á alþjóðaflugvellinum í
Riga og hjá ræðismönnum er-
lendis.
Eitt elsta hotel
Dublinar endurnýjað
The Clarence Hotel við Liffey
í Dublin hefur opnað eftir að
hafa verið lokað í eitt og hálft
ár meðan á því voru geröar
endurbætur fýrir 8 milljónir
dollara. Hótelið, sem hefur ver-
ið starfandi frá 1852, er nú með-
al annars í eigu Bono og Edge,
hljómsveitarmeðlima írsku
sveitarinnar U2.
’ _l
* rqX'TTJ
Rám, borgin eilífa:
Fær andlitslyftingu
- fjöldi menningarviðburða og margt að sjá
Fjölmennt lið manna vinnur nú við að hreinsa
aldagamalt sót og önnur óhreinindi af fomum
byggingum og torgum Rómar. Þeir sem heim-
sækja borgina þessa dagana taka líka flestir eftir
því að byggingar, sem áöur höfðu grámyglylegt
yfirbragð, glansa nú sem nýjar. Löngu gleymd
smáatriði og finar línur í hönnun bygginga hafa
aftur komið í ljós. Haustið er reyndar góður tími
Róm er falleg borg og þar er margt aö skoða.
til að heimsækja borgina eilífu við bakka Tíber,
þá er veðrið þægilegt og mikið að gerast í menn-
ingarlífi borgarinnar.
Dregið úr bílaumferð
Dæmi um byggingar sem hafa fengið andlits-
lyftingu eru kirkjurnar við Via del Corso. Þar má
nefha San Marcello kirkjuna. Falleg torg sem
hafa fengið langþráða hreinsun eru Piazza
Navona, Piazza della Colonna og Piazza di Trevi.
Sérstaklega hefur þótt takast vel að hressa upp á
útlit Piazza di Sant’Ignazio sem er gert í
rókókóstíl. Þar er nú bannað að leggja bílum.
Borgaryfirvöld hafa lagt út í aðgerðir eins og
að setja upp stöðumæla til að draga úr umferðar-
öngþveitinu sem ríkt hefur í borginni síðan bíla-
eign varð almenn meðal Rómverja.
Veðurfar hagstætt á haustin
Á haustin fagna íbúar borgarinnar því að veðr-
ið verður bærilegt. Þegar sumarhitunum linnir
streymir svalur vindur frá hálendinu umhverfis
borgina þangað. Þægilegra veðurfar gerir þeim
sem í borginni dveljast kleift að snæða ljúffengan
hádegismat utan dyra. í kvöldsvalanum eru það
ferðamenn frá norðlægum slóðum sem taka yfir
útikaffihúsin.
Listviðburðir
Það er margt að gerast í Róm í haust og í vet-
ur. Þann 24. október hefjast vikulegir kórtónleik-
ar hjá Oratori di Santa Lucia del Gonfolane kóm-
um. Venjulega eru þessir tónleikar haldnir á
fimmtudögum, ýmist í 16. aldar sal hans á 32A
Via del Confolane eða í Palazzo della Cancelleria
höllinni en hún er ein fegursta endurreisnar-
bygging í borginni. Á efnisskránni 7. nóvember
er tónlist eftir Mozart, Bach og Telemann en þá
verður kórinn í Canelleria höllinni. Þann 14. nóv-
ember er það tónlist eftir Mozart og Bettezini sem
verður ríkjandi og flytur kórinn hana í Gon-
falone salnum. Þeir sem eiga leið til Rómar geta
hringt í síma 687 5952 og pantað miða en það
borgar sig að panta með góðum fyrirvara.
Stórsýning á verkum 17. aldar málarans
Domenichino, en hann var arkitekt Gregory XV
páfa, stendur yfir til 10. janúar næstkomandi í
Palazzo Venezia. Sýning á verkum málarans Balt-
hus, sem er enn í fullu fjöri og málar daglega
þrátt fyrir að vera orðinn 88 ára gamall, stendur
yfir frá 24. október til 31. janúar í Piazza Mignan-
elli. Hægt er að panta miða í síma 679 2292 eða 679
1239.
Markverðir staðir
Fáir ferðamenn sleppa því að skoða Péturs-
kirkjuna í Róm en margir missa af þvi að skoða
rústir gömlu Péturskirkjunnar frá 4. öld. Hún var
eitt helsta hæli kristinna manna áður en kristni
var lögleidd í rómverska heimsveldinu. Fámenn-
ar ferðir eru farnar undir Péturskirkjuna en þar
eru fomar rómverskar grafir. Erfitt er að komast
þama að og verða ferðamenn að hafa samband
við sérstaka stofnun, Ufficio Scavi, vilji þeir
sækja um skoðunarferð. Einnig er mælt með því
að ferðamenn skoði San Pietro kirkjuna í
Montorio en þar mun vera stórkostlegt útsýni
yfir Rómaborg. Enn ein kirkjan sem þykir merki-
leg er San Clemente kirkjan. í kjaflara hennar er
4. aldar kirkja og leifar af heiðnu rómversku hofi
frá fyrstu öld. Það er byggt á rústunum frá þvi að
Róm brann á dögum Nerós keisara árið 64 eftir
krist. Samantekt: JHÞ
Kvennaferðir íVillta vestrið:
Allt innifalið, líka kúreki
Ef þú ert kona sem ávallt hefur
dreymt um að gerast kúrekastelpa í
Villta vestrinu þá er ferðaskrifstof-
an Vinland Travel með hárréttu
haustferðina lyrir þig.
Heppnar kúrekadömur gætu lent í
því að dansa tunglskinsdansa við
vestrahetju á borö við Jimmy
Stewart.
Hér er um að ræða helgarferðir
„the cowboy way“ fyrir konur þar
sem tilgangurinn er flótti frá borg-
arlífinu, afslöppun og ævintýri. Da-
gamir fara í nautgriparekstur en
þegar kvölda tekur er farið í reið-
túra í tunglskininu og safnast sam-
an í kringum varðeld til að segja
sögur og borða „sannan kúreka-
mat“. Það eina sem áhugasamar
dömur þurfa að hafa með sér í ferð-
ina em gallabuxur, stígvél, hanskar
og kúrekahattur. Skipuleggjendur
sjá fyrir öllum öðmm nauðsynjum,
þar á meðal hesti, matvælum og
karlmanni!
Hver kona fær myndarlegan kú-
reka sér til fylgdar og er hans starfi
að vemda konuna, kenna henni
réttu handtökin við nautgriparekst-
ur, dansa við hana í tunglskininu,
færa henni kaffi á morgnana og
koníak á kvöldin. Hver ferð kostar
2.900 dollarara og fuflyrða skipu-
leggjendur að þó svo konan hafi
aldrei áður á hest komið þá fari hún
heim sem sönn „cowgirl“.
Hámark í hverja ferð em 14 kon-
ur og eins og eftirspurnin er í dag
þarf að setja sig á biðlista eftir að
komast að. -ggá
Kr. 2
Ullarjakkarnir
komnir aftur
Full búð af nýjum vörum
Úlpur - stuttkápur
síðar kápur - hattar
alpahúfur (2 stærðir)
50%
afsláttur af
Blazer jökkum
(ull/kasmír eða micro/polyester)
\dS
HI/I5IÐ
Mörkin 6, sími 588 5518
(við hliðina á Teppalandi)
Bílastæði v/búðarvegginn
Sendum í póstkröfu
Opið laugardaga 10-16
_L.