Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1996, Blaðsíða 53
J-lV LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 1996
Demi Moore:
Rangeyg og fátæk í æsku
Demi Moore leikur aðalhlut-
verkið í kvikmyndinni Striptease
sem Regnboginn frmnsýndi í gær.
Hún fæddist 11. nóvember 1962 í
Roswell í Nýju-Mexíkó og rétt nafii
hennar er Demetria. Hún hætti í
skóla á menntaskólaárunum. Eig-
inmaður hennar er Bruce Willis en
hún var áður gift rokkaranum
Freddi Moore. Demi Moore á þijú
böm, Rumer Glenn, Scout Lame
og Tallulah Belle. Demi Moore hef-
ur óneitanlega orðið eitt mesta
kyntákn Hollywood með árunum
og fækkar fötum fýrir framan
myndavélamar án þess að depla
auga.
Moore var fjarri því að vera
hamingjusöm og auðug i bemsku.
Hún fæddist ekki með silfurskeið í
munni heldur er af fátækum for-
eldrum komin. Foreldrar hennar,
Danny og Virginia Guynes, giftu
sig og skildu tvisvar og það virtist
ekki eiga fyrir henni að liggja að
neitt yrði úr henni. Faðir hennar
var mestmegnis atvinnulaus og
spilaði fiárhættuspil fyrir þá litlu
peninga sem til vom í fjölskyld-
unni.
Að auki var Moore rangeyg þeg-
ar hún var lítil stúlka en það þurfti
tvær skurðaðgerðir til þess að laga
það. Þegar Moore var orðin sextán
ára var hún farin að vinna fyrir
sér sjálf sem fyrirsæta.
Lykillinn að frama
Þegar hún var átján ára giftist
hún rokkaranum Freddy Moore
sem var tólf árum eldri. Þó að
hjónabandið entist ekki lengi var
það samt lykillinn að frama Demi
Moore. Næsti nágranni þeirra
hjóna var leikkonan Nastassja
Kinski sem bað hana að hjálpa sér
að lesa handrit. Moore ákvað að
reyna sjálf fyrir sér við leikstörf.
Ári síðar hreppti hún hlutverk í
sápunni General Hospital. Hún
hætti þar þegar hún fékk hlutverk
í kvikmyndinni Blame It on Rio
árið 1984.
Demi Moore sló í gegn sama ár
þegar hún lék í kvikmyndinni St.
Elmo’s Fire. Á þeim tíma átti hún
sjálf í baráttu við eiturlyf en var
settur stóllinn fyrir dymar. Hún
fór að vera með leikaranum Emilio
Estevez á meðan á tökum myndar-
innar stóð og samband þeirra ent-
ist í nokkra mánuði. Moore giftist
leikaramnn Bruce Willis eftir
þriggja mánaða samband.
Á toppinn eftir Ghost
Leiðin var greið fyrir Moore á
toppinn eftir að kvikmyndin Ghost
sló eftirminnilega í gegn. Á eftir
fylgdu bitastæð hlutverk eins og
Mortal Thoughts og The Butcher’s
Wife og A Few Good Men. í
Disclosure lék hún konu sem beitir
starfsfélaga sinn kynferðislegri
áreitni. Hún lék einnig í The Scar-
let Letter og nú nýlega í Striptease
sem hún fékk aðeins 12,5 milljónir
Bandaríkjadala fyrir.
Hjónin Demi og Bruce eru fræg
fyrir mikla peningaeyðslu og eru
boð þeirra annáluð. Nekt hefur
aldrei vafist fyrir Demi Moore
enda kom hún fram nakin á for-
síðu Vanity Fair, sem frægt er orð-
ið, þegar hún var ófrísk að dóttur
sinni, Scout Laru.
Demi Moore er dýrasta leikkona Hollywood.
*
*f
★
kvikmyndir
* ★
61
Þríðja kvikmynd
Dannys Boyle
Um mánaðamótin hófust tökur í
Utah á Life Less Ordinary sem er
þriðja kvikmynd skoska leikstjór-
ans Danny Boyle (Shallow Grave,
Trainspotting). Myndinni er lýst
sem blöndu af svartri kómedíu og
fantasíu. Sem fyrr í myndum Boyle
leikur Ewan McGregor eitt aðal-
hlutverkið en nú er orðið eftirsótt
að leika í mynd eftir Boyle og meðal
annarra leikara má nefiia Cameron
Diaz, Holly Hunter, Delroy Lindo,
Stanley Tucci og Ian Holm.
Maðurínn með röntgenaugun
Fyrir rúmum þrjátíu árum gerði B-
myndakóngurinn Roger Corman
kvikmynd sem bar heitið The Man
with the X-Ray Eyes. Nú á að fara
að endurgera þessa kvikmynd og er
það Skotinn Pete Capaldi sem mun
leikstýra myndinni en han'n fekk
óskarsverðlaun fyrir stuttmynd
sína, Franz Kafka’s It’s a Wonderful
Life. Capaldi er fyrrum leikari sem
leikið hefur í mörgum breskum
myndum. Má þar nefiia Local Hero,
Dangerous Liasons og The Lair of
the White Worm.
Coppola og The Rainmaker
Bækur Johns Grishams þykja góð-
ur kostur til að kvikmynda og er
hér á landi verið að sýna A Time
to Kill. Vestan hafs var The Cham-
ber frumsýnd um síðustu helgi og
nú er sjálfiir Francis Ford Coppola
að hefja tökur á The Rainmaker.
Þegar Coppola var spurður af
hverju hann ætlaði að leikstýra
The Rainmaker svaraði hann ein-
faldlega: „Peningar" og bætti við
að meðan hann hefði ekki bak-
hjarla til að geta gert eigin verk-
efni þá yrði hann að vinna fyrir
salti í grautinn. Meðal leikara sem
verða í The Rainmaker má nefiia
Danny Glover, Claire Danes,
Mickey Rourke, Jon Voight og
Matt Damon.
Striptease í Regnboganum og Laugarásbíói:
Nektardansmær á kvöldin,
móðir á daginn
Mikið er búið að fjalla um Strip-
tease, sem Regnboginn og Laugarás-
bíó frumsýndu í gær, og þá aðallega
vegna þess að aldrei hefur kvik-
myndaleikkona fengið jafii hátt kaup
fyrir leik í kvikmynd. Um er að ræða
Demi Moore sem fékk 12 milljónir
dollara fyrir leik sinn í myndinni.
Þrátt fyrir þessar tekjur er hún þó
ekki nema rúmlega hálfdrættingur á
við það sem vinsælustu karlleikar-
arnir fá.
í Striptease leikur Demi Moore
nektardansmeyna Erin Grant, sem
vinnur á næturklúbbnum Eager Bea-
ver. Erin haföi áður verið skrifstofú-
dama en hún hefur fyrir einni dóttur
að sjá og með nektardansinum þénar
hún mun meira heldur en í fyrra
starfí sem skrifstofúdama. Vandræðin
byrja þegar þingmaðurinn David Dil-
beck, sem er í nánum tengslum við
sykurreyrsframleiðendur og í raun-
inni fjarstýrt af þeim, kemur inn í
klúbbinn, þar sem Erin dansar. Einn
af fastagestunum í klúbbnum, Kihian,
Burt Reynolds og Demi More í hlut-
verkum sfnum í Striptease.
sem sér ekki sólina fyrir Erin, þekkir
þingmanninn og reynir að fá hann til
að beita áhrifúm sínum á þann veg að
Erin fái fúllt forræði yfir dóttur sinni,
en það tekst ekki betur til en svo að
Killian er myrtur og fljótt er Erin
flækt inn í heim spillingar og glæpa,
þar sem líf hennar er lítils virði.
Auk Demi Moore leika í myndinni
Burt Reynolds, sem er í hlutverki
þingmannsins, Armand Assante leik-
ur lögreglumann sem rannsakar
morðið á Killian, Ving Rhames leikur
útkastara á næturklúbbnum, sem
hjálpar Erin og Robert Patrick leikur
fýrrverandi eiginmann Erin, smá-
krimma sem aðallega fæst við að
stela hjólastólum. Þá má geta þess að
sú sem leikur dóttir Erin, heitir
Rumer Willis og er dóttir Demi More
og Bruce Willis.
Striptease er þrátt fyrir alla alvör-
una meira í ætt við svarta kómedíu
heldur en trylli og fylgir þar með for-
múlunni sem gefm er upp í bókinni
sem myndin er gerð eftir, en höfúnd-
ur hennar, Carl Hiaasen, nýtur nú
vaxandi vinsælda í Bandarikjunum.
Striptease er tekin þar sem sagan í
bókinni gerist, í Fort Lauderdale í
Flórída, sem margir íslendingar
þekkja eftir að Flugleiðir hófu beint
flug þangað, og á næturklúbbum á
því svæði lærði Demi Moore listina
að dansa nakin.
Leikstjóri Striptease er Andrew
Bergman og skrifar hann einnig
handritið. Hann er margreyndur
handritshöfundur sem á fyrri árum
sínum í bransanum skrifaði handritið
við Blazing Saddles, Fletch og The In-
Laws. Meðal kvikmynda sem hann
hefur leikstýrt eru Honeymoon in Ve-
gas, The Freshman og It Could
Happen to You. Andrew Bergman hef-
ur auk þess skrifað skáldsögur og
leikrit. Á Broadway hafa tvö leikrit
hans verið sýnd, Social Security og
Working Title. Skáldsögur hann eru
allt sakamálasögur og sú nýjasta heit-
ir Sleepless Nights. -HK
;i
as,
ooíffiMiy
ni
IKM
ra
Eiöku BH
Visit the STRIPTEASE web site at http://strip-tease.com
ms-r
OKGWAL SOCMOTkACT fiECORDPaG AVAlAKi 0N EMIRECORDS
LA UOAFtÁS,
0 ET i M i B > , T i M M'