Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1996, Síða 28
28
LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 1996 DV
L>V LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 1996
37
Elín Hirst, fréttastjóri á Stöð 2, hefur verið rekin og Páll Magnússon tekur við:
Eg var aldrei með í karlaklúbbi fyrirtækisins
■ amm Æ a ■■ ■ fmm -w m r mm m m ■ m W m m m m m m m m IXÆ
segir Elín Hirst - sjálfstæður fréttaflutningur skaðaði auglýsingahagsmuni fyrirtækisins
„Þetta byrjaöi allt þegar ég sagði
Sigursteini Mássyni upp störfum um
mánaðamótin september-október. Ég
vildi að hann fengi að hætta strax en
fengi laun í þrjá mánuði. Mér var
meinað að borga honum uppsagnar-
frestinn og það var í fyrsta skipti
sem bornar voru brigður á vald mitt
yfir íjárhag fréttastofunnar. Ég fór á
fund Jóns Ólafssonar og spurði hann
að því hvers vegna ég fyndi fyrir litl-
um stuðningi með þessa ákvörðun.
Þá kom í ljós að Jón var óánægöur
með mín störf yfirleitt og vildi gera
skipulagsbreytingar á fréttastofunni.
Ég fengi nýjan yfirmann," útskýrir
Elín Hirst, fyrrverandi fréttastjóri á
Stöð 2.
Eins og fram hefur komið í fréttum
telur Elín að sér hafi verið sagt upp
störfum á Stöð 2 eftir rúmlega
tveggja ára starf þar sem fréttastjóri
og þar áður átta ára starf sem frétta-
maður á Bylgjunni og Stöð 2. Starfs-
tími yfirmanna á Stöð 2 hefur ekki
veriö sérlega langur en Elín er með
næstlengsta starfsaldur fréttastjóra á
Stöð 2 frá upphafi. Páll Magnússon
var lengst, frá 1986-1990, og tekur aft-
ur til starfa 1. nóvember. Þangað tii
gegnir Sigmundur Ernir Rúnarsson
varafréttastjóri starfi fréttastjóra.
Elín hefur fallist á að segja söguna
á bak við brottrekstur sinn af Stöð 2
og heldur áfram þar sem frá var horf-
ið hér i upphafi.
Fjandinn laus?
„Á þessum fundi sagði Jón að óró-
leiki væri inni á fréttastofunni vegna
uppsagnar Sigursteins. Á móti sagði
ég honum að óróleikinn stafaði aðal-
lega af því að það ætti að pína Sigur-
stein til þess að vinna og lítilsvirða
hann með því að þurfa að ganga
þarna um i þrjá mánuði. Ég væri al-
gjörlega á móti þessari ráðstöfun og
vildi að hann fengi að hætta strax.
Það væri bara mannúðarsjónarmið,“
segir Elín.
„Ég innti betur eftir því af hverju
hann væri skyndilega orðinn óán-
ægður nieð mín störf og þá sagði
hann að það væri deyfð yfir frétta-
stofunni og óróleiki innandyra. Ég
tók þær skýringar ekki gildar og
sagði honum að frétta-
stjórastarfið væri
ekki vinsælt starf, --
hvorki inn á við
né út á við. Um
leið og fólk fyndi
að ég hefði ekki
stuðning yfirstjórn-
arinnar væri fjandinn
laus.
Ég benti honum líka á
að þeir mælikvarðar sem ég
tæki mark á og eigendur fyrir-
tækisins ættu að taka mark á
væru skoðanakannanir og hvemig
fréttastofan kæmi út úr þeim. Eftir
að ég tók við hefur fréttastofan
skorað hærra í könnun Félagsvís-
indastofnunar en nokkru sinni fyrr.
Enn fremur hefur fréttastofan
aldrei kostað minna að meðtöldum
kostnaði við ísland í dag, Bylgjunni
og fréttum Stöðvar 2. Fjárhagsáætl-
un hefur staðist og afbragðsmann-
skapur verið á fréttastofunni," seg-
ir hún og spyr: „Hvað vilja menn
meira?“
„Við stóðum okkur vel í nýliðn-
um forsetakosningum. Við voram
með miklu ítarlegri umfjöllun en
aðrir fjölmiðlar og gerðum mikið úr
þessum kosningum og eins mikið
og efhi stóðu til. Þar vann ég að
þáttagerð og sinnti einnig frétta-
stjórastarfinu. Á þessu tímabili var
ég í 250 prósenta vinnu án þess að
fá neitt greitt fyrir það aukalega."
Jón bað
um tillögur
muni fyrirtækisins. Hann sagði að ég
sem fréttastjóri ætti að hugsa um hag
fyrirtækisins. Ég sagði á móti að ég
hugsaði best um hag fyrirtækisins
með því að passa upp á það að frétta-
stofan þjónaði hagsmunum almenn-
ings. Fréttastofan ætti ekki að hugsa
um eigendasjónarmið því að þá um
leið væri hún lömuð, ótrúverðug og
ósjálfstæð. Hingað til hafa ekki verið
bein afskipti af rekstri fréttastofunn-
ar og ritstjórnarlegum málum en
þarna var greinilega komin ástæða.
Enn fremur hafði borið á því að
menn vildu hafa áhrif á það hvar
frétt um að Stöð 2 hefði tryggt sér
enska fótboltann 1997 kæmi í frétta-
tímanum. Ég sló algerlega á það og
sagði að hún kæmi þar sem hún ætti
að koma. Ég hlustaði ekki á eitt né
neitt í þeim efnum.“
- Var þetta þá í fyrsta skipti sem
örlaði á afskiptum eigenda af rit-
stjórnarmálum?
„Þetta var í fyrsta skipti í minni
tíö sem þetta kom svona beint fram.
Menn telja kannski að það gangi ekki
að fréttastofan sé ekki meðvitaðri um
hagsmuni eigendanna en hún er. Ég
tel hins vegar að menn í þessum
bransa verði einfaldlega að skilja þau
prinsipp sem fréttamennska gengur
út á, að hún verði að vera algjörlega
óháð öllu öðra en þvi að þjóna al-
menningi með því að koma með rétt-
ar upplýsingar og setja þær fram á
heiðarlegan hátt.
Strengdi heit
að ganga út
Niðurstaðan úr viðræðunum við
Jón Ólafsson var sú að fréttastofan
fengi nýjan yfirmann sem jafnframt
yrði ritstjórnarlegur yfirmaður. „Þá
sagði ég strax við hann að þetta hlyti
að jafngilda uppsögn. Hann sagði svo
ekki vera og bauð mér starf við dag-
skrárgerð á fréttatengdu efni. Ég
hafnaði því alfarið og sagði að frétta-
stofan væri hjarta fyrirtækisins þar
sem framleiðslan á svona efni færi
fram. Enn fremur aö mitt áhugasviö
væri fréttamennska þannig að ég
væri ekki tilbúin til að fara eitt né
neitt,“ segir Elin og bætir við að á
þessu stigi hafi Jón lýst yfir að hann
væri búinn að ræða við Pál Magnús-
son um að taka við starfi fréttastjóra
og gerði ráð fyrir að af því yrði.
„Ég sagðist líta á þetta sem upp-
sögn og vildi kalla saman fund með
starfsmönnum fréttastofunnar og yf-
irstjórn Stöðvar 2 og skýra þeim frá
gangi mála því að þeir höfðu fundið
að eitthvað var uppi á teningnum.
Jón vildi það ekki, bað mig að hugsa
málið og koma með tillögur að breyt-
ingum,“ og það gerði hún fyrir viku.
Fyrst og fremst
fráttamaður
„Ég var alls ekki tilbúin að ræða
stöðulækkun. Þar sem þetta er um-
svifamikil fréttastofa, bæði í
útvarpi og sjónvarpi, var
ég tilbúin að ræða
breytingar í þá vera að
það yrði ráðinn annar
fréttastjóri við hliðina
á mér. Þar sem ég var
fréttamaður undir Páli
Magnússyni og átti
mjög gott samstarf við
hann þá var ekkert
sem mælti á móti því
að hann kæmi við hlið
mér og ég var alveg til-
búin til að ræða það. En
það virtist ekki vera inni
í myndinni.
Ég kom líka fram
með þá til-
lögu að Páll tæki við sem fram-
kvæmdastjóri fréttastofunnar og sæi
um rekstrarlega stjórnun, manna-
hald og fjármál. Ég sæi áfram um rit-
stjómina," segir hún. Þessari tillögu
var samstundis hafnað og segist Elín
ekki hafa viljað taka sjálf að sér
rekstrarlega stjórnun og láta Páli eft-
ir ritstjórnina því að fullt sé af hæfu
fólki til þess. Sjálf sé hún fyrst og
fremst fréttamaður, hún hafi mennt-
un til þess og hafi starfað við frétta-
mennsku frá því hún lauk námi.
„Það kom ekki til greina,“ segir
hún.
Páll Magnússon hafði framkvæði
að því að ræða við Elínu og lýsti þá
yfir að hann vildi gjarnan að hún
yrði áfram og taldi að þau gætu stýrt
fréttastofunni saman en hún yrði þó
að sætta sig við að verða undirmaður
hans. Elín kveðst ekki hafa rætt þess-
ar sviptingar við neina aðra en fjöl-
skyldu sína enda hafi Jón Ólafsson,
að eigin sögn, haft fullan stuðning
stjómar íslenska útvarpsfélagsins til
að reka sig.
Stíllinn skaðaði
auglýsingahagsmuni
- Elín segist ekki hafa tekið skýr-
ingar Jóns Ólafssonar gildar. En
hvaða ástæður telur hún þá að liggi
að baki brottrekstrinum?
„Þegar ég innti Jón Ólafsson eftir
raunverulegum skýringum, ekki ein-
hverjum gerviskýringum eins og
þessu með óánægjuna á fréttastof-
unni, þá sagði hann loksins við mig
að hann væri ósáttur við þann stíl
sem ég hefði sem fréttastjóri og
fréttaflutningurinn undir
minni stjórn hefði
skaðað auglýs-
ingahags-
Það hefur líka verið lagt hart að
mér að segja ákveðnum starfsmanni
upp störfum en ég hef aldrei hlustað
á neitt slíkt. Það mál nær lengra aft-
ur í fortíðina. Það kom fyrst upp
stuttu eftir að ég tók við fréttastjórn-
inni. Þá strengdi ég þess heit að um
leiö og slíkar fyrirskipanir kæmu
myndi ég ganga út. Ég ætlaði að
byggja mitt starf algjörlega á fagleg-
um nótum,“ útskýrir Elín.
Rétt er að geta þess að um síðustu
áramót voru gerðar skipulagsbreyt-
ingar á Stöð 2 þannig að fréttastofan
færðist undir dagskrársvið og frétta-
stjórinn fékk dagskrárstjóra sem yf-
irmann. Elín segist hafa samþykkt
þær breytingar á sínum tíma með
þeim fyrirvara að hún héldi óskertu
ritstjómarlegu frelsi og hefði allt
vald yfir mannahaldi og fjármálum
fréttastofunnar. Það hafi verið sam-
þykkt enda hafi Jón Ólafsson sagt sér
að það teldist óheppilegt að hann
væri næsti yfirmaður fréttastofunnar
vegna þess hve umdeildur hann
væri.
„Ég skildi það mætavel. Ef það
snerti í engu mín völd skipti engu
máli hvort ég talaði við Pál Baldvin
um mín starfskjör eða Jón Ólafsson,"
segir hún.
Enginn vilji
til samninga
Elín segir að undanfarna viku
hafi ítrekað verið reynt að leysa
málið með friði þannig að
hún skildi ekki við fyrir-
tækið eða fyrirtækið
við hana með
þessum
Hr>
i
mki
hætti. Að málinu kom einkum Jón
Ólafsson en einnig Páll Magnússon
og Páll Baldvin Baldvinsson dag-
skrárstjóri. Þeir hafi viljað að hún
fengi annað starf innan fyrirtækisins
en hún hafi alltaf vonast til þess að
þeir myndu taka sinni tillögu um að
ráða annan fréttastjóra sér við hlið
eða framkvæmdastjóra á fréttastof-
una.
„Þeir ljáðu máls á þessu en á end-
anum [á miðvikudag, innskot blm.]
var þessu fleygt út af borðinu sem
möguleika. Það var ekki vilji fyrir
þessu. Jón vildi fresta málinu þannig
að ég tæki mér blaðamannafrí, sem
ég á inni, og hugsaði minn gang en
eftir hádegi sagðist ég ekki vera til-
búin til þess. Ef menn vildu ekki
ræða þetta á þessum nótum þá
skyldu þeir bara gera hreint fyrir
sínum dyram og tilkynna skipulags-
breytingar, sem ég liti á sem upp-
sögn. Hann sagði að það væri annar
maöur að taka við og því ekki hægt
að skilja það neitt öðruvísi en sem
uppsögn."
Tala hreint út
- En ætli búið sé að semja við hana
um starfslok?
„Það er ekkert að semja um. Ég
sagði strax að ég kærði mig ekki um
neinn starfslokasamning. Ég ætlaði
bara að fá mitt uppgjör. Ég bauðst til
þess að vinna þriggja mánaða upp-
sagnarfrest ef óskað væri. Jón sagð-
ist hins vegar ekki vilja það. Siðan á
ég inni orlof og blaðamannafrí
þannig að ég er ekki til viðræðu um
einn eða neinn starfslokasamning.
Ég sagðist vera mjög ósátt og myndi
bara segja mína meiningu um málið.
Ég læt bara minn lögfræðing sjá til
þess að ég fái mitt uppgjör," segir
hún.
„Ég hef alltaf sagt við mína sam-
starfsmenn að þegar mér verði sagt
upp þá muni ég segja beint út að ég
hafi verið rekin. Ég muni ekki láta
kaupa mig til þess að segja að það
hafi verið gerðar skipulagsbreyting-
ar eða að mínum verkefnum væri
lokið og ég mundi færa mig um set.
Ég myndi segja það hreint út ef um
brottrekstur væri að ræða,“ segir
hún.
Elín telur að brottrekstur sinn af
Stöð 2 sé vondar fréttir fyrir konur
og mikil móðgun við helming þjóðar-
innar. „Ég var aldrei ein af karla-
klúbbinum í fyrirtækinu. Það verður
auðvitað að gera sömu kröfur til
kvenna og karla en þetta er líka fé-
lagslegt. Konur era ekki tilbúnar til
að fara í veiðiferðir með körlunum
og er svo sem ekki boðið í þær. Ég
var eini kvenstjórnandinn og svo fór
sem fór,“ segir hún.
Verðum að tryggja
hagsmuni fólksins
- En hlýtur þessi uppsögn ekki að
hafa mikil áhrif á fjölmiðlun?
„Ég held að menn ættu að skoða af
fullri alvöru það sem ég vil kalla
samþjöppun valds og eignarhalds í
fjölmiðlaheimin-
um þegar sömu
aðilar eiga ítök í
fjölda fjölmiðla á
svona litlum
markaði. Það hlýt-
ur að vera eitt-
hvað sem við
verðum að skoða
eins og menn hafa
gert í Bandaríkj-
unum og víðar.
Það er mjög nauð-
synlegt að það sé
samkeppni þannig
að almenningur
geti treyst því að
fá fregnir af öllu
sem er að gerast í
þjóðfélaginu,
hvort sem það
hentar eigendum
fjölmiðla eða ekki.
Við verðum að
tryggja að fólkið í
landinu fái heil-
steypta mynd af
þvi sem er að ger-
ast.“
- Nú hefur þú
rekið mjög harða
og sjálfstæða
stefnu á frétta-
stofu Stöðvar 2 en
ert látin fara og
Páll Magnússon
tekur við. Þýðir þetta ekki afturhvarf
á einhvem hátt?
„Ég vona heitt og innilega að svo
verði ekki vegna þess að Páll var
mjög harður og sjálfstæður sem
fréttastjóri. Ég bind vonir við að
hann standi vörð um þetta en ég veit
ekki meir. Þetta er nokkuð sem fram-
tíðin mun leiða í ljós. Mark-
aðurinn er það upplýstur að
fólk segir meiningu sína eins
og ég geri núna. Það er lög-
gjafarvald hérna og hægt að
koma í veg fyrir að nokkrir
aðOar nái slíkum tökum á
markaðinum. Ég er ekki að
segja að það hafi gerst en ég
held að menn ættu að íhuga
þann möguleika," segir hún.
Umfangið jókst
í niðurskurði
Elín kveðst hafa verið
„frekar harður húsbóndi" á
fréttastofu Stöðvar 2 „og við
erum búin að vera rosalega
aðþrengd í fjármálum. Ég er
búin að skera niður alla yfir-
vinnu, fara með samning við
blaðamenn fyrir félagsdóm
til að þjóna þeim markmið-
um að reka fréttastofuna eft-
ir áætlun. Þetta eru alls ekki
vinsælar aðgerðir. Ég hef
ákveðnar grunsemdir um að
það að þrengja stöðugt fjár-
hagsrammann hafi verið gert
til þess að gera mitt starf
eins erfitt og mögulega var hægt. Ég
var ekki með neitt svigrúm í einu né
neinu.“
Rekstur fréttastofu Stöðvar 2 kost-
ar 118 milljónir króna á þessu ári.
Inni í því er allur kostnaður við
Bylgjufréttir, fréttir Stöðvar 2 og ís-
land í dag og útibú á Akureyri og Eg-
ilsstöðum, Brassel og Kaupmanna-
höfn en ekki er tæknikostnaður inni
í þessum tölum. Niðurskurður hefur
staðið í tvö ár. Launahækkanir hefur
fréttastofan brúað innanhúss. Á síð-
asta ári var veðurmönnunum á Stöð
2 sagt upp til að endar næðust sam-
an, auk þess sem yfirvinna hefur ver-
ið alveg skorin niður þó að umfang
fréttastofunnar hafi á sama tíma auk-
ist.
„Mér þótti
mjög vænt um
að Margrét Frí-
mannsdóttir,
formaður Al-
þýðubandalags-
ins, hafði sam-
band við mig og
sagði að upp-
sögn mín væri
mikið rædd
niðri á Alþingi.
Menn væra
sammála um að
það væri mikill
kraftur f þessari
fréttastofu og ég
hefði skilað
mínu verki frá-
bærlega, eins og
hún orðaði
það,“ segir hún.
- En hvað ætl-
ar Elín að fara
að gera núna?
„Ég hef ekki
hugmynd um
það,“ segir hún.
Elín er gift
Friðriki Frið-
rikssyni hag-
fræðingi og eiga
þau tvo syni,
Friðrik Árna, 11
ára, og Stefán, 9
ára. Hún segir að synimir séu mjög
ánægðir með brottreksturinn.
„Þeir halda að ég ætli að setjast í
helgan stein en það verður nú öragg-
lega alls ekki þannig,“ segir hún.
-GHS
„Elín kom
héma á skrifstof-
una til mín og
hafði áhyggjur af
því að hún hefði
ekki stuðning
varðandi upp-
sögn Sigursteins.
Ég var mjög
ósáttur við þá
uppsögn, taldi
hana vera efnis-
lega ranga og
sagöi Elínu það.
Ég kom hvergi
nálægt því hvort
hann hefði verið
látinn vinna eða
fengi launin
greidd, enda
hafði ég ekkert
með það að gera
þegar hann var
rekinn. Hann var
rekinn gegn mín-
um vilja og ég
var aldrei spurð-
ur,“ segir Jón
Ólafsson, starf-
andi stjómarfor-
maður íslenska
útvarpsfélagsins.
- Þú hefur ekki
Jón Ólafsson.
við aldrei störf
hennar, enda
er það ekki
mitt hlut-
verk.“
Úr lausu
lofti grip-
ið
- Elín segir
að það hafi örl-
að á afskiptum
af þinni hálfu
varðandi
fréttamann,
annan en Sig-
urstein.
„Það er al-
gjörlega úr
lausu lofti
gripið. Elín
hefur sjálf tal-
aö um að hún
vildi gera
breytingar
þama inni og
hún talaði um
að Sigursteinn
hefði verið
efstur á sínum
Jón Ólafsson, stjórnarformaður íslenska útvarpsfélagsins:
Elín er einn besti
fréttamaður sem við eigum
verið með kröfur um að hann ætti
að vinna þessa þrjá mánuði?
„Það var aldrei rætt við mig um
þetta mál,“ segir Jón.
- Og það hefur ekki komið til
umræðu á þessum fundi. Þú hefur
ekki sagt við hana: Ég vil að hann
vinni þessa þrjá mánuði.
„Þetta var fundurinn þar sem ég
sagði henni að það væri búið að
taka ákvörðun um skipulagsbreyt-
ingar. Vegna álags á dagskrársvið-
inu höfðum vjð ákveðið að stofna
nýtt svið, kannski til að skerpa á
því að fréttastofan væri mun sjálf-
stæðari en áður. í staðinn fyrir að
Elín hefði yfirmann sem héti Páll
Baldvin fengi hún yfirmann sem
héti Páll Magnússon. Hún átti að
vera áfram fréttastjóri og Páll átti
að vera með titilinn yfirfrétta-
stjóri. Skipulagsbreytingarnar
höfðu ekkert með þetta sérstaka
mál að gera,“ segir Jón.
- Varstu búinn að vera lengi óá-
nægður með hennar störf?
„Þegar ég kom til starfa hér hjá
félaginu var það eitt af því fyrsta
sem ég gerði að lýsa yfir stuðningi
við hennar störf. Ég tel að Elín
Hirst sé einn af bestu fréttamönn-
um sem við eigum á íslandi í dag
en ég efast um hæfni hennar sem
stjórnanda, sérstaklega eftir það
sem á undan er gengið. Ég hef
sýnt henni traust og styrk en ekki
haft neitt út á hennar störf að
sefja.“
- Hún segir að þú hafir látið í
ljós óánægju á þessum fundi:
„Það er ekki rétt. Ég gerði henni
grein fyrir því að ég hefði orðið
var við gífurlega ólgu meðal frétta-
manna. Mér hefðu borist ýmsar at-
hugasemdir um stjómunarhætti
hennar. Fram að þeim degi sem
viö áttum þennan fund ræddum
lista. Ég veit ekki hvað sá listi var
langur," svarar Jón.
- Hún segir að þú hafir sagst
ósáttur við hennar stíl og að
fréttaflutningurinn hafi skáðað
auglýsingahagsmuni fyrirtækis-
ins?
„Það er algjörlega rangt. Þegar
við áttum þennan fund sagði ég
við hana að mér þætti hún hafa
farið illa með eitt mál. Þegar
Hæstiréttur flutti í nýtt húsnæði
og fyrsti dómur féll i máli manns
við Eimskipafélagið kaus frétta-
stofan að snúa þessari frétt upp í
það hvort Pétur Kr. Hafstein hefði
fengið peningalega greiðslu frá
Eimskip vegna framboðs til for-
seta og væri því óhæfur til að taka
þátt í þessu máli. Þessi frétt var
tilbúningur, ómakleg og ekki frétt-
næm. Þegar ég spurði af hverju
enginn annar fréttamiðill hefði
gert þetta að fréttaefni varð fátt
um svör. Þetta er það eina sem ég
hef sagt við Elínu Hirst hvað varð-
ar efnislega vinnu hennar á frétta-
stofunni. Það gerði ég eftir að ég
var búinn að tilkynna henni að
það yröi gerð breyting á skipu-
riti.“
- Elín segist hafa lagt til að ráð-
inn yrði fréttastjóri sér við hlið
eða framkvæmdastjóri á fréttastof-
una:
„Hún talaði aldrei um fram-
kvæmdastjóra enda kom það
aldrei til greina. Hún talaöi um að
ráðinn yrði fréttastjóri og þau
yrðu jöfn en það náðist aldrei sam-
komulag um það milli Páls Magn-
ússonar og hennar enda er það
mjög óeðlilegt. Það er eðlilegra aö
einn beri ábyrgð á fréttastofunni,"
segir Jón. -GHS