Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1996, Page 43
LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 1996
Marlboro Kína bikarkeppnin 1996:
Kínverjar og Bandaríkja-
menn sigursælir
Fyrsta Marlboro Kina bik-
arkeppnin var haldin fyrir stuttu og
sigruðu Kínverjar í sveitakeppninni
en Bandaríkjamenn í tvímennings-
keppninni.
En hvað er Marlboro Kína bikar-
keppnin? Alheimsbridgesambandið
(WBF) heldur keppnina og forseti
þess, José Damiani, sér hana sem
forspil að keppni, sem líkja mætti
við mótaröð atvinnumanna í golfi.
Fjórar sveitir kepptu í hvorum
flokki, opnum og kvenna, ein kom
frá Kína, ein frá bandaríska
bridgesambandinu, ein frá Evrópu-
sambandinu og ein frá Alheims-
bridgesambandinu. Keppni var sér-
staklega spennandi í kvennaflokki
en þar sigraði sú bandaríska naum-
lega eftir úrslitaleik við þá kín-
versku. í bandarísku sveitinni voru
þekkt nöfn: Kathie Wei-Sender,
Lynn Deas, Juanita Chambers og
Sue Sachs.
í opna flokknum sigraði sú kín-
verska meðan Evrópusveitin var i
öðru sæti. Þar voru einnig nöfn sem
við könnumst við: Jens Auken, Den-
is Koch, Geir Helgemo, Tor Helnes,
Enri Laufkens og Berry Westra.
I tvímenningskeppninni sigruðu
Lynn Deas og Juanita Chambers frá
Bandaríkjunum með miklum yfir-
burðum.
Auðvitað gleðjast allir yfír nýrri
keppni sem vekur athygli og raunar
voru rausnarleg peningaverðlaun í
boði ásamt meistarastigum. En hins
vegar vakna einnig spumingar um
hvernig þátttakendur eru valdir. Ég
hefði cilla vega viljað sjá eitt af fyrr-
verandi heimsmeistarapörum Is-
lendinga, annað hvort í Evrópulið-
inu eða ekki síður í liði Alheims-
sambandsins sem var skipað frekar
skrýtnum nöfnum, ef frá eru taldir
Pólverjarnir Romanski og
Kowalski.
Kínverjar og Bandaríkjamenn
hafa sín bridgesambönd sem hafa
valið sín lið til þátttöku en hvernig
stóð Evrópusambandið að sínu vali?
Eða Alheimssambandið? Þetta eru
spumingar sem viðkomandi aðilar
verða að svara áður en næsta
kleppni er haldin.
En hættum nöldrinu og skoðum
eitt skemmtilegt spil frá mótinu.
Suður Vestur Norður Austur
1 spaði pass 4 lauf pass
4 tíglar pass 5 lauf pass
5 grönd pass 7 spaðar allir pass
Með Pólverjana Romanski og
Kowalski í n-s gengu sagnir eins og
að ofan greinir. Fjögur lauf sýndu
einspil eða eyðu í laufi og fimm lauf
sýndu eyðu.
Kínverjinn í vestur var viss um
að lítið lauf undan ásnum myndi
ekki spilla því suður myndi áreið-
anlega ekki þora að hleypa heim á
kónginn ef hann ætti hann. Hann
hafði á réttu að standa. Kowalski
trompaði en það reyndist vera þrett-
ándi slagurinn. Á hinu borðinu
voru spilaðir sex spaðar. Vestur
spilaði hjartaás og síðan tígli, einn
S/A-V 4 Á10852 W D ♦ ÁG87654 é niður. í leik Evrópu við Bandaríkin gengu sagnir á þessa leið: Suður Vestur Norður Austur
é - * Á10843 * 10932 * Á432 N V A S * V 7652 ♦ - 4 DG8765 4 1 iaui pass 2 spaðar pass 4 spaðar pass 5 hjörtu pass pass pass z ugiar pass 3 spaðar pass 5 lauf pass 7 spaðar dobl pass
4 KD96 KG9
♦ KD
4 K109
Þetta spil er frá sveitakeppninni
og olli að meðaltali 15 impa sveiflu í
hverjum leik. Þrjú pör fóm í al-
slemmu með tvo ása úti. Furðule-
gustu úrslitin vora sýnd á sýningar-
töflu í leik Kínverja og Alheimssam-
bandsins:
Það vora Bandaríkjamennirnir
Weinstein og Stewart sem sátu n-s
en a-v voru Koch og Auken, allt góð-
kunningjar frá fyrri Bridgehátíðum.
Útspil Akens var agað! Hann
hlýddi Lightnerdobli Kochs og spil-
aði út tígli, raunar tiunni, til þess
að fá hjarta til baka. Það vora þrír
niður doblaðir.
51
LAXVEIÐIMENN ATHUGIÐ
Veiðiréttur í Búðardalsá á Skarðsströnd
er til leigu næsta veiðitímabil.
Tilboðum skal skilað fyrir 20. nóvember.
Við áskiljum okkur rétt til að taka hvaða tilboði
sem er eða hafna öllum.
Upplýsingar gefa Svavar Magnússon í síma 434-1497
og Þorsteinn Karlsson í síma 434-1435.
Laxveiðimenn - stangaveiðifélög
Krossá á Skarösströnd er laus til leigu
veiöitímabiliö 1997.
Tilboðum skal skilað til Trausta Bjarnasonar,
317 Búðardal, fyrir 2. nóvember nk.
en tilboð verða opnuð sama dag kl. 14.00.
Upplýsingar í símum 434-1420 og 854-8424.
SÍMVAKINN
sýnir og geymir
símanúmer þess sem
hringir hvort sem þú
ert heima eða að
heiman.
Geymir allt að
120 númer með
dagsetningu og
klukku.
Verð kr. 4.490 stgr.
5 hte[
Síðumúla 37, 108 Reykjavík
Sími 588 2800 - Fax 568 7447
fy
$ , V . . - - *
■HHH
III foreldra
á íslandi
...sem vilja varðveita minningu barna sinna í myndum.
í tilefni af 70 ára afmæli félagsins verður Opið hús hjá
Portretljósmyndurum landsins vikuna 19.-26. október.
Komið við hjá Ijósmyndaranum og sjáið hvað við erum að gera.
Eitthvert okkar hefur stíl og handbragð sem hentar þér.
Verið velkomin -heitt kaffi á könnunni og glaðningur fyrir börnin.
Opið virka daga kl.10-17. og um helgina kl.12-17
12 Rut Hallgrímsdóttir. Ljósmyndir Rut. Grensársveg 11, Reykjavík.
13 Sigríður Bachmann. Ljósmyndastofa Sigríðar. Garðastræti 17, Reykjavík.
14 Sólveig Þórðardóttir. Nýmynd. Hafnargötu 90, Keflavík.
15 Sæmundur Kristinsson. Ljósmyndavinnustofan. Suðurlandsbraut 4A, Reykjavík.
16 Þórir H. Óskarsson. Ljósmyndastofa Þóris. Rauðarárstíg 20, Reykjavík.
17 Þór Gíslason. Ljómyndastofa Þórs. Garðarsbraut 9, Húsavík.
Fólk er í vaxandi mæli fariö að nota vel gerðar og listrænar Ijósmyndir
til skreytingar á heimilum sínum. Við erum tilbúin að fanga andartakið
og búa til ómetanlega dýrgripi, sem gleðja ykkur um ókomin ár.
Ljósmyndarafélag íslands
14