Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1996, Page 46
54
afmæli
LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 1996
Gísli Konráðsson
Gísli Konráðsson,
fyrrv. framkvæmdastjóri
Útgerðarfélags Akureyr-
inga hf., Oddagötu 15,
Akureyri, er áttræður í
dag.
Starfsferill
Gísli fæddist að Hafra-
læk í Aðaldælahreppi.
Hann lauk stúdentsprófi
frá MA 1937.
Gísli var skrifstofu-
maður hjá KEA og Út-
gerðarfélagi KEA hf. á
1937-44, starfsmaður UNRRA (Hjálp-
arstofnunar SÞ) í Washington DC
1945- 46, deildarstjóri KEA og jafn-
framt framkvæmdastjóri Útgerðar-
félags KEA hf. og Njarðar hf.
1946- 58, fulltrúi Akureyrarbæjar
hjá Útgerðarfélagi Akureyringa hf.
1958 og framkvæmdastjóri þess
1958-89.
Gisli hefur setið í stjóm Amts-
bókasafnsins, Sparisjóðs Akureyr-
ar, Vinnuveitendafélags Akureyrar,
Kaupfélags Eyfirðinga, Lífeyris-
sjóðsins Sameiningar, Slippstöðvar-
innar hf., Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna, Coldwater Seafood
Corporation, Samlags skreiðarfram-
leiðenda, Sambands fiskvinnslu-
stöðvanna, Garðræktarfélags Reyk-
Gísli Konráðsson.
hverfinga hf., Karlakórs-
ins Geysis, Heklu (sam-
bands norðlenskra karla-
kóra) og í stjórn Stúd-
entafélags Akureyrar.
Hann var fyrsti varamað-
ur Framsóknarflokksins
í bæjarstjóm Akureyrar
1954-62, vararæðismaður
Danmerkur 1971 og ræð-
ismaður frá 1974. Gísli er
riddari dannebrogsorð-
unnar frá 1979 og riddari
fálkaorðunnar frá 1981.
Akureyri FjÖlskylda
Gísli kvæntist 29.12.1944 Sólveigu
Axelsdóttur, f. 4.2. 1922, húsmóður.
Hún er dóttir Axels Kristjánssonar,
kaupmanns og norsks ræðismanns
á Akureyri, og k.h., Hólmfríðar
Jónsdóttur húsmóður.
Börn Gísla og Sólveigar eru Axel,
f. 1.7. 1945, forstjóri VÍS, búsettur í
Garðabæ, kvæntur Hallfríði Kon-
ráðsdóttur húsmóður og eiga þau
tvö böm, auk þess sem hann á bam
frá því áður; Hólmfríður, f. 26.6.
1947, deildarstjóri á Hagstofunni og
húsmóðir í Reykjavík, gift Jakobi V.
Hafstein líffræðingi og eiga þau tvö
börn; Þórhalla, f. 10.2. 1949, frumu-
greinir og húsmóðir í Reykjavík,
gift Samúel J. Samúelssyni lækni og
eiga þau fjögur börn, auk þess sem
hún á barn frá því áður; Sólveig, f.
12.3. 1951, meinatæknir og húsmóð-
ir á Akureyri, gift Herði Blöndal
Bjömssyni verkfræðingi og eiga
þau þrjú börn; Katrín, f. 10.9. 1953,
húsmóðir í Hafnarfirði, gift Birni I.
Sveinssyni verkfræðingi og eiga
þau fimm böm; Hildur, f. 6.1. 1957,
læknir og húsmóðir í Sviþjóð, gift
Sigurði M. Albertssyni lækni og
eiga þau fjögur börn; Björg, f. 5.5.
1960, húsmóðir í Kópavogi, gift Har-
aldi Baidurssyni flugstjóra og eiga
þau þrjú böm.
Systur Gísla voru Kristín, f. 30.8.
1910, d. 2.5. 1978, húsmóðir á Akur-
eyri; Hólmfríður, f. 27.4. 1912, d.
1932; Steinunn, f. 5.10. 1914, d. 21.10.
1988, húsmóðir á Akureyri.
Foreldrar Gisla vom Konráð Vil-
hjálmsson, f. 23,7. 1885, d. 20.6. 1962,
kennari og b. að Hafralæk og síðar
rithöfundur á Akureyri, og k.h.,
Þórhalla Jónsdóttir, f. 25.11. 1886, d.
15.10.1970, húsfreyja að Hafralæk og
á Akureyri.
Ætt
Konráð var sonur Vilhjálms, b. á
Hafralæk, Jónassonar, bróður Þor-
kels á Syðra-Fjalli, afa Indriða ætt-
fræðings og Þorkels Jóhannessonar,
rektors HÍ. Jónas var einnig bróðir
Kamma Andrésdóttir
Kamma Andrésdóttir, húsmóðir
og matráðskona, Ölduslóð 27, Hafn-
arfirði, er sextug í dag.
Starfsferill
Kamma fæddist á Ströndum í
Færeyjum og ólst þar upp. Á ung-
lingsárunum starfaði hún við versl-
un foreldra sinna samhliða skóla-
göngu en hún lauk prófi frá Versl-
unarskólanum í Þórshöfn 1956.
Kamma flutti til Neskaupstaðar
1957 þar sem hún kynntist manni
sínum. Fyrstu hjúskaparárin helg-
aði Kamma sig aifarið heimilisstörf-
um en 1970 hóf hún ýmis störf utan
heimilisins, einkum við elda-
mennsku. Hún stofnaði eigið fyrir-
tæki 1977, starfrækti veitingastað í
fimm ár og matvælafyrirtæki í þrjú
ár. Þá var hún kjötiðnaðarmaður
hjá Kaupfélaginu Fram um skeið
eða til 1986. Hún opnaði
þá blómaverslun sem
hún starfrækti í Nes-
kaupstað þar til hún
flutti til Hafnarfjarðar
1993 en nú er hún mat-
ráðskona.
Fjölskylda
Kamma giftist 16.2.
1959 Linberg Þorsteins-
syni, f. 15.8. 1936, skipa-
smið. Hann er sonur Þor-
steins Jónsson, sjómanns
frá Norðfirði, og k.h., Sig-
ríðar Elíasdóttur húsmóður
ættuð er úr Mjóafirði.
Börn Kömmu og Linberg eru
Steinunn, f. 10.12. 1958, nemi í rönt-
gentækni, búsett í Reykjavík en son-
ur hennar er Elvar Atli; Jóhanna, f.
26.5. 1960, húsmóðir á Eskifirði, gift
Kamma Andrésdóttir.
sem
Gísla Guðjónssyni raf-
virkja og eru böm þeirra
Berglind, Guðjón, Kamma
Dögg og Sóley; Andri, f.
28.6. 1961, nemi í sálfræði
við Maharisha háskólann
í Iowa í Bandaríkjunum,
kvæntur Huldrúnu Þor-
steinsdóttur húsmóður og
eru böm þeirra Margrét
Rós, Andrea Eik og Elías
Andri; Sigríður, f. 15.10.
1963, húsmóðir í Dan-
mörku, gift Bimi Krist-
jánssyni húsgagnasmið
og eru böm þeirra Krist-
ján Linberg og Anna Karen; Þor-
steinn Norðfjörð, f. 2.7. 1968, túlkur
hjá Mexis í Mexíkó, kvæntur
Gabriellu Guittéres Espinosa, nema
í mannfræði við háskólann í
Mexikó; Friðrik, f. 2.5. 1978, nemi í
Flensborg.
Systkini Kömmu eru John Ras-
mussen, f. 4.4. 1935, rafverktaki á
Ströndum í Færeyjum , kvæntur
Margit Rasmussen húsmóður;
Sámal Andrésson, f. 24.2. 1938,
skipasmiður í Reykjavík, kvæntur
Bergþóm Ásgeirsdóttur húsmóður;
Símin Rasmussen, f. 20.9.1944, báta-
smiður í Danmörku, kvæntur
Jovinu Rasmussen húsmóður; Jef-
frey Rasmussen, f. 12.4. 1952, raf-
virki á Ströndum í Færeyjum,
kvæntur Káru Rasmussen húsmóð-
ur.
Foreldrar Kömmu vom Andreas
Frederik Rasmussen, f. 1.9. 1910, d.
20.1. 1991, bátasmiður og skipstjóri,
og k.h., Jóhanna Davina Rasmus-
sen, f. Olsen 17.9. 1912, d. í nóvem-
ber 1970.
Þorsteinn Bergsson
Þorsteinn Bergsson,
'ramkvæmdastjóri
vlinjaverndar, sjálfs-
ngnastofnunar, Vestur-
götu 29, Reykjavík, er fer-
tugur í dag.
Starfsferill
Þorsteinn fæddist í
teykjavík og ólst þar
4pp. Hann lauk stúdents-
oróf. frá MH 1976 og
'tundaði nám í sögu og fé-
agsfræði við HÍ 1976-79.
Þorsteinn var framkvæmdastjóri
'orfusamtakanna 1979-85 og hefur
íðan verið framkvæmdastjóri
jálfseignarstofnunarinnar Minja-
emd írá stofnun 1985.
Þorsteinn Bergsson.
Þorsteinn hefur sinnt
ýmsum félags- og trúnað-
arstörfum á námsárunum
og síðar, bæði á vegum
opinberra aðila sem og á
almennum vettvangi.
Fjölskylda
Þorsteinn kvæntist 29.12.
1984 Ingibjörgu Ástu Pét-
ursdóttur, f. 10.6. 1948,
veitingakonu. Hún er
dóttir Péturs O. Nikulás-
sonar, stórkaupmanns í
Reykjavík, og k.h., Sigríðar Guð-
mundsdóttur húsmóður.
Sonur Þorsteins og Ingibjargar er
Bergur Þorsteinsson, f. 21.11. 1984.
Sonur Þorsteins frá því fyrir
hjónaband er Ólafur Þorsteinsson, f.
13.9. 1977, nemi við Fjölbrautaskól-
ann í Ármúla.
Fósturbörn Þorsteins og börn
Ingibjargar trá fyrra hjónabandi eru
Kristín María Blin, f. 4.12. 1972, við-
skiptafræðingur í Noregi; Nikulás
Pétur Blin, f. 8.6. 1967, líffræðingur,
nú búsettur í Frakklandi, kvæntur
Helenu Gunnarsdóttur og eru börn
þeirra Nikulás Stefán, f. 15.9. 1987,
og Kolfinna, f. 31.10. 1990.
Systkini Þorsteins eru Páll Ólafur
Bergsson, f. 14.10. 1942, fram-
kvæmdastjóri í Reykjavík; Valgerð-
ur Bergsdóttir, f. 13.11. 1943, mynd-
listarmaður í Reykjavík.
Foreldrar Þorsteins: Bergur Guð-
mundur Pálsson, f. 6.12. 1911, d. 3.6.
1984, deildarstjóri í Stjómaráði ís-
lands, og k.h., Valgerður Briem, f.
16.6.1914, myndlistarkennari.
Bergur var sonur Páls Vídalín
Bjamasonar, sýslumanns í Stykkis-
hólmi, og k.h., Margrétar Ámadótt-
ur frá Höfhum á Skaga.
Valgerður er dóttir séra Þorsteins
Briems, prófasts á Akranesi og ráð-
herra, og Valgerðar Lárusdóttur,
söngkennara frá Grund í Eyjafirði.
Þorsteinn og Ingibjörg taka á
móti vinum og vandamönnum í
Komhlöðunni á Bemhöftstorfunni
laugardaginn 19.10. milli kl. 17.00 og
19.00.
1
-
Tll hamingju með
afmælið 19. október
80 ára
Sigurbjargar, móður Guðmundar
skálds á Sandi og Sigurjóns, skálds
og alþm. á Litlu-Laugum, Friðjóns-
sona. Jónas var sonur Guðmundar,
b. á Sílalæk, Stefánssonar.
Móðir Konráðs var Kristín Jakob-
ína, hálfsystir Þorgríms Pétursson-
ar í Nesi, afa Steingríms Baldvins-
sonar skálds. Kristín var dóttir
Kristjáns, b. í Nesi í Aðaldal, Steins-
sonar.
Þórhalla var dóttir Jóns Frí-
manns, b. í Brekknakoti, Jónssonar,
en föðursystir hans var Sigríður,
móðir Jóns Sveinssonar, Nonna.
Móðir Þórhöllu var Hólmfríður,
systir Jóns, alþm. á Arnarvatni, foð-
ur Árna, alþm. frá Múla, foður Jóns
Múla tónskálds og Jónasar, rithöf-
undar og fyrrv. alþm. Hálfbróðir
Hólmfríðar var Sigurður, skáld á
Arnarvatni, faðir Málmfríðar, fyrrv.
alþm. Hólmfríður var dóttir Jóns,
skálds á Helluvaði, Hinrikssonar, á
Tunguhálsi í Skagafirði, Hinriks-
sonar, b. þar, Gunnlaugssonar. Móð-
ir Hinriks yngra var Þórann Jóns-
dóttir í Mörk, ættfóður Harðabónda-
ættarinnar. Móðir Hólmfríðar var
Friðrika, systir Stefáns, fóður Þor-
gils gjallanda. Friðrika var dóttir
Helga, ættföður Skútustaðaættar-
innar, Ásmundssonar.
Gísli er erlendis á afmælisdaginn.
Jónína Símonardóttir,
|* Eyrarvegi 7A, Akureyri.
75 ára
:
Einar Ámason,
Brekkubraut 4, Akranesi.
Ingibjörg Finnsdóttir,
Túngötu 18, ísafirði.
Kristín Friðbjörnsdóttir,
Víðimýri 12, Neskaupstað.
70 ára
1
Ililda Árnadóttir,
Lindasíðu 4, Akureyri.
60 ára
Kári Pálsson,
húsasmíðameistari,
Lækjarfit 12, Garðabæ.
Kona hans er Ólöf Ingimundar-
dóttir húsmóðir.
Kári er að heiman.
: Ardís Ólöf Arelíusdóttir,
Bogabraut 18, Höfðahreppi.
50 ára
Völundur Sigurbjörnsson,
Fálkakletti 8, Borgamesi.
Guðrún E. Hreiðarsdóttir,
Frostaskjóli 117, Reykjavík.
Sigríður Kolbrún
Guðjónsdóttir,
^ Hásteinsvegi 21, Stokkseyri.
Jónasína Oddsdóttir,
: Laugabrekku, Ólafsvik.
María Birna Friðriksdóttir,
i Brunnum 16, Patreksfirði.
40 ára
Heiðrún Elsa Harðardóttir,
Vesturgötu 29, Reykjavík.
Rúnar Vífill Araarson,
Hátúni 33, Keflavík.
Oddný Hervör Jóhannsdóttir,
Hafnartúni 14, Siglufirði.
Ásta Ámadóttir,
Efstasundi 39, Reykjavík.
Hjörtur Sigurðsson,
Tjamarlundi 19G, Akureyri.
Guðbjörg Jóhanna
Björasdóttir,
Blönduhlíð 14, Reykjavík.
fréttir
Ljósmynda-
maraþon í
Ráðhúsinu
Miðbærinn mun iða af lifi í dag
þar sem ungt fólk verður á hverju
strái með myndavélar að vopni.
Ljósmyndamaraþon Unglistar hefst
í dag kl. 12. Keppendur á aldrinum
16-25 ára geta skráð sig í Ráðhúsi
Reykjavíkur. Þeir fá í hendur eina
tólf mynda filmu, tólf myndverkefni
og tólf tíma til að setja verkefnið á
filmuna. Keppendur skila fiimunum
í Hitt húsið fyrir miðnætti á laugar-
dag. Hans Petersen og DV styrkja
keppnina. -em
Leiðrétting:
Svanurinn er
í Borgarleik-
húsinu
Leikritið Svanurinn verður frum-
sýnt í Borgarleikhúsinu í kvöld eins
og fram kom í DV í gær. Á forsíðu
blaðsins misritaðist hins vegar að
verkið væri á fjölum Þjóðleikhúss-
ins. Því er ítrekað að svo er ekki.
Beðist er velvirðingar á mistök-
unum.