Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1996, Side 52
Qvikmyndir
LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 1996 DV
- A
KVIKMYILDA
Háskólabíó - Klikkaði prófessorinn:
Eddie Murphy í fínu formi
Eddie Murphy hefur ekki verið hátt skrifaður
að undanfornu. Gamanleikarinn sem var i
sporum Jims Carreys fyrir tíu árum hefur
tekist að gera sig nánast óþolandi í nokkrum
misheppnuðum myndum. En þeir mörgu sem
höfðu misst trúna á kappann verða að gjöra
svo vel að endurskoða hug sinn því hann fer
á kostum í Klikkaða prófessomum (The
Nutty Professor) og hefur aldrei verið betri.
Að vísu fær hann mikla hjálp frá förðunar-
meisturum sem hefur tekist að breyta
Murphy í 150 kílóa flikki á trúverðugan hátt.
Og ef það er einhver sem kami að nýta sér gervi til fúlls þá er það Murphy.
Hann hefur áður leikið mörg hlutverk i einni mynd en hér kórónar hann aÚt
annað sem hann hefur gert.
Klikkaði prófessorinn er byggður á kvikmynd sem Jerry Lewis gerði fyrir rúm-
um þijátíu árum og hét sama nafhi. Lewis byggði á hinni þekktu Dr. Jekyll og
Mr. Hyde formúlu og Eddie Murphy gerir í raun það sama en hefur tekist að
fmna nýjan flöt sem er að breyta feitum manni í grannan og eins og sagan gerir
ráð fyrir er önnur persónan góð en hin slæm. Feiti prófessorinn, Sherman
Klump er hið mesta ljúfmenni en Buddy Love er kjaftfor töffari sem reynir að
lokum að ganga alveg frá Klump.
Þótt Buddy Love sé hinn mesti vargur er í þvi hlutverki hinn eini sanni Eddie
Murphy og þegar Eddie Murphy tekst vel upp sem Eddie Murphy er hann
óborganlegur eins og í atriðinu þegar hann tætfr í sig meinfysinn grínista sem
hafði gert lítið úr Klump. í hinum hlutverkunum byggist grinið meira á líkams-
burðum persónunnar og tekst Murphy vel að fara hinn gullna meðalveg þótt
feitt fólk fái svo sannarlega sinn skammt af gríninu.
Klikkaði prófessorinn er hreinn farsi og vel heppnaður sem slíkur. Brandarar
og ýmis atriði eru að sjálfsögðu misgóð en þegar á heildina er litið er myndin
góð skemmtun.
Leikstjóri: Tom Shadyac. Handrit: David Sheffield, Barry W. Blaustein, Tom Shadyac
og Steve Oedeker. Kvikmyndataka: Julio Macat. Tónlist: David Newman. Aöalleikar-
ar: Eddie Murphy, Jada Pinkett og James Coburn. Hilrnar Karlsson
Regnboginn - Sex:
Stunur í símanum **
Hvað gerir ung og upprennandi leikkona í New York sem neitar að koma
fram brjóstaber í mynd hjá QT (Quentin Tarantino) og klúðrar þar með hæfh-
isprófmu? Ætli svörin séu ekki jafnmörg og leikkonumar en hún Judy, aðal-
persónan í nýjustu myndinni hans Spikes Lees, ákveður að nota leiídistar-
hæfileika sína í að veita aðþrengdum körlum kynferðislega fullnægingu í
gegnum síma. Einhvem veginn verður maður að vinna sér inn peninga fyrir
leigunni og saltinu í grautinn á meðan beðið er eftir stóra tækifærinu. Áöur
hafði stúlkan reynt að vinna fyrir sér með því að dreifa flugritum á götum úti.
Judy finnur sig svo í símasexinu að ekki líður á löngu áður en hún er orðin
eftirsóttasta stúlkan i fyrirtækinu, á sér marga fastakúnna, mismikla öf-
ugugga, og tengist sumum of sterkum tilfinningaböndum. Og fyrr en varir er
Judy komin á hraðferð niður í hyldýpið, næstum búin að gleyma vinum sín-
um eins og hafnaboltamyndasafnaranum Jimmy sem Spike Lee leikur sjálfúr.
Það verður nú að segjast eins og er að Spike Lee hefur oft gert miklu betur en
hér. Ef eitthvað er að marka mynd þessa þá er símasex nú ekki sérstaklega
fjölbreytileg iðja og hreint ekki neitt sexí. Þótt góðir gamansprettir séu í fyrri
hluta myndarinnar, þetta er jú gamanmynd, á meðan Judy er að koma sér fyr-
ir í hinni nýju tilveru sinni verður sagan sífellt teygðari og langdregnari eftir
þvi sem á líður og skemmtftegheitin rjúka út í veður og vind. Ef þetta á að
vera ádeila á stöðu blökkukvenna (símasexsölukonumar eru flestar svartar en
eiga að vera hvítar i símanum, nema annars sé sérstaklega krafist, og kúnn-
amir era allir hvítir) fer sá broddur lika fyrir ofan garð og neðan.
Spike Lee hefur safhað í kringum sig ágætum leikarahópi þar sem mest mæð-
ir á Theresu Randle. Hún stendur sig með prýði, svo og stallsystur hennar. Þá
kemur fram í myndinni fjöldi frægs fólks í pínulitlum hlutverkum og má hafa
af þvi nokkurt gaman.
Leikstjóri: Splke Lee. Handrit: Suzan-Lori Parks.
Leikendur: Theresa Randle, Jenifer Lewis, Michael Imperioli, Peter Berg, Isaiah
Washington, Spike Lee, Quentin Tarantino, Naomi Campbell, Ron Silver, Halle
Berry, Madonna. GB
Sambíóin - Dauðasök: irk
Morð eða réttlætanleg dráp
Kvikmyndaiðnaðinum í Hollywood er orðinn
vandi á höndum þegar þeirra hæfustu leikstjórar
eru meira með hugann við viðskiptahliðina,
hvemig best er að selja, heldur en að koma frá
sér góðri mynd en þetta er sú gryfja sem Joel
Schumacher, ágætur leikstjóri, sem á að baki
nokkrar athylisverðar myndir, hefur fallið í og
þegar horft er á Dauðasök (A Time to Kill) er
mjög greinilegt að innihaldið er látið víkja fyrir
sölumennskunni.
Dauöasök er gerð eftir ágætri bók Johns Gris-
hams, sem tekur á viökvæmu máli í Suðurríkjun-
um, samskiptum svartra og hvítra. Sagan er dramatísk og hefur meiri dýpt en flest-
ar aðrar bækur Grishams. En Schumacher er svo í mun að selja myndina að þegar
Grisham, sem hafði valdið til að velja aðalleikarann, valdi óþekktan leikara varð
að stækka hlutverkið, sem Sandra Buliock leikur, með þeim afleiðingum að oft þeg-
ar hún birtist þá dettur niður dramað sem búið er að byggja upp.
Dauðasök er réttardrama sem fjallar um ungan lögfræðing sem tekur að sér að
verja svartan mann sem drepið hefur tvo hvíta menn sem misþyrmdu og nauðguðu
tíu ára dóttur hans. Og hann drap þá fyrir framan augu margra vitna. Var þetta yf-
irvegað morð eða gerði faðirinn rétt í að drepa þá þar sem sýnt var að þeir myndu
sleppa með væga dóma? Saksóknarinn, sem Kevin Spacey leikur mjög vel, og ungi
reynslulausi lögfræðingurinn reyna hvor um sig að sannfæra kviðdóminn.
Það er margt vel gert í Dauðasök og Schumacher heldur vel utan um allt saman.
En á kostnað Söndru Bullock hefði mátt gera mun betra drama úr því sem gerðist
í réttarsalnum. Atburðarásin þar er slitin í sundur óþarflega mikið.
Nýstimið Matthew McConauhey nær góðum tökum á hlutverki sínu og kemst
meira að segja klakklaust frá miklu tilfmningaatriði í lokin, atriði sem rambar á
barmi væmni. Helsti mótleikari McConaughey, Samul L. Jackson í hlutverk hins
ákærða er einnig góður og samleikur þeirra er með miklum ágætum.
Leikstjóri: Joel Schumacher. Handrit: Akiva Goldsman. Kvikmyndataka: Peter Menzies jr.
Tónlist: Elliot Goldenthal.
Aðalleikarar:Sandra Bullock, Samuel L. Jackson, Matthew McConaaughey, Kevin
Spacey, Brenda Fricker, Oliver Platt, Patrick McGoohan og Donald Sutherland. Bönnuð
börnum innan 16 ára. Hilmar Karlsson
Yfirfullt af
„óskarsmyndum"
Nú fer sá timi í hönd sem stóru
kvikmyndafyrirtækin í Bandaríkj-
unum eru í óða önn að fara að
setja á markaðinn þær kvikmynd-
ir sem líklegastar eru að þeirra
mati til að verða heitar þegar
kemur að óskarsverðlaunatilnefn-
ingunum en rúmir tveir mánuðir
eru til stefnu. Allir vonast eftir að
þeir séu með næstu Driving Miss
Daisy eða Schindler’s List. Lík-
legra er þó að í fórum þeirra sé
önnur Cobb eða At Play in the
Field of the Lord en þær áttu báð-
ar að verða „óskarsmyndir" í
fyrra en eru nú
öllum gleymdar.
Þær kvikmynd-
ir sem þegar
hafa verið
frumsýndar
og þykja koma
til greina við
tilnefningar
miðað er við þá
góðu gagnrýni
sem þær hafa
fengið hafa flestar komið
frá óháðum kvikmyndafyr-
irtækjum en hafa einnig
gert það ágætlega í aðsókn.
Eru þar helstar
Fargo, Lone Star,
Trainspotting
og Emma.
Það
eru
margar
kvik-
mynd-
imar sem kvikmyndaframleiðend-
urnir treysta á þessa dagana og
tala margir um að það sé yfirfullt
af „óskarsmyndum". Af þeim sem
helst þykja koma til greina og á
eftir að frumsýna má nefna: Ghost
of Mississippi sem Rob Reiner
leikstýrir. Fjallar hún um leit að
morðingja mannréttindaleiðtogans
Medgars Evers. í aðalhlutverkum
eru Alec Baldwin, Whoopi Gold-
berg og James Woods. The Cruci-
ble er ný kvikmyndaútgáfa eftir
leikriti
Arthurs
Mill-
ers
Shirley MacLaine vann óskarsverölaun fyrir leik sinn í Terms of Endearment. Fimmtán árum síö
ar leikur hún aftur Auroru Greenway í The Evening Star.
um réttarhöldin yfir galdrakonum
í Salem. Leikstjóri er Nicholas
Hytner (The Madness of King Ge-
orge), í aðalhlutverkum eru Dani-
el Day-Lewis og Winona Ryder.
The People vs. Larry Flynt er um
samnefndan klámkóng, Milos
Forman leikstýrir. The Evening
Star er kvikmynd sem margir
bíða spenntir eftir en hún er fram-
hald óskarsverðlaunamyndarinn-
ar Terms of Endearment. Þetta er
aðeins toppurinn á ísjakanum. Til
viðbótar má nefna kvikmynd
Kenneths Brannaghs, Hamlet, sem
er stjömum prýdd útgáfa af þessu
frægasta leikriti allra tima en hún
gæti átt erfitt uppdráttar vegna
þess hversu löng hún er. Talandi.
um Shakespeare þá verða tvær
aðar myndir frumsýndar á næst-
unni sem tengjast honum, nútíma-
útgáfa af Rómeó og Júlíu og er
sögusviðið fært til Miami í þeirri
mynd, og Looking for Richard
sem er fyrsta kvikmyndin
sem A1 Pacino leikstýrir.
Þá verða margverðlaun-
aðir leikstjórar á borð við
Jane Champion og Ang
Lee með nýjar myndir
fyrir jólin og svona
mætti lengi telja.
Margar þeirra mynda
sem ætlað er að ná til
þeirra sem velja ósk-
arstilnefningar fá að-
eins litla dreifíngu í
byrjrrn og
áætlað
frá
>0.-27.
des-
em-
ber,
sem
em
síð-
ustu dagarnir, verði flmmtán
kvikmyndum dreift í nokkur kvik-
myndahús svo þær geti talist gild-
ar til óskarsverðlauna.
-HK
Kvikmyndahátíð í Reykjavík 1996:
A sjötta tug kvikmynda
Emma, sem gerö er eftir skáldsögu
Jane Austin, hefur fengiö mikiö lof
og þá ekki síst Gwyneth Paltrow fyr-
ir túlkun sína í titilhlutverkinu.
Matthew McConaughey og Kris Kristofferson í kvikmynd Johns Sayles,
Lone Star.
lagi um heimsbyggðina svo og
nýjar kvikmyndir sem eru að
hefja för sína um heiminn. Of
langt mál er að telja upp alla
titlana en bent er á bækling
sem Kvikmyndahátíð gefur út
og væntanlegur er. Ef stiklað
er á stóru þá má nefna tvær
kvikmyndir sem undanfamar
vikur hafa vakið mikla athygli
í Bandarikjunum, Emma og
Lone Star, tvær kvikmyndir
Waynes Wangs, Smoke og
Blue in the Face, en þær voru
settar á markaðinn samtímis.
Þá má nefna Breaking the Wa-
ves, kvikmynd Lars von Trier,
sem mikla athygli hefur vakið,
óskarsverðlaunamyndina Ant-
onia’s Line, Kansas City, sem
er nýjasta kvikmynd Roberts
Altmans. Eirrnig verða sýndar
L’Uomo DeHe SteHe og A
Simple Formality, báðar gerð-
ar af Giuseppe Tomadore,
guUbjamarmyndin frá Berlín,
L’Appat, sem Bertrand
Tavernier leikstýrir, Flirt og
Amateur, báöar gerðar af Hal
Hartley, og L’America sem
fékk Felix-verðlaunin í fyrra.
Þetta er aðeins toppurinn á ís-
jakanum og má nefha að sjö
norskar kvikmyndir verða
sýndar.
-HK
slíkur. Koma myndirnar aH-
staðar að, þekktar og óþekktar
myndir sem hafa verið á ferða-
Shakespearemyndina Richard
III, In the Bleak Midwinter,
gerða af Kenneth Brannagh og
Nú er eins gott fyrir aUa
kvikmyndaáhugamenn hér á
landi að setja sig í steUingar
því fram undan er Kvik-
myndahátíð Reykjavíkur 1996
og hefst hún í næstu viku.
Þegar kvikmyndahátíð hefur
verið haldin i Reykjavík hefur
hún sett mikinn svip á bæinn
enda er yfirleitt reynt að vera
með það helsta sem hefur ver-
ið sýnt á kvikmyndahátíðum í
útlöndum.
í ár ættu margir að finna
margar þær kvikmyndir sem
beðið hefur verið eftir því að á
hátíðinni verða sýndar á miUi
fimmtíu og sextiu kvikmyndir
og hefur fjöldinn aldrei verið