Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1997, Page 2
* *
2
fréttir
LAUGARDAGUR 19. APRÍL 1997
Norska stúlkan Toril Grindahl:
Fólk hringdi og ósk-
aði mér góðs gengis
„Þetta er búinn að vera undar-
legur dagur hjá mér og ég gat ekk-
ert sofið í nótt því ég var svo
spennt og ringluð yfir þessu öllu.
Ég er alveg fúllviss um að móðir
mín er íslensk og ég mun gera allt
sem ég mögulega get til að finna
hana. Það hafa nokkrir íslending-
ar hringt til mín en þeir gátu ekki
gefið mér neinar betri upplýsing-
ar varðandi leitina. Tvær konur
hringdu og sögðust vona að ég
fyndi móður mína. Ég var afar
þakklát að heyra þann stuðning,"
segir Toril Grindahl, 21 árs norsk
stúlka sem leitar móður sinnar á
íslandi.
Eins og fram kom í DV í gær
telur hún sig vera fædda á íslandi
og eiga íslenska móður en hafa
verið ættleidda til Noregs þegar
hún var tveggja ára. Þessar upp-
lýsingar fékk hún í bréfi frá
fósturömmu sinni sem lést fyrir
tveimur mánuðum. Hið eina sem
Toril hefúr raunverulega í hönd-
unum eru myndir frá íslandi,
m.a. af ungri konu, og aftan á
myndina er skrifað íslenskt kven-
mannsnafii. Toril telur líklegt að
annaðhvort sé þetta móðir hennar
eða einhver sem þekkir til henn-
ar.
Áður hafði Toril fundið dular-
fúllt fæðingarvottorð í pappínun
fósturforeldra sinna þar sem
stendur að hún sé fædd 1973 en í
öðru vottoröi stendm* að hún sé
fædd 1976 og við það hefúr aldur
hennar verið miðaður. Toril á því
tvö fæðingarvottorð en hún telur
að fósturfaðir hennar hafi falsað
annað vottorðið.
„Ég ætla að reyna að komast til
íslands, helst sem fyrst. Ég er
mjög spennt en jafnframt pínulít-
ið hrædd því þetta er svo skrýtið
mál, sérstaklega eftir að ég komst
að því að ég á tvö fæðingarvott-
orð,“ segir Toril.
Heimilisfangið Toril Grindahl
er: Sorgenfrigaten 29a, N-0365,
Osló, Norge.
-RR
írindjihl
Mii:';,,.
Torlll fferí-!
Pöoiiifl. miiiöö. Ar
PJ U tSTfj
/Öill UYif!(kCt-tý
te.-.TO«£LL SSI/ÍDAííl
**>*»*: 1 »0676 „ n
Hiö dularfulla og örlagarfka fæöingarvottorö sem Toril fann I pappfrum fóst-
urforeldra sinna. Á því stendur aö hún sé fædd 10. desember 1973, eöa
þremur árum áöur en hún haföi ávallt haldiö samkvæmt ööru fæöingarvott-
oröi. Toril er nú aö reyna aö finna réttan uppruna sinn og segist þess full-
viss aö móöir hennar sé íslensk og hún sjálf fædd á íslandi.
DV-mynd Scan-Foto
Mágkonurnar á Brúarbæjunum í Fljótsdal missa allt fé vegna riðu:
Er dofin og sé
ekki mikla framtíð
- segir Sigríður Ragnarsdóttir bóndi - kostar milljónir
„Við urðum að farga 290 ám í vik-
unni og mágkona mín á hinum bæn-
um þarf að lóga öllu hjá sér í haust
vegna þessa. Þetta er vitaskuld mikið
áfall og maður er engan veginn búin
að ná sér. Þessa stundina er ég dofin
og sé ekki mikla framtíð í þessu,“ seg-
ir Sigríður Ragnarsdóttir, bóndi á
Brú í Fljótsdal, en vegna riðu þarf að
lóga um 600 fjár af bæjunum tveimur.
Sigríður segir engan veginn hægt
að lýsa þeim tilfinningum sem bær-
ast í bijósti bónda sem horfir á allt
fé sitt skorið niður með þessum
hætti. Hún segir að reglumar og
bætumar í kerfmu séu svo lágar að
nánast ómögulegt sé fyrir bændur
að byija upp á nýtt.
„Það var allt fé skorið niður hér
fyrir átján árum og það má segja aö
við séum enn að súpa seyðiö af
kostnaðinum af þvi. Við vorum þá
nýbúin að byggja yfir féð, 400 kinda
hús, og hálfiiuð með að byggja íbúð-
arhús. Þetta var allt klárað þrátt
fyrir áfallið þá og því byrjuðum við
langt fyrir neðan núllið þegar við
fengum okkur aftur fé. Nú era bóta-
mál þannig að maður fær aðeins 20
prósent af því sem maður hefði
fengið fyrir hverja kind úr slátur-
húsi þannig að það sér hver maður
hvað þetta er erfitt. Þetta kostar
okkur milljónir.“
Sigríður segir þau hjónin hafa lif-
að eingöngu af búskapnum hér áður
en nú sé Stefán Halldórsson, maður
hennar, í burtu mestan part ársins,
á sjónum á vetuma og viö keyrslu á
sumrin. Hún viðurkennir aðspurð
að uppgjöf hafi verið hennar fyrstu
viðbrögð.
„Ég veit ekki hvað veröur því það
getur svo margt breyst á þessum
tíma, tveimur og hálfú ári, sem við
þurfúm að vera án fjár. Menn virðast
vita jafii htið um þennan sjúkdóm nú
og fýrir átján árum en ég held að all-
ir séu sammála um að niðurskurður
sé nauðsynlegur," segir Sigríður.
Hún segir ekki auðvelt aö sækja
vinnu annað og ómögulegt sé að
selja jarðimar á þessum stað.
„Núna hugsum við um þá miklu
vinnu sem er framundan við að
hreinsa húsin og vonandi birtir yfir
okkur þegar frá líður svo við verð-
um sáttari við lífið og tilveruna á
þessum stað,“ segir Sigríður Ragn-
arsdóttir. -sv
Kjarasamningar og þjóðarhagur til aldamóta:
80 milljaiða viðskiptahalli
- aukinn sparnaður gæti bætt stöðuna, segir forstjóri Þjóðhagsstofnunar
„Við metum horfúmar þannig að
að viðskiptahallinn stefiii í samtals
80 milljarða á þessum þremur
áram, 1997-1999, sem samsvarar til
jafhaðar rúmlega 5% af landsfram-
leiðslu á ári,“ segir Þórður Friöjóns-
son forstjóri Þjóðhagsstofhunar í
samtali við DV um horfúmar í efiia-
hagsmálum á gildistíma nýgerðra
kjarasamninga.
Þórður segir þriðjungur hallans
verði vegna stjóriðjuframkvæmda,
en tveir þriðju vegna aukinnar
einkaneyslu og fjárfestinga heimila
og fyrirtækja. Gert sé ráð fyrir því
að 2-3% halla á viðskiptajöfnuði
vegna annarra umsvifa en stóriðju.
Þórður Friðjónsson segir að þjóð-
hagslegur spamaöur hér á landi sé
15-16% af landsframleiðslu en til að
þessi hallaspá gangi ekki eftir þyrfti
spamaður að hækka á næstu miss-
erum upp í minnst 17-18% til að
standa undir almennri Qárfestingu í
landinu sem reikna má með að
verði til jafnaðar minst 17-18% á ári
af landsframleiðslu.
-SÁ
Þ0 getur svaraö þessari
spurningu meö því aö
hringja í síma 904 1600.
39,90 kr. mínútan
Ji §J N»l
rödd
FOLKSINS
904 1600
Eiga íslensk handboltalið að
hætta þátttöku í Evrópukeppni?
Stjórn Blaðamannafélagsins:
Alyktun vegna árásar
að fréttamönnum DV
Stjóm Blaðamannafélagsins hélt
fund í gær þar sem meðal annars
var tekinn fyrir atburöurinn þar
sem ráöist var að blaðamanni og
Ijósmyndara DV við Reykjavíkur-
höfh í gær. Eftirfarandi samþykkt
var gerð á fúndinum.
Stjóm Blaðamannafélagsins átelur
harðlega þann atburð þegar ráöist
var að blaðamanni og ljósmyndara
DV þar sem þeir vora að störfúm við
Reykjavíkurhöfh. Hér er um alvar-
legt mál að ræða, og ekki síst vegna
þess aö í hlut átti opinber starfsmaö-
ur sem ætti að þekkja réttindi sín og
skyldur og virða um leið réttindi og
stöðu annarra starfsstétta.
Blaðamannafélágið lítur svo á aö
hér hafi verið um að ræða freklega
árás á starfsstétt blaða- og frétta-
manna og mun fylgja því fast eftir
að réttarstaða fjölmiðlanna sé virt.
Friðrik
beygir sig
Friðrik Sophusson fjármála-
ráðherra varð að beygja sig í
sambandi við lífeyrisfrumvarp-
ið sem hann mælti fýrir á þingi
í gær því að hann féúst á að fela
efhahags- og viðskiptanefnd að
gera þær breytingar á frum-
varpinu að opnað væri á að
fleiri lífeyrissjóðir en almennu
sjóðimir einir megi taka við
skyldutryggingu lífeyris. Um-
ræður um framvarpið stóðu
fram eftir gærkvöldinu og ólík-
legt er talið að það verði að lög-
um á þessu þingi.
Um skattalækkunarfrumvarp
rikisstjómarinnar tókst hins
vegar samkomulag milli stjóm-
ar og stjórnarandstöðu um sér-
staka flýtimeðferð þess og allt
bendir til að það verði að lögum
stuttar fréttir
Hugbúnaður gerður
upptækur
Einstaklingar og fyrirtæki á
íslandi, sem nota eða selja hug-
búnaö í leyfisleysi, geta búist
við lögregluaðgerðum á næst-
unni, að sögn Stöðvar 2.
Kennarar samþykktu
Kennarar í Kennarasamband-
inu og HÍK hafa samþykkt kjara-
samninga félaganna við launa-
nefiid sveitarfélaga. 83% þeirra
sem greiddu atkvæði sögðu já.
Dagssala tæpur
milljarður
Viðskipti með verðbréf námu
973 milljónum króna á Verð-
bréfaþingi íslands í gær en af
því námu hlutabréfaviðskipti
65 mihjónum, mest í Síldar-
vinnslunni og Þormóði ramma
ogHBá Akranesi.
Ekkert orlof á
yfirvinnu
Félagsdómur hefur hafiiað
kröfu Félags fréttamanna um or-
lofsgreiðslur ofan á yfirvinnu-
laun þar sem þeir hafi ekki feng-
iö slíkar greiðslur undanfarin 12
ár, án þess að fréttamenn mót-
mæltu. RÚV sagði frá.
Spaugstofan í farbannl
Fimm meðlimir Spaugstof-
unnar era í óformlegu farbanni
að beiðni RLR meöan meint guð-
last Spaugstofunnar í Sjónvarp-
inu fyrir páskana er í rannsókn
og skýrsla hefur ekki veriö tekin
af mönnunum fimm. RÚV segir
að skýrsla verði tekin af þeim í
lok mánaðarins.
Sorpgas nýtt á bíla
Þingmennimir Kristján Páls-
son og Ólafúr Öm Haraldsson
vilja að felld verði niður gjöld
og skattar á innlenda metangas-
framleiöslu úr sorp- og safn-
haugum og á almennings- og
flutningabíla sem nota gasiö
sem eldsneyti.
Vilja ekki
löndunarbann
Stjóm verkamannafélagsins
Hlífar í Hafiiarfirði hefur
mælst til þess viö utanríkis- og
sjávarútvegsráðherra aö ekki
verði sett löndunarbann á rúss-
nesk skip sem veiða karfa á
Reykjaneshrygg.
VÍS gekk vel
Um 307 milljóna króna hagnað-
ur varö af rekstri Vátryggingafé-
lags íslands í fyrra sem er besta
afkoma frá stofiiun félagsins.
Lengra varöhald
Gæsluvarðhald var framlengt
í gær til 30. maí yfir hollenska
parinu sem setiö hefúr inni
vegna innflutnings á um 10 kg af
hassi. íslenskur karlmaður var
úrskurðaöur í gæsluvarðhald til
2. júní vegna sama máls. Fariö
verður fram á framlengingu
gæsluvarðhalds yfir íslenskri
konu sem setið hefur inni vegna
málsins. RÚV greindi frá.