Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1997, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1997, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 19. APRIL 1997 Þjóðleikhúsið frumsýndi í gær söngleikinn Fiðlarann á þakinu. Tæp 30 ár eru liðin síðan Fiðlarinn var sýndur í fyrsta sinn í Þjóðleik- húsinu og voru vinsældir þeirrar uppfærslu með eindæmum. Nú leika Jóhann Sigurðarson og Edda Heiðrún Backman aðalhlutverkin en árið 1969 voru Róbert Arnfinns- son og Guðmunda Elíasdóttir í þeim hlutverkum. Róbert gerði lag- ið Ef ég væri ríkur ódauðlegt og margir muna mætavel eftir þeirri sýningu. Sögusvið verksins er lítið rúss- neskt þorp í upphafi aldarinnar í gyðingasamfélagi. Þar býr mjólk- urpósturinn Tevje ásamt eigin- konu sinni Goldu og fimm dætrum í sátt við Guð og menn. Lífið er í föstum skorðum hjá þorpsbúum, mótað af aldagömlum hefðum, allir vinna hörðum höndum, flestir fá- tækir en fáeinir ríkir. Hjúskapar- miðlarinn Jenta hleypur á milli húsa og útvegar eiginmenn og eig- inkonur, unga fólkið verður ást- fangið en faðirinn á að velja eigin- menn. Einhvers staðar á bak við grúfir þó hin stöðuga ógn sem gyð- ingar í gegnum aldimar lifðu við og óttinn sem honum fylgir. í brot- hættri og þversagnakenndri til- veru eru hefðimar, siðvenjan, því traust haldreipi en tímarnir bylt- ast og breytast. „Hlutverkið krefst mikils af manni bæði sem leikara og söngv- ara. Mér líður mjög vel í þessu hlut- verki og tónlistin liggur vel við röddina mína. Mér finnst þetta mjög vel skrifað og skemmtilegt stykki. Það er manneskjulegt og hlýtt en í því er einnig mikið drama, sorg og gleði,“ segir Jóhann. Þetta er með stærri hlutverkum frá því Jóhann lék Don Giovanni en hann er í kringum 70% inni á sviðinu eða í öllum atriðum nema fjórum. Eins og að ganga á fjöll Jóhann var spurður að því hvort hann byggist við jafn miklum fögn- uði og Róbert og Guðmunda upp- lifðu. Hann sagði að á sínum tima hafi verkið verið nýstárlegt og ís- lendingar ekki vanir stórum söng- leikjum. Sýningin var áreiðanlega frábær, segir hann, og allir þekkja það orðspor. Gyðingamæður heilla Edda Heiðrún Backman syngur aðalkvenhlutverkið í Fiðlaranum á neinar hugmyndir um gang verka áður en þau koma til sýninga. Það sama gilti um Fiðlarann á þakinu," segir Róbert Arnfinnsson leikari þetta þótt það sé farið að náigast þijátíu ár frá því það var sýnt,“seg- ir Róbert. Að auki lék Róbert þetta sama Aðalleikarar Fiðlarans á þakinu árið 1969, þau Róbert Arnfinnsson og Guömunda Elíasdottir ásamt Jóhanni Sigurðarsyni og Eddu Heiðrúnu Backman, aö- alleikurum Fiðlarans sem frumsýndur var í gær. DV-mynd E.ÓI „Þetta er eins og að ganga á fjöll, maður veit ekki alltaf fyrir- fram hvar maður lendir. Auðvitað eiga viss stykki meiri möguleika á lengri gangi en önnur. Mér finnst ég ekkert sérstaklega vera að feta í fótspor Róberts þó hann hafí leikið þetta hlutverk á sínum tíma en það hafa einnig margir aðrir gert. Ég er fyrst og fremst þakklátur fyrir að hafa fengið að spreyta mig á þessu. Öllum leikurum sem hreppa svona hlutverk hlýtur að fmnast þeir hafa dottið I lukku- pottinn. Svona hlut- verk eru ekki á boðstólum á hverjum degi,“ segir Jóhann. þakinu. Edda lærði að syngja og hef- ur lokið 4. stigi hjá Guðmundu Elí- asdóttur og debuteraði í útvarps- leikriti með Róberti Amfinnssyni þar sem hann var orðinn frægur leikari þannig að hún þekkir þau mæta vel. Lögin henta Eddu Heiðrúnu afar vel eins og söngleik- urinn er skrifaður. „Hlutverkið er stílað upp á leik- konu með góða rödd. Golda er yndis- legt hlutverk,“ segir Edda Heiðrún. Edda Heiðrún segir jafnframt að gyðingamæður heilli hana mjög þvi þær væru svo líkar íslenskum sem lék aðalhlutverkið í Fiðlaran- um sem sýndur var 92 sinnum árið 1969. „Allir reyna að vinna af alúð og kostgæfni að sýningum sem eru settar á svið. Síðan gerðist það ein- hvem veginn að Fiðlarinn féll í af- skaplega góðan jarðveg hjá áhorf- endum. Fólk kunni vel að meta efn- ið og söngleikinn. Kannski áttum við sem tókum þátt í þessu ein- hvern lilut að máli þar. Leikritið gekk lengi og varð geysilega vin- sælt. Þetta var skemmtilegur tími, mikil ósköp. Ég var maður á besta Siðir og venjur Róbert Arnfinnsson og Guðmunda æfingum á Fiölaranum á þakinu árið Að sögn Jóhanns er Tevje fátækur maður sem býr í gyðingasam- félagi og vinnur hörð- um höndum. Hann er í góðu sambandi við Guð sinn og spjallar mikið við hann. Tevje er bundinn af ákveðnum reglum og siðum sem þetta samfélag hefur þróað með sér í mörg hundruð ár. Hann þarf í rauninni að horfast í augu við að raunveru- leikinn er annar en sið- irnir og venjurnar bjóða upp á. Hann þarf að taka afstöðu til þess og fylgja hjartanu," seg- ir Jóhann. Að sögn Jóhanns trú- Elíasdóttir á ir Tevie á ástina °§ hiö 1969 ^óða í manninum. Jóhann Siguröarson í hlutverki Tevje. mæðrum. Það væri viss umhyggja, drift, ákveðni og ráðriki sem þær þó vilji ekki viðurkenna. Þeim þyki allt í lagi að hlusta á annarra manna skoðanir en þær ráði samt sem áður því sem þær vilji ráða. Hef ekki fengið að gleyma hlutverkinu „Ég hef aldrei fyrirfram gert mér aldri þá og hafði nægilega orku,“ segir Róbert. Sýningin var skrautleg og mikil og á þessum tíma voru söngleikir ekki daglegt brauð. Fiðlarinn hefur orðið eitt af eftirminnilegustu hlut- verkum sem Róbert hefur leikið og allir þekkja lagið Ef ég væri ríkur þótt þeir hafi ekki séð söngleikinn. „Ég hef ekki fengið frið til þess að gleyma hlutverkinu og það lifir enn i minningunni hjá mörgum sem sáu hlutverk- í Númberg og Lúbeck í Þýskalandi árið 1974. Fiðlarinn hlóð meira utan á sig af minningum leik- húsgestanna vegna þess að það var svo lengi í umræðunni og hefur ver- ið fram á þennan dag. Þó viðtökurnar á Fiðlaranum yrðu svona framúrskarandi góðar þá voru þær ekki síðri i Þýskalandi. Betra fyrir leikkonu „Eftirminnilegast frá Fiðlaranum á þakinu er að þetta var mjög mikið hlutverk. Það var mjög skapandi að taka þátt en hlutverkið er kannski meira fyrir leikkonu heldur en söngkonu eða leikkonu með sæmi- lega rödd fremur en söngkonu með litla leikhæfileika," segir Guð- munda. Guðmunda segist hafa haft mikla minnimáttarkennd og henni þótti hún hvorki nógu góð leikkona né góð söngkona fyrir verkið en Bene- dikt Ámason leikstjóri náði sjálfs- trausti hennar upp. „Golda er yndislegt hlutverk og er mér mjög kært og nálægt í senn. Ég skil vel grundvallarhugsunina í þessu stykki sem er að lifa af og bjarga sér hvað sem á dynur. Mér þótti mjög gaman og lærdómsríkt að taka þátt í þessari uppfærslu," segir Guðmunda. Guðmunda var spurð hvort hún teldi erfitt að feta í fótspor þeirra Róberts. „Það er engin sýning eins og það er liðið langt síðan síðasta sýning var hjá okk- ur og líklega farið að fyrnast hjá áhorfendum. Þetta kemur endur- nýjað núna og við vonum allt það besta. Þetta eru stólpaleikarar og góðir söngvarar svo þetta ætti að verða fín sýning," segir Guð- munda. -em Þjóðleikhúsið frumsýnir Fiðlarann á þakinu: Dottið í lukkupottinn - segir Jóhann Sigurðarson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.