Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1997, Blaðsíða 22
LAUGARDAGUR 19. APRÍL 1997
Hagyröingarnir þrír. Fyrir miöju er Dagbjartur Dagbjartsson en á honum á hægri
hönd situr Helgi Jónsson og hinum megin er Jón Þ. Bjömsson.DV-myndir RaSi
Lífeyrissj óðurinn Framsýn
Ársfimdur
Ársfundur Lífeyrissjóðsins Framsýnar verður
haldinn að Hótel Loftleiðum, Reykjavíkurflugvelli,
mánudrginn 28. apríl 1997 og hefst kl. 17.
Dagskrá fundarins:
1. Venjuleg ársfundarstörf.
2. Breytingar á reglugerð sjóðsins.
3. Önnur mál löglega upp borin.
Allir greiðandi sjóðfélagar, svo og elli- og
örorkulífeyrisþegar sjóðsins, eiga rétt til setu á
ársfundinum með málfrelsi og tillögurétti. Þeir
sjóðfélagar sem hyggjast nýta sér þennan rétt eru
beðnir að tilkynna það skrifstofu sjóðsins eigi síðar
en 25. apríl nk. og munu þeir þá fá fundargögn við
setningu fundarins.
Þeir sjóðfélagar sem vilja kynna sér tillögur til
breytinga á reglugerð sjóðsins sem lagðar verða fram
á fundinum geta fengið þær afhentar á skrifstofu
sjóðsins eða fengið þær sendar í pósti með því að “
o
hafa samband við skrifstofu sjóðsins. |
<
>
Reykjavík 10. apríl 1997
Stjórn Lífeyrissjóðsins Framsýnar
mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmtmmmfmmmmmmmmmmmmmmatmm
LÍFEYRISSJÓÐURINN FRAMSÝN
Borgfirðingar af öllum landshom-
um, þ.e. þeir sem tengjast firðinum
í vestri, komu saman nýlega á Hót-
el íslandi og gerðu sér glaðan dag að
kveldi. Hagyrðingar skemmtu,
söngvarar stigu á svið og karlakór-
inn Söngbræður tók lagið svo eitt-
hvað sé nefht. Að loknu borðhaldi
og skemmtiatriðum lék hljómsveit-
in Upplyfting fyrir dansi fram á
rauða nótt. Hótel ísland var þétt
setið þetta kvöld og sannkölluð
borgfirsk stemning sveif um stóra
sali hússins.
Meðfylgjandi myndir voru teknar
Hljómsveitin Upplyfting spilaöi fyrir
dansi.
á íslandi og tala þær sínu máli. En
við getum að sjálfsögðu ekki skilið
við málið nema að vitna í nokkrar
vísur sem hagyrðingamir létu frá
sér fara. Þeir tóku svo sannarlega
flugið, félagamir Helgi Jónsson á
Snartarstöðum í Lundarreykjadal,
Dagbjartur Dagbjartsson á Refsstöð-
um í Hálsasveit og Jón Þ. Bjömsson
úr Borgamesi.
Ekkert var þeim heilagt og um
Spaugstofúmálið hafði Helgi þetta
að segja:
Spaugstofan nú hefur hér,
hœöst aö Drottins sakramenti.
Biskup sú er syndlaus er,
sínum steini fyrstur henti.
Um álverið á Grundartanga, sem
stendur Borgfirðingum að sjálf-
sögðu nálægt, orti Dagbjartur þessa
í stíl Passíusálma Hallgríms:
Svo aö menn gcetu samiö friö,
og sungiö glaöir um álveriö,
þeir kyrjar þar sólarsönginn.
Eftir bjástur og arg og bags
ég vildi reyna að byrja strax
aö ýta því ofan í göngin.
Hagyrðingamir gátu ekki séð
hver annan í friði og Helgi skaut
þessari á Dagbjart, sem ku hafa ver-
ið „hefnd“ fyrir vísu sem sá fyrr-
nefhdi fékk fyrir ári síðan:
Ég hefskrítnum karli kynnst
sem kenndur er viö daginn bjarta,
þótt sálin yst sem innst
eins og nóttin myrkursvarta.
9
Söng- og útvarpskonan Erla Friðgeirs-
dóttir tók lagiö fyrir sveitunga sína.
Jón vildi koma Dagbjarti til hjálp-
ar og reyna að fegra ímynd hans
pínulítið. Niðurstaðan varð þessi:
Á Refsstööum í Hálsasveit hann búi
sínu býr,
hann bögur flestar kann á landsins
sonum.
Unir þama í sveitinni meö sínar œr
ogkýr,
og svo er bœrinn nefndur eftir hon-
um!
Karlakórinn Söngbræöur söng nokkur lög á Borgfiröingakvöldi viö góöar undirtektir viðstaddra. Stjórnandi kórsins
er Bjami Guöráöarson.