Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1997, Blaðsíða 55

Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1997, Blaðsíða 55
X^'V' LAUGARDAGUR 19. APRÍL 1997 Michael í Sam-bíóum: Engillinn Travolta Michael, sem Sam-bíóin frum- sýndu í gær er enn ein myndin með John Travolta sem slær i gegn. í Phenomenon lék hann einfaldan bifvélavirkja sem öðl- ast yfimáttúrulegan kraft. í Michael er hann enn ójarð- bundnari því hann leikur erki- engilinn Michael, sem er enginn venjulegur engill. Michael er að vísu með vængi eins og aðrir englar, en englar með skegg- brodda og frekar illa til hafðir eru sjaldgæfari. Þannig er Mich- ael þegar hann heimsækir jörð- ina. Fréttir berast af komu hans og blaðamenn fara á vettvang til þess fyrst og fremst að afsanna tilveru hans. Michael er verk systranna Nora og Delia Ephron sem lögðu af stað með það að gera róman- tíska gamanmynd sem hefði yf- imáttúrulegt yfirbragð. Hug- mynd um að gera mynd um eng- il sem heimsækir jörðina kom fljótt upp á yfirborðið og úr henni var unnið. Þær systur gerðu sér ljóst að til að dæmið gengi upp þurfti leikara sem hefði mikið aðdráttarafl: „John Travolta var í raun strax i huga okkar því hann hefur sýnt að hann á auðvelt með að að vera allt í senn sakleysislegur, stríð- inn og kynþokkafullur," segir Nora Ephron. Hlutverkið höfð- aði til Travolta. „Ég las handrit- ið meðan á tökum á Broken Ar- row stóð yfir,“ segir John Tra- volta, „ég sá strax að það var hægt að gera Michael fyndinn um leið og hægt var að skapa eft- irtektarverða persónu.“ Dansinn hefur ailtaf loðað við John Travolta. Hann var frægur fyrir hiutverk sín í Saturday Night Fever og Grease, þar sem hann þurfti að sýna danshæfni sína og eitt af bestu atriðum í Pulp Fiction er dansatriðið með honum og Uma Thurman. í Michael fær hann tækifæri til að dansa: „Eitt af því skemmtileg- var einmitt Heartburn sem opn- aði leið fyrir hana yfir í kvik- myndimar, en hún skrifaði sjálf handritið að kvikmyndinni, en í aðalhlutverkum vom Jack Nicholson og Meryl Streep. Fyrir utan Sleepless in Seattle og Michael hefur Nora Ephron leikstýrt Mixed Nuts og This Is My Life sem var hennar fyrsta mynd sem leikstjóri. Nora Ephron ert gift Nicholas Pileggi, höfundi metsölubókarinnar Wiseguy, sem hann svo síðar skrifaði kvikmyndahnd- ritið að Good- Fellas upp úr. -HK fyrst var það fyrir When Harry Met Sally, síðan kom Silkwood og þá Sleepless in Seattle. Önnur afrek hennar í handritsgerð eru My Blue Heaven, Cookie og This Is My Life. Áður en Nora Ephron byrjaði að skrifa fyrir kvikmyndir var hún mjög þekkt blaðakona. Hún byrjaði feril sinn í þeim geira á Esquire en fór síðan yfir á The New York Times Magazine og New York Magazine. Tvær bæk- ur með greinum eftir hana, Crazy Salad og Scribble, Scribble urðu metsölubæk- ur. Það var líka fyrsta skáldsaga hennar Heart- burn, en þar lýsir hún í skáldsöguformi hjónbandi hennar og blaðamannsins fræga Carl Bernstein, sem er annar tveggja sem komu upp um Wa- tergate annarri mynd sinni Sleepless in Seattle. Ephron hefur þrisvar fengið til- nefningu til ósk- arsverð- launa, var það í öll skiptin fyr- ir besta frumsamda handritið, John Travolta í hlutverki erkiengilsins Michaels. Á innfelldu myndinni er Travolta í dansatriði. asta við gerð myndarinnar var þegar ég var að leikstýra John Travolta í dansatriðinu, eða þóttist gera það því það leikstýr- ir enginn Travolta þegar hann stígur danssporin,“ segir Nora Ephron, „og satt best að segja var dagurinn sem dansinn var tekinn upp skemmtilegasti dag- ur kvikmyndatökunnar. Þegar verið var að æfa vildu að sjálf- sögðu allir dansa við Travolta og þau sem þorðu að koma fram fengu svo sannarlega tækifæri, þvi hann lék á alls oddi þennan dag og margir fóru brosandi úr vinnunni þann daginn.“ Auk John Travolta leika stór hlutverk í myndinni William Hurt, Andie MacDowell og Bob Hoskins. Fremst meðal jafningja Nora Ephron er sá leikstjóri kvenkyns ásamt Penny Mars- hall, sem náð hefur hvað lengst i hinni karlavænu leikstjórastétt í Hollywood. Hún byrjaði feril sinn sem handritshöfundur og náði fljótt góðum árangri á þvi sviði og þegar hún söðlaði um og gerðist leikstjóri tók hún Hollywood með trompi með kvikmyndiri Kemur Bergman til Cannes? í tilefni af því að í ár er haldin 50. kvikmyndahátíðin í Cannes verður veittur gullpálmi gullpálmanna og er það í eina skiptið sem þessi verðlaun verða veitt. Öllum fyrrum pálmavinn- ingshöfum var boðið að greiða at- kvæði um það hver ætti að fá þenn- an gullpálma og þeir sem höfðu rétt á honum eru leikstjórar sem aldrei áður hafa fengið verðlaun. Það kom engum á óvart að sigm-vegarinn var Ingmar Bergman. Nú er aftur á móti komið babb í bátinn, Bergman neit- ar að yfirgefa eyjuna sína kæru, Faro, og taka á móti verðlaununum. Aðstandendur hátíðarinnar hafa þó ekki gefið upp vonina og segja að hann fái gullpálmann, hvort sem hann vilji hann eða ekki. Harold Ramis kominn á lappirnar á ný Viðtökurnar sem Multiplicity fékk hjá almenningi í Bandaríkjunum urðu leikstjóranum Harold Ramis mikil vonbrigði. Hann er þó kominn á lappirnar á ný og er að undirbúa endurgerð gamanmyndarinnar Bedazzled sem gerð var 1967. í þeirri mynd lék Dudley Moore ástfanginn kokk sem fær sjö óskir frá skrattan- um og þarf í staðinn að láta sál sína af hendi. Handrit þeirrar myndar skrifuðu Dudley Moore og Peter' Cook og sá síðamefndi lék skrattann. Ekki er Ramis búinn að velja leikara en fastlega er gert ráð fyrir að það verði einhverjir af þeim „stóru“ í Hollywood. Nýjasta kvikmynd Sigurjóns fær óblíðar viðtökur Lakeshore Entertainment, fyrirtæk- ið sem Sigurjón Sighvatsson veitir forstöðu, er farið að senda frá sér kvikmyndir og er ein sú fyrsta róm- antíska gamanmyndin Till There Was You sem frumsýnd verður vest- anhafs um helgina. Leikarar eru ekki af verri endanum. Dylan McDermott, Sarah Jessica Parker, Jeanne Tripplehorn og Jennifer Aniston leika öfl stór hlutverk. Ef marka má dóm í Variety, þar sem meðal annars er sagt að áhorfendur séu á iði í sætunum vegna leiðinda, þá á hún grýtta framtíð fyrir sér. I BOÐI KRAKKAKLUBBS DV OG STJORNUBIOS í tilefni af 5 ára afmæli Krakkaklúbbs DV bjóða klúbburinn og Stjörnubíó öllum Krakkaklúbbsfélögum í bíó á myndina Gullbrá og birnirnir þrír. Þeir sem geta ekki nýtt sér bíómiðana fá í staðinn gómsætan Kjöríshtunk. Ávísanir á Kjöríshtunkana verða afhentar hjá umboðsmönnum DV um land atlt. Afhendingartími á hverjum stað verður auglýstur í DV þriðjudaginn 8. apríl. Krakkaklúbbssýningar verða alla laugardaga og sunnudaga í apriT. kl. 15. Miðar verða afhentir á laugardögum hjá DV. Þverhotti 11, frá kl. 10-14. Hver félagi færtvo bíómiða. Munið að koma með Krakkaklúbbsskírteinin. *
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.