Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1997, Blaðsíða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1997, Blaðsíða 54
66 LAUGARDAGUR 19. APRÍL 1997 i!^"V Íj H tJ Háskólabíó — The Empire Strikes Back: Ævintýrið heldur áfram **** Episode V: Empire Strikes Back var gerö árið 1980 eða þremur árum á eftir Star Wars og þótt George Lucas hafi látið það vera að leikstýra myndinni, lét það eftir reyndum spennumyndaleikstjóra, Irvin Kershner, þá leyna sér ekki handbrögð Lucasar og óhætt að eigna honum að mikl- um hluta þá staðreynd að kvikmyndalega séð er Empire Strikes Back betri mynd en Star Wars. Það sem gerir aftur á móti Star Wars betri en Empire Strikes Back og frekar að klassík í kvikmyndasögunni er að hún er frummyndin. Empire Strikes Back er jafhvel enn betri skemmtun en er samt sem áður aðeins mjög gott framhald. Sagan er mun þéttari í Empire Strikes Back en í Star Wars þar sem tíma tók að kynna persónumar. Við fylgjumst sem fyrr með Leiu prinsessu, Han Solo og Luke Skyewalker i baráttu þeirra við hin illu öfl sem Darth Vater stýrir og í Empire Strikes Back kemur það í ljós að Darth Vater er hinn raunverulegi faðir Lukes Skywalkers. Hvemig hann varð að þessu illmenni fáum við að kynnast í hlutum 1-3 sem Lucas undirbýr nú af miklu kappi. Ný persóna, sem kemur til sögunnar í Empire og vekur hvað mesta hrifningu, er Yoda, átta hundmð ára gamall þjálfari þeirra sem búa yfir kraftinum. Setur þessi litla flgúra sterkan svip á myndina. Það eina sem virðist í fljótu bragði hafa elst illa era tvífættu jámdrek- amir. Empire Strikes Back er mikið sjónarspil og eins og Star Wars hefúr hún enn í dag mikið aðdráttarfl og hér hefur enn betur tekist til við notkun á nýrri tölvugrafík. Hvað era módel og hvað er grafík? Það er ekki svo auðvelt að sjá, enda skiptir það kannski engu máli, myndin stendur vel fyrir sinu, hvemig sem á hana er litið, er mikil og góð skemmtun. Leikstjóri: irvin Kershner. Handrit: George Lucas og Lawrence Kasdan. Tónlist: John Williams. Aðalleikarar: Mark Hamill, Harrison Ford, Carrie Fisher og Billy Dee Wili- ams. Hilmar Karlsson Saga-bíó - Aftur til fortíðar: ★★ Nútímariddari Arthurs konungs Ódauðlegu ævin- týrin era mörg og eitt þeirra er um Arthur komrng og riddara hring- borðsins og skemmst að minn- ast hinnar ágætu First Knight sem sýnd var í fyrra. Þar var farið öðra- vísi leiðir að goð- sögninni en áður hefur verið gert og það er svo sannar- lega einnig gert í Aftur til fortíðar (A Kid in the Art- hurs Court) þar sem aðalpersónan er nútlmadrengur sem lendir í tima- ferðalagi í fortíðina og endar hjá hirö Arthurs svo úr verður nokkurs konar Kókópuffs-kynslóðarútgáfa af þessu vinsæla ævintýri. Það er ekki verra að þekkja söguna um Arthur og riddara hans þegar horft er á Aftur til fortíðar því besti húmorinn í myndinni er sá að sag- an gerist tuttugu árum eftir að Arthur hefúr lokið verki sínu með sverð- ið Excalibur sér við hlið. Arthur er orðinn værakært gamalmenni sem hefur slæma aðstoðarmenn, Guineviere er horfin á fund feðra sinna og afraksturinn af hjónabandi þeirra era tvær dætur, þá stendur hringborð- ið autt. Merlin er samur við sig nema nú er honum farið að forlast því hann ætlaði að galdra til stn riddara en fékk tyggjójórtrandi unglings- slána úr nútímanum í staðinn. Aftur til fortíðar er ekki merkileg mynd og það gengur erfiðlega að halda dampi enda sagan götótt og handritið uppfullt af ofnotuðum hendingum. Leikarar standa sig ágætlega og bjarga því sem bjargað verður, en í hlut- verki eldri prinsessunnar er Kate Winslett, sem leikið hefúr í hverri úr- valsmyndinni á fætur annarri að undanfómu. Leikstjóri: Michael Gottlieb. Aöalleikarar: Thomas lan Nicholas, Joss Ackland, Art Malik og Kate Winslet. Nýjasta kvikmynd Davids Cronenbergs, Crash, í Laugarásbíói: Framtíðarástarsaga sett í nútímann David Cronenberg við tökur á Crash. Er hægt að fá kynferðislega fullnægingu við það eitt að horfa á bílslys? Svo segir David Cronenberg í nýjustu kvik- mynd sinni, Crash, sem Laugarásbió framsýndi í gær. Crash er ein umdeildasta kvikmynd síðari ára og sýnist sitt hverjum, sumir hafa hafið hana til skýj- anna, meðan aðrir era fullir vandlætingar. Aðalpersónum- ar eru auglýs- ingamaðurinn James Ballard og eiginkona hans Catherine. Á yfirborðinu eru þau ósköp venjulegt millistéttarfólk, en bæði eru haldin komplexum gagnvart kynlífi. Kvöld eitt lenda þau í árekstri og slysi sem nærri kostar Ballard lifið, en svo einkennilega vill til að Ballard upplifir á hættu- augnabliki, samband hættu, kynlífs og dauða. í fram- haldi af kynnum hjónanna og vísindamannsins Vaugh- an og fómarlamb bílslyss, Catherine, uppgötva hjónin nýjar leiðir til að tjá sig kynferðislega. „Crash er framtíðarástarsaga sett í nútímann,“ segir David Cronenberg. „I henni kynnumst við fólki sem er ástfangið en nær ekki sambandi fyrr en það lendir í bílslysi og fer þvi að leita uppi annað fólk sem hefur upplifað það sama og reynir að ná sambandi við það.“ Cronenberg telur Crash vera mikla áskorun fyrir sig: „Þetta er hættuleg kvikmynd að mörgu leyti. Allir í mynd- inni eru á einhvern hátt hræddir og spenntir, en era samt að reyna að skap sér nýtt lífsmunstur í gegnum kynlif og erótík. Þau hafa öll upplifað bílslys og verða aldrei söm eftir þá reynslu og þau reyna öll á sinn hátt að taka þessa reynslu inn í sitt eigið lifsmunstur." Mikil áreynsla fyrir leikarana 1 aðalhlutverkum í Crash eru James Spader, HoOy Hunter, Deborah Unger, Rosanna Arquette og Elias Koteas. Crash er gerö eftir skáldsögu sem bar sama nafn og kom út árið 1993. Höfund- urinn er J.G. BaOard, þekktur vísinda- skáldsagnahöfundur. Tíu ár era síðan David Cronenberg las skáldsöguna og í fyrstu vakti hún með honum óróa og fannst honum hún fráhindrandi. Hann gat samt ekki gleymt henni og hreifst eftir þvi sem hann kafaði meira í sög- una. Það tók hann síðan fimm ár með hléum að fullklára handritið. BaUard hefur ekki eingöngu fengist við vísindaskáldsagnagerð. Ein þekktasta bók hans er Empire of the Sun, sem hann byggði á eigin ævi. Steven Spiel- berg gerði kvikmynd eftir þeirri bók fyrir tíu árum. Þegar fram- leiðandi myndar- innar Ro- bert Lantos hafði séð saeðf W' James Spader leikur auglýsingamanninn þ James Ballard, sem u ft. kemur út úr bílslysi með nýtt lífsviöhort. mikla kvikmynd mun ekki gera aUa ánægða, en hún á eftir að hræra i fólki og vekja það tU um- hugsunar.“ Það hefur komið á daginn að það voru orð að sönnu. Fyrir leikarana var Crash erfið reynsla en gef- andi og bæði James Spader og Holly Hunter segja að þrátt fyrir erfiðleik- ana við að finna persónumar hafi verið mjög gef- andi að leika þær. BaUard sem fylgdist með kvikmyndatök- unni er fullur aðdáunar á leik- urunum: „Mér fannst sérstaklega James Spader standa sig stórkostlega og náði hann að lýsa fullkomlega persónunni eins og ég hugsaði hana.“ Þá var BaUard ekki síður hrifinn af kvenfólkinu. Fyrirfram vissi ég að það yrði mjög erfitt að túlka kvenpersónumar enda ekki verið að túlka venjulegar tilfinningar, þær þurftu að opna sig, lík- amann sem og sálina, og þeim tókst það.“ Að lokum skulum við vitna í orð Cronenbergs: „Ég vUdi gera Crash að áreitinni, ástríðufullri og gefandi kvik- mynd. Ef áhorfandinn kemur út úr kvikmyndahúsinu undir tilfmningalegu álagi þá veit ég að myndin hefur virkað rétt.“ -HK Deborah Unger og Elias Koteas í hlutverkum sín- um i Crash. Hilmar Karlsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.