Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1997, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1997, Síða 12
12 LAUGARDAGUR 19. APRÍL 1997 I>"V Útvarpskonurnar Inger Anna Aikman og Margrát Blöndal orðnar ritstýrur Húsfreyjunnar: Fráleitt í fyrstu - rekin úr handavinnu í gaggó Útvarpskonurnar Margrét Blön- dal og Inger Anna Aikman hafa ver- ið ráðnar ritstýrur á tímaritinu Húsfreyjunni sem Kvenfélagasam- bandið gefur út. Fyrsta blað undir þeirra stjórn á að koma út 17. júní næstkomandi. Margrét er þessa dagana á öld- um ljósvakans í morgunþætti á Bylgjunni með Þorgeiri Ástvalds- syni en þrjú ár eru liðin síðan Inger Anna hætti i föstu starfi sem útvarpskona á Aðalstöðinni. Hún var þá að fara að eiga sitt fyrsta bam, dótturina Þórdisi Þuríði, og taka próf í sálfræði í Háskólanum. Nú hefur Inger Anna eignast aðra dóttur sem kom í heiminn á páska- dag, „lítinn páskaunga" eins og hún sagði í samtali við helgarblað- ið. Núna væri hún orðin alvöru húsfreyja! „Ég sagði við eldri dóttur mína, sem orðin var leið á að bíða, að litla barnið kæmi um páskana, um leið og hún fengi páskaegg. Reynd- ar kom upp dálítill misskilningur því hún hélt að ég myndi verpa litla barninu," sagði Inger Anna, alltaf með húmorinn á réttum stað. Fullar skrifborðsskúffur Síðastliðið sumar leysti hún af þau Margréti og Þorgeir i morgun- þætti Bylgjunnar og þar var ákveðið að hrinda því loks í fram- kvæmd að þær færu að vinna - segir Inger Anna sem eignaðist aðra dóttur nýlega, lítinn „páskaunga" meira saman. Þær hafa verið vinkonur til margra ára og Inger segir þær ávallt hafa náð vel saman. „Við höfum verið með sitthvorn þáttinn í útvarpinu og náðum loks að starfa saman síðasta sumar. Við erum með fleiri skrif- borðsskúffúrnar full- ar af hugmyndum. Svo var það einn dag- inn að Magga sló á þráðinn til mín og sagði það ekkert vafa- mál, við skyldum sækja um ritstjóra- starf á Húsfreyjunni. í fyrstu fannst mér þetta fráleitt. í gagn- fræðaskóla var ég rek- in úr handavinnu og sá mig ekki alveg í anda í þessu starfi. En ég fór að fletta blað- inu og sá að það er fjarri því eingöngu um handavinnu. Við settumst niður og ræddum hvað við gæt- um haft í blaðinu. Þá sáum við fram á að við værum búnar að fylla alveg þrjá ár- ganga. Við sóttum um, fórum í viðtal og það fór svona vel á með Inger Anna og Margrét ásamt dætrum. Þær elstu eru hennar Mar- grétar, þær Sigyn 14 ára og Sara Hjördís 8 ára. Inger heldur á þeirri yngstu sem fæddist á páskadag og við hlið hennar situr Þórdís Þuríður 3 ára. Sannarlega myndarlegar húsfreyjur á öllum aldri! okkur og kvenfélags- konunum að við vor- um ráðnar á staðnum. Við erum auðvitað al- sælar og finnst verk- efnið afskaplega spennandi. Hlökkum mikið til að takast á við þetta,“ sagði Inger Anna. Bræddi úr þremur sauma- válum Varðandi brott- reksturinn úr handa- vinnunni þá var hann kurteislega borinn upp af kennurum In- ger Önnu eftir að hún hafði brætt úr þremur saumavélum! Og hún náði að afreka meira á þessu sviði. Eitt sinn mætti Inger í handa- vinnutíma með út- saumaða setu á píanó- bekk sem mamma hennar hafði saumað. Handavinnukennar- inn starði á hana og spurði: Hvenær gerð- irðu þetta? „Bara svona á kvöldin," mun Inger hafa sagt, sak- leysið uppmálað! Kennarinn sá í gegnum þetta því svona útsaum gera ekki nema heimsins færustu saumakonur, en gaf Inger ágætiseinkunn fyrir við- leitni! Draumadjobbið! Margrét Blöndal segir þetta nýja starf fara mjög vel saman við út- varpið. Hún muni ótrauð halda áfram í morgunþáttunum með Þor- geiri. Ritstjórastarfið hjá Húsfreyj- unni hafi verið upplagt fyrir þær Inger Önnu, þær væru bókstaflega í skýjunum. „Þetta er „draumadjobbið“. Við værum ekki ánægðari þótt við hefð- um fengið toppstöðu hjá Alþjóða gj aldey rissj óðnum. “ Margrét sagði þær ætla að við- halda þeirri ritstjómarstefnu sem tekin hefði verið upp á Húsfreyj- unni undanfarið, að höfða sem mest til nútímakvenna á öllum aldi'i með fjölbreyttu efni, og útfæra hana enn frekar. Þær færu ófeimnar út í harða samkeppni á tímaritamark- aðnum. Margrét hefur að undanförnu ver- ið að „hita sig upp“ fyrir nýja starf- ið með því að hafa umsjón með saumakeppninni Landskeppni Ey- mundsson og Burda en Margrét er sjálf mjög flink saumakona. Hún sagði þá vinnu stórskemmtilega og góð þátttaka sýndi mikinn áhuga á saumaskap í landinu. -bjb lend bóksiá Metsölukiljur Bretland Skáldsögur: 1. John Grlsham: Runaway Jury. 2. Jilly Cooper: Apassionata. 3. Michael Ondaatje: The English Patient.(Kvikm.útgáfa) 4. Mlchael Ondaatje: The English Patlent. 5. Graham Swift: Last Orders. 6. Nlck Hornby: Hlgh Fidellty. 7. Tom Clancy & Steve Piecenik: Op Centre: Acts of War. 8. Cllve Cussler: Shock Wave. 9. Nicholas Evans: The Horse Whlspherer 10. Lesley Pearse: Camellia. Rit almenns eölls: 1. Blll Bryson: Notes from a Small island. 2. The Splce Glrls: Glrl Power. 3. Nick Hornby: Fever Pltch. 4. Alan Bennett: Writing Home. 5. John Gray: Men Are From Mars, Women Are From Venus. 6. Paul Wilson: A Llttle Book of Calm. 7. Grlff Rhys Jones ritstjórl: The Nation’s Favourite Poems. 8. Herodotus: Tales From Herodotus. 9. C. Knight & R. Lomas: The Hiram Key. 10. D.J. Goldhagen: Hltler's Willlng Executloners. Ilnnbundnar skáldsögur: 1. Wilbur Smlth: Blrds of Prey. 2. John Grisham: The Partner. 3. Arthur C. Clarke: 3001: The Flnal Odyssey. 4. Patrlcia D. Cornwell: Hornet’s Nest. 5. Kate Atklnson: Human Croquet. Innbundin rit almenns eðlis: 1. Tlm Smit: The Lost Gardens of Heligan. ; 2. Dava Sobei: Longltude. 13. Scott Adams: The Dllbert Prlnclple. 4. Anne Frank: Dlary of a Young Glrl. 5. Kingsley Amis: The Klng's Engllsh. (Byggt á The Sunday Times) Hörmuieg æskuár Ævintýrin gerast enn. Það er að minnsta kosti reynsla Bandaríkjamannsins Frank McCourt sem er 66 ára að aldri og hefur kennt ensku við framhaldsskóla í New York í tæpa þrjá áratugi. Hann fór sjálfur að skrifa fyrir nokkrum árum og sendi frá sér fyrstu bók sína síðastliðið haust; sjálfsævi- söguna „Angela’s Ashes“ sem lýsir hörmulegum æsku- og unglingsárum höf- undarins á írlandi. Bókin spurðist vel út, vakti fljót- lega athygli jafnt gagn- rýnenda sem lesenda og komst á metsölulista í Bandaríkjunum, þar sem hún er enn. Hámarki náði ævintýrið svo fyrir nokkrum dögum þegar McCourt hlaut hin eftirsóttu bandarísku bókmenntaverð- laun sem kennd eru við Pulitzer. Hetjusaga móður Frank McCourt fæddist í Brooklyn í New York, en foreldrar hans voru báðir írskir. Þegar hann var að- eins fjögurra ára héldu þau aftur „heim“ til írlands í von um betri lífskjör þar. Sú von varð að engu, m.a. vegna þess að faðirinn var ábyrgðarlaus drykkjurútur sem gat aldrei haldið neinu starfi stundinni lengur og drakk fyrir alla þá peninga sem hann fékk í hendurnar - áður en hann lét sig hverfa. Uppeldi barn- anna lenti því á herðum móðurinn- ar, Angelu, og barnanna sjálfra. í þessu fyrsta bindi sjálfsævisögu sinnar fjallar McCourt um þetta erf- iða tímabil á írlandi, þar sem fjöl- skyldan var komin upp á náð og miskunn annarra vegna afskaplegr- leysi, en sér um leið hið kát- lega sem alltaf fylgir tilver- unni, jafnvel í hinni verstu fátækt. Ekki að skapi Ang- elu Eins og nafn bókarinnar ber með sér er þetta ekki síst frásögn af fórnfýsi og hetju- lund móðurinnar, en hún lifði allt til ársins 1981. „Móður minni hefði ekki geðjast að þessari bók,“ seg- ir McCom-t hreinskilnis- lega. „Til þess er bókin of bersögul. Mamma átti sex börn á fimm og hálfu ári, og á þeim sömu árum dóu þrjú þeirra. Ég áttaði mig ekki á hryllingi lífs hennar fyrr en hún var öll. Hún skammað- ist sín fyrir fortið okkar. Núna skammast maður sín fyrir að hafa skammast sín.“ McCourt kveðst hafa reynt að skrifa þessa sögu fyrir þrjátíu árum, en lagt handritið til hliðar. Árið 1994 tók hann til við að semja söguna á ný og fann þá hina réttu rödd barnsins. Eftir eins árs erfiði var nýtt handrit tilbúið - það sem nú hefur fengið Pulitzer- verðlaunin. Hann er hins vegar litt sáttur þeg- ar gagnrýnendur hæla frásögninni fyrir að vera „hrífandi og ljóðræn". Þvert á móti kveðst hann hafa lagt áherslu á að gefa raunhæfa lýsingu á lúsugum veruleika fátæktarinnar. McCourt er þegar farinn að skrifa næsta bindi endurminninga sinna. Það tekur við þar sem verðlauna- bókin endar, þegar hann var nítján ára og kominn aftur til New York ásamt móður sinni og systkinum. Frank McCourt fékk Pulitzer fyrir frásögn af öm- urlegri æsku á írlandi. ar fátæktar. Þrjú systkina hans urðu sjúkdómum að bráð þegar á bernskuárum. Umsjón Elías Snæland Jónsson Hann lýsir lífi fjölskyldunnar með augum barnsins af hispurs- i Metsölukiljur Bandaríkin Skáldsögur: 1. John Grisham: The Runaway Jury. 2. Ursula Hegi: Stones From the River. 3. Dean Kootz: Tlcktock. 4. Wally Lamb: She's Come Undone. 5. Tom Clancy & Steve Pleczenik: Acts of War. 6. Mlchael Ondaatje: The Engllsh Patient. 7. LaVyrie Spencer: The Camden Summer. 8. Catherine Coulter: The Wlld Baron. 9. Julle Garwood: The Wedding. 10. Mario Puzo: The Last Don. 11. John Saul: The Blackstone Chronicles: Parts 1, 2 og 3. 12. David Baldacci: Absolute Power. 13. Sharyn McCrumb: The Rosewood Casket. 14. Jane Hamilton: The Book of Ruth. 15. Taml Hoag: Gullty as Sln. Rit almenns eölis: 1. Andrew Well: Spontaneous Healing. 2. Thomas Cahlll: How the Irish Saved Civlllzation. 3. Mary Pipher: Revivlng Ophelia. 4. Jonathan Harr: A Civil Actlon. 5. Howard Stern: Prlvate Parts. 6. Carmen R. Berry & T. Traeder: Girlfriends. 7. J.D. Plstone & R. Woodley: Donnie Brasco. 8. James McBride: The Color of Water. 9. Jon Krakauer: Into the Wild. 10. Danaiel Jonah Goldhagen: Hitler’s Wllling Executloners. 11. Kay Redfleld Jamison: An Unquiet Mind. 12. Mary Karr: The Liar’s Club. 13. Joseph D. Pistone & R. Woodley: Bury Me Standlng. 14. M. Scott Peck: The Road Less Traveled 15. Carl Sagan: The Demon-Haunted World. (Byggt á New York Times Book Review)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.