Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1997, Síða 15
LAUGARDAGUR 19. APRÍL 1997
Ljósmyndari sýnir tískumyndir í Hans Petersen í Austurveri:
Jónas Hallgrímsson
vinnur fyrir Elite
Jónas Hallgrímsson Ijósmyndari sýnir þessa
dagana tískumyndir í versluninni Hans Peter-
sen í Austurveri. DV-mynd þök
Um þessar mundir er sýning í versl-
un Hans Petersen í Austurveri á tísku-
ljósmyndum eftir Jónas Hallgrimsson.
Þama er stórskáldið okkar að sjálf-
sögðu ekki á ferðinni heldur alnafni
hans, 25 ára gamall Reykvíkingur sem
stundar nám í ljósmyndun í Bretlandi.
Myndimar em allar teknar i London á
þessu ári og em afrakstur nokkurra
vikna vinnu fyrir hinar ýmsu fyrir-
sætuskrifstofur í borginni sem Jónas
er farinn að starfa fyrir. Þeirra frægust
er án efa Elite Premier en meðal ann-
arra má nefiia Select, Flame, Bookings
og Boss.
Þetta er þriðja einkasýning Jónasar,
sem áður hefur sýnt á Mokka 1995 og í
Gallerí Úmbm 1996. Sýningin í Hans
Petersen er að mörgu leyti frábmgðin
fyrri sýningum þar sem aðeins er um
að ræða hreinar tískuljósmyndir í stað
dýpri og listrænni ljósmynda áður.
Sýningin er opin alla virka daga frá kL
9-18 og frá 10-14 á laugardögum og
stendur til fóstudagsins 25. apríl.
í tilefni sýningarinnar var Jónas
staddur hér á landi á dögunum og hitti
DV þá að máli. Hann er á öðm ári í
ljósmyndanámi í skóla í Reading í ná-
grenni London. En hvað kemur til að
hann er strax kominn á mála fyrir
heimsþekktar fyrirsætuskrifstofur, og
það í miðju námi?
Byijaði ekki vel
Jónas fór af stað fyrir síðustu ára-
mót og heimsótti nokkrar skrifstofur í
London með möppu fuila af tískuljós-
myndum sínum. Byijunin lofaði ekki
góðu því honum var alls staðar sagt að
koma aftur eftir þijá mánuði. Jónas
segir það yfirleitt tákna á kurteisan
hátt, komdu aldrei aftur!
En hann lét þetta ekki buga sig held-
ur endumýjaði myndamöppuna og
mætti galvaskur aftur í hyrjun janúar
sL til fýrirsætuskrifstofanna. Þá var
allt annað hljóð í strokknum og mynd-
um Jónasar tekið mun betur. Hann
var fenginn til að taka svokölluð „test“
eða prufutökur. Jónas segir skrifstof-
umar yfirleitt ekki borga
ljósmyndurum fyrir slíkar
tökur en hann hafi fengið
þær greiddar strax.
Verð að leika með í
spilinu
„Þetta er náttúmlega ótrú-
lega góð byijun og í raun má
ég teljast heppinn að hafa
náð þetta langt svona fljótt.
En samkeppnin er hörð og
þetta krefet mikiliar vinnu
og þolinmæði. Tískuheimur-
inn svokallaði er erfiður og í
rauninni hata ég hann. Þar
era aUir að þykjast vera
meira en þeir era. Við þessu
er ekkert að gera. Ef ég ætla
að spiia með þá verð ég að
leika með,“ segir Jónas.
Jónas starfar ásamt
svoköUuðum stílistum sem
aðstoða hann við tökumar
og val á fyrirsætum. Hann
hefúr til þessa ekki myndað
heimsfrægar fyrirsætur en
þess má geta að nýlega var
hann ráðinn til að sjá um
tískuþátt í þekktu blaði,
Raise.
Jónas á eitt og hálft ár eftir í nám-
inu í Reading. Hann segist hafa ágætt
svigrúm tíl að vinna með skólanum og
stefiian sé sett á að starfa í London að
námi loknu. Ekki sé freistandi að
koma tíl íslands og starfa þar sem
tiskuljósmyMari. Hér séu ekki spenn-
andi hlutir að gerast í þeim efiium.
-bjb
NÝJU NELFISK RYKSUGURNAR HAFA FEIKNA SOGAFL
OG FULLKOMNASTA SÍUNARBÚNAÐ SEM VÖL ER Á*
Nilfisk AirCare Filter® Með 2ja laga pappírspoka, grófsíu
og HEPA-síu heldur Nilfisk eftir 99,997% allra rykagna
sem eru stærri en 3/10.000 úr millimetra (0,3 my).
*í sænskri neytendaprófun (Konsumentverket) á 11 þekktum ryksugum var
Nilfisk með HEPA-síu sú eina sem fékk toppeinkunn fyrir síunarhæfni.
NILFISK gerð »» GM-300 GM-310 GM-320 GM-330
Nú aðeins stgr. 21.840 24.990 27.980 29.990
NILFISK JFGniX
OMENGUÐ GÆÐI HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SlMI 552 4420
Býður einhver lbetnr ?
1.290 1.490 1.290 1.290 1.290
Rock ... 1.290 French Kiss ..790 FairGame .790
Happy Gilmore ... 1.290 Nine Months ..790 Bridges of Madison .790
Spy Hard ... 1.290 First Knight ..790 Casino .990
The Arrival .... ... 1.290 Get Shorty ..990 Ace Ventura 2 .990
Money Train .. 990 Heat . .990 og miklu fleiri myndir
Waterworld .. 790 Jumanji ..790 frá aðeins kr. 390*
Póstkröfusími
568 5333
VISA
Lágmúla 7 - Opið til kl. 3 í nótt
*Allar myndir eru fyrrum leigumyndir
Nú er NBA- keppnin
að ná hámarki og í
tilefni af því bjóðum
við allar NBA- spólur
með 20% afslætti