Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1998, Síða 4
4 fréttir
LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 1998 JLlV
---------—------
Kvenumsækjanda hafnað - sögð fráhrindandi:
Vegið að hæfni minni
- segir Ólína Torfadóttir sem stefnir Kirkjugörðum Reykjavíkur
DV, Akureyri:
„Þaö versta í þessu máli öllu er að
það er vegið að hæfhi minni sem
hjúkrunarfræðings. Ég er ekki talin
hæf til að mæta einstaklingum á erf-
iðum stundum, eins og viö fráfall að-
standenda. Ég tel mig hins vegar
hafa getað það í starfi mínu sem
hjúkrunarfræðingur og í starfi mínu
sem stjómandi í hjúknm. Mér finnst
vegið mjög að mínu fagi,“ segir
Ólína Torfadóttir, hjúkmnarforstjóri
Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri.
Ólína var einn af umsækjendum
um starf forstjóra Kirkjugarða
Reykjavíkim. Hún fékk ekki starfiö
og telur að brotin hafi verið á sér
lög. Mál hennar hefur farið fyrir
kæmnefnd jafnréttismála sem úr-
skurðaði að Þórsteinn Ragnarsson,
sem ráðinn var til starfsins, hefði
ekkert umfram Ólínu sem réttlæti
að hann væri fremur ráðinn til þess
en hún. Kærunefndin hefur í kjölfar
þessa höfðað mál fyrir Héraðsdómi
Reykjavíkur þar sem ráöning Þór-
steins er kærö.
Ýmis ummæli í bréfi lögmanns
Kirkjugarðanna til kærunefndar
jafhréttismála vekja mikla athygli.
Þar segir lögmaðurinn að fram-
kvæmdastjóm Kirkjugaröanna hafi
leitað upplýsinga um Ólínu og feng-
ið í hendur þá vitneskju að það
„gustaði um hana“. - Það væri ekki
endilega neikvætt, en þó í þetta
starf, þar sem um samskipti viö
syrgjendur væri að ræða. Þeim
hefði þótt Ólína „aggressiv", hún
ekki „boðiö af sér mikla kurteisi og
lipurð", ekki verið „sympatísk" og
þeim hefði þótt hún „fráhrindandi".
í bréfi Kirkjugarðanna segir
einnig að yfirburðir þess sem ráð-
inn var felist m.a. í því að hann sé
guðfræðingur, hafi reynslu í safnaö-
arstörfum og stjómunarreynsla og
viðskipta- og rekstrarfræðimenntun
vegi einnig þungt.
Ólfna Torfadóttir: „Kannast ekki við
að þessi lýsing eigi við mig.“
DV-mynd gk.
„Ég kannast ekki við að lýsing
framkvæmdastjómarinnar á mér
eigi viö mig og það er vegiö mjög að
mínum starfsheiðri. Álit jafnréttis-
nefndar er að ég sé hæfari en sá ein-
staklingur sem var ráðinn og þar
með hafi verið brotin á mér lög. Ég
spyr mig að því hvað sé að í upp-
byggingu þess þjóðfélags sem þarf
að setja lög til að tryggja að allir
þegnar hafi sama rétt. Þess hefur þó
þurft hér, og þaö á að ganga lengra
þegar slík lög eru brotin," segir
Ólína.
Hún segist hafa talið sig hafa allt
að bera til starfsins sem hún sótti
um. „Ég er með háskólapróf i við-
skipta- og hagfræði, ég er með tvö
grunnpróf í hjúkmn og sérgreina-
próf og hef starfað lengi á gjör-
gæsludeildum og við stjómun. En
ég upplifi þetta þannig að gildi próf-
anna og reynslunnar minnki hins
vegar ef kona leggur þau fram,“ seg-
ir Ólína. -gk
Miðstjórnarfundur Alþýðubandalagsins:
Svavar með mála-
miðlun í auðlindagjaldi
- ósigur fyrir formann ef farið verður í harðar atkvæðagreiðslur, segir Steingrímur J.
Svavar Gestsson leggur í dag
fram á miðstjómarfundi Alþýðu-
bandalagsins málamiðlunartillögu
í auðlindagjaldsmálum en tvær
ólíkar tUlögur liggja óafgreiddar
frá síðasta landsfundi.
Sveitarstjórnarmál og auðlinda-
gjald verða tvö helstu málin á mið-
stjómarfundi Alþýðubandalagsins
sem byrjaði í gær og verður fram-
haldið í dag. Áhugi beinist einkan-
lega að því hvort og þá hvaða nið-
urstaða fæst í umræðunni um auð-
lindagjald. Sérstaklega fylgjast Al-
þýðuflokksmenn vel með þeirri
umræðu enda sýnist sumum að
þar sé mál sem geti skipt verulegu
máli varðandi frekari samvinnu og
sameiningarhugmyndir flokkanna.
Margrét Frímannsdóttir, for-
maður flokksins, orðaöi það svo í
samtali við DV að annars vegar
væri um að ræöa frumvarp Ragn-
ars Amalds og sex annarra þing-
manna flokksins, sem gengi út á
auölindagjald sem standa ætti und-
ir rannsóknum á og vemdun nátt-
úrunnar. Hún styddi þá hugmynd
fullkomlega en hennar eigin hug-
myndir gengju lengra. Þar væri
auðlindagjaldi t.d. ætlað að styrkja
byggð í landinu sem orðið hefði
fyrir áfollum vegna stjómvaldsað-
geröa tengdum nýtingu auðlinda
sem byggðimar hefðu áður byggt
á. Hún vildi lítið gera úr þessum
ágreiningi og þaö væri alrangt að
Svavar Gestsson.
setja þetta upp þannig aö það
skipti einhverju máli hvort tillag-
an væri samþykkt varðandi við-
ræður við Alþýðuflokkinn. Hún
sagðist gera ráð fyrir að miöstjóm-
arfundurinn myndi ná niöurstöðu
um þetta mál.
Svavar Gestsson, formaður þing-
flokksins, hefur hins vegar í smíð-
um málamiölunartillögu sem lögð
verður fyrir fundinn. „Ég hef unniö
að þessari tillögu í þingflokknum.
Hún reynir að ná öllum efnisatrið-
um málsins saman. Annars er lítill
Margrét Frímannsdóttir.
ágreiningur í málinu og þetta hefur
enga þýðingu til eða frá varðandi
viöræður við Alþýðuflokk.“
Steingrímur J. Sigfússon sagði
aö það væru engir „talsmenn brjál-
æðislegra skattahugmynda Al-
þýðuflokks" innan Alþýðubanda-
lagsins. Hann taldi miður ef farið
yrði í harðar atkvæðagreiðslur um
málið á fundinum, sérstaklega
væri þaö ósigur fyrir formanninn
ef svo færi því þá væri sýnt að
hann hefði ekki getað sætt sjónar-
mið í málinu.
Steingrímur J. Sigfússon.
Hvað varðar sveitarstjórnarmál-
in sagðist Margrét vilja lýsa yfir
mikilli ánægju með úrslit flokksins
og frambjóöenda í prófkjöri R-list-
ans. Samstarf A-flokkanna og fleiri
flokka víða um land væri nú stað-
reynd og auðvitað þyrfti miðstjóm
að ræða hvaða stefnu flokkurinn
ætti að hafa í þeim málum. Á að
vera með eina samræmda stefnu í
öllum tilvikum eða ætti aö fara
mismunandi leiðir í hverju sveitar-
félagi fyrir sig? Þessi mál og önnur
muni fundurinn ræða. -phh
íslensku tónlistarverðlaunin:
Styttist í
tilnefningar
Vinna við íslensku tónlistarverð-
launin er nú komin á fullt skrið.
Þrír faghópar vinna nú hörðum
höndum að því að ákveða hverjir
verði tilnefndir til verðlaunanna.
Faghóparnir skiptast í popptónlist,
jass og klassíska tónlist.
í síðustu viku kom helmingur
poppfaghópsins saman á Gauki á
Stöng. Þessi helmingur faghópsins
var skipaður þeim tónlistarmönn-
um úr rokk- og poppheiminum sem
gáfu út tónlist og voru sjálfir í
hringiðunni á síðasta ári. Þar gafst
þeim kostur á að greiða kollegum
sínum atkvæði sem þeim fannst
hafa skarað fram úr á síðasta ári.
Hinn helmingur poppfaghópsins er
svo skipaður þeim sem hægt er að
kalla „poppfræðinga" og vinnur
hann einnig ötullega um þessar
mundir.
Nú er farið að styttast í að faghóp-
arnir ljúki vinnu sinni við að stilla
upp tilnefningum til verðlaunanna
og geta lesendur búist við að fá at-
Forkólfar nokkurra helstu hljómsveita landsins komu saman á Gauknum til að
segja sitt álit á þvi hverjir sköruðu fram úr á sfðasta ári. DV-mynd Hilmar
kvæðaseðla í DV um miðjan mánuð- munu svo fara fram þann 5. mars
inn. Sjálf afhending verðlaunanna næstkomandi. -KJA
Kára í framboð
Mesti spútnik athafnalífsins
um þessar mundir er ótvirætt
Kári Stefánsson hjá íslenskri
erföagreiningu. Nokkrir korn-
ungir sjálfstæöis-
menn komu að
máli við gamalgró-
inn forystumann
og töldu einsýnt
aö flokkurinn
yrði að fá þennan
farsæla athafna-
mann í framboð.
Þeim var snar-
lega bent á aö
litlar likur væru til þess. í fyrsta
lagi hefði Kári verið róttækur
stúdentaleiðtogi á árum hipp-
anna. í öðru lagi væri hann und-
an frægum kommúnista, rithöf-
I undinum og þingmanni Alþýðu-
f bandalagsins, Stefáni Jónssyni,
og eplið lægi skammt frá hinni
fomu eik. Þaö stóð hins vegar
ekki á svari hjá unglingunum:
Flokkurinn veröur að sýna
breidd og hvaða máli skiptir þótt
Kári sé gamall kommi...?
Fínt á Skaganum
Mildileg fram-
ganga yfirvalds-
ins á Akranesi
við innheimtu
skattskuldar
Þórðar Þ.
Þórðarsonar
varð til þess að
hagyrðingur
nokkur orti
þessa limm:
Ef skatturinn er þig að plaga
og eltir þig nætur og daga.
Þá hættu að orga,
þú þarft ekki að borga,
en flytur í hvelli upp á Skaga.
Evrópa heillar
Sendiherra Evrópusambands-
ins gagnvart íslandi og Noregi
heitir John Maddison og hefur
margsinnis komið til íslands.
Sendiherrann situr
í Ósló en er um-
hugað um að efla
tengslin við ís-
land. Nýlega
greip hann því tfl
þess ráðs að fá
ungan íslending
til starfa i sendi-
ráðinu. Sá sem
varð fyrir val-
inu er Aðalsteinn
Leifsson sem áöur var einmitt
formaður samtaka áhugamanna
um Evrópumál...
Heimir úti í heimi
Áhugamaður um gervihnatta-
sjónvarp rak upp stór augu ný-
verið þegar hann bar niður á
þýskri sjónvarpsrás, QWC. Heim-
ir Karlsson, fyrr-
um íþróttafrétta-
maður Stöðvar 2
og síðar sjón-
varpsstjóri
Stöövar 3, birt-
ist skyndilega á
skjánum. Hann
var þar að
kynna vörar
sjónvarpsmark-
aðar og mælti á enskri tungu en
samstarfskona hans mælti á
þýsku. Þama var um að ræða
hjálparkúlur fyrir þvottavélar
sem þau skötuhjú töldu heppilegt
fyrir alla að eiga og nota. Klukku-
stund síðar var hann enn mættur
en nú að selja kodda með inn-
byggðum hátölurum, bráðnauð-
synlega til að trufla ekki rekkju-
nautana. Heimir komst í nokkrar
álnir þegar hann sat um hríð sem
stjóri Stöðvar 3 en það fyrirtæki
varð einna þekktast fyrir það
markaösátak sitt að senda þeim
sem fengust til að greiða áskrift
aö opinni dagskrá stöðvarinnar
páskaegg...
Umsjón: Reynir Traustason