Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1998, Blaðsíða 18
LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 1998
18
gur í lífi
Hrötkjorsdagur i liti K-listamannsins og jatnaðarmannsins Helga Héturssonan ’
Gott að kyssa Birnu
„Klukkan var oröin langt gengin í
. ítta þegar ég vaknaöi sallarólegur.
Miklu rólegri en ég hafði verið
lengi. Nú var lokaslagurinn fram
andan, nokkrar klukkustundir sem
við myndum hafa til þess aö ná sem
bestum árangri í prófkjöri Reykja-
víkurlistans.
Ég velti því fyrir mér af hverju ég
Eyndi ekki fyrir stressi, líkt og mað-
ur finnrn- áður en stigið er fram fyr-
ir fjölda fólks, því óneitanlega var
§g að leggja sjálfan mig, mín verk og
tnínar tillögur í dóm kjósenda. Nið-
urstaðan var að ég var rólegur
vegna góðrar undirbúningsvinnu
við prófkjörið - þetta var fyrsta
apna prófkjörið sem ég hef tekið
pátt í. Við félagamir, Ágúst, Ólafur
Dg Jakob, systursonur hans frá Ak-
areyri, höfðum verið fram eftir í
pærkvöld og með okkur Kormákur,
aróöir Ólafs, þrautseigur baráttu-
jaxl af eðalkrataættum. Og svo
aokkrar af kærustunum mínum frá
Samvinnuferðum að hjálpa mér við
bringingar. Og frú Bfrna.
Hringt og talað
Við vorum búin að gera nánast
allt. Búin að prenta bækling, senda
út svolítið af bréfum, auglýsa á
miðugan hátt í Sjónvarpshandbók-
inni og sjálfur var ég búinn að
?anga í allt hverfið um kring, banka
app á og spjalla við fólk og standa í
Kringlunni með bæklinginn. Og
bringja. Og tala.
Ég dreif í mig svolítið kaffi og
varð fyrsti frambjóðandi til að kjósa
í Grand Hótel rúmlega tíu. Fékk
strax á tiifinninguna að kjörsókn
yrði góð - það var margt um mann-
inn og gott veður og þarna var eldra
fólk uppábúið.
Síðan lá leiöin niður á Útvarp
Matthildi í viðtalsþátt hjá Eddu
Björgvins og Súsönnu. Við fórum
um víðan völl í léttu gríni en eftir
situr stórgóð hugmynd Eddu um að
setja upp Rómeó og Júlíu með götu-
leikhúsi á Ingólfstorgi í sumar.
Edda og Laddi myndu leika aðal-
hlutverkin!
Verð ég kommi?
Mannskapurinn var mættur á
Þúsund þjölum um kl. 11. Þúsund
þjalir er umboðsskrifstofa lista-
manna, hönnunar- og ljósmynda-
þjónusta sem þeir reka saman, Öli og
Gústi, og Jakob er skrifstofustjóri.
Úthringingarliðið mætti galvaskt
upp úr hádegi og Kormákur kom sér
fyrir. Siðan var hringt. Út og inn.
Vinir og kunningjar litu inn
Einn gamall vinur úr tónlistinni
hringdi og vildi endilega taka þátt i
prófkjörinu en spurði hvort menn
yrðu nokkuð kommar þótt þeii
tækju þátt. Ég sagði honum að það
gerðist ekki eins og að fá flensu
Hann hafði gaman af því svari og
fór sennilega að kjósa.
Klukkan rúmlega sjö var orðið
ljóst að við gætum ekki gert ölle
meira. Nú var bara að taka niður
stöðunum og aftur fann ég að ég
var afslappaður og ánægður og
þakklátur vinum mínum og kunn-
ingjum fyrir hjálpina. Við frú
Birna fórum heim og ég eldaði
pottrétt fyrir liðið sem kom fljót-
lega.
Vinastóðið í stuði
Fyrstu tölur gáfu ekki tilefni til
bjartsýni en mér fannst að þessi
ótrúlega mikla þátttaka gæti falið í
sér möguleika.
Samt fór ég yfír stöðuna í hugan
um á leiðinni niður í IngólfskafEi og
var því undirbúinn þegar ég vai
beðinn að segja hvemig mér liði um
kl. 24 og allt benti til að ég kæmist
ekki að. Mér leið ágætlega.
Það breyttist stundu seinna. Méi
leið svo sem miklu betur.
Við fórum heim, hjónin, og þai
var allt vinastóðið í miklu stuði
Það var gott að fá aö kyssa frú
Bfrnu í sigri. Hún hefur tekið mín
áfóll í pólitík hingað til miklu næi
sér en ég. Hún er líka gæðakrati til
margra ára.
Við félagarnir vomm að syngja
Love me tender um fjögurleytið og
orðnir móðir. Sofnaðir kl. hálffimm
Síminn fór að hringja um níuleyt
ið.“
Finnur þú fimm breytingar? 449
„Vertu nú ekki meö þessa skapvonsku Snati minn. Frúin fékk bara
diskinn þinn lánaöan."
Vinningshafar fyrir getraun nr. 447 eru:
1. verölaun: 2. verölaun:
Nafn: Jenný Magnúsdóttir, Arndís Baldvinsdóttir.
Bltíndubakka 6. Krístnesi 9,
Heimlll: 109 Reykjavík. 601 Akureyrí.
Myndirnar tvær virðast við fyrstu
sýn eins en þegar betur er að gáð kem-
ur í ljós að á myndinni til hægri hefúr
fimm atriðum verið breytt. Finnir þú
þessi fimm atriði skaltu merkja við
þau með krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt nafni þínu
og heimilisfangi. Að tveimur vikum
liönum birtum við nöfn sigurvegar-
anna.
1. verðlaun:
Hitachi-útvarpsverkjari frá Sjón-
varpsmiðstöðinni, Síðumúla 2, að
verðmæti kr. 3.490,-
2. verðlaun:
Tvær Úrvalsbækur að verðmæti kr.
1570, Sekur eftir Scott Turow og Kóli-
brísúpan eftir David Parry og Patrick
Withrow.
Vinningamir veröa sendir heim.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 449
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík