Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1998, Qupperneq 14
14
LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 1998 I iV
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON OG ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiösla, áskrift: ÞVERHOLT111,105
RVÍK, SIMI: 550 5000
FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999
GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasiöa: http://www.skyrr.is/dv/
Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is
AKUREYRI: Strandgata 25, simi: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605
Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftarverð á mánuöi 1800 kr. m. vsk. Lausasöluverö 160 kr. m. vsk., Helgarblaö 220 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Regnhlíf flækir mál fyrir flokki
Styrkleikahlutföll flokkanna í prófkjöri Reykjavíkur-
listans eru ólík því, sem þau voru löngum í borgarstjórn,
þegar Alþýðubandalagið átti fjóra fulltrúa, Alþýðuflokk-
urinn tvo og Framsóknarflokkurinn einn. Nú var jafn-
vægi með þessum þremur stjórnmálaflokkum.
í ljósi sögunnar er rangtúlkun, að Alþýðubandalagið
sé sigurvegari innan Reykjavíkurlistans. Þvert á móti
hafa hinir flokkarnir brúað bilið og standa nú jafnfætis
Alþýðubandalaginu. Tveir fulltúar á hvern flokk endur-
spegla raunveruleg styrkleikahlutfóll í prófkjörinu.
Athyglisverðastur er mikill atkvæðafjöldi Framsókn-
arflokksins í prófkjörinu. Þetta er gerbreytt staða flokks-
ins frá fyrri tíð, þegar hann var talinn merkisberi óbeit-
ar landsbyggðarinar á höfuðborginni. Nú er hann orðinn
gjaldgengur á mölinni til jafns við aðra flokka.
í aðdraganda prófkjörsins voru efasemdir meðal ráða-
manna Framsóknarflokksins, þar á meðal flokksfor-
mannsins, um aðildina að samstarfinu um Reykjavíkur-
listann. Sagt var, að starf og staða flokksins hefði dofn-
að við þátttöku í öðru afli, sem sogaði til sín athyglina.
Þessi varfærni gagnvart sameiningarhreyfingu vinstri
vængsins einkennir Framsóknarflokkinn í flestum öðr-
um sveitarfélögum. Víðast hvar eru það aðeins A-flokk-
arnir tveir, sem standa að sameiginlegum lista í anda
Grósku, sums staðar með aðild Kvennalistans.
Þegar nær dró prófkjöri, áttuðu ráðamennirnir sig á,
að efasemdirnar að ofan gátu leitt til lítils stuðnings við
flokkinn í prófkjörinu. Var þá skyndilega snúið við blað-
inu, formaðurinn fór að hrósa árangri samstarfsins inn-
an Reykjavíkurlistans og flokksvélin var sett í gang.
Góður árangur flokksins í prófkjöri Reykjavíkurlist-
ans hlýtur að verða ráðamönnum flokksins tilefni bak-
þanka um, hvort rétt hafi verið að stefna að sérstöku
framboði hans i mörgum sveitarfélögum, þar sem A-
flokkarnir eru að ná saman um framboðslista.
Ef Reykjavíkurlistinn heldur meirihlutanum í Reykja-
vík og samstarfslistar A-flokkanna ná góðum árangri í
öðrum sveitarfélögum í sumar, mun það setja Framsókn-
arflokkinn í nokkum vanda. Hann á þá á hættu að verða
minnsta aflið í stjórnmálum landsins.
Fylgi mun þá eflast við það sjónarmið, að hag-
kvæmara sé að vera aðili að stjómmálaafli, sem getur
haldið til jafns við Sjálfstæðisflokkinn og boðið upp á
leiðtoga, sem selur. Slík hyggindi, sem í hag koma, eru
einmitt lykillinn að velgengni Reykjavíkurlistans.
Þeirri skoðun vex ásmegin, að hagkvæmnin skuli
ráða; flokkum henti að sameinast í regnhlífarsamtökum
og velja þeim foringja, sem líklegir eru til að höfða til
kjósenda. Þetta sé betri kostur en að reyna að selja kjós-
endum hvern stjórnmálaflokk fyrir sig.
í Reykjavík er flokkurinn fyrirferðarmikill í sam-
starfi, sem hefur væntingar um meirihlutavöld. Annars
staðar getur hann orðið minnsta aflið, en þó þriðja aflið,
sem getur samið til hvorrar áttar sem er um að verða
minni aðilinn í samkomulagi um meirihlutavöld.
Ráðamönnum flokksins geðjast betur að síðari kostin-
um. Prófkjörið í Reykjavík setti þá í vanda, sem þeir
leystu þó með snarræði. Góð útkoma A-flokka í kosning-
unum í sumar getur aukið vandann og flækt undirbún-
ing næstu þingkosninga fyrir framsóknarmönnum.
Stjórnmála- og viðskiptasaga Vesturlanda segir, að til
skamms tíma litið geti minnsta aflið af þremur prúttað
um völd, en til langs tíma sé það markað dauðanum.
Jónas Kristjánsson
Er undrið fyrir austan á enda?
Hann sagðist geta framleitt
ódýrustu íþróttaskó í heimi en
ekki geta selt svo mikið sem eitt
par af þeim í útlöndum. Við stóð-
um fyrir utan banka í Jakarta og
tróðum báðir milljónum af verð-
lausum rúpíum í vasana, svona
rétt nóg fyrir útgjöldum helgar-
innar. Launin sem þessi bisness-
maður greiddi fólki í verksmiðju
sinni höfðu staðið í stað í rúpíum
talið í hálft ár en mæld í íslensk-
um krónum höfðu þau lækkað úr
tæpum 3 þúsund krónum á mán-
uði í langt innan við þúsundkall
fyrir mánuðinn. Þetta fólk þurfti
því að vinna í nokkra mánuði til
að eiga fyrir því sem eitt par af
skónum sem það framleiddi í þús-
undavís kostar í búð á íslandi. Og
samt gat þessi bissnessmaður ekki
lengur boðið Nike eða öðrum skó-
fyrirtækjum að búa til skóna
þeirra fyrir lítið.
Flest gjaldþrota
Kreppan í Asíu byrjaði sem fjár-
málakreppa. Atvinnulíf í Austur-
og Suðaustur-Asíu var enn í örum
vexti þegar gjaldmiðlar þessa
heimshluta byrjuðu að hrynja á
„Kreppan i Asíu byrjaöi sem fjármálakreppa. Atvinnulíf í Austur- og Suö-
austur-Asíu var enn í örum vexti þegar gjaldmiölar þessa heimshluta
byrjuöu aö hrynja á alþjóölegum fjármálamörkuöum," segir Jón Ormur
m.a. í pistli sínum.
alþjóðlegum fjármálamörkuðum.
Gengisfallið hefur gert þessi lönd
enn þá samkeppnisfærari en þau
voru áður og það svo mjög að
efnahagslífi Kína gæti á næstu ár-
um staðið ógn af sterkri sam-
keppnisstöðu nágrannalandanna.
Vandræðin eru hins vegar þau
að flest stórfyrirtæki þessara
landa eru nú í reynd gjaldþrota,
þó flestum verði líklega á endan-
um bjargað. Þessi fyrirtæki hafa
fjármagnað ævintýralegan vöxt
sinn á síðustu árum með lánum
sem hafa að verulegu leyti verið
tekin í erlendri mynt. Þetta virtist
ekki hættuspil, því að það var yf-
irlýst stefna flestra rikisstjóma í
þessum heimshluta að halda gjald-
miðlum landanna stöðugum gagn-
vart dollar. Með falli á myntum
þessara landa hækkuðu skuldir
flestra stórfyrirtækja, í sumum til-
vikum um tugi prósenta, í öðrum
tilvikum tvöfölduðust og jafnvel
fimmfölduðust skuldir fyrirtækj-
anna. Flest þeirra voru mjög
skuldsett áður en kreppan skall á,
enda þótti það rétt í þessum
heimshluta að miða við 25-50%
vöxt í veltu á hverju ári. Nú em
skuldirnar gersamlega óviðráðan-
legar. Þetta gerir það að verkum
að pappírar frá þessum fyrirtækj-
um eru verðlausir í alþjóðlegum
viðskiptum. Bankaábyrgðir í
mörgum þessara landa hafa líka
orðið verðlausar, því að bankam-
ir höföu margir tekið lán í dollur-
um og lánað út í mynt viðkom-
andi lands.
Blokkaríbúð 100
milljónir
Að auki hafa flestir bankar í
Asíu lánað stórfé í fasteignabrask
en fasteignaverð fer hríðlækkandi
um alla álfuna. Sæmileg blokkarí-
búð á góðum stað í Hong Kong
Erlend tíðindi
Jón Ormur Halldórsson
kostar þó enn yfir 100 milljónir
króna og svipaða sögu er að segja
um fleiri borgir í Austurlöndum,
enda er efri millistétt þessara
landa enn þá forrík. Alþjóða gjald-
eyrissjóðurinn brást við krepp-
unni með þeim hætti að tryggja
ríkisstjómum viðkomandi landa
erlend lán. Þessir peningar hafa
hins vegar litlu breytt um þá
kreppu sem atvinnulíf margra
Asíulanda stendur nú frammi fyr-
ir, nema þá að aðstoða við að
koma í veg fyrir frekara gengis-
fall. Það eru hins vegar erlendar
skuldir einkafyrirtækja sem em
kjarni vandamálsins. Til að
tryggja að gjaldmiðlar falli ekki
enn meira hafa vextir verið hækk-
aðir, sem enn eykur á erfiðleika
fyrirtækjanna. Fjármálakreppan
hefur þannig orðið að almennri
efnahagskreppu.
Trúin bilaði
Það er hins vegar rétt að setja
þessa kreppu í nokkurt samhengi.
Það er einungis í Taílandi og
hugsanlega í Indónesíu sem menn
búast beinlínis við samdrætti í
efnahagsmálum á þessu ári. í Suð-
ur-Kóreu, á Taívan og í Malasíu
reikna menn með hagvexti sem að
meðaltali er lítið minni en gengur
og gerist í sæmilegu árferði i Evr-
ópu. í Kína verður hagvöxtur að
líkindum áfram örari en í nokkru
öðru umtalsverðu landi í heimin-
um. Kreppan í Asíu er fyrst og
fremst þvi að kenna að fjárfesting-
ar voru meiri en hagkerfln gátu
melt með sæmilegum hætti.
Spamaður heima fyrir var meiri
en víðast annars staðar í heimin-
um en engu að síður streymdi er-
lent lánsfé inn í þessi lönd. Þessi
straumur minnkaði litið þótt arð-
ur af fjárfestingum færi minnk-
andi, sennilega vegna almennrar
trúar í fjármálaheiminum á
áframhaldandi vöxt þessara
landa. Sú trú bilaði skyndilega án
þess að nokkuð nýtt eða sérstakt
kæmi til. Þessi kreppa í tiltrú var
sennilega eins órökvís og oftrú
fjármálamanna á áframhaldandi
vöxt hafði verið dagana á undan.
Þrennt skiptir einna mestu fyr-
ir framvindu næstu missera. Eitt
er að gengi Hong Kong dollarsins
falli ekki en fall hans gæti leitt til
enn frekari óróa á fjármálamörk-
uðum í Austurlöndum og til geng-
isfellingar í Kína. Annað er að
unnt verði að semja um erlendar
skuldir stórfyrirtækja og banka í
Austurlöndum með lengingu lána.
Það þriðja er að hagkerfi þessara
landa verði gerð sveigjanlegri með
efnahagsumbótum sem stundum
ganga beint gegn pólitískum hags-
munum ráðandi afla. Ef þetta
þrennt gengur eftir er ballið í
Asíu rétt að byrja. Ef ekki, þá eru
vondir tímar fram undan fyrir
stóran hluta mannkyns.
skoðanir annarra
Enn um Jón og séra Jón
„Undir venjulegum kringumstæðum veltir New
York Times sér ekki up úr kynlífshegðun og einka-
málum fólks. Reynslan hefur hins vegar kennt okk-
ur að þegar menn eins og forsetinn eiga í hlut
skipta margir þættir skapgerðar og hegðunar máli
þegar dæma á hvort manneskjan er hæf til gegna
leiðtogaembættinu á hættutímum. Við bendum líka
á að vandræði Clintons á þessu sviði eiga rætur sín-
ar að rekja til þess að fyrrum kunningjar og við-
skiptafélagar forsetans ræöa um manninn sem þeir
þekkja, en ekki til þess að blaðamenn .hafi verið að
snuöra." Úr forystugrein New York Times 5. febrúar.
Smánarinnar myrki skuggi
„Myrkur skuggi smánarinnar hvílir nú yfir
Bandaríkjunum þegar það sem við köllum „hinn
vestræna heim“ drúpir höfði og beinir athygli sinni
að beitingu dauðarefsingar í Bandaríkjunum. Það
er bitur þversögn að það ríki sem gnæfir yfir öðr-
um í heimi okkar, pólitískt, efnahagslega og menn-
ingarlega, eykur beitingu dauðarefsingar sem aðrir
fordæma og draga mjög úr. Síðasta aftakan, á konu
í Texas í nótt er leið, hefur beint kastljósinu að sam-
félagi sem siglir undir pólitískum hentifána þegar
líf og dauði borgaranna er annars vegar. Þetta er
ekki Bandaríkjunum samboðið."
Úr forystugrein Aftenposten 5. febrúar.
Glæpagengi Ciller
„Leiðtogar Tyrklands gagnrýna niðurrifsstarfsemi
músiímskra stjómmálamanna og aðskilnaðarsinna
Kúrda. Alvarlegasta hótunin gegn lýðræðinu í Tyrk-
landi á undanfórnum árum virðist þó hafa komið frá
valdhöfunum sjálfum. Opinber rannsókn sýnir að á
árunum 1993 til 1996 hafi stjóm þáverandi forsætis-
ráðherra, Tansu Ciller, verið í leynimakki við fikni-
efnagengi, spilavítaeigendur og leigumorðingja hægri
afla og fengið þá til að myrða óvini heima og erlend-
is og styðja misheppnaða valdaránstilraun í Aser-
baídsjan." Úr forystugrein New York Times 1. febrúar.