Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1998, Page 17
LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 1998
Skilafres tur skattfram tals
rmnur út 10.febrúar
ATH! Framtalið kemur nú
í nokkuð breyttu formi
en það er á lausum blöðum,
þrjú fyrir hjón og fólk í sambúð
en tvö fyrir einstaklinga.
Framteljendur eru vinsamlega
beðnir að hafa í huga að vegna
nýrrartækni við úrvinnslu gagna er
mjög mikilvægt að blöðin séu ekki heftuð,
límd eða brotin saman.
Framtalið kemur í sérstöku umslagi og er
æskilegt að því sé skilað í sama umslagi.
Við viljum minna fólk á mikilvægi þess að
ef fjárhæðir eru handskrifaðar þarf að skrifa
tölurnar skýrt og greinilega og gæta þess að
hver tölustafur sé í viðeigandi reit.
Leiðbeiningarbæklingur sem hefur að geyma
nauðsynlegar upplýsingar um framtalsgerðina
fylgir skattframtali. Kynntu þér leiðbeiningarnar
vandlega - og útfylling framtalsins verður
auðveldari en þig grunar. Rétt útfyllt skattframtal
tryggir þér rétta skattlagningu.
Eyðublöð liggja frammi hjá skattstjórum og umboðsmönnum
þeirra, sem og í bönkum og sparisjóðum í Reykjavík.
Skattframtalinu á að skila til skattstjóra í viðkomandi umdæmi.
Mundu að taka afrit af framtalinu áður en því er skilað.
Ef þú þarft staðfest Ijósrit skaltu biðja um það um leið
og framtalinu er skilað.
Þá er minnt á mikilvægi þess að varðveita launaseðla. Ef þörf krefur
eru þeir sönnun fyrir því að staðgreiðsla hafi verið dregin af launum.
Af sömu ástæðu er nauðsynlegt að varðveita gögn sem staðfesta
staðgreiðslu sem dregin hefur verið af fjármagnstekjum.
Shila*"
tín.anle9a"®,
forðastu
s\b9
RSK
RÍKISSKATTSTJ ÓRI