Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1998, Side 22
LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 1998 DV
22 sakamál
m _____
Mohammed el-Sayed hafði ekki
haft heppnina með sér þetta kvöld í
spilaklúbbnum í London. Hann
haföi hvorki fengið góð spil á hönd-
ina né verið heppinn í teningakasti.
í raun skipti það þó ekki miklu, því
ekki var um neinar fjárhæðir að
tefla. En hann skynjaði samt
óheppni sína og yfirgaf klúbbinn.
Hefði hann haft heppnina með sér
þar eru allar líkur á að hann hefði
haft hana með sér á heimleiðinni.
En það var eins og óheppninni í
klúbbum væri fylgt eftir af annarri
og meiri óheppni.
Leið hans heim til Holloway lá yf-
ir Westminster-brú og þar kom
hann að rauðu umferðarljósi við
Bishopsbridge-veg. Meðan hann
beið þess að geta haldið áfram komu
tveir ungir menn, klæddir í eins
konar bardagafot og með húfur, að-
vífandi, rifu upp fram- og afturhurð
og ruddust inn í bílinn.
Kom engum vörnum við
Mohammed el-Sayed hefur vart
haft tima til að átta sig á því sem í
vændum var, enda átti hann sér
einskis ills von. Annar mannanna, sá
sem var fyrir aftan hann, greip um
hann og hélt honum fostum. Hinn,
sem var í framsætinu við hlið hans,
dró upp blaðlangan, hárbeittan bar-
dagahníf og skar hann á háls. Síðan
stakk hann hann hjartastað, brjóst og
háls, alls fimmtán sinnum.
Eftir morðið var blóð um allt fram-
sætið, á framrúðunni, mælaborðinu
og gólfinu.
Morðingjarnir stukku út úr bílnum
og hurfu út í myrkrið.
Það var ekki fyrr en næsta morgun,
er birti, að lögregluþjónn gerði sér
grein fyrir því að eitthvað var athuga-
vert við bílinn. Honum hafði ekki ver-
ið lagt á venjulegum stað. Og brátt
kom í ljós að ökumaðurinn hafði ver-
ið myrtur á skelfilegan hátt.
bardagafötum og tóku langferðabíl
til London. í fyrstu var hugmyndin
sú að ráða af dögum flkniefnasala
eða melludólg. En eftir að hafa svip-
ast um í London um hríð komust
þeir félagar að þvi að fíkniefnasalar
og melludólgar báru ekki alltaf með
sér hvaða iðju þeir stunduðu og því
var breytt um áætlun.
Setið fyrir ökumanni
Félagarnir svartklæddu fóru að
umferðarljósum við Bishops-
bridge-veg. Þar hugðust þeir bíða
uns þeir kæmu auga á einn mann
í bíl. Umferð væri ekki mikil og
þvi ætti að vera hægt að fremja
verknaðinn á stuttum tíma og
komast burt óséðir.
Eftir nokkra bið bar Mohammed
el-Sayed að. Táningarnir tveir réö-
ust inn í bílinn eins og áður er
sagt. Richard fór inn um aftur-
dyrnar og hélt el-Sayed, en Jamie
settist í framsætið og réðst á fórn-
arlambið.
Að loku ódæðinu hlupu ungu
mennimir burt. Enginn hafði séð
til þeirra. Þeir þvoðu blóð af fötum
sínum og hönskum og skömmu
síðar tóku þeir sér far með lang-
ferðabíl til Oxford. Á leiðinni sofn-
aði Richard, en James fór að lesa
kort sem honum höfðu borist í til-
efhi af afmælinu.
í Oxford tóku nú við nokkuð
breyttir tímar hjá þeim félögum.
Samverustundunum fækkaði
verulega. í einveru sinni fór
Jamie að finna til vaxandi
samviskubits. Og loks
fannst honum hann
verða að segja frá
því sem hann
hafði gert.
játaði
Hættulegir dagdraumar
hann gerði játningu sína. Hún var
í smáatriðum og þótti ljóst að ekki
væri um tilbúning að ræða. Ungi
maðurinn væri án nokkurs vafa
morðingi el-Sayeds.
Lögreglunni í London var gert
aðvart og handtökutilskipun gefin
út á hendur Richard Elsey.
Þeir félagar voru hafðir í varð-
haldi ims saksóknari stefndi þeim
fyrir rétt. Þar endurtók Jamie
játningu sína, en sagðist ekki sek-
ur um morð heldur manndráp, þar
eð hann hefði aðeins verið annar
tveggja sem að víginu stóðu og
bæri því aðeins hluta sakarinnar.
Harður í horn að taka
Richard tók aðra afstööu. Hann
hugðist ekki fá væntanlegan dóm yf-
ir sér mildaðan með því að lýsa yfír
aðild að manndrápi, heldur sagðist
hann vera saklaus. Því fylgdi hann
eftir með því að segja að hann hefði
ekki farið inn í bílinn fyrr en Jamie
heföi verið búinn að svipta el-Sayed
lífi. Þá bætti hann því við að þeir fé-
lagar hefðu alls ekki farið til
London í þeim tilgangi að ráða
neinn af dögum. Þeir hefðu ætlað
sér að sjá nektardans og ef til vill
stela bíl eða fremja rán.
Kviðdómendur litu ekki þannig á
að Jamie hefði framið manndráp og
þeir tóku heldur ekki til greina það
sem Richard sagði
og átti að
koma hon-
um __________________
und-
an sök, að
minnsta kosti
að hluta.
Báðir ungu mennim-
ir fengu lífstíðardóma.
Dómarinn, Neii Denison,
sagði við dómsuppkvaðn-
inguna að morðið hefði í
senn verið tilgangslaust og
grimmilegt. Mohammed el-Sayed
hefði orðið fórnarlamb af því hann
Enginn árangur,
en svo játning
Lögreglan í London var furðu
lostin yfir morðinu. Það var óvenju-
lega grimmUegt og í fyrstu komu
upp hugmyndir um að um pólitíska
aftöku heföi verið að ræða. Eða þá
að hinn látni hefði á einhvem hátt
tengst hryðjuverkasamtökum. En
fljótlega varð ljóst að sú kenning
átti ekki við rök að styðjast.
Mohammed el-Sayed, fjömtíu og'
fjögurra ára, var kvæntur maður og
tveggja bama faðir. Hann haföi ver-
ið vel þokkaður, vinsamlegur í
framkomu og hvergi komið við sögu
hryðjuverka eða samtaka ofstækis-
manna.
Mánuður leið án þess að nokkru
ljósi væri hægt að varpa á hvers
vegna el-Sayed hafði verið myrtur.
En dag einn var hringt í morðdeild
lögreglunnar í London. Rannsókn-
arlögreglumaöur i Oxford sagði að
ungur maður hefði játað á sig morö-
iö á Mohammed el-Sayed aðfaranótt
15. janúar 1994. Og játningunni
hafði fylgt ótrúleg saga.
Dagdraumar
Ungi maðurinn hét Jamie Petrol-
ini. Hann var námsmaður og ættað-
ur úr skosku hálöndunum, þar sem
foreldrar hans ráku veitingahús.
Hann hafði verið sendur í háskóla í
Oxford og þar hafði hann eignast fé-
laga, hinn nitján ára gamla Richard
Elsey. Báðir höfðu þeir verið sendir
til Oxford í þeirri von að þeir gerðu
þar betur á prófum en þeir höfðu
gert í dým einkaskólunum sem þeir
höfðu áöur verið í.
Ekki varð þó mikið úr lestri hjá
þeim félögum. Mestur timinn fór í
dagdrauma og tilraunir tii þess að
láta ímyndunaraflið stytta stundim-
ar.
Jamie skýrði svo frá að Richard
hefði haldið því fram að hann væri
á laun sérdeildarmaður, félagi í
SAS, Speciíd Air Force, sérsveit sem
væri meðal annars send í hættuleg-
ar ferðir til útlanda til að vinna
verk sem einungis hinum hugrökk-
ustu og fæmstu mönnum væru fal-
in. Sjálfur hefði hann eitt sinn ver-
ið sendur til Mið-Austurlanda.
Jamie sagði síðan að Richard
hefði boðist tii þess að þjáifa sig svo
hann gæti gengið I SAS.
Þjálfunin
Þjálfunin var í byrjun í því fólgin,
að sögn Jamies, að þeir gengu á
fjöll, klifmðu upp háar byggingar,
æfðu sig í bardögum og gengu um
göturnar á taktfastan hátt eins og
hermenn.
Richard sagði lokaatriði þjálfun-
arinnar þó mun erfiðara. Jamie
yrði að sanna hugrekki sitt og
áræðni meö því að drepa mann.
Einhvern ókunnan mann. Ef hann
fyndi hugrekki til þess væri hann
búinn að sýna og sanna að hann
væri hæfur í SAS.
Prófdagurinn skyldi vera 14. jan-
úar 1994, en það var einmitt afmæl-
isdagur Jamies. Þá yrði hann nítján
ára. Og sá dagur rann brátt upp.
Þeir félagar klæddust svörtum
fyrst fyrir herbergisfélaga sínum,
síðan fyrir foreldrum sínum og
loks rektor háskólans, sem gerði
lögreglunni aðvart.
Jamie Petrolini var handtekinn
og færður til yfirheyrslu þar sem
heföi verið á röngum stað á röngum
tíma.
Hugleiðingar um morðið
Glæpur ungu mannanna frá Oxford
vakti sérstaka athygli. Háskólinn þar
er frægur um víða veröld og í heimi
þar sem aðeins tiltölulega fáir fá
nokkru sinni tækifæri til æðra náms
þótti ýmsum sem þessir tveir nemar í
hópi hinna útvöldu hefðu farið iiia
með það tækifæri sem þeir heföu feng-
ið í lífinu til að gera sjálfum sér og
öðrum gagn.
En hvað veldur þvi að ungir menn
fremja svona glæp? Við þvi er ekkert
einhlítt svar og i raun er aðeins hægt
að setja fram kenningar um það.
Ein þeirra sem fram kom var á þá
leið að þessir ungu menn hefðu ekki
valdið því námsefni sem fyrir þá var
’ lagt í einkaskólunum. Þeir hafi þá
verið sendir til Oxford til að reyna að
bæta frammistöðu sína, en ekki hafi
tekist betur til þar. Þeir hafi því í
raun ekki náð tökum á þeim viðfangs-
efnum sem skiptu þá mestu á þessum
tíma. Þess vegna kunni þeir að hafa
lagst í dagdrauma, sem hafi í raun að-
eins verið lífsflótti, flótti frá stað-
reyndum lífsins.
En þetta er aðeins kenning og vera
má að eitthvað annað í fari eða gerð
ungu mannanna hafi ráðið, hugsan-
lega einhver veiia, þótt ekki hafi nein
geðveiki komið fram við rannsókn
sálfræðinga, enda hefðu þeir þá ekki
verið taldir sakhæfir.
Það kom fram sem eins konar eftir-
máli hvað beið ekkju el-Saydes og
barna þeirra tveggja. Þau stóðu uppi
án fyrirvinnu og eftirlaun heimilisfóð-
urins reyndust aðeins vera jafnvirði
fimm þúsund króna á mánuði.