Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1998, Side 44
52
LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 1998 JjV
'★ ★
idge
Islandsmótið í parasveitakeppni 1998:
SOS-redobl réð úrslitum
íslandsmót í parasveitakeppni
var spiiað um sl. helgi og lauk með
sigri sveitar Ljósbrár Baldursdóttur
eftir æsispennandi lokaumferð.
Tvær sveitir áttu raunhæfan mögu-
leika á titlinum, sveitir Ljósbrár og
sveit Guðrúnar Óskarsdóttur. Sveit
Guðrúnar þurfti að fá a.m.k. 17 stig
til þess að tryggja sér sigurinn en
sveit Ljósbrár gat aöeins beðið
átekta úr sínum leik sem hún haföi
unnið með 22-8.
Sveit Guðrúnar spilaði við sveit
Drafnar Guðmundsdóttur í lokaum-
ferðinni og sigraði með minnsta
mun eftir nokkrar sviptingar, eða
16-14. Þar með hafði sveit Ljósbrár
unnið titiiinn með einu vinnings-
stigi. í sveit Ljósbrár spUuðu auk
hennar Bjöm Eysteinsson, Anna
Þóra Jónsdóttir, Ragnar Hermanns-
son, Esther Jakobsdóttir og Sverrir
Ármannsson.
Röð og stig efstu
sveita var eftirfarandi:
Ljósbrá Baldursdóttir, 140 stig.
Guðrún Óskarsdóttir, 139 stig.
Stefanía Sigurbjömsd., 133 stig.
Dröfn Guömundsdóttir, 124 stig.
Við skulum skoða eitt spennandi
spU frá leik Guðrúnar og Drafnar
sem eitt og sér gat gert út um titU-
inn og gerði:
♦ K8532
* A10983
♦ 94
* 10
4 ADG7
V KG74
♦ K852
* 6
* 96
4» 5
* ADG10
* AG9753
4 104
4» D62
4- 763
4 KD842
íslandsmeistarar í parasveitakeppni 1998. Efri röð frá vinstri: Sverrir Ármannsson, Ragnar Hermannsson, sem
heldur á þjálfara liösins og Björn Eysteinsson. Neöri röö frá vinstri: Esther Jakobsdóttir, Ljósbrá Bafdursdóttir og
Anna Þóra Jónsdóttir. Fremst sltur fyrirliöi án spllamennsku sem aö öllum Ifkindum er dóttir Önnu Þóru.
í opna salnum sátu n-s Guðrún
Óskarsdóttir og Einar Jónsson en a-
v Gunnlaug Jónsdóttir og Aðal-
steinn Jörgensen. Sagnröðin var
þessi: Suður Vestur Norður Austur
pass pass 1 tígull 2 lauf
pass pass dobl pass
pass redobl pass pass
Sagnimar skýra sig sjáifar, utan
redobl Aðalsteins sem er SOS og
beiöni um úttekt i hálitina. Austur
hafði takmarkaðan áhuga á hálita-
samningi og ákvað að sitja í tveim-
ur laufúm redobluðum.
Nú snerist aUt um útspUið og Ein-
ar átti völina. Eina útspilið sem
banar spUinu er spaði en Einar
ákvað að spUa tígli. Þar með var
spUið unnið og það skipti ekki máli
þótt Guðrún léti kónginn í fyrsta
Stefán Guðjohnsen
slag. Það auðveldaði einungis úr-
vinnsluna. Austur spUaði fjórum
sinnum tigli meðan suður kastaöi
einu hjarta. Síðan kom hjarta á ás,
hjarta trompað og lítið tromp á tí-
una. Nú var engin vöm tU og aust-
ur vann sitt spU og fékk 760.
Við hitt borðið sátu n-s hjónin Ás-
geir og Drööi Guömundsdóttir en a-
v Anna ívarsdóttir og Siguröur B.
Þorsteinsson. Sagnir voru á svipuð-
um nótum:
Suður Vestur Norður Austur
pass pass 1 ♦ 2 *
pass pass dobl pass
pass redobl pass 2 +
pass 2* pass pass
pass
Þessi samningur átti ekki mikla
möguleika en Sigurði tókst að
skrapa heim sex slögum. Það voru
200 upp í skaðann hjá n-s en samt 11
impa tap.
Vert er aö vekja athygli á því að
Bridgehátíö ’98 hefst um næstu
helgi og verða henni gerð skU í
þættinum á laugardaginn kemur.
Jón Viktor skákmeistari Reykjavíkur
Jón Viktor Gunnarsson átti frá-
bært skákár 1997 og heldur nú
áfram uppteknum hætti. Fyrir loka-
umferðina á skákþingi Reykjavíkur,
sem tefld var í gærkvöldi, hafði
hann tryggt sér titUinn „skákmeist-
ari Reykjavíkur 1998“. Jón Viktor
hafði vinningsfor-
skot á Sigurbjöm
Bjömsson og átti
að mæta honum
með svörtu mönn-
unum í síðustu
skákinni. Með því
að vinna átti Sig-
urbjöm möguleika
á að deUa efsta
sætinu en þar sem
hann er búsettur í Hafnarfirði var
Jón Viktor öraggur með Reykjavík-
urmeistaratitUinn.
Staða efstu manna fyrir síðustu
umferðina var þessi:
1. Jón Viktor Gunnarsson 9 v. af
10 mögulegum.
2. Sigurbjöm Bjömsson 8 v.
3. -6. Dan Hansson, Sigurður Daði
RÉTTUR
BÍLARÉTTINGAR
ERUM FLUTTIRI
ÁRMÚLA 23
568 63 50
Sigfússon, Bergsteinn Einarsson og
PáU Agnar Þórarinsson 7,5 v.
7.-10. Bragi Þorfmnsson, Kristján
Eðvarðsson, Amar E. Gunnarsson
og Torfi Leósson 7 v.
Keppendur á skákþingi Reykja-
víkur vora 86 og tefldu 11 umferöir
eftir svissnesku
kerfi. Að venju
lýkur þinginu með
hraðskákmóti
Reykjavíkur, sem
fram fer á morgun,
sunnudag, í Faxa-
feni 12 og hefst kl.
14. Taflfélag
Reykjavíkur stend-
ur síðan fyrir
skákkeppni fyrirtækja og stofnana,
sem hefst á þriöjudag. Svo virðist
sem starfsemi þessa virðulega taflfé-
lags sé nú aftur að eflast, undir for-
ystu formanns þess, Ríkharðs
Sveinssonar.
Jón Viktor tefldi af miklu öryggi
á mótinu en var þó hætt kominn í
skák sinni við Dan Hansson. Dan
hefur tekið sér nokkurt hlé frá
skákiðkun en lagt þeim mun meiri
stund á bridgeíþróttina á meðan. En
nú er hann aftur mættur til leiks og
teflir mjög ffísklega. Þótt frumleg
byrjunartaflmennska hefði ekki
skilaö sérstökum árangri var hann
næstum búinn að leggja garpinn
unga að velli.
Hvítt: Dan Hansson
Svart: Jón Viktor Gunnarsson
Orangútan-byrjun
1. b4
Áhrif frá briddsinu? Eða þetta
dæmigerða: Jón Viktor orðinn alltof
lærður í byrjunum og því hyggileg-
ast að fara ótroðnar slóðir.
1. - d5 2. Bb2 Rf6 3. Rf3 c6 4. e3
Bf5 5. c4 e6 6. b5l? Be7 7. Be2 0-0
8. 0-0 h6 9. Rc3 Bh7 10. a4 Rbd7
11. d4 dxc4 12. Bxc4 c5 13. De2
cxd4 14. exd4?! Rb6 15. Bd3 Bxd3
16. Dxd3 Rbd5 17. Rxd5 Dxd5
Svartur hefúr komið ár sinni vel
fyrir borö og getur nú heijaö að
stöku peði hvíts á miðborðinu.
18. Ba3 Bxa3 19. Hxa3 Hac8 20.
Hc3 Re4 21. Hccl Rd6 22. Da3
Hfd8 23. h3 f6?!
Betra er 23. - Rf5 með stöðuyfir-
burðum á svart.
24. Hc5! Hxc5 25. dxc5 Re4 26.
Hcl Hc8
Svartur viröist vera aö vinna peð
en þetta hefur Dan séð fyrir þegar
hann lék sinn 24. leik.
27. c6! bxc6 28. De7 c5
29. Rd4! Rg5
Ef 29. - Dxd4 30. Dxe6+ Kh7 era
millileikimir 31. Df5+! g6 32. Dd7+
bráðdrepandi - hrókurinn á c8 fell-
ur með skák.
30. Rc6 Rxh3+
Fómar til jafnteflis - að öðram
kosti félli á a7 og svartur væri í
vanda.
31. gxh3 Dg5+ 32. Kh2 Df4+ 33.
Kg2 Dg5+ 34. Kf3 Dd5+?
Staöan er jafntefli eftir 34. - Hxc6
35. bxc6 Dd5+ 36. Ke3 Dd4+ 37. Ke2
De4+ 38. Kd2 Dd4+ 39. Kc2 Dc4+
o.s.frv.
35. Ke3 Dg5+
Nú er 35. - Hxc6 of seint vegna 36.
De8+ og 37. Dxc6 og drottningin
skerst í leikinn. Takiö eftir aö nú er
hrókurinn á cl ekki lengur í upp-
námi.
36. Ke2 Hxc6
Nú þáði Dan jafnteflisboð Jóns
Viktors. í tímahrakinu áttaði hann
sig ekki á því að staðan er ekki leng-
ur jafntefli! Eftir 37. bxc6 er enga
þráskák að sjá í stöðunni og 37. -
Dxcl 38. Dxe6+ Kh7 39. c7 leiöir
einnig til vinnings á hvítt. Þama
skall hurð nærri hælum Reykjavik-
urmeistarans!
Þröstur íslandsmeistari
Úrslitaeinvíginu í íslandsmótinu
í atskák, sem styrkt var af VISA og
Agresso-hugbúnaði, var sýnt í
beinni útsendingu á sjónvarpsstöð-
inni Sýn á sunnudag. Forráðamenn
stöðvarinnar vora ekki lengi að
grípa gæsina þegar Ríkissjónvarpið
hafnaöi mótinu. Og þeir á Sýn
gerðu gott betur en það, því að í til-
efni mótsins var fjárfest í spánnýj-
um- tækjum, þannig að graflkin á
skjánum var nú betri en áhorfend-
um hefur áður boðist. Hermann
Gunnarsson var við stjómvölinn og
honum til aðstoðar Helgi Ólafsson
stórmeistari.
Stórmeistaramir Þröstur Þór-
hallsson og Hannes Hlífar Stefáns-
son háðu úrslitaeinvígið. Fyrri
skákin var einstefna af hálfu Þrast-
ar, eftir að Hannes missté sig til-
tölulega snemma tafls. Eftir aðeins
10 leiki var Þröstur meö pálmann í
höndunum! Hannesi tókst raunar
að þvælast fyrir honum fram i enda-
tafliö en náöi ekki aö afstýra ósigri.
Seinni skákinni lauk snöggt, þegar
Þröstur hristi riddarafóm fram úr
erminni, sem tryggöi honum þrá-
skák og jafntefli.
Þröstur er vel aö sigrinum kom-
inn. Taflmennska hans var sann-
færandi í úrslitakeppninni og eng-
inn sérstakur heppnisblær sem
sveif yfir vötnum, eins og oft vill
veröa í styttri skákum. Þröstur
vann Þorstein Þorsteinsson, Jón L.
Ámason og Helga Ólafsson í undan-
rásum en Hannes vann Ólaf Krist-
jánsson, Davíö Ólafsson og Jóhann
Hjartarson.
Anand og Kramnik jafnir
Indverjinn Viswanathan Anand
og Rússinn Vladimir Kramnik urðu
jafnir og efstir á stórmeistaramót-
inu í Wijk aan Zee í Hollandi.
Kramnik og Karpov gerðu stutt
jafntefli í síðustu umferö mótsins og
skák Anands við Sírov lauk einnig
meö jafntefli eftir nokkrar svipting-
ar. Anand og Kramnik fengu vinn-
ingi meira en næstu menn og vora
langt fyrir ofan Karpov, sem varð
að sætta sig við 6.-10. sætið.
Lokastaðan varð þessi:
I. -2. Anand og Kramnik 8,5 v.
3.-5. Adams, Sírov og Timman 7,5
v.
6.-10. Karpov, Gelfand, Piket,
Judit Polgar og Topalov 6 v.
II. Salov 5,5 v.
12. Nijboer 5 v.
13. Van Wely 4,5 v.
14. Van der Sterren 4 v.
i
<
I
I
I
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
(
<
<
(
(
(
(
(
(