Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1998, Page 46
LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 1998 JjV
« 'Gfmæli_____________________
Þráinn Hallgrímsson
Þráinn Hallgrímsson, skrifstofu-
stjóri stéttarfélagsins Dagsbrúnar
og Framsóknar, Helgubraut 13,
Kópavogi, er fimmtugur i dag.
Starfsferill
Þráinn fæddist á Siglufirði en
flutti með fjölskyldu sinni til
Reykjavíkur 1956. Hann lauk stúd-
entsprófi frá MR 1968, lauk BA-prófi
í ensku, frönsku og norsku og prófi
í uppeldis- og kennslufræði við HÍ
1973.
Þráinn var bankamaður í Iðnað-
arbankanum 1972-73, kenndi við MÍ
1973-80, og við Kvöldskólann á ísa-
firði, Gagnfræðaskólann þar og Iðn-
skóla ísafjarðar, var blaðamaður
við Alþýðublaðið 1980-83, við Tím-
ann 1983, var fræðslufulltrúi MFA
1983-1988, skrifstofustjóri ASÍ
1988-92, skólastjóri Tómstundaskól-
ans ffá árslokum 1992 og jafnframt
Málaskólans Mímis frá 1995, varð
skrifstofustjóri verka-
mannafélagsins Dags-
brúnar 1996 og er nú
skrifstofustjóri Dags-
brúnar og Framsóknar.
Þráinn var formaður
fyrsta félagsmálaráðs
ísafjarðar um tveggja
ára skeið og sat í menn-
ingarráði ísafjaröar, sat
í stjóm Tómstundaskól-
ans frá upphafi, í stjórn
Bréfaskólans frá 1986 og
stjórnarformaður
1988-89, í stjóm MFA á
Norðurlöndum í eitt ár, námsstjóri
á Norræna MFA-skólanum 1986, sat
i stjórn Genfarskólans frá 1988, sat í
þríhliðanefnd Alþjóðavinnumála-
stofnunarinnar fyrir ASÍ, var full-
trúi launafólks á Alþjóðavinnumála-
þinginu í Genf í Sviss 1989-92, í ráð-
gjafarnefnd Jafnréttisráðs 1988, sat í
nefnd félagsmálaráðherra um
starfsmenntun í atvinnu-
lífinu 1989, var formaður
Tómstundaráðs Kópa-
vogs og varaformaður
skólanefndar Kópavogs
1986-90.
Þráinn þýddi og samdi
bókina Þú hefur orðið, -
um ræðumennsku og
framkomu í ræðustól,,
útg. af MFA 1986. Hann
hafði umsjón með sam-
norræna ritinu Umheim-
urinn og ábyrgð okkar, -
um umhverfis- og þróun-
armál, en ritið kom út á öllum
Norðurlöndunum á sama tíma. Þá
samdi hann Orðabók vinnumarkað-
arins, útg. af MFA 1992.
Fjölskylda
Eiginkona Þráins er Þórunn Kar-
itas Þorsteinsdóttir, f. 4.1. 1952,
bankastarfsmaður. Hún er dóttir
Þorsteins Jónssonar og Margrétar
Jónsdóttur.
Börn Þráins og Þórunnar eru Jón
Elías Þráinsson, f. 27.11. 1969, nemi
við HÍ; Ólafur Þráinsson, f. 20.9.
1972, nemi; Karitas Þráinsdóttir, f.
23.12. 1973, starfsmaður við leik-
skóla.
Systkini Þráins: Steinar Hall-
grímsson forstjóri, var kvæntur
Valdísi Viggósdóttur sem er látin;
Dúa Hallgrímsdóttir kennari, gift
Arnóri Eggertssyni endurskoðanda;
Jónas Hallgrímsson, framkvæmda-
stjóri Norrænu á Seyðisfirði, kvænt-
ur Bente Brandt; Pálmar Hallgríms-
son læknir, kvæntur Erlu Gunnars-
dóttur hjúkrunarfræðingi.
Þráinn er sonur Hallgrims Már-
ussonar, f. 6.11. 1916, klæðskera og
bifreiðastjóra í Kópavogi, og
Hermínu Sigurbjömsdóttur, f. 4.8.
1916, húsmóður.
Þráinn er að heiman.
Þráinn Hallgrímsson.
Agústa Halldóra Gísladóttir
Ágústa Halldóra Gísladóttir, fisk-
tæknir, Mánagötu 19, 240 Grinda-
vík, er fímmtug í dag.
Starfsferill
Ágústa fæddist á Ólafsfirði og ólst
þar upp og í Reykjavík. Hún var í
Melaskóla, Gagnfræðaskóla Vestur-
bæjar og skóla í Grindavík, lauk
gagnfræðaprófl á Ólafsfirði, stúd-
entsprófl frá FS í Keflavík, lauk
prófi sem fisktæknir og stundaði
nám í sjávarútvegsfræði við endur-
menntun HÍ. Þá hefúr hún sótt ým-
is lengri og styttri námskeið í
íþróttaþjálfun, félagsmálum og
fleiru.
Ágústa hefur lengst af stundað
eigin rekstur, tengdan sjávarútvegi
frá 1968.
Hún hefur sinnt félags og trúnað-
arstörfum í Ungmennafélagi
Grindavíkur.
Fjölskylda
Ágústa giftist 23.10.1967 Hafsteini
Sæmundssyni, f. 23.10.1936, vélfræð-
ingi, skipstjóra og trillukarli. Hann
er sonur Sæmundar Erlendar Krist-
jánssonar, f. 2.9. 1909, d. 5.11. 1982,
vélfræðings, og Gyðu Petrínu
Waage Ólafsdóttur f. 15.4.20, hús-
móður.
Sæmundur var sonur Kristjáns
Árnasonar, skipstjóra og síðar ís-
hússtjóra á Bíldudal, og k.h., Viktor-
íu Kristjánsdóttur húsmóður.
Gyða er dóttir Ólafs Magnússonar
Waage, bónda á Tjaldanesi í Auð-
kúluhreppi, og Jónu Ágústínu Jóns-
dóttur húsfreyju.
Böm Ágústu og Hafsteins eru
Gisli Ari, f. 2.7. 1967, hárstílisti í
Maastricht ásamt maka sínum
Dominique P.R. Vanacken; Jóna
Ágústa f. 18.7. 1968, búsett í Was-
hington DC ásamt maka sínum
James C.D. Pounds en sonur þeirra
er Hafsteinn, f. 20.3.1995; Þyri Ásta,
f. 25.3.1971, nemi en sambýlismaður
hennar er Gunnar A. Amgrimsson
nemi; Heimir Öm, f. 25.3.1971, stýri-
maður í Reykjavík en heitkona
hans er Helga Kristjánsdóttir nemi.
Systkini Ágústu em Ester, f. 23.9.
1945, búsett í Garðabæ; Haraldur, f.
25.11. 1946, búsettur í Grindavík;
Margrét Rebekka f. 31.7. 1949 búsett
í Grindavík; Sigríður
Jóna, f. 29.11. 1954, bú-
sett á Akureyri; Páll, f.
25.1. 1960, búsettur í
Grindavík; Inga Friða,
f. 12.4.1963, búsett í Sví-
þjóð.
Foreldrar Ágústu eru
Gísli Hólm Jónsson, f.
12.12.1920 verkstjóri, og
Ragnheiður Berg-
mundsdóttir, f. 17.8.
1924, húsmóðir.
Gísli er sonur Jóns, Ágústa Halldóra
verkamanns á Ólafs- Gfsladóltir.
firði, Pálssonar, frá Syðstahóli í
Sléttuhlíð.
Móðir Gísla var Sigríður Jóns-
dóttir, b. í Tjarnargarðshorni í
Svarfaðardal, Friðrikssonar, b. í
Brekkukoti, Jónssonar. Móðir Jóns
var Guðrún Björnsdóttir. Móðir Sig-
ríðar var Margrét Bjömsdóttir, b. á
Gmnd i Svarfaðardal, Bjömssonar.
Móðir Margrétar var Ingigerður
Jónsdóttir.
Ragnheiður er dóttir Bergmund-
ar, oddvita á Látrum í
Aðalvík í Sléttuhreppi,
Sigurðssonar, b. á Læk,
Friðrikssonar. Móðir
Bergmundar var Krist-
ín Amórsdóttir.
Móðir Ragnheiðar
var Stefanía Ágústa
Stefánsdóttir, b. í Efri-
Hlíð í Helgafellssveit,
Jóhannessonar. Móðir
Stefaníu Ágústu var
Ólafla Hjálmrós Ólafs-
dóttir.
Vinir og vandamenn
Ágústu eru hjartanlega
velkomnir til afmælis-
fagnaðar og er þeim vinsamlega
bent á að klæðast.við hæfi.
Byrjað verður með göngu frá Þor-
bjarnarfelli stundvislega kl. 12.00,
gengið verður um nágrennið, stefn-
an síðan sett á Sundmiðstöð Grinda-
víkur og gestir fá sér sundsprett og
hvílast í heitupottunum áður en til
veislu verður gengið (ekið). Vinir og
vandamenn geta blandað sér í hóp-
inn hvar og hvenær sem er til
veisluloka.
%ndlát
Kári Þórðarson
Kári Þórðarson, raf-
veitustjóri í Keflavík,
Kirkjuvegi 5, Keflavík,
lést í Sjúkrahúsi Kefla-
víkur, föstudaginn 30.1.
s.l.. Hann verður
kvaddur frá Keflavík-
urkirkju í dag, laugar-
daginn 7.2. kl. 13.30.
Starfsferill
Kári fæddist í Krók-
túni á Landi og ólst
upp þar og í Gríms-
nesi, í Tryggvaskála á
Selfossi og í Reykjavík.
Hann stundaði nám
við Iðnskólann í Reykjavík, lærði
rafvirkjun hjá Júlíusi Bjömssyni og
var með þeim fyrstu sem tóku
sveinspróf í greininni 1932. Kári tók
minna vélstjórapróf 1935, lauk prófl
úr rafmagnsdeild Vélskólans 1937,
öðlaðist þá lágspennuréttindi, fékk
meistararéttindi í rafvirkjun 1941
og háspennuréttindi 1952.
Kári rak raftækjaverslunina
Ekkó og verkstæði í Hafnarfirði í fé-
lagi við annan 1939-58. Hann var
rafveitustjóri í Keflavík 1960-81 er
hann hætti vegna aldurs.
Kári sat I stjórn Rafvirkjafélags
Reykjavíkur 1933-34, var formaður
þess 1935-37, stjómarformaður raf-
veitna á Suðurlandi 1968-81, var
einn af stofendum
Bridgefélags Hafnar-
íjarðar, formaður þess
og heiðursfélagi, og fé-
lagi í Rotary og Odd-
fellow.
Fjölskylda
Kári kvæntist 24.2.
1934 Kristínu E. Theó-
dórsdóttur, f. á Brávöll-
um 10.9. 1914. Foreldr-
ar hennar vom Theó-
dór Jónsson, frá Álf-
stöðum á Skeiðum, og
Steinunn Þórðardóttir,
frá Mýrum í Villinga-
holtshreppi.
Börn Kára og Kristínar eru
Katrín, f. 9.8. 1933, ljósmyndari, bú-
sett í Garðabæ, gift Eiríki Svavari
Eiríkssyni; Theódóra Steinunn, f.
31.3. 1935, húsmóðir og ekkja eftir
Guðmund Hauksson loftskeyta-
mann sem lést 1996; Elín, f. 23.7.
1942, ráðskona á Bessastöðum, gift
Hilmari Braga Jónssyni matreiðslu-
meistara; Hlíf, f. 28.10. 1943, tónlist-
arkennari; Þórunn, f. 1.7. 1947,
bankastarfsmaður; Kristín Rut, f.
21.12. 1950, hárgreiðslukona, gift
Scott Klempan; Þórður, f. 1.4. 1955,
slökkviliðsmaður, kvæntur Hólm-
fríði Sigtryggsdóttur skrifstofu-
manni; Theódór, f. 4.6.1957, rafverk-
taki, kvæntur Láru V. Bjamadóttur
ritara.
Systkini Kára: Guðrún, f. 21.8.
1908, dó sex ára; Sæmundur, f. 16.9.
1909; Margrét, f. 14.3. 1913; Þóra, f.
21.4. 1914; Gunnar, f. 7.7. 1915, dó í
frumbernsku; Guðrún, f. 14.10. 1916;
Elín, f. 28.11. 1917, dó þriggja ára;
Hlíf, f. 9.9. 1919; Elín, f. 28.3. 1922;
Haraldur, f. 16.9. 1923; Þómnn, f.
15.5. 1925, ein á lífi systkinanna.
Foreldrar Kára voru Þórður Þórð-
arson, f. 12.4. 1882, d. 20.6. 1925,
bóndi í Króktúni og gestgjafl í
Tryggvaskála, og k.h., Katrín Páls-
dóttir, f. 9.6. 1889, d. 26.12. 1952, hús-
freyja í Tryggvaskála og borgarfull-
trúi í Reykjavík.
Ætt
Bróðir Þórðar var Guðlaugur í
Tryggvaskála, afi Guðlaugs Berg-
manns kaupmanns, Guðlaugs
Tryggva Karlssonar hagfræðings,
Egils Thorarensen, framleiðslu-
stjóra í Hólmavík og Guðlaugs Æg-
is Magnússonar, forstjóra á Selfossi.
Þórður var sonur Þórðar, b. á
Hellum, bróður Vilborgar,
langömmu Rutar Ingólfsdóttur
flðluleikara. Þórður var sonur
Guðlaugs, b. á Hellum, Þórðarsonar,
b. þar, Stefánssonar, b. á Bjalla,
bróður Rannveigar Filippusdóttur
og Jóns á Brekkum, afa Solveigar,
ömmu Ásgeirs forseta. Stefán var
sonur Filippusar, pr. í Kálfholti,
forföður Ingólfs á Hellu og
Matthíasar Mathiesen og Geirs
Haarde alþm.
Móðir Þórðar yngri var Vilborg
Einarsdóttir, b. á Hólum á
Stokkseyri, Jónssonar, hreppstjóra
á Baugsstöðum, hálfbróður Bergs,
ættföður Bergsættarinnar. Móðir
Einars var Margrét Sigurðardóttir,
b. á Vorsabæ í Flóa, systir Bjarna
Sívertsen riddara, forföður
Gunnars Bjarnasonar ráðunauts og
Jónasar Kristjánssonar ritstjóra
DV.
Móðir Þórðar í Tryggvaskála var
Guðrún, systir Sæmundar, afa
Guðrúnar Erlendsdóttur
hæstaréttardómara. Annar bróðir
Guðrúnar var Guðbrandur, afl
Hauks Morthens og Kristins, föður
Bubba Morthens og Tolla
myndlistarmanns. Guðrún var
dóttir Sæmundar, ættföður
Lækjarbotnaættarinnar Guðbrands-
sonar, bróður Sigurðar, langafa
Guðmundar Daníelssonar.
Katrín borgarfulltrúi var dóttir
Páls Hallssonar, b. og söðlasmiðs í
Fróðholtshól á Rangárvöllum,
bróður Halls söngvara, föður
Kristins óperusöngvara. Móðir
Katrínar var Elín Sæmundsdóttir.
Kári Þórðarson.
Til hamingju
með afmælið
7. febrúar
90 ára
Klara Tryggvadóttir,
Litlahvammi 7, Húsavík.
80 ára
Þorvaldur Steingrímsson,
Snælandi 2, Reykjavík.
75 ára
Ásdís Ámadóttir,
Álfheimum 11, Reykjavík.
Unnur María Einarsdóttir,
Frostafold 1, Reykjavík.
Árni A. Eiríksson,
Móabarði 4b, Hafnarílrði.
60 ára
Jakob
Marteinsson
sjómaður,
Laugarnesv. 76,
Reykjavík,
verður sjötugur
á mánudag.
Kona hans er Magnea
Ámadóttir.
Þau taka á móti gestum í
Blómasal Hótel Loftleiða á
morgun, sunnudaginn 8.2.
milli kl. 15.00 og 17.00.
Jóhann Guðmundsson,
Grænukinn 6, Hafnarfirði.
50 ára
Kristján Jónsson,
Klapparstíg 1, Reykjavík.
Elías Gíslason,
Neðstaleiti 14, Reykjavík.
Margrét S. Bárðardóttir,
Flúðaseli 90, Reykjavík.
Þorbjörg Sigurðardóttir,
Ugluhólum 4, Reykjavík.
Hallgrímur Einarsson,
Vogagerði 9, Vogum.
Bjarki Leifsson,
Vesturgötu 8, Keflavík.
Alda Hafdís Demusdóttur,
Ásabraut 15, Grindavík.
Steinunn Erla
Marinósdóttir,
Lindargötu 20b, Siglufirði.
Þorkell Rögnvaldsson,
Furulundi 15f, Akureyri.
Amar Daðason,
Vesturkoti, Skeiðahreppi.
40 ára
Helga Þ. Egilson
Stigahlíð 39, Reykjavík.
Siguvður Valgeir
Skarphéðinsson,
Flúðaseli 72, Reykjavík.
Guðmundur Snorrason,
Tjarnarmýri 33,
Seltjarnamesi.
Hulda Dagrún Grímsdóttir,
Borgarholtsbraut 5, Kópavogi.
Kristín Sigurjónsdóttir,
Selsvöllum 16, Grindavík.
Leifur Gunnlaugsson,
Hlíðarvegi 88, Njarðvík.
Dagný Sæbjörg Finnsdóttir,
Reynihvammi, Mosfellsbæ.
Ingvar Þór Pétursson,
Víkurtúni 12, Hólmavík.
Páll Halldór Benediktsson,
Hákonarstöðum 4,
Jökuldalshreppi.
/
IJrval
- gott í hægindastólinn