Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1998, Page 51

Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1998, Page 51
LAUGARDAGUR 7. FEBRUAR 1998 Hættum að heilsa ★ A eldast of hratt - forvitnileg bók komin út á íslensku um mál sem alla varðar „Ég fékk áhuga á efni bókarinnar fyrir um einu ári síöan. Hún fjallar um ákaflega spennandi hluti, svo- kallaða stakeindakenningu sem er sú öldrunarkenning sem hefur orð- ið ofan á. Kenningin veitir skýringu á því af hverjum við eldumst og seg- ir okkur hvað við getum gert til að hægja á öldrun," segir Ari Halldórs- son, hugleiðslukennari til margra ára, sem hefur þýtt og gefið út bók- ina Hœttum aö eldast eftir banda- ríska blaðamanninn Jean Carper. Bókin kom fyrst út í Bandaríkj- unum árið 1995 og hefur vakið nokkra athygli, m.a. verið þýdd yfir á flest Norðurlandamálin og mörg önnur tungumál. Ari hefur einu sinni áður þýtt og gefið út bók um heilsu. Hún hét Fullkomió heilbrigöi eftir Deepak Chopra og kom út fyrir þremur árum. r Ahrif fæðu og vítamína í bókinni Hættum að eldast er m.a. sagt frá þeim rannsóknum nú- tímans sem hafa veriö gerðar á áhrifum fæðu og vítamína á öldrun, t.d. í skólum á borð við Harvard, Tufts og Kaliforníuháskóla. Bókin hefur m.a. fengið jákvæð ummæli margra þekktra vísindamanna á þessu sviði. „Þegar ég las þessa bók fannst mér hún eiga erindi til okkar. Við berjumst við marga sjúkdóma hér á Islandi sem annars staðar og við gætum lifað enn lengur heilbrigð en við gerum. Eftir minni bestu vitund hefur engin bók af þessu tagi komið út á íslensku. Kenningarnar sem hér um ræðir eru tiltölulega nýjar. Komu reyndar fyrst fram árið 1954 en var lítill gaumur gefinn þá. Fyr- ir um tveimur áratugum var farið að veita þeim athygli og veita auknu fé í rannsóknir á stakeindum og andox- un,“ segir Ari og rétt að hann útskýri þau hug- tök nánar: „Já, við eldumst af sömu ástæðu og bíll sem §gg ryðgar á víðavangi og ef kjöt þránar í sólskini. í öllum tilvikum veldur súrefni oxun. Þannig að súrefniö, sem gefur okkur : >": = líf, leiðir aö lokum til hrörnunar og dauöa. Það | sem veldur oxun í líkam- ft| . anum eru svokallaðar I stakeindir sem m.a. mynd- | ast við bruna i frumum. | Þær eru súrefnismólikúl 10 leiðir til að halda sér ungum og um Boróiö ávexti 'Sg grœnmœti. Boröiö fisk. Drekkiö te. Borðiö sojabaunaafurðir. Fœkkiö hitaeiningum. Foróist slœmafitu. Boröió lítiö kjöt. Ef til vill dálítiö af rauövíni. Borðiö minna af sœtindum. Borðið hvítlauk. sem geta gegnt ákveðnu hlutverki í líkamanum. Ef uppsöfnun stakeinda í líkamanum verður of mikil eldumst við hraðar en æski- legt er. Stakeindirnar valda þá skemmdum á frumum, t.d. fitu í frumuhimnum, próteinum og jafn- vel erfðaefninu DNA, og eru því or- sök ýmissa sjúkdóma eins og hjarta- sjúkdóma, krabbameins, liðagigtar og sykursýki. Allt eru þetta í raun öldrunarsjúkdómar. í bók- inni er fjallað annars veg- ar um hvernig eigi að uppræta stakeindir í líkamanum og hins vegar hvernig á að koma í veg fyrir myndun þeirra," segir Ari. Sem dæmi um það sem veldur uppsöfnun stakeinda er rangt mataræði, t.d. neysla á harðri fitu í unnum mat- vælum, mengun í andrúmsloftinu, streita og ofreykingar. Ekki síður fyrir ungt fólk Hann segir það merkilegt að i dag sé verið að komast að sameiginlegri orsök margra ólíkra sjúkdóma. Einmitt þessi staðreynd sé heillandi hvað varðar umrædda stakeinda- kenningu. „Efni bókarinnar á ekki síður er- indi til unga fólksins sem á eftir að verða gamalt. Fólk er að deyja úr þessum sjúkdómum jafnvel fertugt eða fimmtugt. Af lestri bókarinnar mætti halda að efnið höfði meira til gamla fólksins en svo er alls ekki. Því fyrr sem gripið er í taumana gegn öldrun og sjúkdómum því betra. Titill bókarinnar er áskorun til fólks um að hætta að eldast of hratt, og að ástæðulausu, en auðvit- að er ekki hægt að stöðva öldrunar- ferlið fyrir fullt og allt,“ segir Ari og bendir á að í bókinni sé að finna handhægar leiðbeiningar um hvern- ig eigi að hægja á öldrun, s.s. með réttu mataræði og bætiefnaneyslu. Meðfylgjandi greininni eru tíu einfaldar leiðir sem gæti verið hollt að hugsa um. -bjb Ari Halldórsson, þýðandi og útgef- andi. DV-mynd Hilmar Þór 59 Síðasti bekkur vetrar- ins byrjar í dag kl. 13 í dag byrjar síðasti bekkur vetrarins (ásamt þriðjudags- bekknum á þriðjudaginn kemur). Hringdu og láttu skrá þig eða mœttu bara á staðinn klukkan eitt í dag í lang- skemmtilegasta skólann í bœnum! Langar þig að vita allt um lífið eftir dauðann og hvar látnir ástvinir þínir og vandamenn hugsanlega og líklega eru og hvar og hvernig þessir handanheimar allir eru? Ef svo er þá áttu ef til vill samleið með okkur og yfir 700 ánægðum nem- endum Sálarrannsóknarskólans sl. 4 ár. Og langi þig að vita hvað draugar eru, líkamningar, álfar og huldufólk, berdreymi, sagnarandi, fyrrilíf, miðilstal, segul- bandsmiðlar, ljósmyndamiðlar, tölvumiðlar, talmiðlar, lækn- ingamiðlar, heilarar, geimverur, slæm aðsókn, næmi, skyggni bama, fyrirboðar, fylgjur, afturgöngur, eða bara hvaða merki- lega dulrænt mál sem er, þá áttu mjög líkJega erindi í Sálar- rannsóknarskólann, þar sem landsliðið í spíritisma og hand- anheimafræðum kennir fyrir hóíleg skólagjöld sem allir geta ráðið við. Hringdu og fáðu allar nánari upplýsingar um skemmti- iegasta skólann í bænum í dag Við svörum í síma skólans alla daga vikunnar kl. 14-19. Síðasti kynningarfundur vetrarins verður í skólanum á mánudagskvöldið kl. 20.30. Sálarrannsóknarskólinn -skemmtilegasti skólinn í bœnum - Vegmúla2, sími 561-9015 & 588-6050 < . e- ViS leitum að ungu haefileikafólki, 16 ára og eldri, til að taka (?ótt í rokksöngleiknum GREASE í Borgarleikhúsinu í sumar, Söng-, daitf" og leíkprufur i Borgarleíkhúsinu 14. - 17. fobrdaiv Nánari gpplýsingar og skráning I slma 568 5500 á skrifstofutima, Ekki vmi verra efþú kynnir eitt eða fleiri /ög úr GREASE. ájkl.mmAG BfREYKJAVIKUT BORGARLEIKHÚSIÐ f

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.