Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1998, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1998, Síða 18
18 LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 1998 dagur í lífi Ólafía Hrönn Jónsdóttur nennti ekki á æfingu á Poppkorni í Þjóðleikhúsinu: Ákvað að springa á reykingabindindinu „Dagurinn byrjaði á því að ég bar æft án mín. Ég skellti á hana vaknaði upp með andfælum vegna þegar hún fór að tuða um að ég þess að ég hafði sofið yfir mig. þyrfti að koma á rennslið um Strákarnir voru orðnir of seinir í kvöldið. skólann og ég reifst við þá alveg i ; þangað til ég lokaði útidyrunum á IVHSSII KU Ty IH H eftir þeim. Ég hafði gleymt að Ég hellti upp á kaffi en missti kaupa handa þeim nesti og þeim korginn úr gömlu uppáhellingunni fannst eitthvað vont að fara nestis- á gólfíð. Ég nennti ekki að þrífa lausir í skólann. Ég sagði að mér þætti þetta bara frekja. Þeir höfðu að vísu ekki haft tíma til að borða morgun- mat en guð minn góður, annað eins hafði nú gerst. Ekki húsbóndinn Systursonur minn, Óli, vaknaði við lætin í okkur og fór að skipta sér af. Ég öskraði á hann að hann ætti ekkert með að vera að skipta sér af þessu, hann væri ekki húsbóndinn á heimilinu. Þegar þeir voru allir farn- ir settist ég niður i fýlu út í strákana og hét því að vera leiðinleg við þá þegar þeir kæmu heim úr skólanum. Ég leit í Dag og ákvað að springa á reykingabindind- inu, fékk mér fyrstu rettuna i þrjú ár, svimaði svo að ég varð að leggja mig. Ég sofn- aði en vaknaði við það að siminn var að hringja. Ás- dís aðstoðarleikstjóri var í símanum og sagði mér að ég ætti að vera mætt á æfmgu. Ég spurði hvort þau gætu ekki bara æft án min. Hún sagði það vont þar sem að- eins væru þrír dagar i frum- sýningu og ég sagðist þá vera með allt mitt á tæru og að ég þyrfti ekki að æfa mitt betur. Þessir leikarar gætu Olafía Hrönn er hér næstlengst til hægri í Poppkorni ásamt Margréti Vilhjálmsdóttur, Hjálmari Hjálmarssyni og Pálma Gestssyni.. DV-mynd Hiimar Þór það upp en hugsaði að það væri bara sniðugt að láta strákana gera það þegar þeir kæmu heim. Ég sat og starði út í bláinn í fjóra tíma eða þar til strákamir komu heim. Þá upphófust handalögmál og læti sem enduðu með því að ég sagði við þá að þeir fengju ekkert að borða í kvöldmat. Þeir grétu en ég setti bara fallega tónlist á fóninn til þess að yfirgnæfa þá. Afbrýðisamir leikarar Klukkan sjö dreif ég mig svo í vinnuna. Þá var ég í banastuði en fannst kollegamir vera eitthvað þurrir á manninn. Ég æsti mig að- eins eftir rennslið og talaði um að það þýddi ekkert að vera að leika og draga vandamálin að heiman með sér upp á svið. Þeir horfðu á mig með fyrirlitningu en ég held að það hafi bara verið öfund vegna þess að ég stóð mig svo vel á rennslinu á Poppkorni." Afimm breytingar ^ ---------------- Finnur þú fimm breytingar? 451 Vinningshafar fyrír getraun nr. 449 eru: 1. verölaun: 2. verölaun: Nafn: Jóna Árnadóttir. Sigtryggur Þórhallsson, Kjarrfundi 4. Kleppsvegi 22. Helmili: 600 Akureyrí. 104 Reykjavík. Myndimar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kem- ur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á myndinni til hægri og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum liðnum birtrnn við nöfn sigurvegar- anna. 1. verðlaun: Hitachi-útvarpsverkjari frá Sjón- varpsmiðstöðinni, Síðumúla 2, að verðmæti kr. 3.490. 2. verðlaun: Tvær Úrvalsbækur að verðmæti kr. 1570, Sekur eftir Scott Turow og Kóli- brísúpan eftir David Parry og Patrick Withrow. Vinningamir verða sendir heim. Merkid umslagid meó lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 451 c/o DV, pósthólf 5380 125 Reykjavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.