Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1998, Qupperneq 18
18
LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 1998
dagur í lífi
Ólafía Hrönn Jónsdóttur nennti ekki á æfingu á Poppkorni í Þjóðleikhúsinu:
Ákvað að springa á reykingabindindinu
„Dagurinn byrjaði á því að ég bar æft án mín. Ég skellti á hana
vaknaði upp með andfælum vegna þegar hún fór að tuða um að ég
þess að ég hafði sofið yfir mig. þyrfti að koma á rennslið um
Strákarnir voru orðnir of seinir í kvöldið.
skólann og ég reifst við þá alveg i ;
þangað til ég lokaði útidyrunum á IVHSSII KU Ty IH H
eftir þeim. Ég hafði gleymt að Ég hellti upp á kaffi en missti
kaupa handa þeim nesti og þeim korginn úr gömlu uppáhellingunni
fannst eitthvað vont að fara nestis- á gólfíð. Ég nennti ekki að þrífa
lausir í skólann. Ég sagði að
mér þætti þetta bara frekja.
Þeir höfðu að vísu ekki haft
tíma til að borða morgun-
mat en guð minn góður,
annað eins hafði nú gerst.
Ekki húsbóndinn
Systursonur minn, Óli,
vaknaði við lætin í okkur
og fór að skipta sér af. Ég
öskraði á hann að hann ætti
ekkert með að vera að
skipta sér af þessu, hann
væri ekki húsbóndinn á
heimilinu.
Þegar þeir voru allir farn-
ir settist ég niður i fýlu út í
strákana og hét því að vera
leiðinleg við þá þegar þeir
kæmu heim úr skólanum.
Ég leit í Dag og ákvað að
springa á reykingabindind-
inu, fékk mér fyrstu rettuna
i þrjú ár, svimaði svo að ég
varð að leggja mig. Ég sofn-
aði en vaknaði við það að
siminn var að hringja. Ás-
dís aðstoðarleikstjóri var í
símanum og sagði mér að ég
ætti að vera mætt á æfmgu.
Ég spurði hvort þau gætu
ekki bara æft án min. Hún
sagði það vont þar sem að-
eins væru þrír dagar i frum-
sýningu og ég sagðist þá
vera með allt mitt á tæru og
að ég þyrfti ekki að æfa mitt
betur. Þessir leikarar gætu Olafía Hrönn er hér næstlengst til hægri í Poppkorni ásamt Margréti Vilhjálmsdóttur, Hjálmari Hjálmarssyni og Pálma Gestssyni.. DV-mynd Hiimar Þór
það upp en hugsaði að það væri
bara sniðugt að láta strákana gera
það þegar þeir kæmu heim. Ég sat
og starði út í bláinn í fjóra tíma
eða þar til strákamir komu heim.
Þá upphófust handalögmál og læti
sem enduðu með því að ég sagði
við þá að þeir fengju ekkert að
borða í kvöldmat. Þeir grétu en ég
setti bara fallega tónlist á fóninn
til þess að yfirgnæfa þá.
Afbrýðisamir leikarar
Klukkan sjö dreif ég mig svo í
vinnuna. Þá var ég í banastuði en
fannst kollegamir vera eitthvað
þurrir á manninn. Ég æsti mig að-
eins eftir rennslið og talaði um að
það þýddi ekkert að vera að leika
og draga vandamálin að heiman
með sér upp á svið. Þeir horfðu á
mig með fyrirlitningu en ég held
að það hafi bara verið öfund vegna
þess að ég stóð mig svo vel á
rennslinu á Poppkorni."
Afimm breytingar
^ ----------------
Finnur þú fimm breytingar? 451
Vinningshafar fyrír getraun nr. 449 eru:
1. verölaun: 2. verölaun:
Nafn: Jóna Árnadóttir. Sigtryggur Þórhallsson,
Kjarrfundi 4. Kleppsvegi 22.
Helmili: 600 Akureyrí. 104 Reykjavík.
Myndimar tvær virðast við fyrstu
sýn eins en þegar betur er að gáð kem-
ur í ljós að á myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt. Finnir þú
þessi fimm atriði skaltu merkja við
þau með krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt nafni þínu
og heimilisfangi. Að tveimur vikum
liðnum birtrnn við nöfn sigurvegar-
anna.
1. verðlaun:
Hitachi-útvarpsverkjari frá Sjón-
varpsmiðstöðinni, Síðumúla 2, að
verðmæti kr. 3.490.
2. verðlaun:
Tvær Úrvalsbækur að verðmæti kr.
1570, Sekur eftir Scott Turow og Kóli-
brísúpan eftir David Parry og Patrick
Withrow.
Vinningamir verða sendir heim.
Merkid umslagid meó lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 451
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík