Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1998, Síða 15
.O'V LAUGARDAGUR 23. MAÍ 1998
15
Stiðsljós
Leikarinn Warren Beatty:
Lófaförin loksins
á gangstétt!
Það er draumur hvers leikara í Hollywood
að fá frægð sína staðfesta í gangstéttar bæjar-
ins. Frægasta gatan er að sjálfsögðu
Hollywood Bouleward. Þar hafa margir þekkt-
ir leikarar skilið eftir lófa- og fótaför sín.
Núna í vikunni bættist einn góður i hópinn.
Warren Beatty er hér á meðfylgjandi mynd-
um að leggja lófana í steypu fyrir framan
Mann’s Chinese Theatre í tilefni af frumsýn-
ingu nýjustu myndar kappans, Bulworth.
Ekki er annað að sjá en að Beatty líki lífið.
Heima hjá
mömmu
Kryddpían
Geri Hall-
iwell er mikil
mömmu-
stelpa þrátt
fyrir frægð
og frama. Ný-
lega keypti
hún sveita-
setur fyrh' 15
milljónir króna í Hertfordshire,
allt til þess að geta búið sem
næst mömmu þegar hún er ekki
á hljómleikaferðalögum
Fallegastur prínsa
Bandaríska tímaritið People
hefur útnefnt hinn 15 ára gamla
Vilhjálm Breta-
prins meðal 50
fegurstu í
heimi en tíma-
ritið birtir ár-
lega slíkan
lista. Ekki
fylgdi sögunni
hvort móðir
hans, Díana prinsessa, hefði
komist í þenna fríða hóp en hitt
þótti hins vegar fullvíst aö faðir
hans, Karl, hefði aldrei komist
á blað tímaritsins.
Rafmagnað samband
írska leikkonan Dervla Kir-
wan, sem er íslenskum sjón-
varpsáhorfendum að góðu kunn
fyrir hlutverk sitt sem bareig-
andinn Assumpta Fitzgerald í
þáttunum Nýi presturinn eða
Ballykissangel, hefur sagt skilið
við sjónvarpsþættina með mjög
afgerandi hætti. Til að koma í
veg fyrir að hún freistaðist til
að takast aftur á við Assumptu
lét hún handritshöfundana gefa
henni raflost svo aö hún ætti
örugglega ekki afturkvæmt.
Þess má svo geta að eftir að
ljóst var að Dervla hyrfi úr þátt-
unum opinberuðu hún og prest-
urinn Peter Clifford, sem leik-
inn er af Stephen Tompkinson,
trúlofun sína. Þannig að neist-
inn milli þeirra Assumptu og
Péturs prests var semsagt raun-
verulegur...
Hraðari en Pentium 11/300
Hraðari en Pentium II/Eitthvað
Hve hratt er hratt?
Óbreytt, er Power Macintosh G3/266 tvöfalt hraðvirkari en tölva sem notar 300 MHz Pentium II-örgjörva.
Það er ekki skoðun einhverra manna úti í bæ, heldur niðurstaða prófana sem tímaritið BYTE gerði;
BYTEmark benchmark program. Því er engin fiirða að Power Macintosh G3-tölvumar slái met í sögu Apple,
hvað söluhraða varðar.
Compaq 5100/PII 300 4.26
Hraðari á öllum hraða
BYTEmark-próíunin sannar að Power Macintosh G3/266 og Power Macintosh G3/233-tölvumar vom næstum
tvisvar sinnum hraðvirkari en Compaq 4860/PII333 og Compaq 5100/PÍI300, í hliðstæðum samanburði.
Og svo er PowerBook G3-fartölvan aðeins 80% hraðvirkari en nokkur önnur fartölva sem fest.
„G3-tölvurnargjörsigruðu300-MHzPmtium II-tölvurnar á afgerandi
hátt í BYTEmark-prófununum... Þegar öllu er á hotninn hvolft,
eru Power Macintosh G3-tölvurnar einnig sigurvegarar í verði. “
BYTE-tímaritið, Janúar 1998
Virtar prófanir
BYTE er virt og óháð tímarit í fremstu röð, sem sérhæfir sig í prófiinum á mismunandi tölvuumhverfi, stýri-
kerfiim, áhöldum o.fl. Tímaritið hefrir þróað BYTEmark-prófið* sérstaklega til að meta umhverfi tölvukerfa.
* http://www.byte.com/bnnark/bdoc.htm
Apple-umboðið
Skipholti 21, 105 Reykjavík, sími: 511 5111
Netfang: sala@apple.is Veffang: http://wvm.apple.is
Verðfrá 189.900,-