Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1998, Blaðsíða 20
LAUGARDAGUR 23. MAÍ 1998 JLlV
20 VlðtSl
" " ýc
Kemur ekki bara á óvart með leik og söng í Carmen Negra í Islensku óperunni:
hann settist niöur og fór að semja
söngleik. Skortur sé á íslenskum
söngleikjum og þegar Garðar Cortes
viðraði þetta fyrst við sig hafi hon-
um þótt hugmyndin afar spennandi.
„Ég fór bara að vinna í þessu,“ seg-
ir Bubbi eins og hann hafi ekkert
gert annað um ævina en að semja
söngleiki!
Þama er auðvitað komin skýring-
in á því af hverju Bubbi lét „plata
sig“ í Carmen Negra. „Það er nú
málið,“ viðurkennir hann og telur
vinnuna við söngleikinn hafa komið
sér vel. Þannig hafi hann fengið
betri tiifmningu fyrir þessu formi.
Svekktur kommúmstí
Víkjum þá aftur að Carmen
Negra og hlutverkinu sem Bubbi fer
með. Hann segir Remendado vera
kommúnista og byltingarsinna. Per-
sónan sé mjög áhugaverð.
„Hann er svekktur og bitur. Eyði-
leggur allar stemmningar í kringum
sig og er sannkölluð eiturtunga.
Alls ekki sá vinælasti á sviðinu.
Hann er jafnframt greindur og gerir
sér grein fyrir að flestir draumar
hans um sósíalismann hafa hrunið.
Um miðbik verksins verður á hon-
um kúvending. Án allrar viðvörun-
ar gefst hann upp í baráttunni fyrir
gildunum sem hann trúði á. Hvem-
ig það gerist verður fólk að sjá með
því að koma og sjá sýninguna," seg-
ir Bubbi og kann greinilega allar
auglýsingabrellumar!
Aðspurður hvort hann eigi eitt-
hvað sameiginlegt með Remendado
segist Bubbi hafa haft svipaðar hug-
sjónir á sinum yngri ámm.
„Ég á mjög auðvelt með að setja
mig í spor hans hvað það snertir.
Hins vegar eldist þetta af manni á
landi eins og íslandi. Maður brotn-
ar. Ætli byltingarsinninn í mér hafi
ekki farið með hárunum," segir
Bubbi brosandi en ber sér á brjóst
og bætir við: „Hjarta mitt slær enn
þá til vinstri, það er engin spum-
ing.“
Ný plata á leiðinni
Bubbi hefur í nógu að snúast
þessa dagana. Fyrir utan söngleik-
ina þá er hann að undirbúa upptök-
ur á nýrri plötu. Þær hefjast í byrj-
un júní, taka fióra daga og stefnt er
að útgáfu næsta haust. Hann segist
vera með 30 lög tilbúin en líklega
fari u.m.b. 12 þeirra á plötuna. En
hvemig plata skyldi þetta vera?
„Ég er bara einn með kassa-
gítamum. Hef mikið verið að vinna
í gömlum vikivökum, þulum og
þjóðsögum. Platan kemur að stórum
hluta til með að vera undir þessum
áhrifum. Ég hef ekki mikið verið að
grufla í þessu en þó mátti finna
áhrif á síðustu plötu í laginu Bónd-
inn í blokkinni. Áhrifin em sterkari
núna. Ég færi þuluformið inn í hið
daglega líf. Þetta er heillandi form
og það em margar góðar hendingar
í gömlu vikivökunum. Ég tek viðlag
og breyti því þar sem við á. Skír-
skotanir aftur í aldir em víða í þess-
um lögum,“ segir Bubbi sem greini-
lega er á kafi í sagna- og menningar-
arfleið íslendinga; vikivökum og
vesturförum.
En fyrst er það Carmen Negra um
næstu helgi. Óhikað segist Bubbi
geta lofað fólki „rosalega flottri"
sýningu.
„Ég held að ég sé ekki að taka of
mikið upp í mig þegar ég segi þetta.
Það er engin spuming að Carmen
Negra er með því betra sem er í
boði á listahátíðinni. Þó geta höklar
og messuklæði verið spennandi fyr-
ir einhveija," segir Bubbi að end-
ingu í spjalli okkar og er rokinn af
stað á æfingu. Ætíð bísperrtur og
núna í alvöru byltingarklæðum.
-bjb
Eftir nokkra daga, eða þann 29.
maí, verður fmmsýndur söngleikur
á sviði íslensku óperunnar er bygg-
ir á óperunni Carmen eftir Bizet og
nefnist Carmen Negra. Sýningin
státar af mörgum þekktustu söngv-
urum þjóðarinnar auk þeldökku
söngkonunnar Caron sem fer með
titilhlutverkið. Þarna em kappar á
borð við Egil Ólafs, Helga Bjöms og
Bergþór Páls. Síðan er einn sem
sker sig nokkuð úr hópnum fyrir
þær sakir að hann hefur aldrei áður
á 18 ára tónlistarferli sínum tekið
þátt í söngleik né þurft að sýna leik-
ræna hæfileika undir stjóm ann-
arra. Við erum að tala um Bubba
Morthens. Hann fer með hlutverk
byltingarsinnans og blaðamannsins
Remendado auk þess sem hann
bregður sér í lítið hlutverk forseta
ríkisins Santa María í S-Ameríku.
Á þeim stutta æfingartíma sem
við fylgdumst með í Óperunni sáum
við strax að það fer Bubba vel að
leika byltingarsinna. Klæddur
grænum hermannabúningi, svartri
spanjólu og með rauðan klút um
hálsinn. Svolítið eins og Che
Guevara enda hefur Bubbi löngum
verið byltingarmaður inn við bein-
iö.
Þröskuldum ýtt út
„Þetta er búið að vera virkilega
skemmtilegt. Ég þurfti hins vegar að
byrja á því að ýta út nokkrum þrösk-
uldum. Ég hef ekki verið mikill söng-
leikjakarl," segir Bubbi í upphafi
spjalls okkar. Við náðum að króa
hann af í matarhléi frá æfingum í
Óperunni í vikunni. Það mátti heyra
mikinn spenning í rödd Bubba vegna
þessa nýstárlega viðfangsefnis.
„Ég átti erfitt með aö segja nei við
Carmen með allri þessari guðdóm-
legu tónlist en eftir að ég haföi sagt
já þá var ég í smá krísu næsta sólar-
hringinn. Fékk ákveðna bakþanka
og þurfti að ýta út ákveðnum hug-
myndum sem ég haföi um söngleiki.
Ég held að það sé ósköp eðlilegt þeg-
ar maður tekst á við eitthvað nýtt.
Eftir að æfingar byrjuðu fannst mér
þetta með því skemmtilegra sem ég
hafði gert lengi. Hópurinn sem ég
vinn með er líka frábær, stykkið gott
og músikin stórkostleg."
Læt vel að stjórn
Bubbi hefúr augljóslega hrifist af
söngleikjaforminu. Hann segist vera
að upplifa nýja hlið á tónlist sem
hann hafi til þessa ekki haft áhuga
á að skoða. Hann segir vinnuna við
söngleikinn reyndar vera meiri en
hann reiknaði meö.
„Á þeim 18 árum sem ég hef ver-
ið að spila hef ég að hluta til verið
að leika upp á sviði. Leikurinn hef-
ur því reynst mér erfiöur, helst
tækniatriðin. Þar hefur Egill Ólafs-
son verið mér mjög hjálplegur, gefið
mér ráð sem hafa komið sér vel.
Leikstjórinn, Stuart Trotter, er líka
duglegur og óhræddur viö að segja
manni til. Biður mann að breyta og
bæta, stundum aftur og aftur,“ segir
Bubbi og því liggur beinast við að
spyrja hann næst hvemig gangi aö
taka tilsögn. Hann sem hefur verið
sinn eigin herra í öll þessi ár.
„Ég læt vel að stjóm,“ segir
Bubbi, alvarlegur í bragði. „Ég get
alveg staðhæft að það er ekkert mál
að vinna með mér. Ég á mjög auð-
velt með að taka leiðsögn. Þess
vegna meðal annars hef ég nú lifað
svona lengi í þessum bransa. Ég hef
getað tekið krítið, hef getað aðlagað
mig og er óhræddur við að prófa eitt
og annað. Partur af því er að vera
viljugur að læra og hlusta."
Finnur fyrir pressu
Þó aðeins nokkrir dagar séu til
„Margir hafa undrast að ég sé að taka þátt í söngleik. Eg hef heyrt þetta bæöi hjá aðdáendum mínum og fólki sem
telur að ég sé að ryðjast inn á þeirra svið. En ég læt þetta ekki hafa nokkur áhrif á mig. Mér er nákvæmlega sama,“
segir Bubbi m.a. í viðtalinu um hlutverk sitt í söngleiknum Carmen Negra.
DV-mynd ÞÖK
frumsýningar þá segist Bubbi ekki
vera með svo mikinn fiðring í mag-
anum. Kannski eigi hann eftir að
koma.
„Ég er búinn að vera of lengi á
sviði til að óttast það. Ég hlakka til
að takast á við þetta og bíð spenntur
eftir því hvort fólk samþykki mig,“
segir Bubbi en hann hefur fúndið
fyrir mikilli pressu „úti um allt,“
eins og hann segir.
„Margir hafa undrast að ég sé að
taka þátt í söngleik. Ég hef heyrt
þetta bæði hjá aðdáendum mínum og
fólki sem telur að ég sé að ryðjast
inn á svið þess. En ég læt þetta ekki
hafa nokkur áhrif á mig. Mér er ná-
kvæmlega sama.“
Carmen Negra er sungin á ensku.
Það er nokkuð sem Bubbi hefur ekki
gert í sínum tónlistarflutningi, m.a.s.
sungið um það að íslenskir tónlistar-
menn eigi ekki að syngja á ensku.
„Ég hef fariö hringferðir um land-
ið og predikað íslenskt mál. Hef sagt
foreldrum aö kaupa ljóðabækur
handa börnunum og eitt af slagorð-
um mínum á sviðinu undanfarin ár
eru „ljóð eru hollari en mjólk“.
Vegna þessa m.a. var ég tregur að
vera með en ég beygði mig undir þau
rök að aðalsöngkonan, leikstjórinn,
ljósameistarinn og danshöfundurinn
væru enskumælandi. Það hefði
kannski orðið pínulítið skondið að
við myndum syngja á íslensku," seg-
ir Bubbi og glottir.
Spennusaga um Vestur-
fara
Bubbi svarar fáu þegar hann er
spurður hvort hann sé að skipta um
gír með því að taka þátt í söngleik. Ef
til þess komi geti hann hugsað sér að
vera aftur með i einhverju svipuðu.
Söngleikjaformið sé mjög spennandi
form tónlistar. Hann geti verið sam-
mála Agli Ólafssyni um að söngleik-
urinn sameini öfl form leikhússins.
Spennandi, segir hann um söng-
leikina. Þá finnst blaðamanni kom-
inn tími til að upplýsa hverju lítill
fúgl hafði nýlega hvíslað í eyra
hans: Að Bubbi Morthens væri að
semja söngleik! Ekki laust við að
Bubba sé brugðið, líklega hefur
þetta ekki átt að kvisast út. En hann
ákveður að svipta hulunni af leynd-
ardómnum. „Já, þetta er alveg rétt.
Ég hef síðustu þrjá mánuði verið
með söngleik í smíðum sem gerist í
kringum 1876 og fjallar um Vestur-
farana. Aðalpersónumar eru ungt
og ástfangið par sem flýr land und-
an ofsóknum sýslumanns. Hug-
myndin er að fyrri hlutinn gerist á
íslandi en seinni hlutinn í Kanada.
Þetta er að hluta til spennusaga,“
segir Bubbi og brún blaöamanns
lyftist við aö sjá hvaö viðmæland-
inn tekur spumingunni vel. „Það
hefur líka enginn spurt mig fyrr en
nú,“ segir Bubbi og brosir.
Tilbúið fyrir 2000
Gunnar Þórðarson kemur til með
að gera tónlistina. Hvar og hvenær
söngleikurinn fer á svið er óákveðið
en Bubbi vonast til að árið 2000
verði allt tflbúið. Hann segir eink-
um tvær ástæður vera fyrir því að
Bubbi semur söngleik