Dagblaðið Vísir - DV - 01.05.1999, Blaðsíða 23
LAUGARDAGUR 1. MAI 1999
23
8+yrk+arfélag
ViRjQSins
r
Getur ÞU hjálpað okkur að hjálpa ungu fólki í vímuefnavanda?
Helgina 1. og 2. maí stendur Styrktarfélag Virkisins fyrir fjársöfnun til styrktar
meðferðarheimilinu Virkinu. Vilt þú verða styrktaraðili og veita litla upphæð
mánaðarlega með greiðslukorti eða stöku frjálsu framlagi?
Símanúmerið er 561-11-10
Sjálfboðaliðar eru við símann alla helgina milli kl. 10.00 og 22.00.
Göti/srjiiðJAirViRKið
Markmið Götusmiðjunnar -Virkisins er að aðstoða ungt fólk sem hefur leiðst út úr hinum hefðbundna
samfélagsramma og inn í heim fíkniefna og afbrota, til að fóta sig og koma lífi sínu í jákvæðan farveg.
Helsti drifkraftur þessara ungmenna er höfnun, reiði, sársauki og neikvæð sjálfsmynd sem birtist
í hegðun sem samfélagið getur ekki sætt sig við. Mikil neysla og niðurbrjótandi lífsmynstur getur leitt til
geðveiki eða dauða. Hluti þessara ungmenna deyr ungur vegna neyslu, neyslutengdra slysa eða sjálfsmorða.
Starfsemi Virkisins er byggð upp með það fyrir augum að styðja og hjálpa einstaklingnum að hjálpa sér
sjálfur, efla og styrkja sjálfsmynd sína, geta lifað af í samfélaginu og staðið á eigin fótum.
Götusmiðjan-Virkið er EINA SÉRHÆFÐA meðferðarheimilið fyrir unga vímuefnaneytendur
á aldrinum 16 til 20 ára á íslandi. Virkið hefúr starfað frá því í júní 1998 með góðum árangri.
í Virkinu er rými fyrir 12 skjólstæðinga en það eykst í nýju húsnæði sem er í sjónmáli.
Meðferðarúrræðið byggir á kerfí sem hefur sannað sig um allan heim þar sem meðferðartíminn er
m.a. einstaklingsbundinn en miðað er við 2 til 12 mánuði.
Eftirmeðferð er hluti af meðferðinni í Virkinu.
Stefnt er á að efla eftirmeðferðarstarf enn frekar í nýju húsnæði eins og fjármunir leyfa.
Biðlisti er í meðferð í Virkinu. Þörfin er meiri en nokkru sinni. Hægt væri að sinna fleirum og gera meira
og betur með auknum fjáimunum
Virkið starfrækir foreldra- og aðstandendaráðgjöf. Haldið er utan um foreldrahóp sem hittist
með ráðgjafa einu sinni í viku.
Tæplega 1.300 ráðgefandi símtöl hafa verið afgreidd frá opnun.
I dag starfa 12 manns í 100% starfi hjá Virkinu og 7 manns í hlutastarfi. Til að árangur náist í meðferð með
ungu fólki þarf þétt net fólks sem sinnir öllum þörfum meðferðarinnar og heimilisins.
100% stöðugildi;
Framkvæmdastjóri
Forstöðumaður
Aðstoðarforstöðumaður
Dagskrástjóri (Spectrum )
Meðferðarráðgjafi (Spectrum)
Sálfræðimenntaður ráðgjafi
2 Næturvaktmenn
4 Dagvaktmenn
Hlutastörf;
Trúnaðarlæknir
Trúnaðargeðlæknir
Fjölskylduráðgjafi
Sálfræðingur ( handleiðsla starfsfólks )
Kvennaráðgjafi
Listamaður (listsköpun og kennsla )
Markaðsfulltrúi
Starfsfólk Virkisins lýtur handleiðslu sálfræðings einu sinni í viku.
Virkið hefur starfsleyfi frá Bamaverndarstofu og hefur átt rnjög gott samstarf
við Bamaverndar-og Félagsmálayfirvöld.
Virkið lýtur handleiðslu meðferðastöðvarinnar Spectmm sem er staðsett í London
og hefur verið starfrækt í 22 ár. Tveir helstu ráðgjafar Virkisins sækja menntun sína til Spectrum
Styrktarfélag Virkisins þakkar eftirtöldum aðilum veittan hlýhug og stuðning
V/SA
fk
'&t.
I
REYKJAVIKURBORG
f FATAHREINSUNIN
UÐAFOSS
VITASTÍO 13 - SÍMI SS1 2301
BH
GATINEAU
SNYRTIVÖRUR
,Fiskbúðin
Arbjörg
Hringbraut 119 - Síml 552 5070
OSTA OG
SMJÖRSALAN SE
GLER OG SPEGLAR
FRAMS0KNARFL0KKURINN