Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1999, Side 4
4
LAUGARDAGUR 22. MAÍ 1999
Gunnar Svavarsson forstjóri hafnar því að SH hafi svikið Akureyringa:
- Þú kemur úr forstjórastóli
Hampiðjunnar hf., stórs farsæls
iðnfyrirtækis inn í SH. Voru við-
brigðin mikil?
„Ég kem eiginlega úr hinum end-
anum á sjávarútveginum þannig að
ég er honum ekki alveg ókunnugur
en viðbrögðin hjá fólkinu sem hér
starfar og hjá stjórn SH voru mjög
góð og fyrir það er ég þakklátur."
- En þetta er ólíkur rekstur,
eða hvað?
„Þetta er mjög ólíkur rekstur og
ég verð að segja að maður saknar
þess stundum að geta ekki lengur
handfjatlað vöruna á hveijum degi,
flett upp sölunni og vita þannig
hvernig aíkomunni líður. Hér er
þetta með öðru sniði. SH er auðvit-
að miklu stærra en Hampiðjan og
vinnur á allt öðrum forsendum. En
að vísu þekki ég nokkuð til þeirra
sambanda sem þetta fyrirtæki hefur
úti á íjarlægum mörkuðum því að
ég hef veriö í viðskiptum við
nokkra sömu aðila og eru viðskipta-
vinir SH.“
- Þú kemur nýr inn sem for-
stjóri á vegum nýrrar stjórnar
sem boðar breytingar. Hverjar
verða þær helstar og hvemig fyr-
irtæki á SH að verða?
„Stjómin er búin að ákveða vissa
þætti þeirra. Sá veigamesti er sá að
það er heimilt áð segja upp gagn-
kvæmum afurðasölusamningum
um afurðasöluskyldu SH. Það er
veigamesta breytingin sem stjómin
hefur þegar samþykkt. Hún hefur
einnig samþykkt að það verði unnið
að stefnumótun í fyrirtækinu fram
á haust þar sem úttektarskýrsla
verður grunngagn. Síðan hefur hún
gert breytingar á stjómarfyrir-
komulagi dótturfyrirtækja þannig
að í stað stjómarmanna héðan úr
SH og úr framleiðslugeiranum þá
verða stjómimar ólaunuð fram-
kvæmdaráð þar sem eiga sæti fram-
kvæmdastjóri dótturfyrirtækis, ég
sjálfur og einn til, oft starfsmaður
SH.“
- Voru menn famir að óttast að
SH væri að breytast í einhvers
konar félagsmálastofnun öðrum
þræði, eins konar SÍS?
„Fyrirtækið var auðvitað byggt
þannig upp að það var litið á það
sem söludeild eigendanna - fram-
leiðenda á íslandi. Því bar skylda til
að selja allar vömr framleiðend-
anna og leggja vinnu í það. Á móti
bar þeim að leggja allar sínar vörur
hér inn. Þegar SH síðan var gert að
hlutafélagi þá komu auðvitað inn í
það aðilar með aðra hagsmuni en
þessa. Eignarhaldið er ekki lengur í
hlutfalli við það hvemig viðskiptin
hafa verið við SH. Þetta kallar á
önnur vinnubrögð en án þess að ég
hafi á nokkum hátt tekið þátt í
þeim skoðanaskiptum og átökum
um hversu hratt fyrirtækið átti að
breytast í þessa átt þá urðu síðustu
stjómarskipti til að hraða þróun-
inni. Forsendumar em hreinlega
aörar en vom þegar SH var einung-
is söludeild framleiðenda. SH á að
verða framsækið markaðsfyrirtæki
sem á góð viðskipti við framleiðend-
ur á viðskiptalegum forsendum."
- Þessar breytingar sem þú tal-
ar um endurspeglast í því sem er
að gerast í starfsemi SH á Akur-
eyri og nú sakar m.a. fyrrverandi
bæjarstjóri Akureyrar SH um
svik með því að leggja niður þá
starfsemi sem þar hófst í ársbyrj-
un 1995. Er verið að svíkja?
„Nei. Það er enga samninga verið
að brjóta. Það voru engin tímamörk
á aðgerðir sem átti að gera og vom
gerðar. Margra þeirra nýtur auðvit-
að enn. Annað hefur lagast að tím-
ans tönn, enda er ekkert óbreytan-
legt í þessum heimi. Á sama hátt og
góö fyrirtæki á Akureyri hafa verið
samningsbrot
að hagræða hjá sér þá er.SH að hag-
ræða. t>egar SH hætítir að vera soTu-
deild sem þarf að sjá um allt sem frá
framleiðendum kemur þá kallar það
á önnur vinnubrögð. Það kallar líka
á beinni samskipti milli framleið-
enda og markaðsfyrirtækja án milli-
lendingar hér. En auðvitað verður
veitt full þjónusta hjá SH áfram við
báða aðila en á öðram forsendum og
krefst færra fólks. Fyrirtækið verð-
ur auðvitað að starfa eins og hvert
annað fyrirtæki sem ætlar sér að
lifa í viðskiptaheiminum."
- Nú var farið í tilflutninginn
norður og aðgerðimar á Akur-
eyri til þess að halda ÚA innan-
borðs á SH-skútunni og missa
það ekki fyrir borð til ÍS.
„Já, og þessu fylgdi að SH og önn-
ur félög keyptu hluta af hlutabréf-
um Akureyrarbæjar í ÚA og sam-
komulag var gert um að SH flytti
hluta af starfsemi sinni norður.
Vegna hennar urðu starfsmenn SH
á Akureyri um 27 manns. Þessum 27
hafði þegar smám saman fækkað
niður í 12 manns af sjálfu sér. Það
kom í ljós töluvert óhagræði að því
að slíta sundur starfsemina með
þessum hætti - taka þversnið af fyr-
irtækinu og setja niður á öðmm
stað. Þetta hafði því gengið ansi
mikið til baka þótt ekki hafi verið
haft mikið orð á því. Þetta er hins
vegar eðlileg þróun í viðskiptum.
Að öðm leyti styrkti SH öll þau
störf sem fluttust norður með beinu
fjárframlagi, hvort sem það var í SH
sjálfu eða hjá öðrum fyrirtækjum
sem settu upp starfsemi þar. Þetta
kostaði SH á annað hundrað millj-
ónir króna en þeirra sér vissulega
enn stað í bænum: Eimskip starfar
á Akureyri með bæinn sem aðal-
höfn á Norðurlandi, það var sett
upp kexverksmiðja og sælgætis-
verksmiðja og fjárfest í Slippfélag-
inu sem hjálpaði því mjög af stað.
Verkefnið skilaði sér því vissulega
og flest fyrirtækin hafa eflst. En það
er aldrei hægt að taka ákvarðanir
um þvinguð viöskipti. Viöskipti
verða ávallt að fá að laga sig að um-
hverfinu."
- Var þetta þá fórnarkostnaður
sem lagt var 1 til að halda ÚA inni
í SH og var honum illa varið?
„Mér skilst að þetta hafi allt gerst
mjög hratt á þessum tíma. Það voru
átök um áhrif í ÚA og stjórn SH og
fleiri unnu að því að halda félaginu
áfram í SH með þessu móti. Auðvit-
að varð þetta dýrt og því fylgdi visst
óhagræði að vera á tveimur stöðum.
ÚA er mikilvægt fyrirtæki og það
var áfram innan vébanda SH. Þetta
gæti hins vegar ekki gerst í dag með
sama hætti vegna breyttra að-
stæðna hjá SH meðal annars."
- Er hagsmunum SH ekki leng-
urógnað af ÍS?
„Það er ekki það sem ræður. í
raun er SH með ákvörðuninni um
að afnema gagnkvæma afurðasölu-
skyldu að búa sig undir að eiga við-
skipti innan sinna vébanda eins og
um sjálfstæð fyrirtæki sé að ræða.
Með þessu verða breytingar auðvit-
að auðveldari. ÚA getur þess vegna
ákveðið að selja ekki alla sína fram-
leiðslu gegnum SH og þess vegna
ekkert. SH verður einfaldlega að
standa sig mjög vel. Það er fjárhags-
lega sterkt og hefur mjög sterka
stöðu úti í heimi þar sem það hefur
VflRHEYBSlft
Umsjón Stefán Ásgrímsson
komið sér fyrir og við höldum að
það nægi til þess að okkar við-
skiptavinir trúi áfram á félagið og
muni vinna áfram með því.“
- Akureyringar hafa fengið
sína vítamínsprautu?
„Þeir hafa gert það því það er allt
annað ástand á Akureyri en var fyr-
ir fjórum árum, en auðvitað er það
ekki bara að þakka þeim samning-
um sem þama voru gerðir.“
- Hvaða aðrar breytingar verða
áSH?
„Vöruþróunardeildin verður lögð
niður. Við hana störfuðu að vísu
ekki margir menn, en eftirspurn eft-
ir þjónustu deildarinnar hefur
minnkað miðað við það sem áður
var. Fyrirtækin annast í vaxandi
mæli þróunarstarf sjálf, annars veg-
ar markaðsfvrirtækin okkar og hlns
vegar iramTeiðenaur ner neima. Það
er enginn tilbúinn lengur að borga
fyrir þá þjónustu sem unnt er að
veita þeim. Menn vilja gera þetta
sjálfir enda kannski eðlilegast að
þróa vöm sem næst viðskiptavinin-
um annars vegar og hins vegar sem
næst framleiðslutækninni."
- Hvaða breytingar verða er-
lendis, ekki síst í Rússlandi?
„Ég get ekki sagt um það því að
sú vinna er rétt að byrja. Það er
nokkuð ljóst að það verða ekki
veigamiklar breytingar á rekstri
verksmiðjanna í Bandaríkjunum og
Bretlandi. Þær munu starfa eins og
áður, en fá í breyttu umhverfi auk-
ið sjálfstæði og frelsi og áhersla
verður á að þær skili hagnaði. Síð-
an em breytingar á skipulaginu í
Evrópu hugsanlegar. Athugað verð-
ur hvort þar sé hægt að vinna betur
og markvissar. Við vitum ekki á
þessari stundu hvemig það verður
en möguleikarnir eru mairgir, allt
frá því að halda ástandinu óbreyttu
til þess að mynda eitt evrópskt aðal-‘
fyrirtæki með starfsstöðvar eða úti-
bú. Þar á milli eru ýmsir möguleik-
ar eins og með sameiginleg innkaup
og lagerhald. Rússlandsdæmið er
dálítið sérstakt. Það sem gerði okk-
ur erfítt fyrir í Rússlandi er að fyr-
irtækið lenti í efnahagshmninu í
landinu í fyrrahaust og fjármunir
töpuðust. Ástandið hefur ekki enn
lagast þannig að framtíðin er ótrygg
eins og er.“
- Sérðu fyrir þér sameiningu
SH og ÍS?
„Það eru engin merki um það nú
og engar þreifíngar í þá átt. Fyrir-
tækin eru hvort í sínu lagi að vinna
úr sínum málum og verða að fá frið
til þess iiæsta hálfa árið í það
minnsta. Þau verða að átta sig á því
hvers konar fyrirtæki þau vilja
vera og geta orðið. Þegar það hefur
gerst er fyrst komin forsenda til að
tala saman og átta sig á því hvort
einhvers staðar sé hægt að vinna
saman, ekki endilega með því að
sameinast, heldur er hægt að hugsa
sér sameiningu einstakra skrif-
stofa, verksmiðja eða þá óbreytt
ástand."
- Hvernlg er hagstæðasta fyrir-
komulag þessara mála fyrir þjóð-
ina í heild?
„Ég held að líta verði á þetta út
frá fyrirtækinu sjálfu fremur en
sölumálum íslendinga. í frjálsum
viðskiptaheimi getur hver sem er
stofnað fyrirtæki og farið að kaupa
og selja ásk og margir þegar að því
í dag. Það er ekki hægt að miðstýra
þessu í þeim kringumstæðum sem
nú ríkja. Menn eru frjálsari að því
að eiga viðskipti saman nú en þeir
voru áður. Ég held þvi að það sé ein-
faldlega styrkur og árangur fyrir-
tækisins á mörkuðunum sem ræður
framhaldinu. Við viljum verða
stærri og sterkari og hagnast meira
og það er verkefnið sem við viljum
vinna að. íslenskar afurðir eru mjög
mikilvægar í þessu, en fyrirtækinu
er líka nauðsynlegt að vinna með af-
urðir frá öðrum löndum og gerir
það þegar, sérstaklega i verksmiðj-
um sínum i Bretlandi og Bandaríkj-
unum. Þar er íslenskt hráefni í
minnihluta."
- Þú kemur til SH í kjölfar
nýrrar stjórnar og ákveðinnar
stefnubreytingar. Er það ekki á
vissan hátt kostur þótt það hljóti
að kosta mikla vinnu og erfiði?
„Á vissan hátt. Ég fór í gegnum
svipað hjá mínu gamla fyrirtæki,
Hampiðjunni, þó að ekki hafi verið
um slíkar breytingar um að ræða
þar sem hér. En það er alltaf nauð-
synlegt að endurhugsa hlutina í
rekstri. Það er ekki hægt að reikna
með því að geta gert það sama á
morgun og maður gerði í gær. Það
verða alltaf breytingar sem þarf að
bregðast við.“
Þrjár konur
Hermt er að Halldór Ásgríms-
son hallist æ meir að því að
brjóta í blað með því að gera þrjár
konur að ráðherrum. Samkvæmt
því mun Ingibjörg Pálmadóttir
halda ráðherrasæti
þó mögulegt sé að
hún verði færð milli
, ráðuneyta. Þá mun
Siv Friðleifsdóttir
verða ráöherra og
sú þriðja er svo
Valgerður Sverr-
isdóttir , sem þrátt fyrir
að hafa tapað manni á Norður-
landi eystra verður efld í að verða
| framtíðarforingi Framsóknar á
Norðurlandi. Fari allar þessar
; þrjár konur í ríkisstjórn þarf Hall-
dór að losa einn stól, þvi Guðni
Ágústsson er sjálfkjörinn land-
: búnaðarráðherra. Mun Páli Pét-
urssyni ætlað að hvílast utan
stjórnar um sinn þó hann sé að
jeigin sögn hress á við sex vetra
graðhest...
Sprengjusérfræðingurinn
í kosningabaráttunni hélt Öss-
ur Skarphéðinsson því fram af
mikilli hörku að tal ríkisstjórnar-
innar um stöðugleikann væri píp
og gekk svo langt að halda því
fram að hún sæti á
tifandi tíma-
sprengju. Innan
stjórnarliðsins var
þessu afneitað sem
hverri annarri
kosningabombu
og að Össur væri
sjálfur tímasprengja. Nú
hefur hver stofnunin á fætur
annarri komið fram með viðvar-
jjanir um væntanlega vei'ðbólgu
þannig að Össur virðist standa
með pálmann í höndunum. Innan
Samfylkingarinnar gengur hann
því þessa dagana undir nafninu
sprengjusérfræðingurinn ...
Guðni sterki
Mikill stuðningur er við ráð-
herradóm Guðna Ágústssonar í
röðum hérlendra andstæðinga
NATO og striðsins á Balkanskaga.
Sandkom greindi nýlega frá að af-
staða Guðna til Nató
er tvíbent eins og
birtist þegar hann
sat hjá við tillögu
Steingríms J. Sig-
fússonar um
brottför hersins.
Andstæðingar
stríðsins sjá i hendi sér að
verði Guðni ráðherra geti hann
samkvæmt íslenskum lögum beitt
neitunarvaldi innan stjórnarinnar
gegn frekari stríðsrekstri. Innan
NATO hefur svo hvert ríki neitun-
arvald þannig að setji Guðni ríkis-
stjóminni stólinn fyrir dymar er
hann um leið búinn að knýja hana
til að beita neitunarvaldi hjá Nató.
Þannig gæti Guðni sterki stoppað
stríðið í Júgóslavíu...
Með frægum
Mikið er um dýrðir í franska
strandbænum Cannes um þessar
: mundir þar sem kvikmynda-
1 stjömur og barmfagrar stúlkur
smæla framan í heiminn og veitt
eru verðlaun fyrir
kvikmyndir. Engin
íslensk kvikmynd
er þama til skoð-
unar í ár en sú
staðreynd hefur
ekki komiö í veg
fyrir að íslending-
ar hópist suður eftir. Þarrnig mun
Breki Karlsson hafa stimplað
sig inn við Miðjarðarhafið
ásamt fleiri íslenskum kvik-
myndamógúlum að ógleymdum
Þorfinni Ómarssyni, fram-
kvæmdastjóra Kvikmyndasjóðs.
Hér heima em menn svo leiðin-
legir að leyfa sér að spá í hvað sá
síðarnefndi sé að gera þarna, enda
engin íslensk mynd á hvítum
I tjöldum Cannes, engin sölustarf-
semi eða annað húllumhæ sem
mvndum fylgir...
Umsjón Haukur L. Hauksson
Netfang: sandkom @ff. is