Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1999, Qupperneq 40

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1999, Qupperneq 40
 Mikilvægur þáttur í utanlandsferðum okkar íslendinga erlendis er maturinn og þegar á þessar slóðir er komið er í raun ekki þörf á að hafa miklar áhyggjur. Skammt frá gamla bænum er að finna dæmigert ferðamannahverfi, iðandi af lífi, með sölubásum og skemmtllegum verslunum á hverju horni. Sjór, sandur og sól er af flestum talinn sjálfsagður hlutur þegar sólarlönd eru annars vegar. Af öllu þessu er nóg í Algarve. DV-myndir Pjetur arlönd eru annars vegar en orðið friður er eitthvað sem vekur athygli þegar sólarlönd eru nefnd. Það er einmitt það sem vekur athygli í Al- bufeira, friðurinn sem við- komandi fær frá farandsölum og öðrum sölumönnum sem þó eins og í öðrum löndum hafa viðurværi sitt af því að selja gestum og gangandi þær söluvörur sem á boðstólum eru. Þessi friður kann kannski að virka léttvægur en fyrir þann sem reynir er hann ómetanlegur. Mikilvægur þáttur í utan- landsferðum okkar íslendinga erlendis er maturinn og þegar á þessar slóðir er komið er í raun óþarfi að hafa miklar áhyggjur. Þeim sem ekki vilja taka áhættu er í lófa lagið að borða á íslenskum veitinga- stað þar sem þeir geta talað ís- lensku við þjóninn og fyllst þeirri öryggiskennd sem þarf áður en þeir taka til matar sins. Þeir sem vilja lifa hættu- lega borða á veitingastöðum innfæddra, sami matur en annað tungumál. Albufeira hefur í raun allt það sem þarf til að gera sum- arfrí hins vinnuþjakaða ís- lendings að því sem það þarf að vera. Fyrst og fremst er það fríið sem ferðamaðurinn hef- ur orðið sér úti um, þá veðrið sem alla jafna bregst mönnum ekki, aðstaðan er í mjög góðu meðallagi og síðast en ekki síst sú staðreynd að vera staddur á sólarströnd án þess að hafa þá leiðinlegu tilfinn- ingu að vera á sólarströnd. Ég Gamli bærinn er ákaflega vinalegur staður, þéttbyggður með sterka sál. fer aftur!! Pjetur Algarve hefur á undanfórnum árum verið æ meira áberandi áfangastaður hjá æ hungraðri ís- lenskum ferðalöngum. Algarve er í raun heiti á héraði í Portúgal þang- að sem þúsundir íslendinga hafa á undanfomum árum lagt leið sína í . sólarlandaferðir. Þessir íslendingar hafa gist bæinn Albufeira sem er í um klukkustundarfjarlægð frá flug- vellinum í Faro en þar lenda þær tlugvélar sem flytja farþega til landsins fyrirheitna. í það minnsta er það það að margra mati því far- þegum þangað fer stöðugt fjölgandi. Sjór, sandur, sól og friður eru tví- mælalaust einkunnarorð þessa vina- lega og tiltölulega fámenna staðar í syðsta hluta Portúgals. Sandurinn, sjórinn og sólin eru að sjáifsögðu til staðar eins og á öðr- um sólarströndum en það sem þessi staður hefur fram yfir aðra afþrey- ingarstaði er friðurinn sem ferða- maðurinn fær frá aðgangshörðum sölumönnum sem svo oft auðkenna ferðamannastaði á suðrænum ströndum. Niður Laugaveginn Frá bæjardyrum íslendings skipt- ist þessi vinalegi bær í tvo hluta. Annars vegar er um að ræða gamla bæinn og hins vegar svæði sem um- lykur hinn alkunna „Laugaveg" sem þeir sem til Albufeira hafa komið ræða um og sjá í hillingum. Erfitt er þó að sjá samsvörun í þeirri götu sem við þekkjum undir þessu nafni. Gamli bærinn er hins vegar ákaf- lega dæmigert gamalt spánskt/portúgalsk sjávarþorp þar sem krabbaveiðar og portúgalskir sjómenn að dytta að bátum sínum eru mjög áberandi. Skammt þar frá tekur hins vegar viö hinn dæmigerði ferðamanna- bær, iðandi af lífi, með sölubásum og urmul veitingastaða. Gamli bær- inn er ákaflega vinalegur staður, þéttbyggður með sterka sál og veit- ingahúsin setja sterkan svip á heild- armyndina. Ekki má gleyma fjölda verslana í gamla bænum sem þó í of miklum mæli selja dæmigerða ferðamannavöru en þó má flnna verslanir eða sölubása sem selja annan vaming. Af leðri verður eng- inn svikinn í Portúgal. Hinn hlutinn er „Laugavegurinn" sem íslendingar þekkja svo mæta vel, ef marka má almannaróm, en vart verður þó sagt að hann eigi roð í fyrirmyndina, hina líflegu verslun- argötu í hinni fámennu stórborg, Reykjavík. „Laugvegurinn" er þó lítt annað en löng gata þar sem fyr- irfinnst fjöldi verslana sem selja sól- arvöm, auk þess sem þar er fjöldi kráa og áhugaverðra veitingastaöa. Það má kannski til sanns vegar færa að það sé þess vegna að vin- sældir „Laugavegarins" séu þær sem þær eru. Þj'ónninn talar íslensku Sjór, sandur og sól er af flestum talinn sjálfsagður hlutur þegar sól- LAUGARDAGUR 22. MAI1999 Múmíur í London The British Museum opnaði tvær nýjar álmur á dögunum sem ætlað er að hýsa forna eg- ypska muni. Útfararsiðir á þrjú þúsund ára tímabili eru megin- þema nýja safnsins og af því til- efni hafa verið dregnar fram í dagsljósið múmíur sem ekki áður hafa komið fyrir manna augu. „Það hefur lítið sem ekkert verið átt við múmíumar í heila öld en þær bættust í sjálft safnið árið 1756,“ sagði John Taylor að- stoðarsafnstjóri. Múmíumar hafa veriö til rannsóknar á sjúkrahúsi í London undanfarið þar sem með- al annars voru teknar röntgen- myndir frá toppi til táar. Rann- sóknarmenn hafa getað greint aldur, sjúkdóma, sníkjudýr og sjálfa vafningsaðferðina. Á The British Museum er að fmna 80 mennskar múmíur og yfir eitt þúsund dýramúmíur; þar á meö- al ketti, hunda, krókódíla, snáka og jafnvel fálka. Alton Towers á toppnum Ferðamönnum á Bretlandi fækkaði í fyrra en það hefur ekki gerst í sjö ár. Breska ferðamála- ráðið telur að heimsmeistara- keppnin í Frakklandi, slæmt veður og styrkur pundsins hafi ráðið þar mestu um. Vinsælasti ferðamannastaðurinn var skemmtigarðurinn Alton Towers með 2,7 milljónir gesta. Fast á hæla Alton Towers kom vax- myndasafn Madame Tussaud með litlu færri gesti. Tower of London fékk 2,5 milljónir gesta og Náttúrugripasafnið 1,9 millj- ónir. í ævintýragarðinn Chess- ington World of Adventures komu 1,6 milljónir manna og i Vísindasafnið rúmlega 1,5 millj- ón manna. í sjöunda sæti var hið danskættaða Legoland sem sótti talsvert í sig veðrið frá árinu áður og fékk 1,5 milljónir gesta. Kantaraborgarkirkja, Windsor- kastali og Edinborgarkastali lentu í áttunda til tíunda sæti. Leita ásjár borgarbúa Borgaryfirvöld í Róm eru orðin áhyggjufull vegna ársins 2000 en gert er ráð fyrir að minnsta kosti 25 milljónum ferðamanna það ár. Áramótin sjálf valda einnig áhyggjum en gistirými borgar- innar, sem er fyrir um 80 þúsund, er að verða fullbókað. Borgaryfir- Ivöld telja sig tilneydd að fara þess á leit við borgarbúa að þeir að- stoði með því að leigja út her- bergi á heimilum sínum. Vonir standa til að að minnsta kosti 25 þúsund fjölskyldur bjóði gistingu en þegar hafa fjögur þúsund sýnt því áhuga og helmingurinn þegar sótt um gistileyfi til borgarinnar. Enginn má bjóða gistingu án til- skilinna leyfa og það er Rómarbú- um auðvitað fullljóst. 5 ' Algarve í Portúgal: Sjór, sandur, sól og friður
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.