Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1999, Page 61

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1999, Page 61
13LAUGARDAGUR 22. MAÍ 1999 Up, Close and Personal. Robert Redford ásamt Michelle Pfeiffer. Vaxandi umsvif Redford leikstýrði sinni fyrstu mynd, Ordinary People, árið 1980 og hlaut sín fyrstu óskarsverðlaun og það sem leikstjóri. Ári síðar kom hann á fót Sundance-stofnuninni en samnefnd verðlaun eru þau mikil- vægustu á sviði sjáifstæðra mynda. Hún og ýmis önnur umsvif urðu þess valdandi að Redford lék í ein- ungis fjórum myndum á níunda ára- tugnum, en þeirra eftirminnilegust er Out of Africa (1985) sem hlaut sjö óskarsverðlaun þótt Redford fengi ekki einu sinni tilnefningu. Myndir hans á tíunda áratugnum hafa aftur á móti verið lítt eftirminnilegar, sbr. Indecent Proposal (1993), Up Close and Personal (1996) og The Horse Whisperer (1998). Kannski er það tímanna tákn að markverðasta íramlag hans til kvikmyndalistar- innar á áratugnum er Sundance- stofnunin. Hún hefur leitað hófanna bæði með sjónvarpsstöð og kvik- myndahús, sem eiga að sinna ein- göngu sjálfstæðum myndum, að undanfómu. -bæn Kvikmyndir með Robert Redford Butch Cassidv and the Sundance Kia (1969) Kvikmyndin sem tryggði frama Red- fords. Samleikur hans og Newmans er góður undir markvissri leikstjóm Ge- orge Roys Hiils. Kvikmyndin hlaut fem óskarsverölaun af alls sjö tilnefh- ingum. Hún hlaut aftur á móti 8 BAFTA-verðlaun og var Redford tek- inn fram yfir Newman er kom aö verð- launum fyrir aðalkarlhlutverkið. The Stíng (1973) ★★★ Redford, Newman og Hill leiddu aft- ur saman hesta sína og við enn betri undirtektir en áður. Þessi hressilega mynd um hrappa, maflósa og löggur hlaut alls 7 óskarsverðlaun af 10 til- nefningum. Redford var enn og aftur tekinn fram yfir Newman þótt hann yrði að láta sér duga tilnefningu. Three Days of the Condor (1975) ★★★ Redford leikur starfsmann banda- rísku leyniþjónustunnar sem kemst að mikilvægum en leynilegum upplýsing- um. Valdamiklir aðilar innan hennar reyna að drepa hann en með óvæntri aðstoð Faye Dunaway býður hann þeim birginn. Three Days of the Condor, 1975. All the Presidens Men (1976) **** Redford og Dustin Hoffman leika blaðamennina Woodward og Bernstein sem komu upp um aðdraganda Wa- tergate-innbrotsins, sem ieiddi til af- sagnar Richards M. Nixons. Öllum að óvörum varð myndin önnur vin- sælasta mynd ársins, auk þess sem hún hlaut fern óskarsverðlaun. Havana (1990) ★★★ Redford leikur fjárhættuspilara (ekki í fyrsta skipti) sem fellur fyrir harðri byltingarkonu (Lenu Olin) á Kúbu árið 1958. Samstarf þeirra Sydneys Pollacks og Redfords fékk nú óvænt óbllðar móttökur gagnrýnenda. Vægast sagt vanmetin mynd. Sneakers (1992) ★★★ Hópur sérfræðinga telur sig ráðinn af yfirvöldum að reyna nýtt öryggis- kerfi, en þeir komast heldur betur í bobba þegar vinnuveitandinn reynist öllu varasamari. Ágætis spennumynd. Indecent Proposal (1993) ★★ Redford leikur auðkýfmginn sem býður Demi More og eiginmanni henn- ar, Woody Harrelson, miiljón dollara fyrir nótt með Demi. Kannski mesta „flopp“ Redfords á ferlinum. Quis Show (1994) ★★★i Ralph Fiennes leikur þátttakanda í spumingaleik sem verður uppvís aö svindli. Leikstjóm Redfords ber at- vinnumennsku hans gott vitni, en það vantar einhvern neista til að úr verði meistaraverk. Redford hlaut óskarstil- nefningu fyrir leikstjóm sína. The Horse Whisperer ★★ Redford tapar sér í ástarvellu og sveitamennsku. í nokkuð langdreginni atburðarás tekst honum í hlutverki hestahvíslarans að bjarga hesti, stúlku og móður hennar úr samtvinnuðu þunglyndi. -bæn myndbönd Myndband vikunnar Antz ★★★★ SÆTI j i FYRRI VIKA ] VIKUR ÍÁ LISTAj j J i 1 i TITILL J ÚTGEF. j j j TEG. i 1 NÝ Ronin | WamerMyndir j Spenna i 2 i i 1 J c i j 6 J j J There's Somthing About Maty i Skrfan J J j Gaman J . 3 i 2 i * i The Truman Show j CIC Myndbönd j Gaman i 4 i 3 J J i 5 i Snake Eyes j .; J SAM Myndbönd 1 J Spenna 5 i 4 1 3 i Taxi i Háskólabíó j Spenna j 6 i J NÝ J J J 1 1 J 1 1 Prímary Colors J J Skrfan J -J . j Gaman I 7 J 1 6 J 1 i ^ i OutOfSight J CIC Myndbönd J i Skrfan J 4 J Gaman 1 8 i j 5 J - J i 3 j j J Thunderbott J j Spenna J 9 i 9 i 2 i Divorcing Jack j Stjömubíó j Spenna j 10 J j 8 i ; : j j Rush Hour J 1 Myndform J J j Gaman J 11 i 7 J o J J 3 J Dirty Work j WamerMyndir Gaman i2; 10 J J i 4 i Can't Hardly Wait J J Skrfan J J J Gaman J 13 i NÝ i 1 i In The Company Of Men j Háskólabíó j Gaman Hí 1 11 J J i ♦ I J J i io ; Spanish Prisoner J Myndfoim J J . j Spenna J 15 J 1 16 Dr. Dolittle J Skffan | 1 J Gaman 1 16 i J NÝ j j i i i j j Clay Pigeons J > j Myndform j J j Spenna j 17 i 17 j o J j 4 J MyGiant j WamerMyndir j Gaman i 18 J j 14 j J J 5 J j J Apt Pupil J J Skrfan J J j Spenna j ■ 19 i 12 J c J j 6 ) KnockOff Myndform j Spenna j 20 J 18 j J ; s ; The Horse Whisperer 1 ; SAM Myndbönd J 1 Drama J Vikan 11. - 17. maí. Meira fyrir fullorðna Vinnumaurinn Z-4195 er ósáttur við hlutskipti sitt og dreymir um betra líf. Þegar prinsessan Bala kíkir í heimsókn á vinnumaurabarinn og dansar við Z verður hann yfir sig ást- fanginn. Eftir að hafa laumað sér í hersveitir búsins og óvart orðið hetja rænir hann prinsessunni og þau halda i leit að skordýraparadís. Að lokum snúa þau þó aftur til að kljást við hershöfðingjann Mandible, sem hefur illt í hyggju. Dreamworks gerði þessa mynd í fyrra og Walt Disney gerði A Bug’s Life sama ár og þannig viðhéldu fyr- irtækin þeirri hefð í Hollywood að sitt fyrirtækið hvort keppti um sama áhorfendahópinn með myndum um sama efni. Það er óhætt að segja að Dreamworks hafi slátrað Disney í samkeppninni því Antz er á allan hátt glæsilegri, skemmtilegri og fyndnari og skartar íleiri og stærri stjömum. Mauramir em vel hannað- ir, auðvelt að þekkja persónumar í sundur og andlitshreyfmgar sam- ræmast talsetningu leikaranna mjög vel. Hreyfmgar eru allar mjög eðlileg- ar og tónlist er blandað við hasarinn á áhrifaríkan hátt. Antz er önnur myndin sem er algjörlega tölvuteikn- uð (Toy Story var sú fyrsta). Gaman er að hlusta á allar stór- stjömurnar en að öðram ólöstuðum er Woody Allen skemmtilegastur en hann fer á kostum í aðalhlutverkinu sem er eins og sniðið fyrir hann. Myndin er í raun ekki ósvipuð mynd- unum sem hann var að gera snemma á ferlinum, eins og Bananas og Love and Death, þar sem taugaveiklaðir einstaklingshyggjumenn verða hetj- Á barnum eftir erfiðan vinnudag. ur fyrir hálfgerðan misskilning. Það sem aðgreinir myndina frá öðrum teiknimyndaþrekvirkjum er hversu mjög hún er stiluð á fullorðna áhorfendur og þar liggur bæði helsti kostur hennar og galli. Þessi dæmi- gerða kaldhæðnislega hnyttni í Woody Allen, vísanir í aðrar myndir (t.d. Pulp Fiction og Starship Troopers) og leikur með pólitíska hugmyndafræði (kommúnisma, fas- isma, einstaklingshyggju gegn félags- hyggju) og margt tleira gerir mynd- ina að mjög ánægjulegri skemmtun fyrir fullorðna en missir líklega marks hjá ungviðinu. Stjömugjöfin miðast við minn aldurshóp en ég gæti trúað að krakkamir væm hrifn- ari af hefðbundinni Disney-fram- leiðslu. Útgefandi: ClC-myndbönd. Leikstjór- ar: Eric Darnell og Tim Johnson. Að- ® alhlutverk: Woody Allen, Sharon Sto- ne, Gene Hackman, Christopher Wal- ken, Anne Bancroft, Sylvester Stallone, Jennifer Lopez, Danny Glover, Dan Aykroyd og Jane Curtin. Bandarísk, 1998. Lengd: 80 mín. Öll- um leyfð. Pétur Jónasson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.