Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1999, Síða 12
12
LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1999 T>V
ég á mér draum
Mig dreymir um iðjuleysi
Myndlistarmaðurinn og rithöfundurinn Þorvaldur Þorsteinsson er líklega afkastameiri en aðrir ungir menn í hans umdæmi,
skrifar leikrit og bækur, opnar myndlistarsýningar hér heima og erlendis - og stendur fyrir máli sínu í Gerðubergi í dag.
Þorvaldur
4. septem
Þorvaldur Þorsteinsson, myndlistar-
maður og rithöfundur, hefur í æði
mörgu að snúast þessa dagana. Um sein-
ustu helgi var frumsýnt eftir hann nýtt
bamaleikrit í Kaffileikhúsinu, Ævintýr-
ið um ástina, og í dag stendur hann fýr-
ir Sjónþingi í Gerðubergi þar sem hann
segist reyna að standa fyrir máli sínu og
finna haldbær rök fyrir því að hafa var-
ið stórum hluta síðustu tíu ára í að
vinna í myndlist. Á mánudaginn heldur
hann síðan til Þýskalands til þess að
setja upp sextíu fermetra íslandskynn-
ingu í listasafni í Karlsruhe. Viku síðar
opnar Þorvaldur síðan sýningu í gallerí
Nemo í Norður-Þýskalandi. „Galleríið
stendur á ströndinni og ég hlakka til.
Þegar maður kemur út, tannburstandi
sig á morgnana, gengur maður yfir
naktar konur,“ segir Þorvaldur.
Eftir þetta kemur Þorvaldur heim tfi
þess að Ijúka „hinni óhjákvæmilegu
skáldsögu íslendingsins,“ eins og hann
segir og Bjartur hyggst gefa út.
En á hann sér drauma?
„Mig dreymir um iðjuleysi. Fullkom-
ið iðjuleysi."
Hvers vegna læturðu ekki drauminn
rætast?
„Ég hef nú löngum kennt um góðu,
akureyrsku uppeldi og auðvitað ramm-
íslensku, þar sem vinnan göfgar mann-
inn og sjálfsmyndin hangir algerlega á
afköstum, en á síðari árum hef ég orðið
að viðurkenna að ég get ekki bara kennt
uppeldinu um, heldur hef ég orðið róm-
antikinni að bráð og lít á það sem ljúfa
skyldu mína að gangast við hæfileikun-
um og gera það skársta úr því sem mér
var úthlutað."
Þorði ekki til Bandaríkjanna
Hefurðu einhvem tímann látið
drauma rætast?
„Já - að fara til Bandaríkjanna. Það
var búið að standa lengi í mér. Ég vissi
innst inni að það myndi breyta lífi minu
og ég þorði ekki. Ég vissi líka að færi ég
ekki, þá ætti ég ekki að draga það lengi
að sækja um örorkubætur, vegna þess
að ég væri ekki að „fúnkera". Síðan
greip ég tækifærið fyrir tveimur árum
og fór til að skrifa smáhandrit fyrir fólk
og krafan var sú að ég skrifaði það í Los
Angeles.
Það kom í ljós að ég hafði rétt fyrir
mér. Ég hef ekki verið samur síðan.“
Hvemig breyttistu?
„Það breyttust allar viðmiðanir litla
íslendingsins. Ég mátti allt í einu vera
hluti af stóm heildinni og ég fór að
hugsa um mitt framlag sem hluta af
þeim veruleika sem mér fannst skipta
máli. Ég mátti stefna að stærri hlutum,
í víðara samhengi, á stærri markaði. Án
skilyrða, án höfðatölukomplexins og
þurfti ekki að biðjast afsökunar á einu
eða neinu. Eftir þetta finnst mér ég eiga
fýrst möguleika á að láta alla mína
drauma rætast, bæði þá sem snúa að
vinnu og iðjuleysi. Mig langar að verða
ferðalangur þegar ég verð stór, svona
trúbador, dinnerpíanisti sem heitir ekki
neitt.“
Spilarðu á píanó?
„Já, en ég er ömurlegur og þess vegna
dreymir mig um að verða dinnerpí-
anisti."
Þreyttur menntaskólakennari í
lopapeysu
Hvað langaði þig til að verða þegar
þú varst að alast upp?
„Það er dæmi um hvað það er hættu-
legt að draumar mínir rætist. Mig
dreymdi um að verða menntaskóla-
kennari; íslenskukennari. Mig dreymdi
um lopapeysuna, flauelsbuxumar og
flókaskó - í fullri alvöru. Mér var ekki
hlátur í huga. Þetta var ég. Ég ætlaði að
fóma mér, helst fyrir þá sem minna
máttu sín í námi. Ég ætlaði að koma
þreyttur heim á hverju kvöldi, setjast
við skrifborðið mitt, einn, og taka um
andlitið, yfirkominn af þreytu eftir að
hafa gefið ailt. Sofna síðan yfir ritgerð-
arverkefnunum, með ennið á hand-
leggnum."
Þú hefur séð þig sem einfara?
„Já, ég vissi ekki þá að ég var tvi-
fari.“
Amerísk draumafjölskylda
Dreymdi þig aldrei um að eignast
Qölskyldu?
„Jú, í einhverjum upphöfnum
draummn um mína framtíð, inni í am-
erísku kökublaði. Ég teiknaði oft hús-
ið mitt sem var akureyrskt pallahús,
og þegar ég yrði fertugur yrði ég með
ameríska fjölskyldu mér við hlið; ákaf-
lega kurteis, glaðvær og prúð börn sem
væru mjög góð við pabba sinn og
ósköp góð við mömmu sína líka. En
mig dreymdi samt mest um húsið. Það
var dálítið merkilegt við þessa drauma
að mamman sagði aldrei neitt nema
stundum þegar hún sagði við bömin:
„Þið verðið að spyrja pabba ykkar að
þessu.“ Svo horfði hún á mig með að-
dáun.“
„En auðvitað gerðist þetta allt inni í
einhvetju minjasafni, eins og allt sem ég
geri í myndlist og ritlist. Allar mínar
viðmiðanir vora eins og ég byggi í ein-
hverjum fjölskyldu- og húsdýragarði."
Draumamir hafa fyrst og fremst
verið í myndum?
„Já, en núna eru þeir fyrst og fremst
dularfull sannfæring sem leiðir mig í
raun og vem áfram. Ég er með alvöru-
plön um alvörubreytingar. Ég hef stað-
ið í miklum breytingum á seinustu
árum, sem kannski eru ekki hluti af
því að láta drauma rætast, en þar sem
ég fylgi minni sannfæringu og virði
minar tilflnningar get ég nú með tölu-
verðri sannfæringu gert áætlanir og
staðið við þær.
Og þær eru tengdar draumunum."
-sús
fimm breytingar
Myndimar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur er
að gáð kemur í ljós að á myndinni
til hægri hefur fimm atriðum ver-
ið breytt.
Finnir þú
þessi
fimm at-
riði
skaltu
merkja
við þau
með
krossi a
myndinni til hægri og senda okk-
ur hana ásamt nafni þínu og
heimilisfangi. Að tveimur vikum
liðnum birtum við nöfn sigur-
vegaranna.
1. verölaun:
United-sími með
símanúmerabirti frá
Sjónvarpsmiðstöðinni,
Síðumúla 2,
að verðmæti kr. 6.990.
2. verðlaun:
Tvær Úrvalsbækur að verðmæti
kr. 1570, Sekur eftir Scott Turow og
Kólibrísúpan eftir David Parry og
Patrick Withrow.
Vinningarnir verða sendir heim.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú flmm
breytingar? 530
c/o DV, pósthólf 5380 125 Reykjavík
Finnur þú fimm breytingar? 531
Hey, löggi! Heldurðu að ástralska aðferðin gæti kannski
virkað við að fjarlægja þennan geislaspilara?
Nafn:____________________________________________________
Heimili:_________________________________________________
Vinningshafar fyrir getraun
númer 529 eru:
1. verðlaun: Aðalheiður Halldórsdóttir, Skjólbraut 9,
200 Kópavogur.
2. verðlaun: Árni Einarsson, Hjarðarhaga 32,107
Reykjavík.
BRETLAND
SKÁLDSÖGUR - KIUUR:
1. Tom Clancy: Rainbow Six.
2. Danielle Steel: The Klone and I.
3. J.K. Rowling: Harry Potter and the
Philosopher's Stone.
4. Sebastian Faulks: Charlotte Grey.
5. J.K. Rowling: Harry Potter and the
Chamber of Secrets.
6. James Patterson: When the Wind
Blows.
7. Charlotte Bingham: The Kissing
Garden.
8. Nlcholas Evans: The Loop.
9. Elvi Rhodes: Spring Music.
10. Jane Green: Mr Maybe.
RIT ALM. EÐLIS - KILJUR:
1. Alex Ferguson: Managing my Life:
The Autobiography.
2. Collins Gem English Dictionary.
3. Oxford Popular Dictionary.
4. Chris Stewart: Driving over
Lemons.
5. Amanda Foreman: Georgina,
Duchess of Devonshire.
6. Collins Gem French Dictionary.
7. Anthony Beevor: Stalingrad.
8. Oxford Popular French Dictionary.
9. Frank McCourt: Angela’s Ashes.
10. Angus J. Kennedy: Internet: The
Rough Guide.
INNBUNDNAR SKÁLDSÖGUR:
1. J.K. Rowling: Harry Potter and the
Prisoner of Azkaban.
2. Thomas Harris: Hannibal.
3. Danielle Steel: Granny Dan4
4. lain Banks: The Business.
5. Elizabeth George: In Pursuit of
the Proper Sinner.
6. Kathy Relchs: Death Du Jour.
INNBUNDIN RIT ALM. EÐLIS:
1. Alex Ferguson: Managing My Life.
2. David West Reynolds: Star Wars
Episode 1: The Visual Dictionary.
3. Robert Lacey & Danny Danziger:
The Year 1000.
4. Richard Holmes: The Western
Front.
5. Matt Groening: Bart Simpson's
Guide to Life.
6. Lenny McLean: The Guv’nor.
( Byggt á The Sunday Times)
BANDARÍKIN
SKÁLDSÖGUR - KIUUR:
1. Anita Shreve: The Pilot’s Wife.
2. Arthur Golden: Memoirs of a
Geisha.
3. Bernard Schlink: The Reader.
4. Judy Blume: Summer Sisters
5. Rebecca Wells: Divine secrets of
the Ya-Ya sisterhood.
6. Patricia Cornwell: Point of Origin
7. Helen Flelding: Bridget Jones'
Diary.
8. Blllle Letts: Where The Heart is.
9. John Irving: A Widow for One
Year.
10. Wally Lamb: I Know This Much
Is True.
RIT ALM. EÐLIS - KILJUR:
1. Frank McCourt: Angela’s Ashes.
2. John Berendt: Midnight in the
Garden of Good and Evil.
3. Robert C. Atkins: Dr. Atkins’ New
Diet Revolution.
4. Jared Diamond: Guns, Germs and
Steel.
5. J. Canfield o.fl.: Chicken Soup for
the College Soul.
6. lyanla Vanzant: Don’t Give it
Away.
7. Adeline Yen Mah: Falling leaves
8. Stephen R. Covey: The Seven
Habits of Highly Effective People.
9. Wllliam Pollack: Real Boys
10. Kenneth H. Pollack o.fl.: The
One Minute Manager.
INNBUNDNAR SKÁLDSÖGUR:
1. Patrlcia Cornwell: Black Notice
2. Catherine Couiter: The Edge.
3. Thomas Harris: Hannibal.
4. Tim F. LaHaye: Assasins.
5. Melinda Haynes: Mother of Pearl.
6. Janet Fltch: White Oleander.
INNBUNDIN RIT ALM. EÐLIS:
1. Bill and Hillary: The Marriage
2. Mitch Albom: Tuesdays with
Morrie.
3. Bob Woodward: Shadow: Five
Presidents and the Legacy of
Watergate.
4. Bill Philips: Body for Life.
5. John Keegan: The First World War.
6. Sylvia Browne o.fl.: The Other
Side and Back.
( Byggt á The Washington Post)