Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1999, Blaðsíða 16
16
fjölskyldumál
LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1999 JL>"V
teið
ðu falleg og sterk
samkomutjöld
Leigjum borð, stóla,
ofna o.fl.
Tjaldaleigan
Skemmtilegt hf.
Skógarsel 15, sími 557 7887 .
uottorð
Barnapeysur 990
Flísgaliar á börn 2490
Barnaúlpur frá 1490
Dömupeysur frá 990
Herraskyrtur frá 690
Flíspeysur frá 1990
Opið
mánudaga-
fimmtudaga
föstudaga
laugardaga
sunnudaga
10-18
10-19
10-18
12-17
Stefán Jóhannsson fjölskylduráðgjafi:
Foreldrar eiga ekki
báðir að vinna úti
- jafnréttisbaráttan hefur skaðað fjölskylduna
Stefán Jóhannsson hjálpar hjónum og sambýlisfólki að bæta sambönd sín og eitt af
stærstu vandamálunum segir hann vera að fólk hætti að heyra og hlusta á makann.„í
hjónaböndum er algengt að fólk ákveði hvað makinn meinar og hjón tala stundum tvö
ólík tungumál." DV-mynd Hilmar Þór
Stefán Jóhannsson er með
masterspróf í fjölskylduráögjöf frá
University of America. Hann er
einnig menntaður sem áfengis- og
flkniefnaráðgjafi. „Ég fór út i þetta
vegna áhuga míns á áfengisvanda-
málum og hjónabandsvandamálum.
Áður en ég flutti til Bandaríkjanna
starfaði ég á meðferðarheimili fyrir
áfengissjúklinga og flkniefnaneyt-
endur og fjölskyldur þeirra. Það var
á Vífilsstöðum árið 1976 og það var
fyrsta meðferðarheimilið þar sem
þverfaglegt teymi stóð að meðferð-
inni hér á landi.“
Eftir nám í Bandaríkjunum kom
Stefán heim og starfaði fyrir Áfeng-
isvarnaráð í þrjú ár en hélt á ný til
Bandaríkjanna og bjó um fjórtán
ára skeið í Orlando. Þar setti Stefán
upp stofnun, Cornerstone Institute,
og þegar hann kom heim fyrir rúm-
um þremur árum opnaði hann ráð-
gjafarstofu. Sú stofa hefur fyrst og
fremst starfað með ráðgjöf fyrir
hjón og sambýlisfólk.
Að skilja tilfinningar
sínar
„Hér á landi læra börn afar lítið
um tilfinningar í skólum og fólk
kemur oft inn í fullorðinsárin án
þess að þekkja eða að kunna að
höndla tilfinningar sínar. Skólinn
og heimilið virka oft á tíðum þannig
að vitsmunirnir eru þroskaðir en
ekki tilfinningarnar." Hvemig fer
Stefán að því að kenna fólki að
skilja tilfinningar sínar?
„Við getum hugsað okkur að
hugsanir og tilfinningar séu eins og
vatn og olía. Ef maður blandar þeim
saman, hrærir saman hugsunum og
tilflnningum, þá verður maður af-
skaplega mglaður og veit ekki hvað
er tilfinning og hvað er hugsun. í
framhaldi af því finna menn oft fyr-
ir vanmáttarkennd en hún hefur til-
hneigingu til þess að leiða til stjórn-
leysis. Svo fer fólk oft að reyna að
leysa vandamál sín í höfðinu en það
áttar sig ekki á tilfinningum. Það er
ekkert rökfræðilegt við tilfinningar
vegna þess að það eru engar réttar
tilfinningar til og það era engar
rangar tilfinningar til. Tilfinningar
eru bara tilfmningar. Oft er vits-
munasviðið sterkt en tilfinninga-
sviðið að sama skapi veikt. Fólk hef-
ur tilhneigingu til þess að sjá til-
finningar sem veikleikamerki.
Markmiðið er að ná samvinnu vits-
muna og tilfinninga.“
Stefán leggur jafnframt áherslu á
að menn læri að þekkja muninn á
því sem þeir vilja og þeir þurfa.
„Það getur verið munur á því sem
ég vil og það sem ég þarf. Sumir
vilja kannski drekka sig fulla en
það er ekki endilega það sem þeir
þurfa. Við þurfum ekki alltaf það
sem viljum. Ef karlmaður aftur á
móti vill og þarf að fara og veiða
með strákunum þá skiptir miklu
máli að konan veiti honum stuðn-
ing til þess. Það sama á við þegar
konan vill fara í saumaklúbb með
stelpunum, þá er mikilvægt að mað-
urinn auðveldi henni að fara með
því að passa börnin, elda matinn og
svo framvegis þannig að það íþyngi
henni ekki að taka tíma til þess að
fara út með stelpunum.'1
Mismunandi tungumál
hjóna
Við starf sitt hefur Stefán kynnst
vandamálum hjóna og hvernig best
er að vinna úr þeim. Eins og gefur
að skilja skipta tjáskipti hjóna lang-
samlega mestu um framtíð þeirra
saman. „i tjáskiptum skiptir mestu
máli að læra að heyra. Það er mikið
til af heymarlausu fólki sem áttar
sig ekki á því og það skapar stór
vandamál. Fólk hefur ekki lært að
segja: ég heyrði þig segja þetta, er
það það sem þú átt við? í hjónabönd-
um er algengt að fólk ákveði hvað
makinn meinar. Konur útskýra sína
hluti á öðru tungumáli en karlmenn
og orð kynjanna þýða ekki alltaf
]rað sama.“
I eðli manna að eiga sér
maka
Nú vilja sumir halda þvi fram að
hjónabandið sé ef til vill tíma-
skekkja og að það gangi hreinlega
ekki upp í nútímasamfélagi. Hvers
vegna halda menn dauðahaldi í
hjónabandið sem stofnun þrátt fyrir
það að helmingur þeirra endar með
skilnaði og stór hluti fólks lifir í
óhamingjusömum hjónaböndum?
Er það eðli manns að þrá ofar öllu
að eiga sér maka?
„Það er í eðli mannsins að eiga
vin af hinu kyninu. I eðli mannsins
er einnig að þurfa á trúnaðarvini að
halda. Karlmenn þurfa konu til þess
að sjá sjálfa sig og konan þarf karl-
mann til þess að geta verið kona.
Þetta sést til að mynda út frá kyn-
ferðissjónarmiði, kona á erfitt með
að skilgreina sig sem kona án þess
að vera með manni. Það hlýtur að
vera mjög erfitt. Sambúðin snýst
um að læra hvernig kynin eru ólík
og bera virðingu fyrir tilfinningum
og skoðunum hvort annars."
Eitt algengasta vandamál í hjóna-
bandinu er að sögn Stefáns með-
virkni. „Það er algengt
að konur kynnist
mönnum sem eru óá-
byrgir og ætli að koma
þeim í lag, svokallaðar
hjúkrunarkonur. Menn
þeirra era oft leitandi
að móður og finna
konu sem gerir hvað
sem er til þess að halda
þeim. Þær taka alla
ábyrgð fyrir þá. Það er
fiknsamband. Karlar
gera þetta líka en ég
held að þetta sé algeng-
ara meðal kvenna, þ.e
þessar hjúkrunarkonur
sem langar til þess að
eiga mann sem þær
koma i lag.“
Jafnréttisbar-
áttan skaðleg
fjölskyldunni
Fjölskyldan og sam-
verutími hennar hefur
breyst eftir að konur
fóru að vinna úti til
jafns við karlana og
það segir Stefán oft á
tíðum stóran þátt í
vandamálum hjóna.
„Jafnréttisbaráttan hef-
ur auðvitað haft mjög
skaðleg áhrif á fjöskyld-
una, það er augljóst.
Mamma er ekki lengur
heima að ala upp bam-
ið sitt. Barnið er alið
upp af félögum, vinum
og götunni. Mæður
hafa ekki lengur tíma
til þess að ala upp böm
sín og hafa ekki heldur
efni á því miðað við
þær kröfur sem gerðar
eru nú.“
Hvaða lausn hefur
þú á þessu vandamáli?
„Að mamma sé heima,
eða'pabbi að hugsa um
börn og heimili eða að
þau séu að minnsta
kosti þar þegar börnin
koma heim úr skóla og
sinni börnunum. Það
geta ekki verið félag-
amir á götunni sem ala börnin
upp.“ Lausnin er sem sagt sú að það
sé alltaf annað foreldrið heimavinn-
andi? „Já, en það er alltof lítið af
því. Á heimilum sem það gerist að
mamman er heimavinnandi að
hugsa um börnin en pabbinn úti-
vinnandi sér maður allt öðruvísi
börn. Þetta er mjög augljóst því það
getur enginn komið í stað foreldra."
Stefán hefur eðli málsins sam-
kvæmt skoðanir á málefnum fjöl-
skyldunnar enda lifir hann og hrær-
ist í málum hennar. Hann hefur
eins og fyrr sagði unnið í mörg ár
með samskipti, tjáskipti og tilfinn-
ingar sambýlisfólks og nú síðast er
hann farinn að bjóða hjónum og
sambýlisfólki helgarnámskeið þar
sem farið er í þessi atriði. Það
næsta verður haldið nú um helgina
í Hallgrímskirkju og verður þar
boðið upp á fyrirlestra, umræður,
hópvinnu og vídeómyndir, allt í
þeim tilgangi að gera erfið sambönd
góð og góð sambönd betri. -þor