Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1999, Síða 44
LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER
52 fréttir
Óánægja meö uppsagnir hjá íslenska álfélaginu:
Rekinn eftir 30 ára
starf í álverinu
- merkilegt að þaö þyki fréttnæmt, segir blaðafulltrúi félagsins
„Ef atvinnurekanda líkar ekki við
starfsmann vegna þess að hann er
rangeygur eða rauðhærður eða örv-
hentur eða bara eitthvað annað þá
getur hann sagt honum upp á lögleg-
an hátt ef aðeins uppsögnin er með
tilskildum fyrirvara," segir Gylfi
Ingvarsson, aðaltrúnaðarmaður hjá
íslenska álfélaginu, en hann segir
óánægju vera meðal starfsmanna ál-
versins vegna uppsagna að undan-
fórnu.
Að sögn Gylfa hefur fjórum
starfsmönnum, þar af einum verk-
stjóra, verið sagt upp frá því
snemma í sumar og einn trúnaðar-
maður hefur hætt eftir að hafa ver-
ið boðinn starfslokasamningur. Nú
síðast á mánudag hafi tveimur
starfsmönnum verið sagt upp störf-
um, einum í skautsmiðju og öðrum
á rannsóknarstofu en sá starfsmað-
ur hafi starfað hjá álverinu í tæp 30
ár.
Stjórnendum líki við
starfsmenn
Gylfi segir að á sama tíma og vel
gangi hjá fyrirtækinu en óvenju-
mikið los hafi verið á starfsmönn-
um þess sé það hart að mönnum sé
sagt upp án skýringa eins og gert
hafi verið í þremur af fjórum áður-
greindum tilfellum. Starfsmannin-
um á rannsóknarstofunni var sagt
upp vegna breytinga á vaktafyrir-
komulagi. „Hann vann að gæðamál-
um sem er málaflokkur sem er fyr-
irtækinu nauðsynlegur og hefur
þekkingu sem við teljum að sé
fyllsta ástæða til þess að nýta og við
höfum farið fram á að honum verði
boðið annað starf en það er ekki
inni í myndinni. Verkstjóranum í
skautsmiðjunni var sagt upp fyrir
stuttu en enginn skilur af hverju og
það eru engar skýringar gefnar. Það
virðist vera komin upp sú stefna hjá
æðstu stjórnendum fyrirtækisins að
þeim þurfi að líka sérstaklega við
menn til þess að þeir haldi vinn-
unni.“
Trúnaðarmaður missir
móðinn
Gylfi segir að í sumar hafi trún-
aðarmaður í skautsmiðjunni hætt
vegna þess að hann taldi sér ekki
vært í fyrirtækinu. „Starf hans var
lagt niður sem okkur þótti vægast
sagt mjög skrýtið því framleiðslan
sem hann vann í þótti góð. Honum
var boðið annað starf en jafnframt
látinn vita að þeir væru tilbúnir að
borga honum riflega ef hann hætti.
Vegna framkomu stjórnenda fyrir-
tækisins gagnvart honum undan-
farna mánuði sá hann fram á að
hann myndi ekki njóta sín hér sem
starfsmaður og valdi að taka starfs-
lokasamning."
„Mórallinn er einfaldlega í núlli
um allt fyrirtækið. Þetta eru allt
mjög einkennileg og alvarleg mál
vegna þess að fólki er ekki sagt
upp vegna þess að það hafi gerst
brotlegt í starfi eða slíkt. Hér á
landi eru ekki lög sem vernda
launþega gegn óréttmætum upp-
sögnum enda hafa íslensk stjórn-
völd, með stuðningi atvinnurek-
enda, ekki viljað innleiða tilskipun
Alþjóða vinnumálasambandsins
um réttarstöðu launafólks en víð-
ast hvar í Evrópu hefur hún verið
lögbundin," segir Gylfi.
„Engum til góðs að
opinbera málið“
„Það er sífellt verið að endurnýja
ýmsan búnað í verksmiðjunni og
stundum hefur það í fór með sér
breytingar á vinnufyrirkomulagi.
Því miður þarf stundum að segja
upp fólki í kjölfarið en sem betur fer
er ástandið á hinum almenna
vinnumarkaði gott og þeir örfáu
sem hafa yfirgefið okkur hljóta að
hafa mörg atvinnutækifæri," segir
Fjórum starfsmönnum, þar af einum verskstjóra, verið sagt upp í álverinu í Straumsvík frá því snemma í sumar og
einn trúnaðarmaður hefur hætt eftir að hafa verið boðinn starfslokasamningur.
Hrannar Pétursson, blaðafulltrú
ÍSALs.
Hrannar Pétursson, blaðafulltrúi ís-
lenska álfélagsins.
„En að sjálfsögðu er tekið tillit til
aldurs og þess hversu lengi menn
hafa verið hjá fyrirtækinu þegar
gengið er frá starfslokum. Það er
mjög sjaldgæft að starfsmanni sé
sagt upp af öðrum orsökum en ef
það gerist er það engum til góðs að
gera það að opinberu máli. A.m.k.
teljum við okkur bundna trúnaði
við starfsmenn. Hins vegar er
merkilegt að það þyki fréttnæmt í
hvert skipti sem starfsmanni er sagt
upp hjá ISAL, sérstaklega þegar lít-
ið eða ekkert er fjallað um fjölda-
uppsagnir í öðrum fyrirtækjum á
höfuöborgarsvæöinu,“ segir Hrann-
ar.
Landflutningamenn:
Lækkun án
dramatíkur
„Okkar tillaga er sú að fara
að fordæmi Norðmanna og
fleiri sem hafa gert samkomu-
lag um að skattleggja bensín-
og olíulítrann að ákveðnu há-
marki og stoppa þar. Tillagan
miðar við að verðið verði svip-
að og það var í vor,“ segir
Guðmundur Arnaldsson, for-
maður Samtaka landflutninga-
manna og framkvæmdastjóri
Landvara, félags íslenskra
vöruflytjenda.
Guðmundur segir samtökin
ekki á leið í beinar aðgerðir en
ætla að óska eftir fundi með
fjármálaráðherra eftir helgi.
„Þetta leggst nú í ekki þannig
í mig að við verðum með ein-
hvern showbissness i for-
grunni. Við erum að skoða,
m.a. í samvinnu við FÍB,
hvernig eðlUegast væri af rík-
isvf ldinu að taka á. málinu til
þess að hleypa áhrifunum
ekki inn í hagkerfið með þeim
hætti sem þau eru að gera,“
segir hann.
Guðmundur á von á jákvæð-
um undirtektum hjá stjórn-
völdum. „Málið er bæði at-
vinnu- og þjóðfélagspólitískt
og það er einfaldlega hag-
kvæmt að fá ekki áhrif slíkra
hækkana inn í verðlag í hag-
kerfið. Rökin í málinu eru
klár og þau hljóta að vilja
hlusta á þau.“ -gar
Skeiösfossvirkjun:
Umfangsmiklum endurbótum að Ijúka
DV, Fljótum:
Nú er að ljúka umfangsmiklum
endurbótum á Skeiðsfossvirkjun i
Fljótum og hafa að jafnaði 15-20
manns starfað þar frá því í byrjun
marsmánaðar. Langmest hefur ver-
ið unnið við stíflugerð virkjunar-
innar. Þar voru brotnir burtu um
500 rúmmetrar af steypu og svipað
magn steypt i staðinn. Steypan var
orðin sprungin og laus frá enda að
megninu til frá árinu 1944 þegar
garðurinn var upphaflega byggður.
Stíflugarðurinn er talsvert mann-
virki, 84 metrar á lengd og mesta
hæð er 25 metrar. Eftir þessa miklu
aðgerð er þó útlit hans óbreytt.
Fleiri mannvirki á svæði virkj-
unarinnar voru lagfærð. Þannig var
vatnsjöfnunarturninn pússaður
innan og klæddur utan með áli. Út-
rásarveggir stöðvarhúss voru end-
urbyggðir og þrýstivatnspípan mál-
uð og endurbætt. Verktaki við þess-
ar endurbætur var GR-verktakar úr
Garðabæ. Tilboð þeirra hljóðaði
upp á tæpar 100 milljónir króna.
Guðmundur Magnússon, verk- og
Nú er að Ijúka umfangsmiklum endurbótum á Skeiðsfossvirkjun í Fljótum.
DV-myndir ÖÞ
Guðmundur Magnússon, verk- og framkvæmdastjóri.
framkvæmdastjóri, sagði að verkið
hefði staðist áætlun og framkvæmd-
in í heild gengið vel. Hann sagði að
GR-verktakar hefðu hingað til eink-
um verið í nýbyggingum og því
væri þetta öðruvísi verk en þeir
væru vanir að fást við og það hefði
verið verulega spennandi að takast
á við þetta.
Guðmundur var mjög ánægður
með dvölina við Skeiðsfossvirkjun,
tíðarfarið í sumar hefði verið alveg
einstaklega hagstætt sem lýsti sér í
því að mannskapurinn hefði aðeins
tvisvar þurft að vinna í regnfótum
allt sumarið.
-ÖÞ