Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1999, Blaðsíða 12
12
LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1999 DV
Qtlönd
Mæður rússneskra hermanna krefjast bætts aðbúnaðar fyrir syni sína:
Óttast að verða skotn-
ar á færi í Tsjetsjeníu
Rússneska baráttukonan ída Kúklína tekur við verðlaunum úr hendi sænska auðkýfingsins Jakobs von Yxkulls fyr-
ir hönd samtaka mæðra rússneskra hermanna. Samtökin fengu verðiaunin árið 1996. Verðlaun þessi, sem eru köll-
uð „hin nóbelsverðlaunin", eru veitt þeim sem Yxkull telur að verðskuldi hin eiginlegu friðarverðlaun Nóbels.
Nú er af sem áður var. Mæður
rússneskra hermanna sem berjast
við uppreisnarmenn múslíma í
Kákasuslýðveldinu Tsjetsjeniu hafa
ekki fjölmennt suður, eins og í stríð-
inu 1994 til 1996, til að sækja syni
sína og fara með þá heim. Núna
þora þær ekki að fara af ótta við að
verða hreinlega skotnar á færi.
Ekki af uppreisnarmönnum, heldur
af rússneskum hermönnum.
„Herinn hefur fyrirskipað að
skjóta eigi samstundis alla þá sem
fara inn i herbúðirnar og ekki eru
hermenn," segir ída Kúklína sem
situr í stjórn samtaka mæðra rúss-
neskra hermanna.
Þetta er ein af ástæðunum fyrir
því að mæðumar þora ekki til átaka-
svæðanna til að reyna að semja við
yfirmenn hersins á staðnum.
Lögðu land undir fót
Þegar átökin í fyrra Tsjetsjeníu-
stríðinu stóðu sem hæst lögðu mæð-
ur hermanna land undir fót í hund-
raðavís og fóru til átakasvæðanna
til að reyna að fá syni sína leysta
undan herþjónustunni með mútum,
lagakrókum ellegar sannfæringar-
kraftinum einum saman. Konumar
nutu aðstoðar samtakanna Her-
mannamæðra sem voru stofnuð fyr-
ir tíu árum til að berjast gegn ömur-
legum aðbúnaði í rússneska hern-
um.
Synir kvennanna, rússneskir pilt-
ar í herþjónustu, voru auðmýktir á
alla lund, pyntaðir og notaðir sem
fallbyssufóður. Þess vegna héldu
þær af stað. Og margar höfðu erindi
sem erfiði, höfðu syni sína með sér
heim.
Allir fylgjandi stríðinu
Núna er sem sé öldin önnur. Ekki
nóg með að konurnar þori ekki suð-
ur til Tsjetsjeníu, heldur er stemn-
ingin heima í Rússlandi allt önnur
nú en í fyrri átökunum. Þá studdi
almenningur mæðurnar því
óbreyttir Rússar sáu ekki hvaða er-
indi Rússar ættu í átök í Tsjetsjen-
íu. Um þessar mundir eru tveir af
hverjum þremur Rússum fylgjandi
stríðsrekstrinum og Vladímír Pútín
forsætisráðherra nýtur mikillar lýð-
hylli einmitt vegna þessa.
Mæður ritskoðaðar
ída Kúklína segir að ritskoðun
komi í veg fyrir að hermannamæð-
urnar geti komið umkvörtunarefn-
um sínum á framfæri við fjölmiðl-
ana.
Kúklína segir að skorturinn á
þjálfun í hemaði og hermennsku sé
einna verstur. Bórís Jeltsín forseti
lofaði fyrir nokkrum mánuðum að
enginn hermaður yrði sendur til
Tsjetsjeníu nema hann hefði fengið
að minnsta kosti eins árs þjálfun áð-
ur og að enginn yrði neyddur til að
fara. Mánuði síðar var nauðsynleg
þjálfun stytt niður í sex mánuði og
enginn fær lengur tækifæri til að
neita að fara til Tsjetsjeníu. Það
finnst ídu Kúklínu alveg ótækt.
„Á fyrsta árinu vinna margir her-
mannanna bara við landbúnaðar-
störf og þeir fá aðeins að skjóta einu
sinni eða tvisvar úr riffli. Þetta get-
ur aðeins endað á einn hátt fyrir
svona hermann: Hann verður fórn-
arlamb, hann deyr,“ segir Kúklína.
Yfirmönnum stendur á sama
Hermannamæðurnar saka yfir-
menn rússneska hersins um að
standa hjartanlega á sama um
óbreyttu soldátana.
„Það er ekki tekið neitt tillit til
lífs hermannanna, öryggis þeirra og
mannréttinda. Þeir eru meðhöndl-
aðir eins og þrælar, þeir em pyntað-
ir og auðmýktir. Venjulegt fólk get-
ur ekki gert sér í hugarlund þá nið-
urlægingu sem hermennimir verða
fyrir,“ segir ída Kúklína.
ída er ekki í nokkrum vafa um
hvers vegna rússneskur almenning-
ur styður stríðsreksturinn jafnein-
dregið og raun ber vitni. Jú, ríkis-
apparatið hefur gert allt sem það
getur til að fjarlægja allt og alla sem
mæla í móti stríðsrekstrinum.
Gagnrýnisraddir heyrast ekki í fjöl-
miðlunum og hermönnunum er lof-
að svimandi háum launum, á rúss-
neskan mælikvarða, eða sjötíu þús-
und krónum á mánuði, fyrir að fara
í stríð. En peningarnir láta hins
vegar á sér standa.
Kunni ekki á handsprengjur
Þótt of hættulegt sé fyrir mæð-
urnar að taka sér ferð á hendur til
Tsjetsjeníu eru þeim aðrar leiðir
færar til að berjast fyrir lífi sona
sinna. Hermannamæðrasamtökin
veita lögfræðiaðstoð þeim mæðram
sem vilja leita til dómstólanna til að
fá syni sína leysta undan herþjón-
ustu.
Að sögn ídu Kúklínu er heilsufar
hermannanna svo slæmt að næst-
um þriðji hver þeirra er í raun
óhæfur til að gegna hermennsku.
Þá berjast mæðrasamtökin fyrir
bættri aðstoð við fyrrverandi her-
menn. í því sambandi sýnir ída
tvær myndir af hermanni sem fékk
handsprengjur með í útbúnaði sín-
um.
„Hann kunni ekki að nota hand-
sprengjurnar af því að honum hafði
ekki verið kennt það. Hann missti
því bæði handleggi og fótleggi. Og
það sem er á leggjunum á honum
eru gervjlimir. Hann getur aðeins
staðið uppréttur á þeim en ekki
gengið. Þannig eru gervilimirnir
sem hermenn í Rússlandi fá,“ segir
ída.
Herinn allt of hættulegur
Æðsti draumur rússnesku her-
mannamæðranna er að breytingar
verði gerðar á herþjónustunni. Þær
vilja að herskyldan verði afnumin
og stofnaður verði atvinnumanna-
her.
„Öryggi lands okkar er ógnað af
því að herinn verður alltaf hættu-
legri. Og aðstæður hermannanna
verða alltaf verri og verri. Það eina
sem dugar er að fá atvinnumanna-
her. Það er eina leiðin til að fá rík-
ið til að koma fram við hermennina
á ábyrgan hátt,“ se'gir Ida.
Innan samtaka hermannamæðr-
anna eru nú sextiu deildir um allt
Rússland. Konurnar vinna með um
eitt hundrað og fimmtíu samtökum
sem berjast fyrir mannréttindum.
„Rússar eru smám saman að
verða þreyttir á stríðsrekstrinum.
Við merkjum það á þvi að sífellt
fleiri mæður koma nú til okkar,“
segir ída. Hún óttast þó að það stoði
lítt því innan ríkiskerfisins sé al-
mennt samkomulag um að styðja
stríðið.
„Það er ekki nein andstaða eins
og í síðasta stríði,“ segir ída Kúk-
lína.
Hún segir að herinn vilji ekki
friðsamlega lausn á deilunni. Rúss-
neskir hershöfðingjar hafa líka síð-
ustu daga krafist þess að ekki verði
hætt að berjast fyrr en fullnaðarsig-
ur verði unninn á uppreisnarmönn-
um múslima í Tsjetsjeníu. Hers-
höfðingjarnir vilja ekki fara heim
með skottið mUli lappanna eins og
eftir átökin 1994 til 1996.
Byggt á Politiken o.fl.
afsláttur af hreinlætís- og blöndunarttekjum
Gerðu góð kaup á hreinlætistækjadögum Húsasmiðjunnar. Komdu og fáðu faglega ráðgjöf.
Skráðuþig& / vefklúbbinn www.husa.is HU! Slmi 52 IAN husa.is
Rússneskur hermaður sýslar með skotfæri í stóra fallbyssu nærri þorpinu
Nóvólaskoje í Dagestan, skammt frá landamærunum að Tsjetsjeníu. Þaðan
skutu Rússar á uppreisnarmenn múslíma sem þeir hafa verið að berjast
pegn undanfarnar vikur. Mæður rússneskra hermanna kvarta sáran undan
aðbúnaði sona sinna á vígvellinum í Tsjetsjeníu.