Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1999, Blaðsíða 62

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1999, Blaðsíða 62
LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1999 UV afmæli__________________ Guðmundur Jónsson Guömundur Jónsson píanókenn- ari, Löngubrekku 41, Kópavogi, er sjötugur í dag. Starfsferill Guðmundur fæddist í Reykjavík. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1949, prófi í forspjallsvísindum frá HÍ 1950, stundaöi frönskunám við HÍ einn vetur, var við nám í píanó- leik hjá Gunnari Sigurgeirssyni 1939-41, hóf nám hjá Tónlistarskól- anum í Reykjavík 1941 og lauk það- an prófi 1948 þar sem hann lagði einkum stund á píanóleik en aðal- kennari hans þar var Árni Krist- jánsson, var í einkatímum í píanó- leik hjá Árna Kristjánssyni og Rögnvaldi Sigurjónssyni 1948-50, hóf nám við Tónlistarháskólann í Paris 1950 og lauk þaðan prófi 1953. Guðmundur var píanókennari við Tónlistarskólann í Reykjavík 1953-61, skólastjóri Tónlistarskóla Rangæinga 1970-71, söngkennari barna- og unglingaskólans á Hvols- velli og Hellu 1970-71 og píanókenn- ari við Tónlistarskólann í Kópavogi 1971-94. Guðmundur var framkvæmda- stjóri jámvöruverslunarinnar Jes Zimsen hf. 1959-70, dag- skrárfulltrúi við tónlist- ardeild ríkisútvarpsins 1971-78 og á sumrin um skeið frá 1980 en hann hafði vikulega tónlistar- þætti í útvarpi um nokkurra ára skeið. Guðmundur var í Fé- lagi jámvöru- og búsá- haldakaupmanna 1959-70, var fulltrúi Fé- lags islenskra tónlistar- manna á fundum Bandalags islenskra listamanna og var for- maður Félags tónlistarkennara 1981-82. Guðmundur hefur haldið opin- bera einleikstónleika og tónleika með einleikuram og söngvumm. Þá hefur hann komið fram sem einleik- ciri með Sinfóníuhljómsveit íslands og i útvarpi og sjónvarpi, bæði sem einleikari og með öðram. Guðmund- ur hefur haldið fyrirlestra við Hf um franska tónlist og skrifað blaða- og tímaritsgreinar um tónlist. Fjölskylda Fyrri kona Guðmundar er Hulda Auður Kristinsdóttir, f. 13.2. 1932, húsmóðir. Hún er dóttir Kristins Helgasonar, bifreiðar- stjóra í Reykjavík, og Helgu Níelsdóttur ljós- móður. Guðmundur og Hulda Auður slitu sam- vistum. Böm Guðmundar og Huldu Auðar eru Auður Eir, f. 10.11. '1951, deild- arstjóri við íslands- banka; Guðmundur Kristinn, f. 9.1. 1955, símvirki í Kanada; Helga Kristín, f. 25.12.1955, húsmóð- ir í Njarðvík; Þórdís, f. 19.8. 1968, rafeindavirki og myndlistarkona á Seltjamarnesi. Seinni kona Guðmundar er Ingi- björg Þorbergs, f. 25.10. 1927, tón- skáld, söngkona og kennari, dóttir Þorbergs Skúlasonar, skósmíða- meistara í Reykjavík, og k.h., Krist- jönu Sigurbergsdóttur húsmóður. Foreldrar Guðmundar vom Jón Guðmundsson, f. 24.10. 1893, d. 7.1. 1959, verslunarstjóri í Reykjavik, og k.h., Kristín Pálmadóttir, f. 14.8. 1902, d. 2.7. 1982. Ætt Jón var sonur Guðmundar, b. á Breiðabólstað í Ölfusi Guðmunds- sonar, b. í Lambhaga Guðmunds- sonar, b. í Fróðholtshjáleigu Guðna- sonar, b. í Gerðum í Landeyjum Fil- ippussonar. Móðir Guðmundar í Lambhaga var Katrín, dóttir Sveins Guðbrandssonar, b. í Gröf, og Guð- ríðar Filippussonar. Móðir Guð- mundar á Breiðabólstað var Arndís, systir Guðlaugar, langömmu Jóns Dalbú, sóknarprests í Laugarnes- prestakalli. Hálfbróðir Arndísar, sammæðra, var Jón, b. á Stóra-Hofi, langafi Kristínar, móður Þórðar Friðjónssonar ráðuneytisstjóra. Arndís var dóttir Jóns Jónssonar, b. á Stóra-Hofi og Ingibjargar Narfa- dóttur. Móðir Jóns verslunarstjóra var Þórdís, dóttir Tómasar Ólafssonar, b. á Vestra-Fróðholti, og Guðrúnar Jónsdóttur, b. á Hamrahól í Holtum Gunnarssonar, b. á Sandhólaferju, bróður Rannveigar, langömmu Magdalenu, langömmu Jónasar Kristjánssonar, ritstjóra DV. Kristín var dóttir Pálma Péturs, sjómanns í Reykjavík Sigurðssonar. Guðmundur Jónsson. Heiðar Þór Guðnason Heiðar Þór Guðnason, forstöðu- maður tölvuþjónustudeildar ís- lenskrar erfðagreiningar, Víði- hvammi 5, Kópavogi, verður fertug- ur á morgun. Starfsferill Heiðar fæddist í Reykjavík en ólst upp í Garðabæ þar til hann hleypti heimadraganum. Hann útskrifaðist í rafeindavirkjun frá Iðnskólanum í Reykjavík og er rafeindavirkja- meistari. Heiðar hefur sótt fjölda námskeiða og ráðstefnur bæði inn- anlands og utan og hefur tekið þó nokkur MCP-próf. Hann hefur ódrepandi áhuga á tölvum og bún- aði tengdum þeim. Heiðar byrjaði að vinna við tölvu- þjónustu hjá Kristjáni Ó. Skagfjörð 1981 sem var þá með umboðið fyrir Digital-tölvur. Hann fylgdi Digital- umboðinu á milli starfsstaða, til Ör- tölvutækni, því næst til GSS á ís- landi, þá aftur til Örtölvutækni og þaðan yfir til Digital á íslandi. Starfssvið hans var vélbúnaðarvið- gerðir og hugbúnaðarþjónusta með sérstakri áherslu á Microsoft-hug- búnað. Hjá Digital á íslandi var Heiðar þjónustustjóri. Við samrana Digital á íslandi og Tæknivals hóf Heiðar störf hjá ís- lenskri erfðagreiningu í árslok 1998 og er þar forstöðumaður tölvuþjón- ustudeildar. Heiðar var í stjóm Félags ís- lenskra skriftvélavirkja og Félags íslenskra rafeindavirkja. Fjölskylda Heiðar kvænist í dag, 13.11. 1999, sambýliskonu sinni, Katrínu Norð- mann Jónsdöttur, förðunarfræðingi og tryggingasölumanni hjá Samlíf. Foreldrar Katrinar voru Jón Sveinsson, f. á Siglufirði 2.4.1928, d. 13.3. 1995, og Grete Sveinsson, f. í Bogense í Danmörku 16.6. 1935, d. 26. nóv. 1984. Sonur Heiðars og Katrínar er Ar- on Breki, f. 12.1. 1998. Bræður Heiðars era Kristján Henry Guðnason, f. 5.3. 1958, jám- iðnaðarmaður hjá Stál-Orku í Hafn- arfirði; Agnar Jón Guðnason, f. 21.6. 1966, nemi í iðntæknihönnun í Skövde í Sviþjóð. Foreldrar Heiðars eru Guðni Kristinn Sigurðsson, f. i Reykjavik 9.12. 1938, bifvélavirkjameistari, og Ki-istíana Kristjánsdóttir, f. á Siglu- firði, 24.1. 1937, læknaritari við Heilsugæslu Kópavogs, Hvamm. Ætt Foreldrar Guðna voru Vilborg Jónsdóttir, ljósmóðir í Garðahreppi, Reykjavík og Seltjarnamesi, og Sig- urður Marteinsson, bifreiðastjóri á Hreyfli. Foreldrar Kristíönu vora Krist- ján S. Hallgrímsson, beykir og sild- armatsmaður á Siglufirði, og Kaia Hallgrímsson, saumakona og hús- móðir, fædd á Melöj í Noregi. r Olafur Magnús Halldórsson Ólafur Magnús Halldórsson vöra- bilstjóri, Heiðarási 23, Reykjavík, er fertugur í dag. Starfsferill Ólafur fæddist á ísafirði og ólst upp á Hnífsdal og á ísafirði þar sem hann var búsettur til 1990 er hann flutti til Reykjavíkur. Hann lauk gagnfræðaprófi á ísafirði 1975. Ólafur hefur stundað ýmis störf frá barnsaldri. Hann vann við smíð- ar hjá afa sínum, Geirmundi Júlíus- syni, og vann við fisk- og rækju- vinnslu á unglingsárunum. Þá ók hann öskubíl hjá fóður sínum sem sá um sorphirðu á ísafirði um ára- bil. Ólafur ók síðan mjólkurbíl hjá Gunnari og Ebenezer til 1987 og var þá jafnframt til sjós á vetrum ef ófært var fyrir mjólkurbílinn. Hann festi kaup á Sómabát 1987 og reri það sumar en seldi bátinn 1988 og festi þá kaup á vörabíl sem hann ók til haustsins 1989. Ólafur stofnaði vöruflutningafyr- irtækið Vöruflutningar Ólafs M. Halldórssonar haustið 1989. Ári síð- ar breytti hann nafninu og stofnaði, ásamt Kristni Ebenezerssyni, ísa- fjarðarleið hf. Þeir félagar seldu Eimskipafélaginu 60% fyrirtækisins 1996 og ári síðar seldi Ólafur sinn hlut í fyrirtækinu. Hann hætti akstri hjá fyrirtækinu í árslok 1997, festi síðan kaup á trailer-vörubíl sem hann hefur ekið síðan á vegum eigin fyrirtækis, Fljótavikur ehf. Þá festi hann kaup á beltagröfu, ásamt tveimur öðrum bílstjóram. Grafan er starfrækt og leigð út af fyrirtækinu Hlöðuvík ehf. Fjölskylda Ólafur kvæntist 29.9. 1984 Hörpu Böðvarsdóttur, f. 10.3.1963, húsmóð- ur. Hún er dóttir Böðvars Jóhanns- sonar, atvinnurekanda á Akranesi, og Þórunnar Guðmundsdóttur, hjúkranarfræðings á Isafirði. Kona Böðvars er Elsa Ingvars- dóttir, verslunarmaður á Akranesi, en maður Þórannar er Tryggvi Guð- mundsson, lögfræðingur á ísafirði. Börn Ólafs og Hörpu eru Vignir Þór Ólafsson, f. 22.6. 1983; Guðný Eygló Ólafsdóttir, f. 6.4. 1985; Ágúst Elí Ólafsson, f. 14.5. 1994. Systkini Ólafs eru Lilja Hrönn Halldórsdóttir, f. 23.7. 1957, búsett í Reykjavík; Sigurlaug Regína Hall- dórsdóttir, f. 19.2. 1962, starfsmaður hjá íslandspósti í Reykjavík en mað- ur hennar er Halldór Sveinn Hauksson, f. 24.2. 1961, starfsmaður hjá Vegagerð ríkisins; Sigríður Ólína Halldórs- dóttir, f. 8.9. 1964, hús- móðir, gift Lech Pasdak, f. 10.5. 1957, verkfræð- ingi hjá Reykjavíkur- borg; Hafþór Halldórs- son, f. 23.8. 1965, at- vinnurekandi, kvæntur Sigurbjörgu Guðmunds- dóttur, f. 2.6. 1966, starfsmanni hjá íslands- pósti í Reykjavík; Krist- jana Halldórsdóttir, f. 25.5. 1970, búsett í Reykjavík. Foreldrar Ólafs eru Halldór Geir- mundsson, f. 29.1.1930, leigubílstjóri á Hreyfli, búsettur í Kópavogi, og k.h., Guðný Eygló Hermannsdóttir, f. 20.6. 1941, starfsmaður við Kárs- nesskóla. Þau bjuggu á ísafirði til 1992 en eru nú búsett í Kópavogi. Ætt Halldór er sonur Geirmundar, trésmiðs í Hnífsdal Júlíussonar, b. á Atlastöðum í Fljótavík Geirmunds- sonar, b. á Atlastöðum Guðmunds- sonar, b. í Kjaransvík Snorrasonar, b. í Hælavik Brynjólfs- sonar. Móðir Geir- mundar á Atlastöðum var Sigurfljóð Isleifs- dóttir. Móðir Geir- mundar trésmiðs var Guðrún Jónsdóttir, húsamanns í Steinstúni Guðmundssonar, á Dröngum Ólafssonar, á Eyri við Ingólfsfjörð Andréssonar. Móðir Guðmundar á Dröngum var Guðrún Bjömsdótt- ir. Móðir Guðrúnar Jónsdóttur var Elísa Ólafsdóttir, frá Ósi Ólafssonar. Móðir Halldórs er Guðmunda Regína Sigurðardóttir, útvegsb. á Látrum Þorkelssonar, og Ólínu Sig- urðardóttur, útvegsb. á Látrum Gíslasonar. Guðný er dóttir Hermanns, sonar Áma Gíslasonar, frá Leira í Jökul- fjörðum, og Guðrúnar Jóhannes- dóttur. Móðir Guðnýjar er Sigur- laug Herdís, dóttir Friðriks Finn- bogasonar, b. í Efri-Miðvík, og Þór- unnar Maríu Þorbergsdóttur. Ólafur Magnús Halldórsson. Til hamingju með afmælið 13. nóvember 90 ára ísleifur Ólafsson, Skjólvangi Hrafnistu, Hafnar- firði. 85 ára Jóhanna Jóhannsdóttir, Haga, Selfossi. Lára Halldórsdóttir, Mýrargötu 18a, Neskaupstað. 80 ára Bjarney Guðrún Hinriksdóttir, Grettisgötu 7, Reykjavik. Guðmundur Guðmundsson, Hvassaleiti 46, Reykjavík. Helga Bjömsdóttir, Lindasíðu 4, Akureyri. Ingibjörg Kristjánsdóttir, Kópavogsbraut lb, Kópavogi. Pálína Sigurrós Guðjónsd., Munaðamesi 1, Norðfirði. 75 ára Anna Helgadóttir, Uppsölum, Blönduósi. 70 ára Bjamfríður Sigurðardóttir, Austurbrún 6, Reykjavík. Helga Kristín Magnúsdóttir, Löngumýri 19, Akureyri. 60 ára Ásdís Bjamey Óskarsdóttir, Mávabraut 4a, Keflavík. Steingrímur Ingvarsson, Fagurgerði 10, Selfossi. William Þór Hagalin, Háeyrarvöllum 54, Eyrarbakka. 50 ára Hallgrímur Kristjánsson, Holtastíg 12, Bolungarvík. Jón Alfreðsson, Markarflöt 19, Garðabæ. Kristinn Eymundsson, Víghólastíg 4, Kópavogi. Ragnar Tómasson, Vogsholti 8, Raufarhöfn. Rúnar Bjami Jóhannsson, Hvammabraut 4, Hafnarfirði. 40 ára Aðalsteinn Pétxu’sson, Fellshlíð, Húsavík. Ágúst Ingi Sigurðsson, Hraunbæ 42, Reykjavík. Ásdis Júliusdóttir, Hátúni 34, Keflavík. Kristinn Guðni Ólafsson, Teigaseli 4, Reykjavík. Ólafur Garðarsson, Nesbala 94, Seltjarnarnesi. Sigurður Haukur Harðarson, Krókamýri 50, Garðabæ. Soffía Rósa Gestsdóttir, / (Jrval - gott í hægindastólinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.