Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1999, Qupperneq 32
Allir karlmenn sem sóttu
hverfiskrána voru á einu máli um
að George Tyler væri stórkostlegur
maður. Þeir nefndu hann Glaða
garpinn. Hann sagði stöðugt
skemmtilegar sögur og var hrókur
alls fagnaðar. Og væri hann með
nóg fé á sér bauð hann félögum sín-
um gjaman í glas. Þau voru því
mörg kvöldin sem hann og félagar
hans sátu saman yfir bjórkrúsum á
kránni. Þá varð það ekki til að
draga úr vinsældum Glaða garpsins
að hann átti íbúðarpramma á skipa-
skurðinum í Colchester og þangað
bauð hann oft félögum sínum og þá
var drukkið og dansað.
Hin hliðin
Þetta var sú
hlið sem sneri
að félögum Ge-
orges. En öðru
máli gegndi á
heimili hans.
George, sem
var fjörutíu og
fimm ára er
hér var komið
sögu, var erf-
iður maður
heima fyrir,
svo ekki sé
meira sagt.
Konan hans og
dóttir þekktu
ekki Glaða
garpinn. Þær
nefndu heimil-
isfoðurinn
Skrímslið, því
í samskiptum
sínum við
mæðgurnar
var hann stutt-
ur í spuna, of-
beldisfullur og
gersamlega
óútreiknanleg-
ur.
George átti
gæludýr en
þau voru
nokkuð sér-
stök. Hann átti
hvorki hunda
né ketti heldur
kóngulær og
slöngur. Og
stundum mátti
halda að
helsta skemmt-
un hans á heimil-
inu væri að sjá hve kona hans og
dóttir hræddust þessi frekar óhugn-
anlegu dýr.
Ekki bætti það ástandið á heimil-
inu að George var atvinnulaus.
Hann var á bótum. Þær runnu ein-
göngu i hans vasa en þar eð kona
hans og dóttur unnu báðar sýndi
hann lítinn áhuga á að fá sér starf
og sótti fé í þeirra vasa til þess að
geta átt góðar stundir á kránni með
félögunum.
Á skrá hjá lögreglunni
Lögreglunni var kunnugt um
margt í fari Georges Tyler. Alloft
hafði komið fyrir að hún hafði ver-
ið kvödd á heimiliö eftir að til átaka
kom þar. Eftir að Glaði garpurinn
hafði slegið ungaii lögregluþjón niö-
ur við eitt slíkt tækifæri fóru aldrei
færri en þrír vel sterkir lögreglu-
þjónar heim til hans ef mæðgurnar
gerðu boð eftir vörðum laganna til
að stilla til friðar. Þá bárust lögregl-
unni oft kvartanir frá nágrönnum
fjölskyldunnar sem fóru eitt sinn
fram á að henni yrði fundinn nýr
samastaður svo ró gæti komist á. Af
því hafði þó ekki orðið er kom að
því atviki sem hér er sagt frá. Það
gerðist í september 1985.
Þær mæðgur, Kathleen, sem var
fjörutíu og tveggja ára, og Karen,
nítján ára, höfðu verið mjög kvíðn-
ar allan síðari hluta dags. I hádeg-
inu hafði George komið heim með
miklum látum og heimtað alla pen-
inga í húsinu. Hann sagðist ætla út
að drekka því sér hefði verið sagt að
konan hans, Kathleen, hefði haldið
fram hjá sér. Einn félaga hans á
kránni hefði sagt honum það. Geor-
ge hirti það fé sem hann fann og
hvarf svo á braut.
Kviðu heimkomunni
Hvort Tyler trúði því í raun að
konan hans hefði tekið fram hjá
honum eða notaði aðeins söguna til
þess að komast yfir peninga til að
mæðgur að öðru leyti og var haft á
orði að það væri sem hann vildi
eigna sér þær með öllu.
Árásin
<■
Eftir langa bið heyrðu þær
Kathleen og Karen að George var að
koma heim. Nú myndi hann vera
drukkinn og æstur og vafalaust
vilja gera upp sakimar. Þær heyrðu
hann opna útidymar og ganga inn
fyrir. í smástund virti hann konu
sína fyrir sér en svo réðst hann á
hana og hrinti henni til hliðar. Þá
sneri hann sér að Karen, en hún sá
sitt óvænna og hljóp út úr húsinu.
En hún var ekki komin langt þegar
hún heyrði móður sína æpa. Um
leið gerði Karen sér ljóst að hún var
enn með hníf í vasa sínum, en hann
hafði hún notað í eldhúsinu fyrr um
daginn.
Hún sneri við og fór aftur inn í
húsið. Það var eins og faðir hennar
hefði séð fyrir að hún myndi snúa
aftur. Hann beið hennar á bak við
hurð og kastaði sér yfir hana með
sigurhrópi. Svo sló hann hana niður
með hnefahöggi og tók hana háls-
taki.
Karen fann að hert var að hálsin-
um. Hún teygði sig í vasann, tók
fram hnífinn og rak hann í síðu fóð-
ur sína. En það nægði ekki til að
hann sleppti takinu á hálsi hennar.
Þá kom Kathleen dóttur sinni til
hjálpar og dró hinn særða eigin-
mann sinn frá Karen sem barðist
um af öllum kröftum.
Frekari átök
Karen.
fara með á krána kom aldrei fram.
En það var staðreynd að hann hafði
haft stór orð um það sem hann
myndi gera þeim
mæðgum þegar hann
kæmi heim aftur. Þá
skyldu þær fá að vita
hvar Davíð hefði
keypt ölið. Þetta gerði
biðina eftir heim-
komu Georges enn erf-
iðari og það bætti ekki
úr skák að Kathleen
vissi að maður hennar
hafði fengið að
heyra sann-
leikann. Hún
hafði haldið
fram hjá honum. Og
það var ekki nóg með
það. Karen hafði
kynnst ungum manni
sem hún ætlaöi aö gift-
ast. En hvorug þeirra mæögna hafði
haft kjark til að gera hreint fyrir
sínum dyrum af ótta við afleiðing-
arnar. Þær voru vissar um að þær
yrðu slæmar. Þannig hefði það eitt
að Karen færi af heimilinu í för með
sér aö laun hennar hættu að renna
í fjölskyldusjóðinn og þannig yrði
George af nokkru fé sem hann hafði
til þessa getað notaö til eigin þarfa.
Að lokum er þess að geta að hann
virtist hafa mikla þörf fyrir þær
Er hér var komið var þeim mæðg-
um ljóst hve alvarleg staðan var.
Eftir ofbeldið, drykkjuna og tillits-
leysið undanfarin ár lá heimilsfaðir-
inn í blóði sínu á gólfinu og af sár-
inu mátti sjá að líf hans
var í hættu. Það skipti
þær því öllu að koma
_________ honum sem fyrst á
sjúkrahús. Það yrði síð-
an að ráðast hverjar afleiðingamar
yrðu eftir það sem nú hafði gerst.
Kathleen hringdi á sjúkrabíl.
Hann kom mjög fljótlega en þó Ge-
orge væri hættulega særður lét
hann það ekki koma í veg fyrir að
hann reyndi að slást við sjúkralið-
ana. Þeir komu honum þó á spítala
en þá tók það sama við. George
reyndi að slást við læknana og
hjúkrunarfólkiö. Öll þessi áreynsla
dró að sjálfsögðu enn frekar úr hon-
um mátt og tveimur
tímum eftir kom-
una á spítalann
var hann allur.
Lögreglumenn
komu til mæðgn-
anna rétt eftir að
sjúkraliðarnir
höföu farið með
George Tyler. Þær
greindu frá því
sem gerst hafði.
Var því frá upp-
hafi ljóst að málið
myndu koma til
kasta saksóknara-
embættisins og
þegar George dó lá
fyrir að annað
hvort yrði ákært
fyrir manndráp eða morð. Líklegast
þótti að um manndrápsákæru yrði
að ræða því Karen haföi átt hendur
sínar að verja. Þá þekkti lögreglan
það vel til heimilisins að hún dró
ekki í efa hvert ástandið hafði verið
á heimilinu er til tíðindanna dró.
Harður dómur
Haft var eftir talsmönnum lög-
LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1999 JjV
reglunnar að þar á bæ hefði mönn-
um þótt leitt að þurfa að standa að
kæru á Karen. En hjá því varö ekki
komist. En áður en saksóknari gat
skotið málinu til dóms kom í ljós að
Karen var ólétt og var því ákveðið
að fresta réttarhöldunum þar til
barniö fæddist.
Flestir þeir sem þekktu til heimil-
islífs Tylers-fjölskyldunnar bjuggust
við því að Karen fengi skilorðsbund-
inn dóm. Sú skoðun styrktist þegar
kviödómur fann hana seka um
manndráp en ekki morð. Hún hefði
gripið til hnífsins vegna þess hve al-
varlega henni hefði verið ógnað.
Er kom að dómsuppkvaðingu tók
dómarinn, McCowan, aðra stefnu en
flestir höfðu vænst. Hann dæmdi
Karen til fjögurra ára frelsissvipt-
ingar og lét færa hana í Holloway-
fangelsiö en það þykir með þeim
verstu á Bretlandi, enda eru þar
margar harösvíruðustu afbrotakon-
ur landsins.
inn í vasanum. Það kallaði aftur á
þann dóm sem hún fengi nú.
í þessu sambandi væri ekki hægt
að taka tillit til að móðir hennar
hefði kallað á hjálp.
Þessi skýring varð umdeild.
Margir tóku dóminum illa og málið
fékk umfjöllun í blöðum. Bresk
kvennasamtök létu það til sín taka
og sendu frá sér mótmæli. Og í
einkasamtölum viðurkenndu
nokkrir hjá lögreglunni að hinn
harði dómur yfir Karen hefði komið
þeim á óvart.
Niðurstaðan
Mótmælin sem höfð voru uppi,
ekki síst af hálfu kvennasamtak-
anna og nágranna Tylers-fjölskyld-
unnar, urðu til þess að yfirvöld
gripu í taumana. Vera Karenar í
Holloway-fangelsinu var stytt. Hún
var flutt þaðan í opið kvennafang-
elsi þar sem hún
fékk að hafa
barn sitt hjá
sér. Næsta
skref kvenna-
samtakanna
var að fá lög-
menn á
þeirra vegum
til að sækja
um náöun
sem allra
fyrst. Hún
fékkst. Karen
fékk því
lausn og hóf
nýtt líf með
baminu, dótt-
urinni
Stacey, og
bamsföður
sínum.
Skýringar og
viðbrögð
Dómarinn sagði
að vísu að Karen
hefði verið undir
miklu álagi þegar
hún beitti hnífn-
um. En hún hefði
gert sér grein fyrir
því sem hún var
að gera þegar hún
sneri aftur til
hússins með hníf-
Stacey og
unnusti Karenar.
\