Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1999, Qupperneq 36

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1999, Qupperneq 36
LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1999 36 helgarviðtal ' 'w ik Nálastungur með leyfi landlæknis: Austur og vestur mæ kínverskur prófessor gerir tilraunir með íslenskum læknum á Heilsustofnun NLFI í Hveragerði Nálastungur, líkar þeim sem kín- verskir læknar hafa stundað í rúm 2000 ár, hafa á sér yfírbragð skottu- lækninga og hjáfræða í vitund margra. Að jafnaði leggjast vestræn- ir læknar og heilbrigðisyfirvöld frekar gegn slíku kukli en til eru undantekningar. Á heilsuhælinu í Hveragerði er nýlega hafin tilraun með nálastungumeðferð sem á að vara í heilt ár. Þar vinna saman ís- lenskir læknar með leyfi landlækn- isembættisins og kínverskur pró- fessor í nálastungum. DV skrapp austur þar sem menn voru á nálum. „Okkar markmið er í sem stystu máli að kynna þessa kínversku læknisfræði fyrir íslenskum lækn- um og fræðast um hana sjálfir. í þvi skyni fengum við hingað til lands prófessor Hu Minghai frá Tianjin- læknaskólanum í Kína sem er mjög framarlega á sínu sviði. Hann mun starfa mjög náið meö okkur næsta árið og við munum gera tilraunir með nálastungur sem verkjameð- ferð,“ sagði Guðmundur Bjömsson, yfirlæknir á Heilsustofnun Náttúru- lækningafélags íslands í Hvera- gerði, en þar hefur Hu Minghai nú starfað um nokkurra vikna skeið. „Markmið með samstarfi okkar er að komast að þvi hver áhrif hefð- bundnar kínverskar nálastungur hafa á sársauka í því umhverfi sem við störfum í. Þess vegna verður nálastungum beitt hér á ákveðinn hóp sjúklinga sem hluta af annarri meðferð. Hér er fjöldi sjúklinga hverju sinni sem eru í endurhæf- ingu eða meðferð við vöðvabólgu, brjósklosi og bakmeinum og álags- meiðslum af ýmsu tagi. Það era einkum þessir sjúklingar sem þjást oft af miklum verkjum sem munu fá þessa meöferð. Markmiðið er að þeim líði betur og þurfi minna á verkjalyfjum að halda en nálastung- umar virðast bæði draga úr bólgum og sársauka og hækka sársauka- þröskuld sjúklinganna." Guðmundur sagði að niöurstöð- umar yrðu siðan kynntar en unnið væri út frá þeirri tilgátu að nála- stungur hefðu jákvæð áhrif í þá átt að draga úr verkjum. Nálastungur fara þannig fram að 3-A sentímetra löngum hárfinum nálum er stungið í líkama sjúklings á ákveðnum punktum. Það fer eftir eðli sjúkdóms hvaða punktar eru ertir. Nálamar em látnar vera í sjúklingnum 20-30 mínútur í senn og annað veifið er þeim snúið eftir kúnstarinnar reglum. „Við veljum þá sjúklinga hér sem taka þátt í tilrauninni og það gekk mjög vel að fá sjálfboðaliða. Það em síðan notuð hefðbundin spuminga- próf til að mæla hver áhrif meðferð- in hefur á verkina." Ráðherra kemur í heimsókn Forsaga málsins, að sögn Guð- mundar og Áma Gunnarssonar, framkvæmdastjóra stofnunarinnar, var sú að Ólafur Egilsson sendi- herra hafði'áhuga á því að efla sam- starf íslands og Kína á sviði heil- brigðismála. Það leiddi síðan til þess aö þegar ráðherra heilbrigðis- mála í Kína var í opinberri heim- sókn á íslandi kom hann í heim- sókn á heilsustofnunina i Hvera- gerði. Þetta var allt með ráðum gert því mönnum þótti réttilega að heilsuhælið gæti verið góður vett- vangur fyrir samstarf milli land- anna um óhefðbundnar lækningar. Síðar kom boð frá kínverskri rík- isstofnun, Sinopharm, sem annast allan útflutning og innflutning á því sem varðar kínversk heilbrigðismál og sjúkrastofnanir. Sinopharm vildi fá íslendinga í heimsókn til ráðgjaf- ar um það hvemig best yrði komið á fót heilsuhælum í Kína sem líkt- ust því sem ráðherrann hafði séð í Hveragerði. Það varð úr að Ámi og Guðmundur reistu austur til Kína í nokkurs konar kynnisferð. „Við sáum margt fróðlegt i þess- ari för þótt við gætum ef til vill ekki ráðlagt þeim mjög mikið. Við sáum fáar stofnanir sem hentuðu undir líka starfsemi og hér fer fram og verulegur ágalli er að þá vantar heitt vatn og gufur sem hér nýtast mjög vel sem hluti meðferðar." Landlæknir veitti leyfi Afrakstur ferðarinnar var marg- þættur en þó helstur sá að Sinopharm tók að sér að útvega heilsuhælinu sér- fræðing á sviði nálastungulækninga og senda hann til íslands í ársdvöl en fleira sem vannst í ferðinni á eftir að kynna síðar. Það tók nokkum tíma að finna einhvem sem væri nógu vel mæltur á enska tungu til að bera hróður kínverskra vísinda um heim- inn en það tókst í Hu Minghai. Ming- hai hafði ekki áður komið út fyrir landamæri Kína og ísland er því eina landið sem hann hefur heimsótt utan heimalands síns ef frá er talin stutt viðdvöl á Kastrup-flugvelli í Kaup- mannahöfn. „Við sóttum um leyfi til land- læknisembættisins til þess að fá Minghai til starfa hérlendis í eitt ár. Embættið veitti leyfið góðfúslega og við erum afskaplega ánægðir með stuðninginn og viðtökurnar sem er- indi okkar fékk. Best þætti okkur ef eiginkona hans og sonur gætu kom- ið í heimsókn." Saknar fjölskyldunnar Hu Minghai á eiginkonu og níu ára gamlan son austur í Beijing en konan hans er lyfjafræðingur. Hu saknar þeirra ákaflega mikið en meðan tölvusamband er ekki komið á með kínverskum táknum verða bréfaskriftir að nægja. Kona Hu á ekki heimangengt vegna skólagöngu sonarins en ferðafrelsi Kínverja er háð ströngum reglum eins og kunn- ugt er. „Mér finnst landið fallegt," segir Hu Minghai á bjagaðri ensku. „Það er veörið sem mér finnst ekki eins fallegt. Ég er vanari því að sumrin séu mjög heit og veturnir heima era mjög kaldir, allt að 10 stiga frost en það rignir ekki svona oft.“ Að sögn Guömundar leggur pró- fessor Hu sig mjög fram um að verk- efnið gangi eins vel og kostur er. „Hann hefur afskaplega góða nær- vera og nær ótrúlega vel til sjúkling- anna þótt munnleg samskipti viö þá séu takmörkuð enn sem komið er.“ Hann vinnur mikið, stundar lík- amsrækt, s.s. hlaup og gönguferðir, og hefur einu sinni farið með starfs- félögum sínum í Kringluna. „Ég er ekki viss um að hann hafi trúað öllu sem fyrir augu bar þcu:,“ segir Guðmundur. „Meiri undrun- arsvip hef ég sjaldan séð.“ Læknar almennt íhalds- samir Guðmundur hefur í sjö ár verið yfirlæknir heilsuhælisins í Hvera- gerði en hann sérhæfði sig í endur- hæfingarlækningum og rekstri heilsuhæla og segist ávallt hafa haft mikinn áhuga á óhefðbundnum lækningum i líkingu við nálastung- ur. Guðmundur var í tvö ár formað- ur Læknafélags íslands svo hann þekkir vel viðhorf starfsbræðra sinna til þessara fræða. „Almennt má segja að þeir sem stunda hefðbundnar lækningar á Vesturlöndum séu varkárir og íhaldssamir í garð þessara fræða og þar era íslenskir læknar engin und- antekning. Það er inngróin vísinda- leg nálgun að vilja sjá sannaðar nið- urstöður úr mörgum prófunum áður en ráðum er beitt við sjúkling- inn og ekkert nema gott um það að segja. Það er hins vegar staðreynd máls að nokkur munur er á nála- stungum eins og þær eru stundað- ar á Vesturlöndum og þeim sem stundaðar eru í Kína. Á Vestur- löndum eru menn að stinga í áreitispunkta í taugaendum, „trigger points", og þetta era sömu punktamir og era notaðir í Kína en þeir nota fleiri punkta, aðrar aðferðir og kalla hlutina stundum öðrum nöfnum og tengja sínar nálastungur við heildrænar kenn- ingar sínar um Yin og Yang.“ Fúskarar skapa fordóma . Guðmundur segir að það sé einnig staðreynd að margir aðilar stundi nálastungur og menntun þeirra og reynsla sé mjög mismun- andi. „Það er alls ekki hættulaust að stunda nálastungur og sumir þeirra sem hafa fengist við þetta hafa kom- ið hálfgerðu óorði á þær og vakið fordóma og tortryggni hefðbund- inna lækna.“ Guðmundur segir að meðal þess sem prófessor Minghai ætlar að gera í samvinnu við heilsuhælið sé að halda fyrirlestra og námskeið um nálastungur fyrir íslenska lækna. „Þannig má segja að markmiðið með komu hans sé ekki aðeins að draga úr verkjum hjá sjúklingunum heldur einnig að reyna að draga úr fordómum meðal lækna.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.