Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2000, Blaðsíða 4
4
LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2000
Fréttir
Tónleikagestur útvegaði Elton John Benz og splæsti síðan á hann kaffi:
Þróttarar neituðu
Elton um kaffi
- og aftóku að veita blönkum einkabílstjóranum 20 mínútna greiðslufrest
„Elton var orðið kalt á sviðinu
og bað Simon lífvörð sinn að út-
vega sér kaffi. Simon hringdi í mig
og spurði hvort ég gæti ekki bjarg-
að málinu. Ég hélt það nú, en mál-
ið reyndist flðknara en ég bjóst
viö,“ segir Halldór Einarsson,
einkabílstjóri Eltons Johns, á upp-
stigningardag.
„Kafflð var allt búið niðri þar
sem Elton hafði aðstöðu þannig að
ég hljóp upp til Þróttara með kaffl-
könnu. Ég sagði að Elton John
væri orðið kalt og vantaði hress-
ingu og spurði hvort þeir gætu
ekki hjálpað. Það var þarna kona
sem hélt að það væri ekkert mál en
var stoppuð af þegar önnur kona
kom í spilið. Sú sagði að ef Elton
John vantaði kaffi þá gæti hann
borgað það sjálfur, Þróttarar færu
ekki að splæsa á þann mann,“ seg-
ir Halldór, sem þvi miður var ekki
með krónu á sér.
Halldór segir konuna í kaffi-
sölunni hafa skýrt viðhorf sitt með
frægum deilum Þróttara við tón-
leikahaldarana. „Ég sagðist ekki
taka þátt í þeim heldur aöeins vera
að sinna þessum erlenda gesti. Ég
bætti því við að mér fyndist frekar
neyðarlegt að þurfa að læðast inn á
sviðið þar sem Elton sæti frekar
áberandi við flygilinn og þúsundir
manna að horfa á hann og raunar
ekki treysta mér til að draga vesk-
ið upp úr rassvasanum á honum
án þess að hann fipaðist. Og jafn-
vel þó ég bæði um að mér sjálfum
yrði treyst í 20 mínútur á meðan
ég hlypi með kaffiö og útvegaði
pening kom allt fyrir ekki,“ segir
bílstjórinn, sem á þessu stigi var
farinn að svipast um eftir utanað-
komandi hjálp.
„Ég fann loksins bjargvætt, Páll
Magnússon, framkvæmdastjóra í
Sundi ehf., sem átti leið þarna
fram hjá og splæsti kaffi á Elton.
Það skemmtilega er að Páll er
tengdasonur Óla heitins í Olís og
ég man ekki betur en að Olís hafa
Bara aö skoða!
DV-MYND JÚLlA IMSLAND
Mörgum finnst spennandi aö ganga um kríuvarp og fylgjast meö hvaö þessi litli fugl er að-
gangsharöur viö aö reka þá óvelkomnu burt. Þessar ungu dömur eru vel vígbúnar til aö fara
um varpiö, bara til aö skoöa segja þær.
Syngjandi sæll og glaður
Elton John heillaöi áhorfendur á
uppstigningardag en Þrótturum var
ekki hlátur í huga þegar stjarnan
baö um kaffibolla.
mokað peningum á Þróttarana á
sínum tima þegar þeir stóðu illa og
tengdasonurinn heldur áfram að
styrkja félagið á þennan hátt,“ seg-
ir Hafldór og hlær að búskapar-
háttum Þróttara. Þetta voru reynd-
ar ekki einu afskipti Páls Magnús-
sonar af dvöl Eltons Johns hér á
landi því að sögn Halldórs hafi Páll
milligöngu um að útvega Benzinn
sem flutti goðið um grundir.
Kaffið komst um siðir í hendur
poppstjörnunnar. „Elton varð mjög
kalt en hann var í óheyrilega góðu
skapi og mjög hress. Þegar hann
hljóp af sviðinu var ég búinn að
hita bílinn upp I 26 gráðu hita og
hann var mjög kátur með aö kom-
ast í hlýjuna," segir Halldór.
Syngjandi brandarkall
Halldór ók með Elton þær stund-
ir sem söngvarinn dvaldist í
Reykjavik. Hann segir Elton hafa
dáðst að Haflgrímskirkjutumi og
spurt mikið um byggingar. Þá hafi
land og þjóð borið á góma og Hall-
dór þurfti að beita öllum sínum
sannfæringarkrafti til að poppar-
inn tryði því að íslendingar væru
innan við 280 þúsund talsins.
„Elton er alveg eiturhúmoristi
og hann sneri mikið úr lagatitlun-
um sínum og söng fyrstu línu úr
lagi eftir því sem við átti. Þegar ég
keyrði Elton frá stúkunni og upp
að sviði lagði Simon hart að mér
að keyra svolítið greitt og talaði
svo mikið við mig á leiðinni að ég
næstum keyrði fram hjá hliðinu.
Ég þurfti því að bremsa hressUega
og taka skarpa vinstri beygju. Þá
söng Elton: „I’m a Rocket Man“ og
bætti svo við: „You almost overs-
hot“ og hló eins og vitlaus maður,“
segir einkabUstjórinn sem féU fyr-
ir Elton John.
„Ég hef aldrei verið gefinn fyrir
persónudýrkun þó ég hafi aUtaf
verið hrifinn af tónlistinni hans
Eltons. En karakterinn oUi manni
ekki vonbrigðum því hann reynd-
ist feiknaskemmtflegur náungi. Ég
veit um íslenskar smástjörnur sem
rignir meira upp í neflð á,“ segir
HaUdór Einarsson.
-GAR
Óvenjumikið af kríu
- og Skúmur á flótta
DV, HÓFN I HORNAFIRDI:
Fyrstu kríurnar sem sjást á vorin
koma í Ósland við Homaíjörð og
þar hefur verið talsvert kríuvarp. í
vor hefur veriö óvenjumikið af
kríunni og lítur út fyrir mikið
meira varp en áður hefur verið í Ós-
landi og á stærra svæði en áður.
Bjöm Amarson á Höfn, sem fylgist
vel með fuglunum, segir að fjöldi
annarra farfugla sé svipaður og ver-
ið hefur. Færri skúmar en áður
sjást núna þegar ekið er eftir þjóð-
veginum um Breiðamerkursand og
segir Bjöm skýringuna á því vera
að undanfarin vor hafi mikið verið
rænt af eggjum sem voru nálægt
veginum og nú er skúmurinn farinn
að verpa á miklu stærra svæði, al-
veg með ströndinni austur í Lón.
-Júlía Imsland
DV-MYND ÞOK
Alþjóðamiðstöð nýbúa?
Ein þeirra hugmynda sem nú eru til
skoöunar um framtíö hússins Esjubergs,
Þingholtsstræti 29, er aö nýbúar fái hús-
ið undir alþjóöamiðstöð.
Þingholtsstrætis 29:
Nýbúar fái
Borgarbókasafn
Þeirri hugmynd hefur nú verið
varpað fram innan stjórnkerfis
Reykjavíkurborgar að Þingholtsstræti
29, sem Borgarbókasafnið flytur úr í
sumar, muni framvegis hýsa áform-
aða alþjóðamiðstöð fyrir nýbúa. Hug-
myndinni mun hafa verið komið
óformlega á framfæri við sameigin-
lega nefnd Reykjavíkur, Kópavogs og
Hafnarfjarðar sem ætlað er að fjalla
um samstarf um þjónustu við nýbúa.
Sú nefnd hefur hins vegar enn ekki
tekið tU starfa og m.a. er enn óljóst
hvort ríkið muni tilnefna fuUtrúa
sinn í nefndina.
Snjólaug Stefánsdóttir, sem mun
leiða nefndarstarfið, segir ákvörðun
um það hvort af starfsemi alþjóðamið-
stöðvarinnar verði, og þá hvar hún
verður tU húsa, verða tekna í sumar.
Hún segir að leitað sé að hentugu húsi
sem sé 500 til 600 fermetrar að flatar-
máli.
Breytt yfirbragð nýbúamiðstöðvar
„Við höfum helst verið að hugleiða
hús í miðbæ Reykjavikm: en erum
ekki með neitt sérstakt hús í huga.
Þingholtsstræti 29 mtmdi henta vel en
ég hef ekki heyrt að það standi okkur
sérstaklega tU boða. Það væri hins
vegar gleðUegt ef svo væri því þetta er
faUegt hús,“ segir Snjólaug.
Núverandi miðstöð nýbúa er í
Skerjafirði og er alfarið á hendi
Reykjavíkurborgar. Hugmyndin mun
vera sú að breyta hlutverki miðstöðv-
arinnar þannig að hún hafi fremur á
sér yfirbragð menningar og lista, í
dúr við Norræna húsið, fremur en
ímynd miðstöðvar félagslegrar þjón-
ustu. Þótt Þingholtsstræti 29 sé aðeins
474 fermetrar og því við neðri mörk
áðumefnds stærðarramma ætti hið
tignarlega hús engu að síður að að
geta ljáð alþjóðamiðstöð nýbúa þann
virðuleikablæ sem talið er að starf-
semi hennar beri að hafa.
-GAR
Loksins hlýnar
Gert er ráð fyrir S og SV 5-8 m/s. og skýjuðu
veðri um landiö sunnan- og vestanvert en
yfirleitt léttskýjað norðaustan til. Hiti 5-15
stig, hlýjast norðaustanlands.
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 23.37 24.00
Sólarupprás á morgun 03.15 02.20
Síódeglsflóð 19.05 23.38
Árdeglsflóð á morgun 23.37 12.04
Skýringar á veðurtáknum
10%____________________hiti
-3.0°
i metrum & sekOmtu >'FROST
* *'>-VINDÁTT
VINDSTYRKUR
HEIDSKÍRT
m> jD: O
lÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAÐ SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ
w ö
RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓK0MA
w P
EUAGANGUR ÞRUMU- VEOUR SKAF- RENNINGUR ÞOKA
á mgwi’gciiini
Hiti 6 til 16 stig
Suðlæg átt á sunnudag, 5-8 m/s og skýjaö sunnan- og vestanlands, en
bjart veður á Norður- og Austurlandi. Hiti 6 til 16 stig, hlýjast norðaustan
til.
Hæg suðlæg átt og
bjartvlðrl en þykknar upp
með vaxandl suðaustanátt
suðvestanlands.
Suðaustan 10-15 m/s
undlr kvöld
>viójuá3g£nir lUUlfcHtNílfeftfHi.? t
Vindur: 'iT' 5-10 m/t ’ Vindur: 5-10 mM
Hiti 6°tii 15° Hiti 7° «117°
Suðaustlæg átt, 5-10 m/s. Vætusamt, elnkum sunnanlands og fremur hlýtt. Litur út fyrlr norðaustlæga átt með vætu, en þurrt að mestu suðvestanlands.
AKUREYRI skýjað 7
BERGSTAÐIR snjóél 2
BOLUNGARVÍK skýjað 3
EGILSSTAÐIR 5
KIRKJUBÆJARKL. hálfskýjað 7
KEFLAVÍK skýjaö 5
RAUFARHÖFN skýjað 4
REYKJAVÍK skýjað 5
STÓRHÖFÐI skýjað 5
BERGEN súld 8
HELSINKI rigning 11
KAUPMANNAHÖFN alskýjað 16
OSLÓ skýjað 14
STOKKHÓLMUR 15
ÞÓRSHÖFN skúrir 9
ÞRÁNDHEIMUR léttskýjað 15
ALGARVE heiðskirt 25
AMSTERDAM skýjað 18
BARCELONA
BERLÍN léttskýjaö 27
CHICAGO hálfskýjað 17
DUBUN súld 11
HAUFAX skýjað 14
FRANKFURT léttskýjað 25
HAMBORG skýjað 22
JAN MAYEN haglél -2
LONDON alskýjað 17
LÚXEMBORG skýjað 23
MALLORCA léttskýjaö 28
MONTREAL alskýjað 14
NARSSARSSUAQ rigning 10
NEWYORK heiðskírt 24
ORLANDO þokumóða 23
PARÍS léttskýjaö 25
VÍN skýjað 23
WASHINGTON þokumóða 23
WINNIPEG helðskírt 5