Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2000, Qupperneq 12
12
LAUGARDAGUR 3. JÚNt 2000
Fréttir
Baráttan um demantana í Sierra Leone:
Demantar eru
verstu óvinirnir
Leitaö aö demöntum
Þessi verkamaöur vinnur í opnum demantanámum um 200 kílómetra frá Freetown, höfuöborg Sierra Leone. Um leiö
og menn leita aö demöntum stofna þeir sjálfum sér í hættu enda auöveldur skotspónn í átökum uppreisnarmanna,
RUF, og stjórnarhers. Demantanáman stendur skammt frá átakasvæöunum.
Átökin í Sierra Leone sýna okkur
að Vesturveldunum hefur enn og aft-
ur mistekist að ákvarða hvenær hern-
aðarleg íhlutun er nauðsynleg og
hvenær ekki. Þau sýna okkur enn
fremur fram á mikilvægi þess að hald-
ið sé utan um auðlindastjórnun á
skynsamlegan hátt í stað þess, sem
hingað til hefur einkennt mörg van-
þróaðri ríki, að skæruliðar og aðrir
glæpahópar vaði upp og fjármagni
eigin starfsemi með því að taka þjóð-
areigur á borð við náttúrlegar auð-
lindir eignarhaldi.
Um þetta geta ótal dæmi vitnað.
Einkavæðing rússneska iðnaðarins,
einkum olíuiðnaðar, þar sem auður-
inn féll í hendur fárra, gerði m.a.
Viktor Tsjernómyrdin, forsætisráð-
herra í stjórnartíð Jeltsíns, að auðug-
asta manni Rússlands. Kólumbísku
glæpahringirnir, sem íjármagna glæp-
astarfsemi með kóakíni hafa töglin og
hagldirnar í stjórnkerfl landsins,
þrátt fyrir aðdáunarverða baráttu lög-
reglu og stjórnvalda við að snúa ferl-
inu við, uppræta spillingu og koma
meintum glæpamönnum á bak við lás
og slá.
Afríkuríkin eru engir eftirbátar í
þessum efnum sem flest hver hafa
litla reynslu af sjáifstjórn, hvað þá
lýðræði. í Afríku er það þó ekki olía
eða kóakín sem baráttan stendur um,
heldur gimsteinar.
Svart og hvítt
í Afríku er að finna margar af auðg-
ustu demantanámum heims. Flestir
myndu ætla að slíkar námur ykju vel-
megun landanna og tryggðu stöðug-
leika ríkisstjórna. I Bots-wana, Suður-
Afríku og Namibíu er þetta uppi á ten-
ingnum og þar er haldið traustum
tökum utan um demantanámur og
þess gætt að auðurinn skili sér i þjóð-
arbúið.
í ríkjum á borð við Angola, Kongó
og Sierra Leone skipta demantar
einnig miklu en á móti kemur að þess-
um ríkjum hefur ekki tekist sem
skyldi að halda utan um auðlindastýr-
ingu. Tala menn reyndar um svart og
hvítt í þessum efnum og ljóst að átök
undanfarinna ára hafa ekki orðið til
að efla trú manna á að breyting sé i
vændum.
Glæpaflokkur varð að her
Átökin í Sierra Leone að undan-
íomu eru gott dæmi um hvernig
græðgi og valdatafl gerspilltra ein-
staklinga hafa áhrif á milljónir sak-
lausra borgara. Átökin þar í landi
eiga reyndar upptök sin árið 1991.
Sameinaði upreisnarherinn, RUF, hóf
starfsemi sína sama ár sem lítiU og
óskipulagður glæpaflokkur. Til tíð-
inda dró svo þegar RUF náði demanta-
héruðum landsins á sitt vald. Glæpa-
ílokkurinn auðgaðist skjótt og varð að
uppreisnarher. En uppreisnarher í
hvers þágu? Ekki fólksins í landinu,
svo mikið er víst, enda þessum mönn-
um lítið umhugað um framtíð eigin
þjóðar. Uppreisnarherinn barðist sem
sé fyrir eigin hagsmunum og fann sér
fljótt leið til að selja gimsteina úr
landi og fjármagna þannig vopnakaup
og afla sér skotsilfurs. Viðskiptin
beindust einkum að nágrannaríkinu
Liberíu en einnig öðrum nálægum
rikjum.
Eins og ormur á gulli
Níu árum síðar hefur ekkert breyst
í Sierra Leone. Eftir sem áður stendur
styrinn um demanta og eftir sem áður
eru það uppreisnarmenn sem standa
vörð um eigin hagmuni eins og ormur
á gulli. Þeir höfðu frá því fyrir um ári
unað sáttir við sinn hag og það sam-
komulag sem gert var fyrir milli-
göngu Breta og SÞ. um frið milli upp-
reisnarhers og ríkisstjómar landsins.
Uppreisnarmenn fengu sæti í rikis-
stjórn og öldumar virtist vera að
lægja þegar fulltrúar SÞ urðu uppvís-
ir að þeirri óskammfeilni að að reyna
að afvopna uppreisnarmenn sem
halda demantanámunum í norðri.
Uppreisnarmenn svör'uðu fyrr sig,
drápu fjóra fulltrúa þeirra, tóku nokk-
ur hundruð manns í gíslingu og átök-
in blossuðu upp að nýju.
Ruslafötur fullar af útlimum
Aðferðirnar sem uppreisnarmenn
nota eru á sama tíma alræmdar og
vörumerki þessara manna er að
höggva hendurnar af fórnarlömbun-
um. Þegar árásir þeirra náðu hámarki
fyrir nokkrum vikum og upreisnar-
menn reyndu að ná borginni
Freetown á sitt vald sögðust skur-
ðlæknar þar í borg ekki hafa undan
að gera að sárum fólksins sem í flest-
um tilvikum voru konur og börn. í
ljósi kaldhæðni örlaganna fer því
kannski best á að segja að demantar
eru ekki bestu vinir kvenna á þessum
slóðum og gildir það reyndar jafnt um
alla íbúa ríkisins.
í mörgum tilvikum þurfti að fjar-
lægja limi sem ekki höfðu skorist al-
veg af með illa brýndum sveðjum
RUF-manna. Lýsingarnar voru væg-
ast sagt hryllilegar þegar þeir sögðu
frá því er þeir hentu heilu og hálfu
útlimunum í ruslafötur sjúkrahúss-
ins.
Alls hafa rúmar 2 miiljónir manna
flúið undan uppreisnarmönnum allan
síðasta áratug og skyldi engan undra.
Nú síðast flýðu tugir þúsunda þegar
spurðist út að sveðjurnar væru aftur
komnar á loft og hendur flygju. Nú
síðast var það að frétta af átökunum í
Sierra Leone að Foday Sankoh, leið-
togi uppreisnarmanna, hefði verið
handtekinn og hefur hann verið send-
ur úr landi til að vernda hann en
einnig svo að mögulegt sé að draga
hann fyrir stríðsglæpadómstól. Mun
þetta vera sameiginleg ákvörðun
Vestur-Afríkuríkja en ágreiningur er
um hvort Sankoh skuli dreginn til
ábyrgðar eða ekki. Þeir sem eru því
andsnúnir hafa einkum áhyggjur af
því að stöðugleika landsins verði enn
frekar ógnað ef Sankoh verður fund-
inn sekur.
De Beers, Sankoh og Taylor
Sankoh hefur alltaf neitað því að
kærleikar séu á milli hans og forseta
Líberiu, Charles Taylors, hvað þá að
hann leyfí að demantar fari í gegnum
Líberíu til sölu erlendis. Engu að síð-
ur er ljóst að misræmi er milli teoríu
og praxíss.
Ef útflutningur þessa litla ríkis er
skoðaður kemur berlega í ljós að árs-
útflutningur Líberíu nemur meira en
200-faldri þjóðarframleiðslu svo að
mismunurinn hlýtur að liggja í
demöntum.
Suður-afriska samsteypan De
Beers, sem ræður yfir tveimur þriðju
hlutum af ölium óunnum demöntum
sem til eru í heiminum, hefur sagt op-
inberlega að demantar frá átakasvæð-
um Afríku nemi ekki meira en 3 pró-
sentum af heildarsölu.
Margir hafa orðið til að mótmæla
þessari fullyrðingu De Beers og þeirra
á meðal er Christine Gordon, blaða-
maður frá London og demantasér-
fræðingur. Samkvæmt mati hennar
komu um 10-15 prósent demanta frá
átakasvæðum um miðjan tíunda ára-
tuginn. Má ætla að sú tala hafi hækk-
að eitthvað í ljósi þess að 11 prósenta
söluaukning hefur orðið á sölu dem-
anta á miili ára í Bandaríkjunum en
heildarvelta De Beers nemur 56
milljörðum Bandaríkjadollara. Þetta
gerist á sama tíma og Ameríkanar
hafa sett skinna- og feldútflytjendum
afarkosti og sniðgengið skinnavörur
vegna iilrar meðferðar á dýrum. Á
sama tíma eru demantakaupmenn
ekki skyldugir að framvisa vottorði
um uppruna steinanna og þannig vilja
De Beers-menn hafa það áfram.
Orsök og afleiöing
Baráttan um demantana hefur haft hryllilegar afleiöingar í för meö sér þar
sem uppreisnarmenn hafa höggviö útlimi af saklausum borgurum.
Heimildir: N.Y. Times, Washington Post,
Aftonposten, Int. Herald Tribune o.fl.
Charles Taylor
Forseti Líberíu, Charles Taylor, er náinn samstarfsmaður Foday Sankoh.
Fullvíst þykir aö demöntum hafi veriö veitt í gegnum Líberíu frá Sierra Leone.