Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2000, Side 14
14
LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2000
Fréttir
I>V
Allt á öörum endanum vegna brotthvarfs Björns Grétars:
Stríðsfæðing verkalýðsrisa
Hafi á stundum verið ólga innan
Verkamannasambands íslands er
óhætt að taka þannig til orða að þar
sé nú allt í háalofti og fullkomin
óvissa ríkjandi um framtiðina, og
hverjar málalyktir verði við samein-
ingu Verkamannasambandsins,
Landssambands iðnverkafólks og
Þjónustusambandsins sem á að eiga
sér staö í haust. Til verður mikiil
verkalýðsrisi en eins og fyrri daginn
virðist ætla að ganga erfíðlega fyrir
forustuna að sýna samstöðu og halda
friðinn þannig að nýja sambandið
geti farið af stað í einingu og af styrk.
Það má með sanni segja að fæðing
hins nýja risa sé stríðsfæðing sem
allt eins gæti endað með fósturláti.
Sú óeining og valdabarátta sem kom-
in er upp á yfirborðið er af mörgum
talin einkennandi fyrir þá óeiningu
sem um árabil verið einn skæðasti
óvinur verkalýðsins á íslandi.
Brotthvarf Bjöm Grétars Sveins-
sonar úr formannsstóli Verkamanna-
sambandsins, eða brottrekstur eins
og réttara er að kalla það, hefur nú
sett allt á annan endann. Og eins og
fyrri daginn segja sumir ósatt þegar
leitað er upplýsinga um það sem
gerðist.
Til stóö að stofna nýja verkalýðs-
sambandið nú í vor en ýmissa hluta
vegna var ákveðið að fresta því til
haustsins. Björn Grétar veiktist
snemma árs þegar kjarasamninga-
málin voru að fara í fullan gang og
tók ekki nema að litlu leyti þátt í
gerð kjarasamnings. Þegar samnings-
gerðinni var lokið hermir sagan að
hann hafi rætt það við „sína menn“
að næsta stórverkefni væri stofnun
nýja sambandsins. Er hann sagður
hafa lýst því yflr að hann vildi hraða
þeirri vinnu og vilja taka þátt í henni
en jafnfram sagt að yrði ekki sátt um
sig sem formann nýja sambandsins
myndi hann víkja I haust.
Mikið „plottað"
Greinilegt er að mikið hefur verið
„plottað" innan forustu verkalýðsins
á síðustu vikum þvi þegar Björn
Grétar hitti félaga sína í upphafi vik-
unnar og vildi fara að ræða við þá
um vinnuna fram undan tilkynnti
Hervar Gunnarsson, varaformaður
hans, honum að hans krafta og
vinnuframlags við sameiningu sam-
bandanna þriggja væri ekki óskað,
hann ætti að hætta störfum og við
hann yrði gerður starfslokasamning-
ur.
Það vekur óneitanlega athygli að
þessi ákvörðun var ekki rædd innan
framkvæmdastjómar VMSÍ en þar
eru 11 fulltrúar. Fullyrt er með rök-
um að þeir sem hafi samþykkt „plott-
ið“ um brotthvarf Björns Grétars
hafi verið „flóamennimir" Kristján
Gunnarsson af Suðurnesjum, Sigurð-
p A 1 1 /
Sigurður Hervar
Bessason Gunnarsson
Landsbyggöar- Var framkvæmda-
menn segja stjórastaöa nýja
margir hverjir aö sambandsins
hann sé eini „gulrótin"?
„Flóamaöurinn“
sem sátt gæti
náðst um sem
formann nýja
sambandsins.
ur T. Sigurðsson, Hafnarfirði, og Sig-
urður Bessason, Reykjavík, og þeir
hafi fengið í lið með sér Hervar
Gunnarsson, Akranesi, Sigurð Ingv-
arsson, forseta Alþýðusambands
Austfjarða, og Bjöm Snæbjömsson,
Akureyri. Sjálfsagt er að vekja
athygli á að Björn Snæbjörnsson
hefur neitað þessu sem
„kjaftæði". Aðrir í fram-
kvæmdastjórninni eru Pétur
Sigurðsson, ísafirði, Aðalsteinn
Baldursson, Húsavík, og Einar
Karlsson, Stykkishólmi, en Aðal-
steinn mótmælti vinnubrögðun-
um fyrir hönd þeirra þriggja. Þá
eru ótalin þau Ragna Larsen á
Selfossi, sem fullyrt er aö hafi
stutt Björn Grétar, og Bjöm Grét-
ar sjálfur sem á sæti í fram-
kvæmdastjórninni. Hafi
þeir sem komu því lið
leiðar að Björn
Grétar hætti
sem for-
mað-
ur VMSÍ veriö búnir að tryggja
meirihluta fyrir því í framkvæmda-
stjóminni. Stenst fullyrðingin hér að
framan um það hveijir stóðu að því.
Siguröur í formannsstól?
Því hefur verið haldið á lofti að
stuðnings Hervars Gunnarssonar
hafi verið aflað með loforði um að
hann yrði formaður nýja sambands-
ins. Sé svo er hins vegar morgunljóst
að um hann mun ekki nást samstaða.
„Það kemur aldrei tO greina að
styðja Hervar eftir það sem á undan
er gengiö,“ sagði viömælandi DV.
Reyndar er listinn stuttur yfir þá
sem hugsanlega gæti náðst eining
um í formannssætið. Ekki verður
einhugur um Kristján Gunnarsson á
Suðumesjum en hann hefur um ára-
bil verið harðasti andstæðingur
Bjöms Grétars innan Verkamanna-
sambandsins og
„Bjöms Grétars-
armurinn"
myndi
aldrei
styðja
hann.
k Aöal-
rÍRto
steinn Baldursson, sem hefur verið
talsmaður landsbyggðarinnar, er
ekki talinn koma til greina þótt ekki
væri nema vegna þess aö hann átti
það til í vetur að „tala til“ Flóabanda-
lagsmanna þegar þeir klufu sig frá
Verkamannasambandinu. Svona er
hægt að halda áfram og ræða um ein-
staklinga eins og Sigurður T. í Hafn-
arfirði, Vestfjarðajarlinn Pétur Sig.,
Sigurð Ingvarsson á Austfjörðum,
Bjöm Snæbjörnsson á Akureyri og
Guðmund Þ. Jónsson Iðjumann í
Reykjavík. Um engan þessara manna
verður samstaða.
Þetta leiðir til þess að menn
staldra við nafn Sigurðar Bessason-
ar, verðandi formann Eflingar í
Reykjavík. Það hefur vakið athygli
að þrátt fyrir að ljóst hafi verið í tals-
verðan tíma að hann tæki við
stærsta verkalýðsfélagi landsins hef-
ur hann haldið sig nokkuð til hlés og
ekki komið nálægt neinum þeim
illindum sem verið hafa milli fylk-
inga. Þetta er talið styðja það að Sig-
urði sé ætlað formannssætið í nýja
sambandinu. Hann er sagður mjög
hæfur til starfsins, hafi reynslu og sé
almennt vel liðinn. „Sigurður er eini
maðurinn úr forustuliði Flóabanda-
lagsions sem ég sé að einhver sam-
staða geti orðið um, aðrir koma þar
ekki til greina. Sigurður er ljósið í
myrkrinu," segir einn af forustu-
mönnum verkalýðsins á landsbyggð-
inni. Þegar vakin er athygli á að Sig-
urður sé aö taka við formannsstöð-
unni hjá Eflingu sem sé
ærið starf er bent á að
leysa megi málin með
nýju skipulagi, t.d
því að nýja sam-
bandið ráði
fram-
A sjúkrabeði
Þegar Björn Grétar varð vinnufær var honum tilkynnt að starfskrafta hans innan Verkamannasambandsins væri ekki
óskaö.
kvæmdastjóra. Og þá kemur nafn
Hervars aftur upp á borðið. Einn við-
mælandi DV sagði að þetta gæti ver-
ið „plottið" og framkvæmdastjóra-
staðan gulrótin sem lögð var fyrir
Hervar.
Þrir möguleikar helstir
Landsbyggðarforustan er hins veg-
ar öskuill og gjörsamlega óvíst að
hún hyggi á samleið með Flóabanda-
laginu og þeim sem stóðu að brott-
hvarfi Björns Grétars. Margir for-
menn verkalýðsfélags vítt og breitt
um landið hafa í alvöru rætt það að
hittast á næstunni og ræða þá stöðu
sem upp er komin. „Það getur í raun-
inni allt gerst. Málin gætu þróast
Höröur Kristjánsson
blaðamaður
þannig að þeir sem beittu valdníðsl-
unni gegn Bimi Grétari fari fram
með valdi og við myndum hanga með
af gömlum vana. Það gæti líka farið
þannig að við á landsbyggðinni
hreinlega klyfum okkur frá þessu.
Þriðji kosturinn er að menn geti sam-
einast um Sigurð Bessason sem for-
mann og sliðrað sverðin. Sennilega
er þaö eina leiðin ef friður á að
ríkja," sagði einn viðmælenda okkar.
Hann, eins og aðrir sem rætt hefur
verið við, hafa kosið að tjá sig ekki
undir nafni en þó verið til-
búnir
að
ræða
málin.
Það seg-
ir mönn-
um ýmis-
legt. Sem
fyrr sitja
„smá-
kóng-
arnir“
víða
og
þeir
vilja
hafa sína
stóla
trausta. Það er
varla hættandi á
að fórna þeim á
þann hátt að segja eitt-
hvað opinberlega um þá sem
völdin hafa, Flóabandalagsmenn
og þá sem með þeim stóðu að því að
koma Birni Grétari frá völdum.
Næstu dagar og vikur gætu hins veg-
ar orðið spennandi á þessum vett-
vangi og draga mun tO tíðinda.
-gk
HEILSUDYNURNAR
Nýtt efni sem upphaflega var]
NASA sem mótvægi á þeim þrýstingi s
geimfarar verða fyrir við geimskot.
Aðlagast að Ifkainshita
Vöfðabóiga
Liðagikt
Kviðslit
Bakverkir
Kjjnmð v/kktm\ jirábær ný mré é
Jieitsudýmim og mfimtgmhetimm
Verðdœmi:
Amerísku heilsudýnumar
Visco-Medicott
90 cm m/botni
54.400.
Chiropractic eða
Visco Medicott
Queen 89.900.
King 119.900
Visco-Medicott
90 cm m/Rafmagnsbotm
87.900.
At~k.r
^ElLSUNNAR veG
Gin viðurkenndasta lieilsudýna i lieimi
Ein mest selda heilsudýna á landinu
Chiroproctic eru einu heilsudýnumar sem
eru þróaðar og viðurkendar af amerísku
og kanadísku kírópraktorasamtökunum.
Yfir 32 þúsund kírópractorar mæla því
þar á meðal þeir íslensku.
Listhúsinu Laugardal,
2 2 3 3
Dalsbraut 1, Akureyri, sírrti 461 1150
www.svefnogheiIsa.is