Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2000, Page 20
20
Helgarblað
LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2000
I>V
Kraftaverkalyf á
markaði
- dauðvona viðskiptavinir borga hvað sem er fyrir lyf sem enginn veit hvort virka
Það hafa lengi staðið deilur
milli hefðbundinna vísindamanna
og áhangenda óhefðbundinna
lækningaaðferða af ýmsu tagi um
áhrifamátt náttúrulyfja og ýmissa
óhefðbimdinna lækningaaðferða.
Hér mætti nefna dæmi eins og
nálastungur af ýmsu tagi, jurtalyf,
dulrænar lækningar og fyrirbæn-
ir, svo fátt eitt sé nefnt. Hinir
íhaldssömu stað-
hæfa að meðan
ekki sé sannað
eftir hefðbundn-
um vísindaleg-
um aðferðum að
ginseng, lúpína,
nálastungur og
fyrirbænir hrífi
sé ekki hægt að
taka mark á
þeim sem lækn-
ingaðferðum.
Mótmælendur
segja að lyf og
fyrirbæri geti
vel hrifið þótt
ekkert sé vís-
indalega sannað
og bera oftast
fyrir sig per-
sónulega vitnis-
burði frá ein-
stökum sjúkling-
um en slíkar
reynslusögur
telja hefðbundin
vísindi nákvæm-
lega einskis virði.
Oft kristallast þessi styr í ýms-
um fæðubótarefnum og náttúru-
lyfjum sem sölumenn vilja koma á
markað en yfirvöld eru treg til að
veita hefðbundin leyfi fyrir og fer
þar Lyfjaeftirlit ríkisins fremst í
flokki. Strangar reglur eru um það
meö hvaða hætti má auglýsa lyf og
fæðubótarefni og hvar. Afleiðingin
er sú að umfangsmikil neðanjarð-
arstarfsemi er i gangi með við-
skipti á slíkum efnum.
Orðspor kraftaverkalyfja
Sum fæðubótarefni og náttúru-
lyf hafa á sér dularfullt orðspor
sem berst frá manni til manns.
Það eru ákveðin efni á markaðn-
um sem sagt er að lækni ýmsa
sjúkdóma sem hefðbundin lækna-
vísindi ráða lítt eða ekki við. Þetta
eru efni sem eiga að geta læknað
krabbamein, sykursýki, liðagigt og
psoriasis fyrir utan minni háttar
kvifla eins og fyrirtíðaspennu,
svefntruflanir, meltingaróreiðu,
vöðvabólgu og þess háttar.
Á þeim óljósa neðanjarðarmark-
aði, þar sem kraftaverkalyf eru
seld, eru kaupendumir oft haldnir
erfiðum sjúkdómum og eru tilbún-
ir til að greiða það sem sýnist vera
ósanngjamt og hátt verð fyrir lyf
sem læknavísindin vilja ekki við-
urkenna.
DV er kunnugt um fólk sem, eft-
ir að hafa fengið staðfestingu á að
það væri haldið krabbameini, fór
hringinn um hinn óopinbera lyfja-
markað og keypti lyf og fæðubót-
arefni fyrir tugi þúsunda króna.
Sá sem telur sig dauðvona er til i
að reyna nánast hvað sem er til að
fá bata og hirðir þá lítt um rök og
viðurkenningar læknavísinda.
Kraftaverkasafinn frá
Tahltl fyrir 4500 kr. lítrann
Fyrir einu og hálfu ári var farið
DV er kunnugt um fólk
sem, eftir að hafa fengið
staðfestingu á að það
vceri haldið
krabbameini, fór hring-
inn um hinn óopinbera
lyfjamarkað og keypti
lyf og fœðubótarefhi
fyrir tugi þúsunda
króna. Sá sem telur sig
dauðvona er til í að
reyna nánast hvað sem
er til að fá bata og hirðir
þá lítt um rök og
viðurkenningar
lceknavísinda.
að flytja til íslands ávaxtasafa frá
Tahiti sem heitir Noni-safi eða
Noni juice. Þessi safl er fluttur inn
sem ávaxtasafi, sem hann óum-
deilanlega er, en seldur sem al-
hliða hressingarmeðal og krabba-
meinslyf jöfnum höndum. Lyfjaeft-
irlit ríkisins hefur ekkert skipt sér
af innflutningi Noni.
„Við megum ekkert auglýsa og
segjum engum að
þetta lækni eitt
eða neitt. Við
höldum fundi með
fólki og segjum
þeim frá áhrifum
safans og það eru
allir mjög ánægð-
ir,“ sagði Árni
Þór Árnason,
sjúkranuddari á
Akureyri, sem er
aðalumboðsmað-
ur Noni-safans á
íslandi. Safinn er
seldur eftir svip-
uðu píramídakerfi
og Herbalife-vör-
umar sem margir
kannast við. Þeir
sem vilja komast í
safann setja sig í
samband við
næsta umboðs-
mann sem aftur
kaupir af sínum
umboðsmanni og
þeir sem vilja ger-
ast sölumenn verða að kaupa að
minnsta kosti 4 lítra í mánuði.
Hver litri kostar 4.500 krónur, til
neytandans.
1000 lítrar á mánuði
Ámi sagði við DV að 700 til 1000
lítrar kæmu til landsins í hverjum
mánuði. Það þýðir að íslenskir
neytendur eru að kaupa krafta-
verkasafann fyrir 3-A,5 milljónir í
mánuði hverjum.
Neytandinn skal taka inn eina
únsu eða 30 grömm af safanum á
•HF.TARY SUPIT
Noni-djús er það vinsælasta á markaönum í dag
Noni er unninn úr plöntunni Morinda Citrifolia sem vex villt á Suðurhafseyjum og í Ástralíu. Safinn er svo bragðvondur
að uppistaöan í drykknum er hefðbundinn ávaxtasafi. Þetta er selt eftir píramídakerfi líkt og Herbalife og hver flaska
kostar 4.500 krónur. Orðsporið segir að safinn geti laeknað krabbamein.
Blrkiaskan er seld í hylkjum og kostar mánaðarskammtur
tæpar 2000 krónur
Seljendur halda því fram að askan getl læknaö krabbamein.
dag og skal halda
því áfram eigi
skemur en 3-6
mánuði ef menn
vilja ná góðum
árangri.
Þótt Ámi vilji
ekkert segja um
lækningamátt
Noni þá fylgir
það orðspor
safanum að hann
lækni sjúkdóma
eins og krabba-
mein og hindri
æxlisvöxt og lagi
margvíslega
smærri kvilla og
auki vellíðan.
„Þetta styrkir
ónæmiskerflð
með sérstökum
efnum,“ sagði
Ámi. Kristlaug
Pálsdóttir, sölu-
maður á Húsa-
vik, sagði að
margir krabbameinssjúklingar
tækju Scifann inn og yrði gott af
honum og sumir hefðu fengið full-
an bata.
Tveir milljarðar á mánuöí
Jurtin, sem saflnn er unninn úr,
heitir Morinda Citrifolia og vex
villt á nokkrum Suðurhafseyjum,
Ámi sagði við DV að
700 til 1000 lítrar kcemu
til landsins í hverjum
mónuði. Það þýðir að ís-
lenskir neytendur eru að
kaupa kraftaverka-
safann fyrir 3-4,5
milljónir í mánuði
hverjum.
Neytandinn skál taka
inn eina únsu eða 30
grömm af safanum á
dag og skal halda því
áfram eigi skemur en
3-6 mánuði ef menn
vilja ná góðum árangri.
Indónesíu og
Ástralíu. Sölu-
menn segja að
íbúamir hafl um
aldir notað hana í
lækningaskyni en
almenn sala hófst
ekki fyrr en um
1996 og hefur
breiðst út um
heiminn með
píramídakerfi og
er í dag seld í 17
löndum. Ávöxtur-
inn af morinda-
runnanum verður
um 10 sentímetr-
ar í þvermál og af
honum er svo
stæk lykt og
rammt bragð að
hans er ekki neytt
nema í neyð. Þess
vegna er uppi-
staðan í Noni-
safanum, sem
seldur er hérlend-
is, hefðbundinn ávaxtasafl sem er
blandaður í birgðastöð í Hollandi.
Á Netinu má lesa margt um
Noni en sérstaklega er lögð
áhersla á þau viðskiptatækifæri
sem felast í því að taka þátt í að
selja það. Morinda-fyrirtækið, sem
Ámi er umboðsmaður fyrir á ís-
landi, segist hafa selt Noni-safa
fyrir 27 milljónir dollara í öllum