Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2000, Page 21
21
LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2000
DV
heiminum í janúar síöastliðnum.
Þaö þýðir að í 17 löndum er salan
í kringum tvo milljarða íslenskra
króna á mánuði.
Birklaskan góða
Annað mjög vinsælt efni, sem
sagt er að geti læknað krabbamein
og fleiri erfiða kvilla fyrir utan að
auka almenna vellíðan og styrkja
ónæmiskerfið, er birkiaska. Birki-
askan er búin að vera á markaði
lengur en Noni-safinn og hefur
leyfi Lyfjaeftirlitsins. Askan er
seld í hylkjum og kosta 120 stykki
tæpar 2000 krónur í Lyfju. Taka
skal 4 stykki á dag og er því mán-
aðarskammtur í einu glasi.
Selma Kristiansen leikskóla-
kennari og Helgi Kristjánsson
sagnfræðingur eru mikilvirkustu
innflytjendur á birkiösku tii lands-
ins og fjölmargir kjósa að versla
beint við þau á lægra verði. Selma
sagðist í samtali við DV ekkert
vilja tjá sig um þennan innflutn-
ing eða virkni birkiöskunnar og
taldi slíka umræðu kalla á óþæg-
indi frá Lyfjaeftirlitinu. í ljósriti
sem þau hjón dreifðu var fullyrt
ýmislegt um virkni öskunnar sem
Lyfjaeftirlitið var alls ekki sátt
við. Starfsmaður Lyfju taldi hins
vegar ekkert leyndarmál í samtali
við DV að krabbameinssjúklingar
keyptu mikið af birkiösku og sala
á henni færi vaxandi.
Á Vísir.is á Netinu er að finna
eftirfarandi fróðleik um birkiösku
þar sem lyfjafræðingur svarar
spumingum lesenda:
„Varðandi lækningamátt birki-
ösku er lítið hægt að fullyrða.
Notkunin byggir á reynslusögum
einstaklinga sem segja að neysla
birkiösku hafi læknað ólíklegustu
sjúkdóma t.d. bjúg, gigt og jafnvel
krabbamein. Hingað til virðast
engar skipulagðar rannsóknir á
áhrifum birkisösku hafa verið
gerðar og nánari upplýsingar um
hana virðast ekki aðgengilegar.
Það er ekki útilokað að birkiaska
hafi einhver áhrif en að taka
reynslusögunum bókstaflega er
fullbjartsýnt."
Við þetta má síðan bæta því að
flestir sem kaupa inn á þessum
„dauðvona" markaði leita til Æv-
ars Jóhannessonar í Kópavogi sem
árum saman hefur lagað seyði úr
lúpinurótum og gefiö krabba-
meinssjúklingum. Seyðið góða á
það sameiginlegt með öðrum
skottulækningum að ekkert hefur
verið sannað með viðurkenndum
aðferðum um virkni þess. Það hef-
ur hins vegar þá sérstöðu að það
er ekki selt heldur gefið og getur
því varla flokkast með þeim efnum
sem hér eru til umfjöllunar nema
að mjög litlu leyti þar sem hvatinn
að dreifingu þess er ekki gróða-
von.
Fólk veröur aó gá aó sér
„Fólk verður að gá að sér. Það
virðast margir hafa ofurtrú á nátt-
úrulyfjum sem geta haft varasam-
ar aukaverkanir og milliverkanir.
Þeir sem hafa verið að selja þessa
birkiösku hafa sett fram ýmsar
mjög hæpnar staðhæfingar um
lækningamátt hennar sem við höf-
um gert athugasemdir við,“ sagði
Guðrún S. Eyjólfsdóttir, forstöðu-
maður Lyfjaeftirlits ríkisins, I
samtali við DV.
„Birkiaskan er seld sem fæðu-
bótarefni og ekkert athugavert viö
þaö meðan því er ekki haldið fram
að hún lækni sjúkdóma eða komi i
veg fyrir þá.“
Guðrún sagði að Lyfjaeftirlitið
hefði ekki fjallað um Noni-safann
og kvaðst lítið vita um hann um-
fram að hann væri ávaxtasafi.
Hún sagðist að vísu hafa séð plögg
um safann sem sölumenn dreifðu
nafnlaust til viðtakenda og þar
hefði verið haldið fram mjög
vafasömum hlutum um lækninga-
mátt safans,
„Mér finnst alveg með ólíkind-
um ef fólk er tilbúið til aö kasta
peningum í að kaupa safa eins og
þennan fyrir þetta verð.“ -PÁÁ
Helgarblað
Sviðsljós
::áíkSm
Saman á klósettið
Leonardo Di Caprio hefur verið
orðaður við margar og ekki laust við
að þessi fyrrum sjarmör og kvenna-
gull sé að breytast í skvapholda saur-
lífissegg. Um daginn greindum við
m.a. frá því að hann og Bruce Willis
væru drykkjufélagar miklir og nú síð-
ast sást til hans á skemmtistað þar
sem hann hreinlega sturtaði í sig
tequilaskotunum. Þetta væri svo sem
ekki í frásögur færandi nema fyrir
það að Gróa á Leiti vill meina að
hann og Nicole Appleton úr hljóm-
sveitinni All Saints hafi lokað sig
saman inni á baðherbergi í miðju
teiti. En hvað hefur Nicole um málið
að segja? „Við gerðum ekkert af okk-
ur,“ sagði söngkonan í viðtali við
Independent. „Einhver hefur skáldað
þetta upp af því að ég var á staðnum.
Það er mjög hentugt. Hann var að tala
við mig og við skáluðum í tequila.
Það næsta sem ég frétti er að blöðin
birta stríðsfyrirsagnir þar sem segir
að ég hafi verið með honum á klósett-
inu,“ segir Nicole, sakleysið uppmál-
að, og vill hvorki kannast við klósett-
ið né Leo.
Utanborðsmótorar
YAMAHA
Stærðir: 2-250 Hö.
Gangvissir, öruggir
og endingargóðir
YAMAHA fijapcafiis
Sfmi 568 1044
I ALLTÁ EINUM STAÐ
10 Alyssur
k,499
10 Stjúpur
„399
Blandaðir lifir
10 Fjólur
„499
10 Flauelsblóm
„499
laugardag og sunnudag
Upplýsingasími: 5800 500