Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2000, Side 22
22
LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2000
Helgarblað
1) Grafarvogur - ca 14 km
Upphafsstaður fyrir þennan hring
getur verið Korpúlfsstaðir þar sem góð
bílastæði er að flnna. Þaðan er hjólað í
Blikastaðakró sem er friðað strand-
svæði með fjölbreyttu fuglalífi. Þaðan
liggur hjólastígur að Geldinganesaf-
leggjara en á þeirri leið er að finna sér-
kennileg listaverk. Frá Rimaflöt er
hjólastígur að Fjallkonuvegi. Þaðan
eru Lokinhamrar og Leiðhamrar
hjólaðir að Gufuneshöfða þar sem út-
sýnið yfir Sundin er mjög fallegt.
Strandstígur inn með Grafarvogi er
síðan valinn, undir Gullinbrú og upp
að íþróttasvæði Fíölnis. Þaðan liggur
stígur með Langarima að Borgarvegi
þar sem hjólað er fram hjá Borgar-
holtsskóla, Mosveg og eins og leið ligg-
ur að Korpúlfsstöðum.
2) Seltjamarneshringurinn
- ca 11 km
Upphafsstaður er Vesturbæjarlaug-
in og þaðan er haldið að dælustöðinni
við Faxaskjól sem er skemmtilegt
mannvirki. Þar er tilvalið að stoppa og
kíkja á útsýnispallinn. Síðan er haldið
með fram ströndinni fram hjá Bakka-
tjöm að hinu friðaða svæði við Gróttu
og síðan er norðurströndin hjóluð til
baka. Það er sannkölluð fuglaparadís á
þessu svæði og ekki ólíklegt að skarf-
ur, kría eöa tjaldur verði á vegi
manns.
3) Laugardalur - Sund
ca 10 km
Hægt er að byija ferðina við Laugar-
dalslaugina. Þaðan er Sundlaugaveg-
Sumarið er tími reiðhjólanna:
Sex skemmtilegar hjólaleiðir á höfuðborgarsvæðinu
- meðalmaður hjólar um 12 km á klukkustund með stoppum
urinn hjólaður og farið í gegnum und-
irgöng undir Sæbrautina þar sem við
tekur stígur með stöndinni. Þar er Sig-
uijónssafn að finna, heimili Hrafns
Gunnlaugssonar og tóftir Lauganes-
bæjar ásamt gömlum kirkjugarði þar
sem talið er að Hallgerður langbrók sé
grafin. Haldið er að Sundahöfn og í
gegnum iðnaðarhverfið sem er rólegt
að hjóla í á kvöldin. Á bakaleiðinni er
hjólað í gegnum Laugardalinn og til-
valið er að enda ferðina með sund-
spretti í Laugardagslauginni.
4) Árbæjarhringurinn
- ca 9 km
Það er tilvalið að byija þennan
hjólatúr við Árbæjarlaugina þar sem
nóg er af bílastæðum og svo er heldur
ekki amalegt að enda í heita pottinum.
Hjólað er undir undirgöng á Vestur-
landsvegi, niður að Vogi og að bryggju-
svæðinu við Gullinbrú. Þaðan er
hjólað með fram Elliðaánum á gamla
Rafstöðvarveginn þar sem hægt er að
heimsækja Rafstöðvarsafiiið. Einnig
er hægt að taka smáútúrdúr úr
hringnum og skoða garðinn hjá BM
Vallá eða kíkja á Árbæjarsafnið.
5) Kópavogshringurinn
Á þessari leiö eru opin svæði,
gróðrarstöðvar og fjara. Upphafsstað-
ur getur verið Víkingsheimilið í Foss-
vogi. Þaðan er hjólað í gegnum svæði
Skógræktarinnar, yfir brúna og að
Nesti. Sæbóls- og Marbakkabraut eru
síðan hjólaðar en þá tekur við stígur
með fram ströndinni. Beygt er inn á
Vesturvör og Bakkabraut en þar tekur
við stígur sem liggur upp Kópavogsdal-
inn. Þaðan er síðan hjólað í gegnum
Smiðjuhverfið sem er mjög rólegt á
kvöldin.
6) Breiðhottshringurinn
- ca 8 km
Hringurinn byijar við Breiðholts-
laug. Þaðan er hjólað að Fella- og Hóla-
kirkju, með fram Elliðaánum og að
Reykjanesbraut. Þaðan liggur leiðin
upp í Mjódd og með fram Skógarseli
þar sem stígar í gegnum Seljahverfið
eru valdir. Á leiðinni eru m.a. gróöur-
sæl svæði, gott útsýni, tjöm, menning-
armiðstöðin í Gerðubergi og gróðrar-
stöð.
Björn Finnsson er í Fjallahjólaklúbbnum og fer allra sinna ferða á reiðhjóli:
Bíllaus í 50 ár
- býður almenningi að hjóla með sér á kvöldin.
„Já, það er satt, ég hef aldrei átt bíl
nema eitt sumar,“ segir hinn 50 ára
gamli hjólreiðamaður Bjöm Finnsson
sem er virkur meðlimur i Fjallahjóla-
klúbbnum, félagi áhugamanna um
hjólreiðar. Félagið, sem er 11 ára gam-
alt, skipuleggur m.a. ýmsar hjólaferð-
ir og námskeið og berst fyrir réttind-
um hjólafólks. Síðustu fimm sumur
hefur Björn séð um að skipuleggja
hjólatúra á kvöldin fyrir höfuðborgar-
búa og þetta sumar verður hans sjötta
í þeirri sjálfboðavinnu. Ferðirnar eru
farnar á hverju þriðjudagskvöldi frá
skiptistöðinni í Mjóddinni á slaginu
átta.
„Þessar ferðir eru ætlaðar öllum
þeim sem hafa gaman af því að hjóla.
Það kostar ekkert að vera með og
maður þarf ekki að skrá sig. Það er
bara að mæta,“ segir Björn sem tekur
það þó skýrt fram að hann vilji að
þátttakendur séu með hjálma.
Nagladekk á veturna
Sjálfur fer Bjöm allra sinna ferða
hjólandi, allan ársins hring. „Á vet-
uma set ég bara nagladekkin á,“ seg-
ir Bjöm sem hefur alloft komist í
hann krappan í umferðinni. „Maður
er náttúrlega oft að hjóla í þungri um-
ferð þar sem ekki em komnir hjóla-
stígar út um alla borg. Það var síðast
keyrt á mig í nóvember," segir Björn
sem slapp þá með skrekkinn.
Að hans sögn em það helst merk-
Heilsubót með hjól við
fót hjartað skjótar herðir,
endurmótar innra rót og
eflir gleðiferðir.
Bœtir kjöjin, býður fjör
með bömin úti að hjóla.
Fögur tjörnin, fugl og
stör,
frískleg för um holt og
hóla.
-Björn Rnnsson
ingar á hjólastígum og aðstaða til þess
að leggja frá sér hjól sem er ábótavant
í Reykjavík. Einnig vantar góða hjóla-
stíga sem tengja bæjarfélögin saman.
„Það vantar sárlega reiðhjóla-statíf
sem hægt er að læsa hjólin við,“
kvartar Björn. Ef menn kjósa að fjár-
festa í góðu hjóli fram yfir bíl, eins og
Björn, geta menn hvergi lagt þessi
dým hjól frá sér þegar þeir eru á ferð-
inni, nema þá helst að hlekkja þau við
ljósastaura úti á götu.
Rúllandi rómantík
í Fjallahjólaklúbbnum er mjög
breiður hópur fólks á öllum aldri sem
á það sameiginlegt að hafa gaman af
því að hjóla. „Það er algengur mis-
skilningur að maður verði að eiga
Qailahjól til þess að geta tekið þátt í
starfsemi kiúbbsins," segir Bjöm og
útlistar hversu góður félagsskapur
klúbburinn sé. Þar kynnist fólk og ein
gifting sé t.d. klúbbnum að þakka.
En ef maöur kann ekki aó hjóla, get-
ur maóur þá lœrt þaó hjá ykkur?
„Við höfum aldrei fengið þannig
beiðni inn á borð til okkar þannig að
við höfum aldrei haldið nein byrj-
endanámskeið. Ef fullorðinn maður
kæmi hins vegar til mín og vildi læra
að hjóla myndi ég taka pedalana af
hjólinu og láta hann hlaupa með því
pedalalausu svo hann næði jafnvæg-
inu áður en hann byrjaði aö stíga hjól-
ið,“ segir Björn og heldur því fram að
þetta sé besta aðferðin til að kenna
fólki að hjóla. -snæ
Vlltu hjóla með þessum manni?
Björn er stjórnarformaöur Fjallahjólaklúbbsins sem stendur fyrir alls kon-
ar hjólaferöum og berst fyrir réttindum hjólreiöamanna.