Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2000, Síða 26
26
LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2000
Helgarblað
I>V
Það er sætt að vera ljótur
- stórt nef, lítill rass og stór ístra. Þetta geta verið kostir fremur en gallar
Courtney Thorne-Smith gerir það
gott bæöi í leik og starfi.
Thorne-
Smith
gengur í
það heilaga
„Ally McBeaT, stjarnan Courtn-
ey Thome-Smith, er búin að trú-
lofast kærastanum Andrew Conrad.
Planið er að leikkonan og kærast-
inn verði pússuö saman i október
samkvæmt fréttum frá blaðinu
People. Thome-Smith hitti Conrad
fyrir rúmum þremur árum, eða rétt
eftir að hún og hennar fyrrverandi
kærasti, Andrew Shue, voru hætt
saman. Shue og Thome-Smith
höfðu leikið kærustupar í sjón-
varpsseríunni Melrose Place og
vom af mörgum álitin hið full-
komna par, bæði í einkalífinu og á
skjánum.
Það er hins vegar ekki bara brúð-
kaup sem Thome-Smith hefur að
hugsa um þessa dagana. Eftir að
hún hætti í hlutverki Georgíu i Aliy
McBeal-þáttunum hefur tilboðum
frá hinum ýmsu sjónvarpsstöðvum
rignt yfir hana. SjónvarpsstjamEm
vinnur einnig sem fyrirsæta fyrir
snyrtivöruframleiðandann Almay.
Heygarðshornið
Gamalt máltæki segir að ekki sé
öll fegurð í andliti fólgin. Fegrunar-
aðgerðir af ýmsu tagi fara mjög í
vöxt en enn sem komið er eru kon-
ur mun fleiri í hópi þeirra sem láta
laga á sér nefnið, stækka brjóstin og
dæla koUageni í varirnir. Karlmenn
hafa verið mun tregari tU að láta
dytta að útliti sínu þó þeir hafi án
efa oft grátið sig i svefn yfír fjöl-
mörgum útlitsgöUum ekki síður en
konur. Nú berast góðar fréttir utan
úr heimi um að margt það sem álit-
ið hefur verið lýti á karlmönnum
finnist konum í rauninni einkar að-
laðandi og sætt. Það er nefnUega
sætt að vera ljótur.
Risastórt nef
Skarpir andlitsdrættir gera karl-
menn greindarlegri og ákveðnari.
Stórt nef og bústið getur látið konur
halda að aðrir útstæðir líkamshlut-
ar séu álika þreknir og trýnið.
„Það er karlhormón sem gerir
það að verkum að nef karla er
stærra en kvenna og því eðlUegt að
þeim fmnist það sérlega karlmann-
legt,“ segir Joel Wade, bandarískur
sálfræðiprófessor. Aðeins örfáum
konum eldri en 14 ára finnst lítil nef
sæt á karlmönnum. Þvert á móti
gerir það karlmenn yfirleitt kven-
lega sem fæstum körlum finnst eft-
irsóknarvert.
Samvaxnar augabrúnir
Vissulega gefa samvaxnar auga-
brúnir karlmönnum svolítið frum-
stætt yfirbragð en hins vegar gefur
það tU kynna ákveðið sjáifstraust að
leyfa þeim að vaxa viUtum. SkUa-
boðin sem konur lesa út úr þessum
útlitsgaUa er að maður sem ekki er
of upptekinn af eigin útliti og það
likar konum vel. Svo gefa sam-
brýndir menn af sér valdsmannslegt
yfirbragð og ákveðið sem mörgum
konum feUur vel í geð.
Örótt andlit
Að vera með ör í andliti gefur tU
kynna ævintýralegt lífemi. Ör bera
menn sem eru tibúnir til að berjast
fyrir konur til að verja heiður
þeirra og það vekur alltaf hrifningu.
Konum fmnast andlitsör vera sér-
lega kynæsandi og þreytast aldrei á
því að strjúka fingrunum eftir þeim
og láta segja sér söguna af því
Gérard Depardieu er ekki beinlínis smáfríður
Hann er til dæmis meö gríöarlega stórt nef. Sérfræöingar fullyröa aö slíkur
rani falli mörgum konum afar vel ígeö eins og fleiri „útlitsgallar“.
hvemig örið varð tU. Þess vegna er
best að eiga skemmtUega sögu um
það á takteinum, jafnvel þótt það sé
síðan maður datt af vegasaltinu þeg-
ar maður var fimm ára.
Stór ístra
Þótt þrekleg ístra sé aUa jafna
ekki mjög eftirsótt þá er ákveðinn
hluti kvenna sem fellur fyrir því
sem þær kaUa „bangsatýpuna“ með-
al karlmanna. „Bangsar“ em oftar
en ekki þreknir eða feitir og það
vekur traust og gefur tU kynna að
viðkomandi sé enginn meinlæta-
maður heldur njóti lífsins
lystisemda tU hins ítrasta og kæri
sig koUóttan um nokkur aukakUó.
Lítlll rass
Margar konur kjósa stinnan og
fagurlega mótaðan rass á karlmönn-
um en grindhoraðir rasslausir karl-
ar vekja upp verndartUfinningu hjá
mörgum konum sem gerir þá aðlað-
andi. Ef karlinn er mjög horaður er
léttara fyrir hann að vera ofan á í
rúminu og konur sem eru í stöðug-
um megrunarkúrum finnst yfirleitt
aðlaðandi að hafa magurt fólk í
kringum sig.
Að vera lítill
Mörgum karlmönnum frnnst það
hræðUegt hlutskipti að vera stuttur
i annan endann. Margir telja að
konur vUji að karlinn sé að minnsta
kosti höfðinu hærri. Þetta er ekki
rétt því smávaxnar konur vUja oft
frekar karlmenn sem eru á hæð við
þær eða að minnsta kosti ekki mjög
mikið stærri. Smávaxnir menn ættu
því aUs ekki að örvænta þvi mörg-
um konum finnst sætt að vera lítiU.
Auk þess bæta smávaxnir menn
upp smæð sína með mikUl ákefð á
öðrum sviðum.
Sléttur skalli
Það er enginn skaUi eins óskap-
lega áberandi og hárkoUa. Karl-
menn sem gráta sig í svefn vegna
hármissi ættu ekki að gera það því
nær öUum konum finnst skaUi vera
sjarmerandi. Þar fyrir utan vita
Uestar konur að framleiðsla karl-
hormóns veldur mestu um hárlos og
þannig gefur skaUi tU kynna mikla
karlmennsku. SkaUi fylgir aldri og
aldri fylgir vald og ábyrgð sem hríf-
ur margar konur.
Þetta er ekki flott
Að lokum er rétt að minna á
nokkra hluti sem engum konum
finnst vera aðlaðandi, alveg sama
hvaða karlmann þeir prýða.
IUa klipptar og stórar táneglur
eru hræðUeg sjón sem fæla hvaða
konu sem er í burtu.
Heimskulegur hárvöxtur í andliti
finnst konum yfirleitt óaðlaðandi.
Þetta á við um hökutoppa og Uestar
gerðir yfirskeggja.
Gular og skakkar tennur hrífa
enga konu.
Loðnar tær þar sem myndarlegur
hárbrúskur situr á hverri tá er sér-
lega ógeðfeUt og konum fmnst slík-
ar tær sóðalegar og fráhrindandi.
Tagi í hnakkanum er einhver
misskUdasta björgunaraðgerð gegn
skaUa og aldri sem karlmönnum
hefur lengi dottið í hug. Konum
fmnst tagl vera haUærislegt og aula-
legt.
PÁÁ
(Byggt á Men’s Health)
1:1 lilllp
Nýtt Tyrkjarán
Guðmundur Andri Thorsson
skrifar í Helgarblaö DV.
Nokkrar manneskjur voru hand-
teknar á Akureyri í vikunni. Af
fréttum að dæma virðast sakargiftir
hafa verið þær að selja Akureyring-
um vonda myndlist með óhóflegri
álagningu. Fólkið hafði keypt mynd-
ir í Hong Kong fyrir rúmlega tvö-
hundruð krónur stykkið en gekk
síðan í hús á Akureyri og bauð bæj-
arbúum myndimar á sex, sjö þús-
und stykkið. Þetta voru útlending-
ar. Þetta voru meira að segja
arabar. Og ein finnsk stúlka.
Þetta var enn eitt áfallið fyrir
meint listvit þjóðarinnar. Enn
stendur yfir fár sökum þess að
óvandaðir menn hafa árum saman
komist upp með að selja auðtrúa
fólki falsanir á undirskriftum lát-
inna íslenskra málara á aðskiljan-
legustu málverk, bæði danskra
miðlungsmálara aldarinnar og eigin
framleiðslu og hafa öll kurl fráleitt
komið til grafar í því máli öllu. Og
nú þetta: skran frá Hong Kong selt
til að prýða stofur akureyskra góð-
borgara.
En samt er vandséð í hverju sök
kaupmangaranna er í rauninni fólg-
in, að þeir verðskuldi svo grimma
refsingu að hneppast í varðhald.
Skyldi það vera það athæfi að
selja landsmönnum vonda myndlist
á uppsprengdu verði? Kannski var
það nokkur seinheppni að bera nið-
ur á Akureyri, bænum sem fóstraði
Kristínu Gunnlaugsdóttur, Sigurð
Árna Sigurðsson og Þorvald Þor-
steinsson svo nokkrir Akureyringar
séu nefndir úr hópi fremstu mynd-
listarmanna þjóðarinnar. Ekki þarf
lengi að vera á Akureyri til að sjá
að einmitt þar er myndskyn mun
meira en víða annars staðar, um
það vitna garðar þeirra og hús, þó
að þeir hafi að vísu ratað i þá ógæfu
að eyðileggja Ráðhústorgið.
Hvað sem því líður þá hlýtur það
að teljast til venjulegra mannrétt-
inda að fá að reyna aö selja vondan
vaming á því verði sem kaupendur
eru reiðubúnir að gjalda, svo fremi
að hann ógni ekki lifi og heilsu
fólks teljandi. Um allt land er meira
að segja látið óátalið að fólki sé selt
eitthvert gospilluduft á ofsaverði
Raunar hefur hvers kyns
matvara flutt inn frá
löndum þar sem evran
hefur farið hríðlœkkandi
hœkkað hér á landi í
vanheilögu bandalagi
heildsala og kaupmanna.
sem á að lækna alla kvilla en getur
valdið því að fólk leitar ekki til
raunverulegra lækna með mein sín.
Það ætti að vera mun skaðlegra at-
hæfi en að selja mynda“kits“ frá
Hong Kong.
Það má líka leiða að því nokkrar
líkur að slíkur myndakostur sé orð-
inn gildur og viðurkenndur þáttur
íslenskrar menningar. Sé listrænni
blygðunarsemi Akureyringa svo of-
boðið með slíkum kaupskap - má
kannski vænta þess að lögreglu-
menn frá Akureyri taki upp á því að
ryðjast inn á heimili víða um land
tU þess þess að gera upptæk í nafni
laganna og almenns velsæmis
myndimar af drengnum með tárið
og sjómanninum með pípuna? Og
er þess ef til vill skammt að bíða að
fulltrúi fógeta mæti á allar mynd-
listarsýningar til þess að aðgæta
hvort hæfileikaleysi listamannsins
kunni að vera refsivert?
Var það kannski álagningin sem
yfirvöldum á Akureyri ofbauð? Þá
má nú margur fara að vara sig. Hér
á landi kaupum við paprikur, sellerí
og annað grænmeti sem í öllum sið-
menntuðum löndum er hundódýrt
með tollum sem miðast við Rolls
Royce og annarri eins álagningu
innflyljenda - enda grænmetisát
hér talinn fortakslaus lúxus nokk-
urra sérvitringa af ríkisstjóminni.
Raunar hefur hvers kyns mat-
vara flutt inn frá löndum þar sem
evran hefur farið hríðlækkandi
hækkað hér á landi í vanheilögu
bandalagi heildsala og kaupmanna.
Hér er með öðmm orðum dýrtíð,
einfaldlega af þeim sökum að við
kaupum vaminginn á yfirsprengdu
verði - látum með öðrum orðum
bjóða okkur hvaða verð sem er.
Hver er þá sök þessara farand-
sala? Þetta voru arabar...