Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2000, Qupperneq 29
29
LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2000
X>V__________________________________________________________________________________________________Helgarblað
Hver er grafinn hvar?
- DV skoðar legstaði nokkurra frægra manna og dýra
Hér liggur Tryggvi Gunnarsson, bankastjóri, þingmaöur og athafnamaður,
grafinn í garöinum bak viö Alþingishúsiö
Hann vildi láta jarðsettja sig hér í garðinum sem má heita handaverk hans.
Annar mjög frœgur
hestur var Trigger, sem
kúrekinn knái og söng-
elski, Roy Rogers, þeysti
á um grundir og skóga.
Trigger er ásamt Bullet,
tryggum hundi Rogers,
grafinn í garði Dale
Evans Museum t Victor-
ville í Kalifomíu.
sem fylgdi honum 1 margar orust-
ur, hét Marengo. Napoleon sat á
Marengo í orrustunni við
Austerlitz 1805 og reið honum í
herforinni til Moskvu 1812. Eftir
orrustuna við Waterloo var Mar-
engo handsamaður af Englending-
um, fluttur til Englands og notaður
til undaneldis. Beinagrind hans er
til sýnis í National Army-safninu í
Chelsea í Englandi.
Þeir sem hafa sérstakan áhuga á
þvi að heimsækja grafir frægra
manna og dýra á ferðalögum sín-
um erlendis ættu að kynna sér
gagnabankann www. findagra-
ve.com áður en lagt er af stað.
-PÁÁ
Það er stundum sagt að Netið sé
einhver merkasta uppspretta
einskis nýtra upplýsinga sem nú-
tímafólk hefur aðgang að. Þar er
meðal annars að finna einkar fróð-
legan vef sem skráir hinstu leg-
staði frægs fólks viða um heim.
Þetta er ítarlegur gagnabanki sem
getur verið afar fræðandi og
skemmtilegt að rölta um en hann
er að finna undir slóðinni: www.
fmdagrave.com.
Alls eru 2,5 milljónir manna og
dýra í grunninum og við grípum af
handahófi niður í flokk þekktra
glæpamanna og misindismanna og
lítum á nokkra legstaði.
Einn íslendingur
Að sjálfsögðu byrjum við á því
að athuga hvort legstaðar eins-
hvers íslendings sé getið í téðum
grunni. Aðeins einn íslendingur er
nefndur þar og það er Tryggvi
Gunnarsson. Og hver var Tryggvi
Gunnarsson? Jú, hann var þing-
maður, bankastjóri og athafnamað-
ur sem fæddist 1835 og dó 1917.
Hann lét talsvert til sín taka á
sinni tíð og fékk mynd af sér á pen-
ingaseðil en góðlegt andlit hans
prýddi lengi 100 króna seðil sem
eldri kynslóðir muna eftir. Tryggvi
skipulagði og bjó til garðinn bak
Lee Harvey Oswáld, sem
myrtijohn F. Kennedy,
forseta Bandaríkjanna,
1963, mun vera grafinn í
Rose Hill Memorial Park
í Forth Worth í Texas.
Óstaðfestar sögur herma
að líki hans hafi verið
stolið, það síðan fundist
aftur í Oklahoma og
verið flutt í ómerktan
reit undir nafhinu
„William Boho“.
við Alþingis-
húsið og þegar
hann lést var
hann grafinn
þar en ekki í
kirkjugarði.
Það er hægt að
skoða minnis-
merki á legstað
hans í garðin-
um.
En lítum á
fleiri.
Frægir
glæpamenn
Ma Barker er
þekktasti
glæpaforingi
kvenkyns sem
uppi var í Am-
eríku. Hún er
grafin í Willi-
ams Cemetery í
Welch í Okla-
homa.
Clyde Bar-
row, helming-
urinn af Bonnie
og Clyde, liggur
í Westem
Heights Cemet-
ery í Dallas í
Texas.
John Booth
Wilkes, sem
myrti Abraham
Lincoln, er
jarðaður í
Green Mount
Cemetery í
Baltimore í
Maryland.
A1 Capone,
einn frægasti
glæpaforingi Ameriku, liggur í
Mount Carmel-garðinum í Hillside
í Illinois.
Jeffrey Dahmer er meðal þekkt-
ustu raðmorðingja í Ameríku.
Hann lést í fangelsi, var brenndur
og foreldrar hans sem höfðu skilið
fengu sinn helminginn hvor.
Lee Harvey Oswald, sem myrti
John F. Kennedy, forseta Banda-
rikjanna, 1963, mun vera grafinn í
Rose Hill Memorial Park í Forth
Worth í Texas. Óstaðfestar sögur
herma aö líki hans hafi verið
Napóleon Frakklandskeisari átti sér uppáhaldshest sem
hét Marengo, Sá er varðveittur á safni í Chelsea.
stolið, það síðan fundist aftur í
Oklahoma og verið flutt í ómerkt-
an reit undir nafninu „William
Bobo“.
Hjónin Ethel og Júlíus Rosen-
berg voru tekin af lífi í Bandaríkj-
unum árið 1953 fyrir njósnir. Mik-
ið hefur verð deilt um sök þeirra
eða sakleysi fyrr og nú. Þau eru
grafin í Wellwood-kirkjugarðinum
í Farmingdale á Long Island.
Jack Ruby sem varð frægur fyr-
ir að myrða Lee Harvey Oswald í
höndum lögreglunnar skömmu eft-
ir morðið á Kennedy er grafmn í
Westlawn-kirkjugarðinum í
Chicago í Illmois.
Hvar ertu, Sámur minn?
Nú getur meira en verið að les-
endum fmnist það heldur drunga-
leg umfjöllun að horfa einungis til
legstaða þekktra óbótamanna.
Reynum að hressa þetta við og lít-
um á legstaði nokkurra þekktra
dýra eða gæludýra en ferfætlingar
fá alveg sérstakan flokk í umrædd-
um gagnagrunni um legstaði. Eins
og fyrri daginn er fátt um íslensk
dæmi en allmargar sagnir eru um
að hestamenn hafi látið heygja eft-
irlætisgæðinga sína á sérstökum
stöðum heima í túni. Þannig mun
Sóti, gæðingur Gríms Thomsens,
skálds og Bessastaðabónda, vera
heygður í túninu á Bessastöðum.
Annar mjög frægur hestur var
Trigger, sem kúrekinn knái og
söngelski, Roy Rogers, þeysti á um
grundir og skóga. Trigger er ásamt
Bullet, tryggum hundi Rogers,
grafmn í garði Dale Evans Muse-
um í Victorville í Kalifomíu.
Annar frægur söngvari var Jim
Reeves sem söng mörg vinsæl lög á
sjötta áratugnum. Hann átti hund-
inn Cheyenne sem er grafinn í Jim
Reeves Memorial Park í Galloway
í Texas.
Checkers hét hundur Richards
Nixons sem aldrei sneri baki við
húsbónda sínum, ólikt mörgum
öðrum. Checkers er grafinn í Bide-
A-Wee-garðinum í Wantagh í New
York.
Uppáhaldshestur Napóleons,
notaðirbílar www.brimborg.is
«B»brimborgar
5"^
MMC Lancer 1,3, 05/96
ssk., 4 d., silfur, ek. 51 þ. km,
fr.dr.Verð 960.000.
Daihatsu Move 850,10/98
ssk., 5 d., vínr., ek. 20 þús. km, framdrif.
Verð 730.000. Tilboð 630.000.
Subaru Legacy 2,0, 04/99
ssk., 5 d„ vínr., ek. 18 þús. km, 4x4.
Verð 1.970.000.
G,
brimborg
Reykjavlk • Akureyrl
Opið laugardaga 11-16
Ford Ranger 4.0, 06/93
5 g„ 2 d„ vínr., ek. 125 þ. km, 4x4.
Verð 890.000. Tilboð 770.000.
Daihatsu Gran Move 1,5, 07/97
5 g„ 5 d„ Ijósgr., ek. 46 þ. km, fr.dr.
Verð 880.000.
Suzuki Vitara 1,6, nóv. '98,
5 g„ 3 d„ rauður, ek. 28 þús. km, 4x4.
Verð 1.345.000.
VW Golf 1,8, 09/92
5 g„ 3 d„ r„ ek. 82 þús. km, framdrif.
Verð 590.000.