Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2000, Blaðsíða 31
LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2000
31
I>V
Helgarblað
Reiöhjólasnillingur á Hverfisgötunni
Magnús Örn gerir viö a.m.k. 1500 reiðhjól á ári auk þess sem hann hefur
50 reiðhjól á sínum snærum til útleigu.
Hjólhesta-
fróðleikur
... reiðhjólið er mest notaða
farartæki í heimi.
... 200-300 árum fyrir Krist
voru ökutæki sem líktust
reiðhjólum notuð í Kína.
... fyrsta stigna reiðhjólið
var smíðað af skoskum járn-
smið, Kirkpatric Macmill-
an, árið 1839 og er það
geymt á Science Museum í
London.
... því var lengi haldið fram
að hjólreiðar væru beinlínis
skaðlegar kvenleikanum og
að kvenmenn ættu alls ekki
að hjóla.
... franski vélvirkinn Pierre
Lallement smíðaði reiðhjól
með stignu framhjóli árið
1861 og upp úr 1870 kom
fram sérstök gerð með
stóru stignu framhjóli og
litlu afturhjóli sem náði
miklum vinsældum.
... fyrsta reiðhjólið með
tveimur jafnstórum hjólum
og keðjudrifnu afturhjóli
var smíðað árið 1874 af
Englendingnum H.J. Law-
son.
- vissir þú að...
... fyrstu reiðhjólin sem vit-
að er um að hafi verið flutt
til íslands sáust í
Reykjavík árið 1890.
... reiðhjólaviðgerðamenn í
Kína geta verið með allt að
fimm sinnum hærri laun en
háskólaprófessorar, enda
þýðing reiðhjólsins í Kína
augljós.
... meira var flutt inn af
reiðhjólum til íslands á ár-
unum 1980 til 1990 en sam-
anlagt árin 1890-1980.
... árið 1887 komu loftfylltir
hjólbarðar til sögunnar.
.... fyrsta hlaupahjólið var
hannað af Frakkanum de
Sivrac árið 1790 og var end-
urbætt af þýska baróninum
Karl von Drais árið 1817.
.. lengsta eiginlega tvíhjól í
heimi er 20,4 metra langt,
með sæti fyrir 35 manns.
Því var hjólað 60 km
leið með fullri áhöfn
árið 1979 en það vegur
1100 kg.
... fyrsta stigna reiðhjólið
var smíðað af skoskum jám-
smið, Kirkpatric Macmill-
an, árið 1839 og er það
geymt á Science Museum í
London.
... Fyrsta keppnin á fót-
stignum reiðhjólum var
haldin 1868, rétt fyrir utan
París, og voru farnir 1200
metrar.
Reynsla og þekking,
vönduð og
persónuleg þjónusta.
Opiö
fö&ifeMÍ 9 • S. 383 H3DO
Magnús Örn Óskarsson hefur gert viö
reiðhjól í Reykjavík í 18 ár:
Fannst þægi-
legt að vera á
stelpuhjóli
„Það var frekar slæmt atvinnuá-
stand í kringum 1982-83 og mig vant-
aði einfaldlega vinnu,“ segir Magnús
Öm Óskarsson, eigandi reiöhjólaverk-
stæðisins Borgarhjóls, spurður um til-
urð íyrirtækisins sem orðið er 18 ára.
Verkstæðið er til húsa að Hverfisgötu
50 en byrjaði starfsemi sína á Vitastíg.
Þaðan flutti það í kjallara verslunar-
innar Hjá Báru og fór svo í núverandi
húsnæði fyrir tveimur árum: „Ég kom
úr jámavinnu og hafði verið vélstjóri
þannig að þetta starf hentaði mér
ágætlega. I byrjun var verkstæðiö lok-
að yfir vetrarmánuðina. Ég var á sjó
frá nóvember til mars en þá passaði að
byija aftur í hjólunum því það er svo
dauður tími þama á milii. Það er það í
rauninni enn en núna er ég kominn
með fleira áhangandi reiöhjólaviðgerð-
unum. Ég smíða einnig reiðhjólagrind-
ur, er með hjólaleigu og sel leðurfatn-
að fyrir mótorhjólafólk," segir Magnús
sem opnar dyrnar kl. 8 á morgnana.
24 tommu dómuhjól
Á hveiju ári gerir Magnús við
minnst 1500 hjól.
„Það er náttúrlega alltaf að springa
hjá fólki,“ segir Magnús og bendir á að
almennt viðhald sé orðið miklu meira
á reiðhjólum í dag síðan fjallahjólin
komu til sögunnar. Hann segir líka að
stelpumar virðist vera miklu duglegri
að bæta slöngumar sjáifar heldur en
strákamir. Þær séu einfaldlega harð-
ari af sér og hagsýnni.
Sjálfur hjólar Magnús ekki mikið,
ekki lengur, en hann man þó vel sitt
fyrsta reiðhjól.
„Mitt fyrsta reiðhjól var 24 tomma
Hercules-dömuhjól. Það var ágætis
hjól og mér fannst bara þægilegt að
vera á dömuhjóh. Á þessum tíma vom
ekki til bamareiðhjól og því hjóluðu
strákar undir slá á fullorðinshjólum.
Krakkar fengu hjól seinna en í dag og
það var erfiðara fyrir þá að læra að
hjóla á svona stórum hjólum, fyrir
utan það að mjög víða vom skilyrðin
ekki góð. Ég er t.d utan af landi og þar
var ekkert nema malargötur til að
hjóla á. í dag er þetta ailt orðið miklu
þægilegra," segir Magnús sem man
greiniiega tímana tvenna.
Koma illa undan vetri
Það em ails konar hjól sem lenda
inni á borði hjá Magnúsi en þessa dag-
ana er meira en nóg að gera hjá hon-
um enda margir að taka fram hjólin
eftir veturinn. „Mörg hjól koma mjög
illa undan vetri. Það verður nefnilega
að búa hjól vel undir veturinn. Æski-
legast er náttúrlega að hjól séu geymd
innanhúss á vetuma og keðjumar séu
smurðar vel áður en hjólunum er
lagt,“ segir Magnús sem getur þó lag-
fært það mesta. „Þeir sem nota hjólin
sín mikið þurfa að láta kíkja á þau
tvisvar til þrisvar á ári. Það þarf að
stilla gíra, bremsur og smyija en fólk
virðist gera þetta mjög lítið sjálft,“ seg-
ir Magpús sem segist sjá samdrátt í
hjólamenningu landans.
„Það er samdráttur i gangi, a.m.k. í
vissum aldursflokkum. Það em komin
önnur áhugamál sem taka bömin frá
hjólunum," fullyrðir Magnús.
Er dýrt aðfara með hjól í vortékk til
þín?
„Nei, það er ekki dýrt, en það er
hins vegar dýrt að fara illa með hjól,“
segir Magnús öm að lokum. -snæ
Eiqum þessi hjól
fyrirligqjandi á laqer
C R - 5 0 0 R
1 cyl. • 491 cc
65 hestöfl • 101 kg
^Verð kr. 685.000,-y
2 cyl. • 996 cc
110 hestöfl • 192 kg
^Verð kr. 1.060.000.-^
V T R -1 0 0 0 F
VTR-1000 ’-acing
2 cyl. • 999 cc
136 hestöfl • 190 kg
iVerð kr. 1.430.000.-^
V T -11 0 0 C3
2 cyl. • 1099 cc
58 hestöfl • 279 kg
^Verð kr. 1.080.000.-^
C B R - 6 0 0 F
4 cyl. • 929 cc
152 hestöfl • 170 kg
Verð kr. 1.239.000,-
4 cyl. • 599 cc
110 hestöfl • 170 kg
Verð kr. 999.000.-
: B R 9 0 0 R R
6 cyl. • 1520 cc
100 hestöfl • 300 kg
yVerð kr. 1.499.000.-^
2 cyl. • 745 cc
43 hestöfl • 229 kg
^Verð kr. 880.000.-y
HONDA
Gunnar Bernhard ehf.
Vatnagörðum 24 • Sími: 5201100